Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 6
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15
ÁHRIFARÍK
SAMTÍMASAGA
Venjulegt fólk leitar að ást, hlýju og
merkingu í óútreiknanlegum heimi
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið
„… hann er góður stílisti og frumlegur.“
Karl Blöndal / Morgunblaðið
FIT hefur þannig
mörg dæmi um stór
verk þar sem ekki finnst einn
einasti fagmenntaður
iðnaðarmaður
að störfum
Hilmar Harðar-
son, formaður FIT
Vinnumarkaður Félag iðn- og
tæknigreina (FIT) hefur í athugunum
sínum á fagþekkingu starfsfólks í
byggingariðnaði oft á síðustu árum
komið að framkvæmdum þar sem
enginn er skráður með fagþekkingu.
Hilmar Harðarson, formaður
félagsins, skrifaði um málið í frétta-
bréfi félagsins sem kom út nú fyrir
skömmu. „Fit hefur þannig mörg
dæmi um stór verk þar sem ekki
finnst einn einasti fagmenntaður
iðnaðarmaður að störfum.“ Einn-
ig segir Hilmar í grein sinni að „fáir
kaupendur yrðu væntanlega að
íbúðum í stórhýsum ef þeir yrðu
upplýstir um að fagmenntaðir iðn-
aðarmenn hefðu hvergi komið þar
nærri.“
Þegar Hilmar er spurður út í þetta
segir hann að FIT hafi í skoðunum
sínum hingað og þangað fundið þó
nokkuð mörg dæmi á síðustu árum
þar sem þeir finna ekki nokkurn
skráðan iðnaðarmann í stórum
sem litlum verkefnum. Gerðar eru
þær kröfur að menntaður iðnaðar-
maður sé í öllum verkum og innan
handar og að meistari sé skrifaður
fyrir verki. „Já, það eru þó nokkur
dæmi sem við höfum séð. Okkar
verkefni sem ber heitið Einn réttur
– ekkert svindl, snýst einmitt um
að menn hafi allt á hreinu. Ég get
ekki nafngreint fyrirtæki í þessum
efnum en þessar upplýsingar eru
hjá Vinnumálastofnun og ég skora á
að menn skoði hverjir koma erlendis
frá og hvernig þeir eru skráðir,“
bætir Hilmar við.
Vinnumálastofnun gaf í október
út 164 atvinnuleyfi til útlendinga til
starfa hér á landi. Hefur stofnunin
gefið út 1.546 atvinnuleyfi það sem af
er árinu 2017 en það eru fleiri útgefin
atvinnuleyfi en allt árið 2016
Svo virðist sem fyrirtæki sem fái
til sín erlenda starfsmenn en skrái
þá frekar sem verkamenn en iðn-
aðarmenn þó þeir hafi iðnmenntun
úr sínu heimalandi. Því veit FIT ekki
hvort fyrirtæki séu með iðnaðar-
menn á sínum snærum. „Það sem við
erum að gagnrýna er að þessi fjöldi
erlendra starfsmanna sem koma
hingað til landsins eru langflestir
skráðir verkamenn. Okkur þykir það
einkennilegt. Þá þarf að greiða þeim
eftir lágmarkstöxtum verkamanna
en ekki iðnaðarmanna. Í raun og
veru erum við að gæta hagsmuna
skjólstæðinga okkar með því að
skoða þessi mál náið,“ segir Hilmar.
sveinn@frettabladid.is
Ekki einn einasti fagmenntaður
í stórum byggingarverkefnum
Hilmar Harðarson, formaður Félags iðn- og tæknigreina (FIT), segir einkennilegt að flestir erlendir starfs-
menn séu skráðir sem verkamenn. Mörg stór verk hér á landi séu unnin án þess að skráður iðnaðarmaður
komi nærri þeim. Fyrirtæki fá til sín erlenda starfsmenn en skrá þá sem verkamenn þrátt fyrir iðnmenntun.
Fjöldi útlendinga sem fengið hafa atvinnuleyfi hér á landi á árinu er nú þegar orðinn meiri en 2016. Fréttablaðið/SteFán
skipulagsmál „Það er svo mikið af
staðreyndavillum sem virðast teknar
sem sannleikur í þessu máli,“ segir
Vala Garðarsdóttir fornleifafræðing-
ur sem stjórnaði fornleifauppgreftri
á Landsímareitnum.
Vala sakar í yfirlýsingu á Facebook
menn úr hópi, sem kallar sig Varð-
menn Víkurgarðs og berst gegn upp-
byggingu hótels þar sem áður var
bílastæði á Landsímareitnum, um
að „fara rangt með staðreyndir, villa
fyrir um og stinga höfðinu í sandinn
við öllu því sem er rétt og staðreynd
í þessu máli“.
Þessa menn segir Vala hafa kallað
hana unga, sæta „fornminjafræðing-
inn“ og klipið hana svo í rassinn.
Við Fréttablaðið segir Vala hótel-
bygginguna tilfinningalegt mál fyrir
þennan hóp. Hún hafi skilning á því.
„En mér hefur fundist ábótavant að
þeir fari rétt með staðreyndir.“
Að sögn Völu vill þessi hópur fyrst
og fremst ekki hótel á Landsíma-
reitnum. „Það er rótin að þessu öllu
saman. Það er ekki mitt að segja hvað
þeim á að finnast um það en það
hvernig þeir bera fyrir sig söguna og
fornminjar er meðal sem mér finnst
ekki helga tilganginn.“
Helstu rangfærslu hópsins segir
Vala þá að jarðneskar leifar séu enn
á svæðinu. Það sé ekki rétt.
„Þeir halda því líka fram að nýja
viðbyggingin sem var reist 1967 sé á
súlum og að þar séu enn þá jarðnesk-
ar minjar – sem er ekki rétt vegna
þess að sökkullinn nær alveg niður í
gamla fjarðarbotninn,“ útskýrir Vala.
Vala segir um að ræða um það bil
fimmtán manna hóp. Flestir séu
heiðursmenn eins og séra Þórir
Stephensen, Friðrik Ólafsson, Þór
Magnússon og Helgi Þorláksson en
sumir hreint ekki. Nokkrir þeirra
hafi skrifað í blöðin og kallað hana
litla stelpu og stelpuskjátu.
„Ég hef verið á fundum með tveim-
ur mönnum, sem ég vil ekki nafn-
greina, þar sem ég var spurð hvort ég
vildi ekki bara hætta að tala og hlusta
á mér eldri og vitrari menn og fékk
svo nett klíp í rassinn þegar ég labb-
aði út,“ lýsir Vala samskiptum sínum
við þessa tvo menn.
„Ég hef alltaf reynt að vera vitrari
í þessari umræðu og sagði ekki neitt
en leit á þá með illu augnaráði,“ segir
Vala um viðbrögð sín við áreitninni.
„Þetta gerist svo lítið ber á. Ef þetta
væri sýnilegt þá myndu almennilegir
menn kannski segja eitthvað við því.“
– gar
Tveir Víkurgarðsmenn sagðir hafa klipið fornleifafræðing í rassinn
Vala Garðarsdóttir hefur tuttugu ára
reynslu við fornleifauppgröft.
Fréttablaðið/SteFán
lögreglumál Tveir menn voru
handteknir, grunaðir um að hafa
ráðist á fimm ára dreng í höfuð-
borginni í gær. Rannsókn málsins
er vel á veg komin, en að sögn lög-
reglu var ekki talin ástæða til að
fara fram á gæsluvarðhald. Menn-
irnir tveir neita sök og bera fyrir sig
minnisleysi.
Í samtali við fréttastofu í gær
lýsti Fanney Hólm Margrétardóttir,
móðir drengsins, árásinni. „Maður-
inn horfir svona á mig og ég sé að
hann er að æða að bílnum. Ég reyni
að læsa en næ því ekki, enda gerðist
þetta allt svona hratt.“
Málið telst að mestu upplýst en
ákæruvaldið mun taka afstöðu til
þess hvort gefin verði út ákæra. – sks
Ráðist á fimm
ára dreng
Veður Átta bíla árekstur varð á
Holtavörðuheiði í gær og var heið-
inni lokað í kjölfarið, bæði vegna
óhappsins og vegna versnandi veð-
urs. Minniháttar slys urðu á fólki en
enginn er talinn alvarlega slasaður.
Veðrið mun halda áfram að leika
Íslendinga grátt í dag og verður
appelsínugul viðvörun í gildi á Vest-
fjörðum, Ströndum, Norðurlandi
vestra, Norðurlandi eystra, Aust-
fjörðum og Suðausturlandi.
Á Norðurlandi eystra er spáð tals-
verðri snjókomu allan morgundaginn
og verður skyggni lítið. Þar af leiðandi
er ekkert ferðaveður á svæðinu. Svip-
aða sögu er að segja af hinum svæð-
unum þar sem appelsínugul viðvörun
er í gildi en vindhviður á Austfjörðum
gætu meðal annars farið yfir fjörutíu
metra á sekúndu.
„Hættulegt að ferðast í ökutækj-
um á svæðinu,“ segir í spánni fyrir
Suðausturland aðfaranótt morgun-
dagsins. – þea
Óveðri spáð
víða um land
2 4 . n ó V e m b e r 2 0 1 7 F ö s T u D a g u r4 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
5
0
-E
1
D
0
1
E
5
0
-E
0
9
4
1
E
5
0
-D
F
5
8
1
E
5
0
-D
E
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K