Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.01.2017, Blaðsíða 44
áframhaldandi sókn í kortunum.
„Við erum þegar komin á þann stað
sem við stefndum á og nú setjum við
markið bara ennþá hærra. Við erum
hæstánægð með þessar undirtektir.“
Á árinu 2016 voru heildarpantanir
í Premium 9,1 milljón og þar af ein
milljón bara í desember.
6.000 klukkustundir af efni
Pálmi segir aðgang að heilum þátta-
röðum njóta vaxandi vinsælda. Jafnt
og þétt hefur verið bætt við efnis-
valið og aðgengilegt efni í Premium
hefur vaxið úr 2.400 klukkustundum
í 6.000 klukkustundir á rúmu ári.
Þess má geta að allt erlent efni er
með íslenskum texta. „Við höfum
bætt í innkaupin og samstarfsaðilar
okkar hafa verið að standa sig gríð-
arlega vel.“
Þá er sífellt meiri áhersla lögð á ís-
lenskt efni og í haust verður íslenskur
þáttur í fyrsta sinn settur inn á efn-
isveitu í heilu lagi þegar Stella Blom-
kvist drepur niður fæti í Sjónvarpi
Símans Premium. Alls sex þættir.
Haustið 2018 frumsýnir veitan svo
glæpaþætti byggða á bókum Yrsu
Sigurðardóttur, sem Baltasar Kor-
mákur framleiðir, og haustið 2019 er
röðin komin að spennuþættinum
Ferðalaginu í leikstjórn Baldvins Z.
Sama máli gegnir um alla þessa þætti,
þeir verða aðgengilegir í heilu lagi.
Þáttaskil urðu í íslenskri sjón-varpssögu þegar efnisveitaSímans, Sjónvarp Símans
Premium, hóf göngu sína haustið
2015 í umfangi og af stærð sem ekki
hefur þekkst áður. Í Sjónvarpi Sím-
ans Premium horfir fólk bara þegar
því hentar og getur fengið aðgang að
heilum þáttaröðum í einu; þarf með
öðrum orðum ekki að bíða í heila
viku eftir næsta þætti. Á sama tíma
opnaði Sjónvarp Símans (SkjárEinn
eins og það hét þá) fyrir dagskrá
sína eftir að hafa verið áskriftarstöð
um nokkurra ára skeið.
Markaður fyrir heimilis-
pakka með afþreyingu
Pálmi Guðmundsson, forstöðumaður
hjá Símanum, segir fyrirtækið vissu-
lega hafa tekið áhættu með því að
opna dagskrána með þessum hætti
og setja efnisveituna á laggirnar.
„Síminn mat það svo að markaður
væri fyrir heimilispakka með af-
þreyingu og það hefur sannarlega
komið á daginn. 28 þúsund heimili
eru nú með Sjónvarp Símans Premi-
um og fjölgaði þeim um ríflega helm-
ing á síðasta ári. Það þýðir að ekki er
lengur marktækur munur á fjölda
áskrifenda að Sjónvarpi Símans
Premium, Netflix Íslandi og Stöð 2,“
segir Pálmi.
Hann segir að ekki sé annað en
Pálmi Guðmundsson, forstöðu-
maður hjá Símanum, segir
spennandi tíma framundan
í miðlun sjónvarpsefnis.
Morgunblaðið/Eggert
Framtíðin er gengin í garð!
Miklar breytingar hafa orðið á neysluvenjum sjónvarpsáhorfenda undanfarin misseri; línuleg dagskrá
og áskriftarsjónvarp, eins og við þekktum það, er á niðurleið en efnisveitur á uppleið í staðinn. Ein
slík, Sjónvarp Símans Premium, næst nú á 28 þúsund heimilum sem er ríflega tvöfalt meira en fyrir ári.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.1. 2017
LESBÓK
Pálmi segir Símann hvergi
smeykan við samkeppni við
Netflix og aðrar stórar er-
lendar efnisveitur.
