Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.01.2017, Blaðsíða 28
Fyrir 6-9 mánaða
Gerir 5-6 skammta
1 rófa, afhýdd og söxuð gróft
10 sveskjur, steinalausar
4 msk soðvatn
Afhýðið rófuna og saxið gróft.
Gufusjóðið rófuna og sveskjurnar í um 20 mínútur
eða þangað til rófan er orðin alveg mjúk.
Setjið rófu og sveskjur í matvinnsluvél (eða bland-
ara) ásamt 4 msk af soðvatni.
Blandið í um 3-4 mínútur eða þangað til engir bitar
eru eftir og maukið er orðið silkimjúkt. Skafið hliðar
matvinnsluvélarinnar, bætið meira vatni eða appels-
ínusafa við ef þarf og maukið áfram í nokkrar mín-
útur. Fyrir yngri börn skal gæta þess að engir stórir
bitar séu eftir en fyrir börn sem eru nær 9 mánaða
mega vera litlir bitar í maukinu.
Maukið má frysta. Gott er að frysta maukið í ís-
molaboxi. Setjið svo molana í góða frystipoka. Merk-
ið pokana með innihaldi og dagsetningu. Í góðum
frysti geymist frosinn barnamatur í nokkra mánuði.
Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat
svo bætið við meira af vatni ef ykkur finnst það henta.
Best er að nota einungis lífrænt ræktað hráefni í
barnamat og gufusjóða alla ávexti og allt grænmeti.
Rófu- og sveskjumauk
GÓÐ RÁÐ SIGRÚNAR:
Þetta mauk er eins og eftirmatur
og ég stalst svo, svo oft í maukið
hjá börnunum mínum. Það hent-
ar minnsta mannfólkinu sérlega
vel, ekki síst ef maginn er eitt-
hvað tregur. Börnin mín hrein-
lega elskuðu maukið og það má
blanda með banana, eplum, avó-
kadó, perum, sætum kartöflum
eða hverju því sem manni dettur
í hug. Ef börnin eru ekki hrifin af
sveskjubragðinu (það getur verið
svolítið yfirþyrmandi) er gott að
byrja á maukuðum banana með
smávegis af sveskjumauki út í og
svo auka magnið smám saman.
Athugið að best er að nota mat-
vinnsluvél í þessa uppskrift því
töfrasproti vinnur ekki vel á
sveskjunum. Blandari gengur líka
en oft þarf að nota meira magn af
vatni til að koma sveskjunum af
stað.
Lengi býr
að fyrstu
gerð
Fjölmargir huga að heilsunni í upp-
hafi árs og prófa sig áfram í eldhús-
inu með því að elda hollan mat úr
ferskum hráefnum. En ekki má
gleyma yngstu meðlimum fjöl-
skyldunnar. Heimatilbúinn barna-
matur er næringarríkur, góður og
meinhollur. Matgæðingurinn
Sigrún Þorsteinsdóttir, hjá cafe-
sigrun.com, deilir með lesendum
nokkrum uppáhalds uppskriftum
fyrir yngstu kynslóðina.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.1. 2017
MATUR
Fyrir 12 mánaða +
Gerir 1-2 skammta
100 g lax (villtur)
50 g mangó, vel þroskað
50 g avókadó, vel þroskað (mjög mikilvægt
að sé mjúkt)
30 g nýrnabaunir úr dós (án sykurs)
spergilkál, nokkrir sprotar
Beinhreinsið og roðflettið laxinn.
Afhýðið avókadó og mangó og saxið
smátt.
Skerið spergilkálið í nokkra sprota.
Gufusjóðið spergilkál og mangó í um
10 mínútur og bætið þá laxinum við.
Gufusjóðið áfram í 10 mínútur.
Kælið og skerið laxinn í bita.
Látið vökvann renna af nýrnabaun-
unum. Setjið laxinn á disk ásamt sperg-
ilkáli, nýrnabaunum, mangó og avókadó.
Rétturinn hentar ekki til frystingar en
það má geyma afganginn í kæli þangað
til daginn eftir ef skammturinn er ekki
kláraður.
GÓÐ RÁÐ SIGRÚNAR:
Nota má maískorn eða kjúklingabaunir (ef
ekki er um ofnæmi að ræða) í stað nýrna-
baunanna.
Nota má hvaða fisk sem er í staðinn fyrir lax-
inn en athugið að laxinn inniheldur omega-3
fitusýrur sem eru sérlega góðar fyrir okkur.
Nota má blómkál í staðinn fyrir spergilkál en
einnig henta gulrætur og rófur vel.
Börnin mín elska þessa samsetningu og hafa
gert frá unga aldri. Þessi málsverður er hlað-
inn vítamínum, járni, próteini, omega-3 fitu-
sýrum og hollri fitu. Ef þið teljið að barnið
muni veiða mangóbitana úr (og sleppa fisk-
inum) er gott að stappa laxinum svolítið
saman við mangóið. Nota má annað græn-
meti en spergilkál og t.d. myndi blómkál,
gulrætur og rófur passa vel með. Gætið þess
að mangóið sé vel þroskað og það sama gild-
ir um avókadóið. Gætið þess einnig að engin
bein séu í laxabitanum og að börnin hafi ekk-
ert fiskiofnæmi.
Lax með mango, avókadó,
nýrnabaunum og spergilkáli