Fréttablaðið - 24.11.2017, Blaðsíða 54
Teppi úr hnausþykku garni er eitthvað sem margir hafa séð en virðist samt dálítið
erfitt að eignast. Mig langaði til að
prjóna teppi sjálf með handleggja
prjóni en það virtist hvergi hægt
að fá svona garn. Ég pantaði garn
á netinu og heim komið kostaði
það mig tugi þúsunda. Ég fór því
að velta fyrir mér leiðum til að búa
garnið til sjálf,“ segir Erla Svava
Sigurðardóttir en hún prjónar úr
íslenskri ull og er einn þátttakenda
sýningar Handverks og hönnunar í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
Erla Svava fjárfesti í rokk frá
NýjaSjálandi til að spinna sérstak
lega þykkt garn og koma hug
myndum sínum í framkvæmd.
„Ég hugsaði að nú yrði þetta lítið
mál. Íslenska ullin er þó sérstök og
miklu meira líf og karakter í henni
en annarri svo þetta reyndist heil
mikið mál þegar upp var staðið og
ég skil núna af hverju enginn var
að gera þetta á Íslandi,“ segir hún
sposk. Hún gafst þó ekki upp og
við tóku stífar tilraunir.
„Það hefur tekið mig um það
bil ár að þróa garnið þannig að
ég sé ánægð með það. Nógu þétt
en ekki um of, fari ekki úr hárum
og fleira. Ég kaupi ullina frá Ístex
en er að þreifa fyrir mér með að
kaupa beint af bónda. Núna er
garnvinnslan og prjónaskapurinn
þó það mikil vinna að ég get ekki
bætt því við að þvo ullina líka. En
ég vonast til að komast í samvinnu
við bændur um ull bæði til að nota
í fyllingar og garn. Ég vil hafa allt
eins náttúrulegt og ég get. Vöru
merkið mitt, Yarm, sem ég sauma
í teppin er úr íslensku nautsleðri
sem sútað er á Sauðárkróki og
brennt hjá litlu fjölskyldufyrirtæki
í Hafnarfirði.“
Erla segist ekki hafa verið
mikil prjónakona áður en ævin
týrið hófst, hafa aldrei klárað heila
peysu. Nú sé hún hins vegar með
ótal hugmyndir á teikniborðinu
og prjónaskapurinn hafi algerlega
tekið yfir.
„Þetta vatt ótrúlega hratt upp
á sig og eftirspurnin er mikil. Ég
á ekkert teppi heima hjá mér,
þau fara heim með gestum sem
líta inn. Þetta er svo langt gengið
að ég er búin að segja upp föstu
starfi og hef snúið mér alfarið að
þessu,“ segir Erla. „Þetta er eins og
ótrúlegt ævintýri og sérstaklega
gaman að fá að taka þátt í sýningu
Handverks og hönnunar. Ég lánaði
einnig teppi og púða í auglýsingu
með leikkonunni Kate Hudson
sem tekin var upp hér á landi. Ég er
ekki búin að sjá hana sjálf en skilst
að þau sjáist eitthvað í mynd.“
Nánar má forvitnast um Yarm á
Facebook og Instagram.
Spinnur íslenska
ull í ofurþykkt
Erla Svava Sigurðardóttir greip til sinna ráða þegar
henni gekk erfiðlega að finna hnausþykkt garn til að
prjóna úr. Hún spinnur garnið sjálf úr íslenskri ull og
prjónar með höndunum. Erla tekur þátt í markaði
Handverks og hönnunar í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Erla Svava Sigurðardóttir varð sér úti um rokk til að spinna ofurþykkt garn úr
íslenskri ull. Hún tekur þátt í sýningu Handverks og hönnunar sem stendur
yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur. mynd/Anton BRink
„Ég vonast til að komast í samvinnu við bændur um ull bæði til að nota í fyll-
ingar og garn. Ég vil hafa allt eins náttúrulegt og ég get.“ mynd/yARm
margra mánaða þróunarvinna liggur
að baki þykka garninu en mikið líf og
er í íslensku ullinni að sögn Erlu.
mynd/Anton BRink
Hnausþykk teppin hafa vakið mikla
athygli. mynd/yARm
Vörur Erlu eru í sauðalitunum.
JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS
Stóra jólablaðið frá Fréttablaðinu kemur út
þriðjudaginn 28. nóvember.
Áhugasamir auglýsendur hafið samband við
auglýsingadeild sérblaða í síma 512 5402
Blaðið er stútfullt af allskonar skemmtilegu efni tengdu jólunum.
10 kynninGARBLAÐ FÓLk 2 4 . n ÓV E m B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
2
4
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
5
1
-2
6
F
0
1
E
5
1
-2
5
B
4
1
E
5
1
-2
4
7
8
1
E
5
1
-2
3
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
2
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K