Fréttablaðið - 20.11.2017, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 20.11.2017, Blaðsíða 8
www.olafsson.is Endursöluaðilar um land allt Snjöll lýsing! OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið að þínum þörfum með Appi LED lausnir frá Lýsing fyrir götur, göngustíga og bílastæði. Ráðgjöf og nánari upplýsingar má fá hjá sölumönnum. Smart City lausnir Jóhann Ólafsson & Co. Krókháls 3, 110 Reykjavík 533 1900 sala@olafsson.is Þetta snýst um betra grip Vinur við veginn Þú færð tjöruhreinsinn og allar hinar vetrarvörurnar fyrir bílinn hjá Olís. 10% afsláttur af bílavörum til lykil- og korthafa ENGLAND Bankastjóri bandaríska stórbankans Goldman Sachs, Lloyd Blankfein, hefur á Twitter-síðu sinni hvatt til þess að haldin verði ný þjóðar atkvæðagreiðsla í Bretlandi um Brexit, útgönguna úr Evrópu- sambandinu. Goldman Sachs hefur þegar til- kynnt að hundruð starfa verði flutt frá London þegar Bretar ganga úr Evrópusambandinu. Blankfein segir marga vilja atkvæðagreiðslu sem sýni hvort það sé í raun grund- völlur fyrir jafn afgerandi og óaftur- kallanlegri ákvörðun. Margt sé í húfi. Hvers vegna ekki að tryggja að þjóðin styðji enn Brexit? spyr bankastjórinn. Fleiri aðilar hafa hvatt til þess að ákvörðunin verði endurskoðuð. – ibs Vill kjósa á ný um Brexit Lloyd Blankfein, bankastjóri Gold- man Sachs. ÞÝSKALAND Fulltrúar Kristilegra demókrata og systurflokks hans, Frjálslyndra demókrata, og Græn- ingja funduðu langt fram á kvöld í gær í þeirri von að geta hafið form- legar stjórnarmyndunarviðræður. Náist slíkt samkomulag ekki verður að boða til nýrra kosninga í Þýska- landi. Niðurstaða fundarins lá ekki fyrir þegar Fréttablaðið fór í prent. Óformlegar viðræður flokkanna, sem kallaðar hafa verið Jamaíku- flokkarnir þar sem einkennislitir þeirra eru hinir sömu og í þjóðfána Jamaíku, hafa staðið yfir í rúmar þrjár vikur. Síðasta fimmtudag var gefið út að fundað skyldi til þrautar og að niðurstaða myndi liggja fyrir degi síðar. Það gekk ekki eftir og héldu fundahöld áfram alla helgina. „Viðræðurnar sigla hraðbyri í framlengingu,“ sagði Cem Özdemir, formaður Græningja, þegar fundar- hlé var gert síðastliðinn föstudag. Þingkosningar fóru fram í Þýska- landi 24. september síðastliðinn. Ríkisstjórnarflokkarnir Kristilegir demókratar og Sósíaldemókrata- flokkurinn héldu meirihluta sínum á þinginu en síðarnefndi flokkurinn hlaut sína verstu kosningu frá stríðs- lokum. Útilokaði flokkurinn af þeim sökum þátttöku í ríkisstjórn. Verði niðurstaðan sú að ekki sé grundvöllur fyrir formlegum viðræð- um krefst stjórnskipan Þýskalands þess að boðað sé til nýrra kosninga. Enginn flokka á þingi er spenntur fyrir þeirri niðurstöðu, þó helst þjóð- ernissinnaði flokkurinn AfD. – jóe Framlenging til að afstýra nýjum þingkosningum Angela Merkel mætir til fundar í Baden-Württemberg um helgina. Merkel hefur verið kanslari í tólf ár og stefnir á fjögur ár í viðbót. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA SIMBABVE Robert Mugabe, forseta Simbabve, hafa verið settir afarkostir. Annaðhvort segi hann af sér sem for- seti landsins af sjálfsdáðum eða verði ella hrakinn úr embætti með van- trausti þingsins. Mugabe hefur verið gefinn frestur til miðdegis í dag til að segja af sér. Forsetinn ávarpaði þjóð sína í beinni útsendingu í ríkissjónvarpinu seint í gærkvöldi. Flestir bjuggust við því að í ávarpinu myndi hann segja af sér en öldungurinn skautaði alfarið fram hjá því. „Við verðum að læra að fyrirgefa og jafna ágreining, raunverulegan jafnt sem tilbúinn, í þeim anda sem Simbabve hefur vanist. […] Ég er sannfærður um, að frá og með kvöld- inu í kvöld muni landið okkar setja stefnuna fram á við,“ sagði Mugabe í ávarpinu. Hann lauk því á orðunum „þakka ykkur og góða nótt“ en þá hafði hann ekki minnst einu orði á mögulega afsögn eða þá pressu sem flokkurinn hafði sett á hann. Simbabve hefur verið í hers hönd- um frá því um miðja síðustu viku. Hermenn á skriðdrekum óku þá inn í höfuðborgina Harare og settu forsetann í stofufangelsi. Í raun var um byltingu að ræða. Ástæðan fyrir aðgerðinni var sú að forsetinn rak varaforseta sinn, Emmerson Mnang- agwa, úr embætti auk þess sem aðrar hreinsanir Mugabe í Zanu-PF fóru illa í herinn. „Við komum saman hér í dag af illri nauðsyn. Eiginkona Mugabe og þeir sem standa henni næst hafa nýtt sér bágt ástand forsetans til að skara eld að sinni köku,“ sagði Opert Mpofu, innanríkisráðherra, á mið- stjórnarfundi Zanu-PF í gær. „Ég býð ykkur velkomna á þennan sögulega fund sem mun marka þáttaskil, ekki aðeins fyrir land vort heldur einnig fyrir flokkinn.“ Fundurinn samþykkti yfirlýsingu þar sem Mugabe var settur af sem formaður og Mnangagwa gerður að formanni í hans stað. Að auki voru áðurnefndir afarkostir samþykktir af fulltrúum fundarins og Grace Mugabe, eiginkona forsetans, rekin með skömm úr flokknum ásamt sínum helstu samstarfsmönnum. Um helgina flykktist fólk út á götur og fagnaði því að valdatíð hins 93 ára gamla Mugabe væri brátt á enda. Ekki er langt síðan að slíkt hefði þótt óhugsandi. Mugabe hefur stýrt land- inu, fyrst sem forsætisráðherra og síðar sem forseti, frá því að Simbabve fékk sjálfstæði frá Bretum árið 1980. johannoli@frettabladid.is Settur af sem formaður en hyggst sitja áfram Forseta Simbabve bíður vantraustsyfirlýsing síðar í dag segi hann ekki af sér af sjálfsdáðum. Skautaði fram hjá aðstæðum í ávarpi í gærkvöldi. Eiginkona hans og samstarfsmenn hennar hafa verið rekin með skömm úr stjórnarflokknum. Það mátti greina mikla ánægju á miðstjórnarfundi Zanu-PF þegar forsetinn var settur af. NORDIC PHOTOS/AFP Robert Mugabe, forseti Simbabve. 2 0 . N ó V E M B E r 2 0 1 7 M Á N U D A G U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t A B L A ð I ð 2 0 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 4 1 -6 1 4 C 1 E 4 1 -6 0 1 0 1 E 4 1 -5 E D 4 1 E 4 1 -5 D 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 1 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.