Fréttablaðið - 24.11.2017, Page 44

Fréttablaðið - 24.11.2017, Page 44
Neytendur hljóta að fagna nýlegum dómi Eftirlitsstofn-unar EFTA (ESA) um að bann við innflutningi á ferskri og unninni kjötvöru, eggjum og mjólk samrým- ist ekki ákvæðum EES-samningsins. Ekki síður bera að fagna viðbrögðum ráðuneytis atvinnuvega og nýsköp- unar um að íslenska ríkinu beri að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að framfylgja dómnum og breyta lögum til samræmis við niðurstöðu dómsins. Að sjálfsögðu skiptir heilsa fólks meginmáli en lífskjör og lífsgleði einnig, ef út í það er farið. Vandað matvælaeftirlit verður að duga, hér heima og hjá þeim sem við verslum við. Sumar ráðstafanir kosta of mikið og ganga of mikið á lífsgæði. Við viljum geta ferðast til annarra landa og fengið ferðamenn til okkar. Hluti af góðu ferðalagi er að neyta matar og upplifa það sem í boði er. Einangrun er ekki málið, hvorki fyrir menn né matvæli nema ef ágengir smitsjúkdómar og farsóttir geisa, þá er eðlilega gripið til tímabundinna varúðarráðstafana svo sem einangr- unar, ferðalög eru bönnuð og flutn- ingur vöru af sýktum svæðum bann- aður á meðan sóttin gengur yfir. Að öðru leyti dugar fagmennska í með- ferð matar og virkt eftirlit. Varanleg einangrun manna og dýra dregur of mikið úr lífsgæðum. Matvælaviðskipti um allan heim Þannig virkar þetta innan Evrópu og í aðalatriðum um heim allan. Inn- flutningur á ferskri matvöru er heim- ill uppfylli hún skilyrði um vandaða meðhöndlun. Einnig á Nýja-Sjálandi og í Japan sem oft er vitnað til enda eyjur eins og Ísland. Þau heimila matvælainnflutning undir eðlilegu eftirliti, banna bara tímabundið inn- flutning frá viðkomandi svæði ef upp kemur sýking svo sem salmonella eða grunur um fuglaflensu. Fyrir neytendur og almenning í þessu landi bætir fersk vara og fjöl- breytt frá öðrum löndum vörufram- boð, líka með hollri samkeppni við innlenda framleiðslu. Landsmenn og gestir okkar njóta fjölbreyttari gæða- matar á eðlilegra verði. Það verður betra að eiga hér heima og ánægju- legra að sækja okkur heim. Tollverndin kostar of mikið Næstu skref í þessum dúr hljóta svo að vera afnám matartollanna og að breyta landbúnaðarstefnunni þann- ig að bændur geti keppt á markaði við innflutning og bætt sinn hag. Í stað- inn mætti jafnvel auka beina styrki til bænda því hagur neytenda af niður- fellingu tolla er það mikill. Vísbendingar eru um að niðurfell- ing matartolla af kjötvöru, eggjum og mjólk lækki meðalverð þeirra vöru- flokka um 35% og getur það sparað okkur um 100.000 kr. á landsmann á ári. Lægri kostnaður við Íslandsferð, með lægra matarverði, styrkir einnig þróun ferðaþjónustu um allt land, en borið hefur á því að fleiri ferðamenn spari við sig að ferðast um landið vegna kostnaðar, láti nægja að ferðast um suðvesturhorn landsins. Sláum ekki framtíðinni á frest Vonandi mun ný ríkisstjórn vinna að hag neytenda í þessum málum en ekki leita leiða til að slá framtíðinni á frest. Augljóst er að tollamúrar og tæknilegar viðskiptahindranir eru á undanhaldi. Við þurfum að ná nágrönnum okkar í Evrópu hvað þetta varðar. Þeir eru fyrir löngu búnir að fella niður tollamúra og tæknilegar viðskiptahindranir sín á milli, líka varðandi matvöru, enda skiptir hún svo miklu máli bæði hvað varðar lífskjör og lífsánægju. Hagur neytenda og dómur ESA Í staðinn mætti jafnvel auka beina styrki til bænda því hagur neytenda af niðurfell- ingu tolla er það mikill. Guðjón Sigurbjartsson viðskiptafræð- ingur í starfs- hópi Neytenda- samtakanna um matvæli, landbúnað og umhverfismál Ég, Valgeir Matthías Pálsson, hef barist fyrir því síðastliðin 2-3 ár að fá hjálp í heilbrigðiskerfinu á Íslandi. Ég hef barist fyrir því að fá viðurkenndan þann rétt minn sam- kvæmt stjórnarskrá að fá hjálp, en án árangurs. Mál mitt hefur þvælst á milli stofn- ana ríkisins eins og Embættis land- læknis, Umboðsmanns Alþingis og velferðarráðuneytisins með litlum eða engum árangri. Ég hef