Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 12
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Við látum framtíðina rætast.
100% PALLBÍLL. 100% KRAFTUR.
Volkswagen Amarok.
Glæsilegur pallbíll með 3.0 lítra, 224 hestafla, V6 dísilvél og
550 Nm togi. Hann er með fullkomnu 4Motion fjórhjóladrifi
og dráttargetan er 3.500 kg. Búnaður Amarok er einstaklega
ríkulegur en Amarok sameinar kosti lúxusjeppa og pallbíls.
Verð frá kr. 7.250.000
V6 3.0L TDI
Viðskipti Saltvinnslufélagið Salt-
verk Reykjaness ehf. hefur verið
úrskurðað gjaldþrota eftir áralangar
deilur og átök innan eigendahóps
félagsins. Það var Garðar Stefáns-
son, einn stofnenda félagsins, sem
fór fram á gjaldþrotaskiptin sem
hann segir einu leiðina til að fá upp-
lýsingar um ólögmæta sölu eigna út
úr því árið 2013. Sölu sem gerð var
án hans vitundar sem hluthafa en
fyrrverandi viðskiptafélagar hans
segja hafa verið nauðsynlega til að
bjarga félaginu.
Saltverk Reykjaness var stofnað
árið 2011 af Garðari, Birni Steinari
Jónssyni og Yngva Eiríkssyni og
hugði á saltvinnslu á Reykjanesi
í Ísafjarðardjúpi. Ári síðar komu
Jón Pálsson, faðir Björns Steinars,
og Daníel Helgason fjárfestir inn í
hluthafahópinn. Ágreiningur kom
upp milli eigenda á árinu 2012 sem
varð til þess að Yngvi seldi Daníel
hlut sinn, Garðar lét af störfum sem
framkvæmdastjóri og sagði sig frá
trúnaðarstörfum. Haustið 2012 áttu
Garðar og Björn Steinar sinn 34,5
prósenta hlutinn hvor í félaginu,
Jón Pálsson 16 prósent og Daníel
Helgason 15 prósent.
Það var svo í febrúar 2013 sem
Björn Steinar, Daníel og Jón tóku
þá ákvörðun í krafti meirihluta
síns að selja allar eignir út úr félag-
inu, án vitundar Garðars, til Nordic
Sea Salt ehf. sem stofnað hafði verið
nokkrum mánuðum áður. Að þeirra
sögn til að forða Saltverki frá gjald-
þroti og gera upp við kröfuhafa.
Eignirnar, meðal annars vörumerki,
nafn, umbúðir, hönnun, viðskipta-
vild og framleiðslutæki, voru síðar
seldar áfram inn í annað nýtt félag í
þeirra eigu, Saltverk ehf. Samkvæmt
kaupsamningi var kaupverðið 22
milljónir króna, 12 milljónir með
yfirtöku skulda og 10 milljónir í
reiðufé.
Hæstiréttur Íslands felldi þennan
kaupsamning úr gildi þann 16. mars
síðastliðinn þar sem komist var að
þeirri niðurstöðu að sala eignanna
hafi verið ólögleg og þremenning-
unum bæri að skila þeim aftur til
Saltverks Reykjaness ehf.
Dómurinn var athyglisverður en
um var að ræða prófmál fyrir Hæsta-
rétti þar sem reyndi í fyrsta sinn á
minnihlutavernd samkvæmt reglu-
verki sem sett var í kjölfar hrunsins.
Dómurinn taldi að brotið hefði
verið á réttindum minnihlutaeig-
andans Garðars og að kaupsamn-
ingurinn skyldi ógiltur.
Garðar segir ljóst af fundargerð
hluthafafundar Saltverks Reykja-
ness frá 7. apríl síðastliðnum að
meirihlutaeigendur hafi ekki haft
í hyggju að verða við niðurstöðu
Hæstaréttar og skila eignunum.
Ásakanir hafa gengið á víxl í
átökum deiluaðila. Björn Steinar
segir Garðar hafa gerst sekan um
trúnaðarbrot með því að fara í
beina samkeppni við fyrirtækið sem
hann átti í og undirbúa stofnun salt-
vinnslufyrirtækisins Norðursalts
þegar hann var framkvæmdastjóri.
„Öll hans aðkoma að félaginu frá
því að hann hætti hefur snúið að
því að reyna að koma félaginu fyrir
kattarnef,“ segir Björn Steinar.
Garðar kveðst hafa verið hættur
hjá Saltverki þegar hann fór út
í samkeppnisrekstur. „Mín vara
kemur ekki á markað fyrr en ári eftir
að ég var hættur.“
Björn Steinar segir að með söl-
unni hafi verið gert upp við alla
kröfuhafa aðra en eigendur, þar á
meðal Garðar sem á meðal annars
kröfu á félagið í kjölfar dóms hér-
aðsdóms frá 18. mars 2014 vegna
ábyrgðar sem féll á hann vegna
félagsins sem ekki hefur fengist
greidd. Með gjaldþrotakröfunni
vildi hann leiða upplýsingar um
hina umdeildu sölu eignanna fram
í dagsljósið, upplýsingar sem hann
segir meirihlutaeigendur ekki hafa
lagt fram þrátt fyrir áskoranir.
„Ég er bara að verja hag minn
sem hluthafi í þessu félagi. Það hafa
engar upplýsingar verið gefnar upp
um þessa sölu fyrir utan þennan
kaupsamning. Þetta er búið að vera
fjögurra ára barátta að fá þær, þrátt
fyrir áskoranir fyrir dómstólum að
þeir sýni fram á hvað fór þarna fram
á bak við tjöldin hafa þeir ekki orðið
við því.“
Sem kröfuhafi vonar Garðar að
skiptastjóri muni endurheimta
áðurnefndar eignir félagsins líkt og
Hæstiréttur kvað á um og að for-
sendur sölu þeirra verði skoðaðar.
mikael@frettabladid.is
Bitur saltvinnsludeila endar í gjaldþroti
Saltverk Reykjaness ehf. hefur verið úrskurðað gjaldþrota að beiðni eins stofnenda og eigenda félagsins. Hann taldi það einu leiðina til
að fá upplýsingar um sölu eigna út úr félaginu. Meirihlutaeigendurnir segja söluna hafa verið nauðsynlega til að bjarga rekstrinum.
Garðar Stefánsson var meðal stofnenda Saltverks Reykjaness sem nú hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta að hans beiðni. FRéttablaðið/SteFán
Þetta er búið að vera
fjögurra ára barátta
að fá þær, þrátt fyrir áskor-
anir fyrir dómstólum að þeir
sýni fram á hvað fór þarna
fram á bak við tjöldin hafa
þeir ekki orðið við því.
Garðar Stefánsson, einn stofnenda
Saltverks Reykjaness ehf.
Fyrirtækið var stofnað
árið 2011 og hugði á salt-
vinnslu á Reykjanesi í
Ísafjarðardjúpi.
2 4 . n ó V e m b e r 2 0 1 7 F Ö s t U D A G U r10 F r é t t i r ∙ F r é t t A b L A ð i ð
2
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
5
0
-D
C
E
0
1
E
5
0
-D
B
A
4
1
E
5
0
-D
A
6
8
1
E
5
0
-D
9
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K