Fréttablaðið - 20.11.2017, Blaðsíða 12
ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU!
Bólgueyðandi og verkjastillandi
munnsogstafla við særindum í hálsi
www.apotekarinn.is
- lægra verð
Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta
leysast upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Strefen-5x10-apotekarinn.indd 1 14/09/2017 09:46
júlían heimsmeistari
Kraftlyftingamaðurinn júlían j.
K. jóhannsson varð um helgina
heimsmeistari í réttstöðulyftu
annað árið í röð.
júlían lyfti 370 kílóum, sem
dugði til sigurs í greininni. júlían
reyndi við 400 kg, sem er heims-
metið í greininni, en án árangurs.
Okkar maður var með 1.060 kg í
samanlögðum árangri sem skilaði
honum bronsi í yfirþungavigt
(+120 kg flokki).
úkraínumaðurinn Volodymyr
svistunov og tékkinn David lupac
lyftu báðir 1127,5 kílóum. júlían
lyfti 390 kg í hnébeygju og 300 kg í
bekkpressu.
Viktor samúelsson úr Kraftlyft-
ingafélagi akureyrar keppti í gær
í 120 kg flokki. honum tókst ekki
að fá gilda hnébeygju og var því úr
leik í samanlagðri keppni.
ValDís tryggði réttinn
atvinnukylfingurinn Valdís Þóra
jónsdóttir varð í þriðja sæti á móti
í evrópumótaröðinni um helgina
en það fór fram í Kína. Þetta var
hennar besti árangur á mótaröð-
inni en hún hafði best náð 22. sæti
áður. Fyrir þennan árangur fékk
hún 2,2 milljónir króna.
Það sem meira er að þessi
árangur tryggir henni áframhald-
andi keppnisrétt á evrópumóta-
röðinni sem er sú næststerkasta í
heiminum. 80 efstu kylfingarnir á
peningalistanum hvert ár fá áfram-
haldandi þátttöku-
rétt. Valdís Þóra stökk
úr 113. sætinu í sæti
50 með þessum magnaða
árangri um helgina.
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir endaði
svo í kringum 60. sæti
á lokamóti lPga-
mótaraðarinnar sem
er sterkasta mótaröðin.
hún var þegar búin að
tryggja sér þátttökurétt
á mótaröðinni á næsta
keppnistímabili.
Júlían vinnur heimsmeistaratitil á
hverju ári. fréttablaðið/anton
mma Björn lúkas haraldsson fór á
kostum á hm áhugamanna í blönd-
uðum bardagalistum, mma, sem
kláraðist um nýliðna helgi í Barein.
Þar fór mjölnismaðurinn alla leið í
úrslit í millivigtinni.
Þar mætti hann svíanum Khaled
laallam í úrslitum og varð að sætta
sig við tap á dómaraúrskurði. Björn
lúkas flaug alla leið inn í úrslit en
hann kláraði alla andstæðinga sína
í fyrstu lotu áður en hann lenti í
klóm svíans.
„ég er alveg í skýjunum með
þetta. hef ekki verið í þessu sporti
lengi, fékk stórt tækifæri og gæti
ekki verið sáttari,“ segir hinn 22 ára
gamli Björn lúkas er íþróttadeild
heyrði í honum eftir mótið.
„ég var ekki að búast við neinu
sérstöku fyrir þetta mót. renndi
blint í sjóinn þannig séð og ætlaði
bara að gera mitt besta. Þetta gekk
svo bara ótrúlega vel hjá mér. ég fór
bara eftir flæðinu hverju sinni og
er sterkur alls staðar þó svo ég hafi
klárað flesta bardagana á armlás.“
Svíinn var betri
eftir að hafa klárað fjóra bardaga á
samtals sjö og hálfri mínútu kom
að því að Björn lúkas fór allar þrjár
loturnar í úrslitabardaganum.
„mér fannst ég hafa unnið fyrstu
lotuna þar sem ég reyndi stíft að
klára bardagann. svo tók hann
seinni tvær loturnar. helvíti sterkur
og flottur gaur. hann var bara betri
þennan dag og átti skilið að vinna,“
segir Björn lúkas auðmjúkur.
„nú veit ég hvar ég stend í þessum
bransa. ég á alveg heima meðal
þeirra bestu. ég mætti hingað með
tvo bardaga á bakinu og sá fyrsti var
fyrir hálfu ári. nú veit ég að ég á fullt
erindi í þetta.“
Þó svo Björn lúkas sé ekki búinn
að vera lengi í mma þá kom hann
inn í íþróttina með flottan bak-
grunn.
„ég hef æft mma í tvö ár en á
undan því var ég í júdó, tækvondó,
brasilísku jiu-jitsu og hnefaleikum.
ég kom því með sterkan grunn sem
þurfti að púsla saman í mma,“ segir
okkar maður en hann ætlar sér stóra
hluti í íþróttinni á næstu árum.
Ætlar alla leið
„ég ætla bara að slaka á núna og svo
ákveða næsta skref hjá mér. loka-
markmið hjá mér að fara alla leið
og það hefur alltaf verið þannig.
UFC eða Bellator. Það eru líka stór
samtök hérna úti í Barein og það var
flott sýning hjá þeim. ég er búinn
að skapa mér nafn núna og hver
veit nema mér verði boðið aftur út
hingað.“
grindvíkingurinn er búinn að
næla sér í mikla reynslu á þessu
móti og líka í því að tala við fjöl-
miðla sem er fylgifiskur þess að
ná árangri. hann þurfti að mæta
á blaðamannafundi og fannst það
mjög erfitt.
„Það var eiginlega erfiðara en að
berjast. mér hefur sjaldan liðið eins
óþægilega. Þarna var ég kominn
út fyrir þægindarammann minn,“
segir Björn lúkas og hlær en það
verður spennandi að fylgjast með
honum á komandi árum.
henry@frettabladid.is
Ég á heima meðal þeirra bestu
Bardagakappinn Björn Lúkas Haraldsson kemur heim með silfur af heimsmeistaramóti áhugamanna í
MMA. Grindvíkingurinn sló í gegn á mótinu þar sem hann pakkaði andstæðingum sínum saman.
Sigurreifur. björn lúkas fagnar hér einum af sigrum sínum á HM áhugamanna í MMa sem fram fór í barein. Mynd/Jorden Curran/ iMMaf
2 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m Á n U D a G U r12 S p o r t ∙ F r É t t a b L a ð i ð
sport
2
0
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
4
1
-4
8
9
C
1
E
4
1
-4
7
6
0
1
E
4
1
-4
6
2
4
1
E
4
1
-4
4
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K