litla sem enga aðstoð fengið á Landspítalanum frá árinu 2008. Það ár tóku nýir læknar við meðferð minni. Ég hef glímt við þunglyndi og kvíða um margra ára skeið. Oft spyr ég mig þeirrar spurningar hvers vegna sumir fái hjálp en aðrir ekki. Er það réttlátt á þeirri forsendu að allir skuli vera jafnir gagnvart stjórnarskránni og öllu því tilheyr- andi? Mannréttindi eru brotin á mér vegna þessa máls og einnig er 76. grein stjórnarskrárinnar þverbrotin gagn- vart mér í þessu máli. Einnig má benda á það að í sjúklingalögum eru allmargar greinar brotnar á mér. Mál mitt er ekki flókið. Það snýst um það að ég fái hjálp á erfiðum stundum eins og allir aðrir þegnar þessa lands. Margir kunna að spyrja sig þeirrar spurningar hvers konar hjálp ég sé að sækjast eftir. Því er til að svara að ef maður er með miklar sjálfsvígshugsanir, þá á maður nátt- úrlega að fá hjálp á geðsviði LSH! Ég skrifa þennan pistil hér vegna þess að ég hef barist, ég hef barist einn og án mikils stuðnings í þessu máli síðastliðin 2-3 ár. Ég hafði góðan mann mér við hlið vegna þessa máls allt þar til fyrir stuttu að hann fór utan í námsleyfi. Mannréttindalög- fræðingar á Íslandi hafa ekki sýnt máli mínu mikinn skilning. Enda kannski lagalega flókið í lögfræði- legum skilningi. Mér þykir eins og samfélagið, Ísland, hafi brugðist mér. Hvers á ég að gjalda? Setjið ykkur í mín spor. Ef þið verðið veik, þá eigið þið að sjálf- sögðu rétt á því að fá bestu og full- komnustu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Ég blæs á allar sögur um það að ekki sé til nægt fjármagn í heil- brigðis kerfinu til að sinna málum eins og þeim sem lúta að mér. Ég blæs á það. Það eru til nægir peningar á Íslandi. Þeim er bara ekki rétt varið. Það á að vera sjálfsögð krafa allra að eiga rétt á góðri og fullkominni heilbrigðisþjónustu hvar í flokki sem menn standa. Ég hef ekki góða sögu að segja frá stofnunum eins og Embætti land- læknis og fleiri stofnunum ríkisins sem sinna þessum málum. Land- læknisembættið kóar með læknum á Landspítalanum og alltaf hafa þeir rétt fyrir sér. Aldrei sjúklingurinn. Hjá Landlækni starfa margir læknar sem sinnt hafa störfum á Landspítalanum og hafa því góða innsýn í störf spítalans. Í lokin vil ég segja eftirfarandi: Það er óeðlilegt og óafsakanlegt að láta fólk sem líður andlegar vítiskvalir vera heima hjá sér án alls stuðnings og eftirlits. Það þekkist ekki í þjóð- félögum sem við viljum bera okkur saman við. En ég vildi bara með þessum pistli segja frá því að það er til fólk hér á Íslandi sem ekki fær hjálp á erfiðustu stundum lífs síns. Þegar veikindi herja á. Barátta mín fyrir því að fá hjálp í heilbrigðiskerfinu á Íslandi Það á að vera sjálfsögð krafa allra að eiga rétt á góðri og fullkominni heilbrigðisþjón- ustu hvar í flokki sem menn standa. Glæpir hafa fylgt mannkyn-inu frá örófi alda, líka á litla Íslandi. Það er alveg sama hvert litið er í heiminum, afbrot eru alls staðar og verða í ókominni framtíð. Glæpir koma alltaf til með að þrífast í öllum samfélögum hvort sem okkur líkar betur eða verr. Hins vegar er mjög mismunandi hvern- ig reynt er að stemma stigu við glæpum. Ég tel mig þekkja aðeins til þessa heims og sér í lagi þegar kemur að ungum afbrotamönnum. Ég vann aðeins lengur en einn vetur í þeim málaflokki og hef farið víða til að kynna mér hvað aðrar þjóðir gera. „Byrgjum brunninn áður en barnið velur afbrot.“ Já, tókuð þið eftir því sem ég skrifaði: „VELUR.“ Af hverju skyldi ég skrifa það? Jú, vegna þess að ég kýs ekki að segja að „lenda“ í afbrotum. Fyrir mér er það eins og fallhlífarstökkvarinn sem stekkur úr flugvél og lendir einhvers staðar. Það sem hefur farið hvað mest í taugarnar á mér er þegar ábyrgðin er tekin af unga afbrota- manninum og kerfið verður með- virkt, allri ábyrgð einstaklingsins er kastað burt. Viðkomandi jafn- vel gefið umboð til að gera hitt og þetta af því að hann átti svo bágt eða vegna þess að hann er með hina og þessa greininguna. Það var ósjaldan að ég heyrði „ég er með mótþróa- þrjóskuröskun, ADD eða ADHD og þess vegna gerði ég þetta“. Ég er talsmaður þess að nálgast þennan málaflokk öðruvísi. Það þarf ekki alltaf að finna upp hjólið upp á nýtt eða taka inn rándýr úrræði að utan sem ganga meira og minna út á að skrá í möppu, fjölga skrifborðum í fílabeinsturnum þar sem fólk situr og talar um vandann en ekki við unga afbrotamanninn. Alvörufræðsla Ég er talsmaður lifandi forvarna. Þar sem einstaklingurinn fær alvöru- fræðslu um hverjar orsakir og afleið- ingar afbrota eru í raun og veru. Það gerir maður ekki með því að tala við þá yfir skrifborð heldur er farið í vettvangsferðir og þeir aðilar sem koma að úrvinnslu afbrota kenna þeim hverjar raunverulegar afleiðingar afbrota geta verið. Þarna er ekki verið að uppfæra glæpafor- ritið sem þeir gera reglulega með jafningjafræðslu á götunni heldur er verið að reyna koma fyrir vírus- vörn gegn glæpum. Ég tel að það séu mikil tækifæri í úrvinnslu ungra afbrotamanna hér á landi þar sem samvinna ýmissa aðila gæti verið góð og svo býður náttúran upp á marga möguleika. Ég var sjálfur með lifandi hópastarf þar sem ég var að reyna að vekja þá til umhugsunar með lifandi hætti. Sú vinna fór voðalega fyrir brjóstið á diplómaprikunum í kerfinu og var mér á endanum bannað að vera með það starf, þó svo að árangurinn hafi verið góður. Ég er þeirrar skoð- unar að hérna þurfi að taka til hend- inni. Ég vona að nýi félagsmálaráð- herrann, hver sem hann verður, tali við fólkið sem talar við börnin, en ekki bara við þá sem tala um börnin á fundum. Uppfærsla á glæpaforriti Davíð Bergmann fv. verkefnastjóri og ráðgjafi Valgeir Matthías Pálsson öryrki Dæmdur kynferðisbrota-maður sætir gæsluvarðhaldi grunaður um ítrekuð brot gegn börnum. Lögreglustjórinn á Suðurlandi segir að háttsemin lúti að grófum og ítrekuðum kyn- ferðisbrotum sem spanna yfir langt tímabil og „sýni ákveðið hegðunar- mynstur eða kenndir sem [maður- inn] virðist ekki hafa stjórn á“. Árið 2012 fullgilti Ísland bind- andi Evrópuráðssamning um vernd barna gegn kynferðisofbeldi, Lanzarote-samninginn. Samkvæmt honum eru stjórnvöld skuldbundin til að tryggja að einstaklingar sem óttast að þeir kunni að brjóta gegn börnum kynferðislega hafi aðgang að sálfræðingum og geðlæknum með það að markmiði að koma í veg fyrir slík brot. Í samningnum er jafnframt lögð áhersla á að áhættumat sé gert og meðferð veitt á meðan dæmdir kynferðisbrota- menn afplána dóma sína. Hjá Fangelsismálastofnun starfa fjórir sálfræðingar í þremur stöðu- gildum og sinna sex hundruð skjól- stæðingum, þ.e. föngum, fólki sem gegnir samfélagsþjónustu eða er á reynslulausn. Engir geðlæknar starfa í fangelsum landsins, engar meðferðir eru fyrir fanga sem haldn- ir eru barnagirnd og engin betr- unarstefna er rekin. Afstaða hefur ítrekað bent á að á meðan ástandið er með þessum hætti séu litlar líkur á því að þeir sem dæmdir eru fyrir barnaníð komi út betri menn. Fyrir nokkrum árum ákváðu stjórnvöld að fella niður tímabund- ið fjármagn til Fangelsismálastofn- unar sem notað var til þess að halda úti forvarnaaðgerðum vegna kyn- ferðisbrota gegn börnum. Fangar með barnagirnd fá í dag enga með- ferð og á meðan svo er munu þeir eflaust halda áfram að sýna ákveðin hegðunarmynstur eða kenndir sem þeir virðast ekki hafa stjórn á. Stjórnvöld verða að sýna að þau hafi vilja til að koma í veg fyrir ítrek- uð brot fanga. Viljum við börnunum ekki betur? Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Af- stöðu, félags fanga á Íslandi 2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r42 S k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 4 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 1 0 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 5 1 -1 3 3 0 1 E 5 1 -1 1 F 4 1 E 5 1 -1 0 B 8 1 E 5 1 -0 F 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 0 4 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.