Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.01.2017, Blaðsíða 29
29.1. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Fyrir 9-12 mánaða
Gerir 2-3 skammta
20 g lambakjöt, kjúklingur eða fiskur
2 sveppir
1 sproti spergilkál (brokkolí)
fjórðungur gulrót (eða sæt/venjuleg
kartafla)
10 g ostur
10 g frosnar, grænar baunir
2 egg, hrærð lítillega
smá klípa basil
smá klípa karrí
1 msk kókosolía (eða ósaltað smjör)
Matreiðið kjötið þannig að það sé
örugglega eldað í gegn. Skerið í
mjög litla bita (eins og t.d. nögl á
löngutöng barnsins að stærð eða
stærri bita ef barnið ræður við
þá).
Saxið sveppina mjög smátt.
Skolið spergilkálið og skerið
einn sprota af. Skrælið gulrótina
og skerið í bita.
Gufusjóðið gulrótina og sperg-
ilkálið í um 10-12 mínútur eða
þangað til nokkuð mjúkt. Saxið
gulrótina smátt og skerið sperg-
ilkálið í pínulitla sprota.
Saxið ostinn smátt eða rífið fínt
á rifjárni.
Setjið eggin í litla skál. Bætið
karríi og basil út í og hrærið að-
eins.
Setjið sveppi, kjöt, spergilkál,
gulrót og ost í stóra skál. Hellið
eggjablöndunni út í og hrærið vel.
Hitið litla pönnu á frekar háum
hita og setjið kókosolíuna á pönn-
una. Hellið eggjablöndunni út á
pönnuna og hitið eggjakökuna í
gegn (gæti tekið um 20 mínútur).
Þegar eggjakakan er orðin eld-
uð (nokkuð þétt viðkomu) að
neðan skuluð þið setja disk ofan á
hana og snúa pönnunni við þannig
að eggjakakan fari yfir á diskinn.
Rennið minna eldaðri hliðinni svo
yfir á pönnuna og hitið í um 10
mínútur eða þangað til eggjakak-
an er örugglega hituð 100% í gegn.
Skerið út kökur með glasi eða
kökuskurðarmóti eða skerið
eggjakökuna bara í litla bita.
GÓÐ RÁÐ SIGRÚNAR:
Mauka má sætar kartöflur með eggjakökunum og hræra saman
við, eða bera fram til hliðar og leyfa börnunum að dýfa eggjaköku-
bitunum út í.
Þessi uppskrift hentar einnig mun eldri börnum og má þá hafa hrá-
efnið allt grófara.
Þessi eggjakaka er sniðug fyrir litlu krílin (svo lengi sem ekkert
staðfest ofnæmi er til staðar) því hún er holl og bragðmild og það
má nota alls kyns grænmetis-, kjöt- eða fiskafganga í eggjakökuna.
Hún fer líka vel í magann, er fljótleg og einkar saðsöm. Svo finnst
börnum líka yfirleitt gott bragð af eggjum. Gætið þess bara að egg-
in séu alveg 100% hituð í gegn. Uppskriftin hentar þeim börnum
sem farin eru að borða egg og litla kjötbita (upp úr 10 mánaða).
Þegar börnin eru farin að mata sig sjálf má skera eggjakökuna í
pínulitla bita og leyfa þeim að raða upp í sig en einnig má bæta t.d.
maukuðum sætum kartöflum saman við sem eins konar sósu.
Fyrsta eggjakakan
Ljósmyndir/Sigrún
Blómkáls- og steinseljurótarmauk
Gerir 10 skammta
250 gr steinseljurót
250 gr blómkál (fyrir snyrtingu)
1 tsk kókosolía/ólífuolía/smjör
Afhýðið rótina og skerið í grófa
bita.
Snyrtið blómkálið og skerið í
litla sprota.
Gufusjóðið þangað til mjúkt.
Setjið bitana í matvinnsluvél
eða notið töfrasprota og maukið
vel. Bætið nokkrum matskeiðum
af soðvatninu saman við ef þarf.
Maukið mjög vel eða þangað til
enginn biti er eftir. Gott er líka að
nota sigti eða síu.
Blandið fitunni saman við og
látið kólna þangað til maukið er
orðið ylvolgt.
Maukið má frysta.
GÓÐ RÁÐ SIGRÚNAR:
Nota má spergilkál eða spínat með maukinu. Blanda má sætum
kartöflum eða venjulegum kartöflum saman við maukið.
Til tilbreytingar er einnig gott að setja maukað epli, peru eða ban-
ana út í maukið.
Gott er að frysta í klakaboxi og setja molana svo í góða frystipoka.
Merkið pokana með innihaldi og dagsetningu.
Börn eiga misjafnlega auðvelt með að kyngja mat svo bætið við
meira af soðinu ef ykkur finnst það henta.
Gott getur verið að bæta við af móðurmjólk/stoðmjólk/þurrmjólk
út í maukið í fyrstu skiptin.
Gott er að blanda smávegis af hrísmjöli eða öðru mjöli saman við
grautinn til að auka fjölbreytni.
Ef barnið er farið að borða kjöt, hentar maukið vel með lamba-
kjöti, fiski og kjúklingi.
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is
„Veist þúað skilgreining
áhitabreytist eftir aldri?
ThermoScan7eyrnahita-
mælirinnminnveit það.“
BraunThermoScan
eyrnahitamælar fást í öllum
lyfjaverslunum
ThermoScan® 7
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri