Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.01.2017, Blaðsíða 33
Just Female
13.300 kr.
Notalegur
náttsloppur.
Snúran
2.760 kr.
Fallegur eyrna-
lokkur frá
Louise Kragh.
Zara
7.995 kr.
Þægilegir hversdags-
skór frá Zöru sem
passa við allt.
Net-a-porter.com
26.450 kr.
Geggjaður stutt-
ermabolur frá MSGM.
Geysir
22.800 kr.
Étroit Court galla-
buxur frá A.P.C.
Í þessari viku...
Sigurborg Selma
sigurborg@mbl.is
Þá fer janúar brátt að klárast. Helst væri ég til í að
leggjast nánast í dvala í þessum kalda og dimma
mánuði, klæðast dásamlega sloppnum frá Just
Female og dekra við sjálfa mig. Þá eru vef-
verslanir þægilegar í kuldanum og gaman (og þó
stundum hættulegt) að kaupa falleg föt á netinu
eins og glæsilega stuttermabolinn frá MSGM.
Angan
6.900 kr.
Baðvörurnar frá Angan eru dásamlegar á
líkamann auk þess sem þær fegra baðher-
bergið mitt með fallegri umbúðahönnun.
Net-a-porter.com
8.000 kr.
Gyllti hárburstinn
frá AERIN er
á óskalistanum.
29.1. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Ritstjóri bresku útgáfu Vogue,
Alexandra Shulman, hefur sagt
starfi sínu lausu eftir 25 ár.
Shulman mun hætta í sumar
en ekki er enn ljóst hver mun
taka við keflinu. Í yfirlýsingu
segist Shulman erfitt að
nefna skynsamlega ástæðu
til þess að fara aðra en þá að
hana langaði að upplifa ann-
arskonar lífsstíl.
Nicholas Coleridge,
framkvæmdastjóri forlags
tímaritsins, Condé Nast, sagði Alex-
öndru Shulman hafa starfað lengst og verið far-
sælasta ritstjóra Vogue í 100 ára sögu tímaritsins.
HÆTTIR HJÁ VOGUE EFTIR 25 ÁR
Ritstjórinn
kveður
Alexandra Shulman á 25 ára feril að baki.
AFP
Karl Lagerfeld, listrænn stjórnandi Chanel, sýndi glæsilega
línu á tískuvikunni. Litapallettan einkenndist af ljósum
pastellitum ásamt því að sniðin voru fáguð og kvenleg með
áherslu á mitti.
Fyrsta hátískulína Mariu Grazia Chiuri fyrir Christian Dior
vakti athygli. Hönnuðurinn sýndi fágaðar flíkur og minntu
fyrirsæturnar oft á verur úr ævintýraheimi.
Hátískulína Giambattista Valli minnti mikið á sjöunda ára-
tuginn í sniðum. Línan var að sama skapi afar fjölbreytt
þar sem hönnuðurinn blandaði saman ólíkum stílum og
fáguðum útsaum.
Hátískan
Sýning tískuhússins Maison Margiela var rosaleg. John
Galliano yfirhönnuður hússins vann með einstaklega
áhugaverð og spennandi snið, efni og sterka liti. Förð-
unin á sýningunni vakti jafnframt mikla athygli en það
var förðurnarfræðingurinn Pat McGrath sem sá um
hana svo úr varð fullkomið samspil.
Hátískulína tískuhússins Elie Saab
einkenndist af egypskum glæsi-
leika þar sem hönnuðurinn sótti
innblástur til hinna „gömlu
góðu“ daga Egyptalands. Út-
saumur og dásamleg smáat-
riði í textíl voru áberandi
ásamt fáguðum fylgihlutum
sem ýttu undir karakt-
er línunnar.
AFP
Í París stendur nú yfir hátískuvika
tískuhúsanna fyrir sumarið 2017. Þar
sýna nokkur af stærstu tískuhúsum
heims svokallaðan Haute Couture
eða hátískufatnað sem merkir það að
mun meira er lagt í handgerðan
glæsifatnað. Að hátískuviku lokinni
tekur við hin hefðbundna tískuvika
sem sýnir þær stefnur og strauma
sem verða ráðandi næsta vetur.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is