„Það er eðlismunur á Sjón-
varpi Símans Premium og
Netflix; þeir eru aðallega að
endursýna efni meðan við er-
um að frumsýna það. Þeir
framleiða efnið ekki heldur
sjálfir, stóru kvikmyndaverin í
Bandaríkjunum gera það. Við
óttumst ekki samkeppni,
hvorki innanlands né utan; við
höfum fundið okkar takt. Um
tíma var íslenskt sjónvarp í
mikilli vörn en það er nú liðin
tíð – og það er alltaf
skemmtilegra að vera í sókn
en vörn!“
Hann segir hinn alþjóðlega
sjónvarpsmarkað raunar á
fleygiferð um þessar mundir;
um það vitni kaup Kínverja á
Paramount-kvikmyndaverinu
sem hafi þann tilgang að
dreifa framvegis efni sem fell-
ur að smekk Kínverja.
Pálmi segir vandað íslenskt
efni eiga góða möguleika í
þessu sambandi enda búum
við að því að vor sé í nor-
rænni dagskrárgerð fyrir sjón-
varp og áhuginn aldrei meiri.
„Það er full ástæða til að
spenna bogann hátt.“
Óttast ekki erlenda samkeppni
MÁLMUR Bandaríska hljómsveitin Stone Sour hefur ausið
nýjasta afkvæmi sitt vatni og hlaut það nafnið Hydrograd.
Um er að ræða fyrstu plötu sveitarinnar frá tvíplötunni
House of Gold and Bones sem kom út 2012 og 2013 og er
hennar að vænta í sumar. Corey Taylor, söngvari Stone So-
ur, segir að efnið hafi aldrei verið betra og ríkari áhersla sé
lögð á hart rokk og jafnvel pönk en málm. Það er einmitt
ástæðan fyrir því að Jim Root gítarleikari sagði skilið við
bandið fyrir tveimur árum; menn hefðu meiri áhuga á út-
varpi og peningum en tónlistinni sjálfri. Merkilegt sjón-
armið í ljósi þess að Taylor og Root eru saman í ann-
arri hljómsveit, nefnilega Slipknot. Stuð á
æfingum þar! Christian Martucci tók við af
Root og þreytir nú frumraun sína í hljóðveri.
Steinsúr eru berin
Corey
Taylor
KVIKMYNDIR Nú þegar Roman Polanski
hefur vikið sæti sem æðstiprestur verð-
launahátíðarinnar er hægt að fara að tala um
tilnefningar til frönsku kvikmyndaverð-
launanna, Césarsins, þetta árið. Tvær myndir
bera þar af, þrillerinn Elle eftir hollenska
leikstjórann Paul Verhoeven, og Frantz,
rómantísk mynd sem François Ozon leik-
stýrir. Báðar myndir hlutu ellefu tilnefn-
ingar. Slack Bay, gamanmynd með súrreal-
ísku ívafi, eftir Bruno Mumont, fær níu
tilnefningar. Elle þykir sigurstranglegust en
hún hefur verið að gera það gott á hátíðum
víða um heim, meðal annars Golden Globe.
Elle spáð velgengni á Césarnum
Isabelle Huppert í hlutverki sínu í Elle.
Naomi Watts á skjánum á sunnudag.
Adore
RÚV Sunnudagsmyndin er Full-
komnar mæður eða Adore. Um er
að ræða átakanlega ástarsögu með
Naomi Watts og Robin Wright í að-
alhlutverkum. Æskuvinkonur á
fimmtugsaldri eiga í forboðnum
ástarsamböndum sem flækja vin-
áttu þeirra. Handritið er byggt á
sögu eftir nóbelsverðlaunaskáldið
Doris Lessing en leikstjóri er Anne
Fontaine. Atriði í myndinni eru
ekki við hæfi barna en sýning henn-
ar hefst kl. 22:55.
RÁS 2 Þátturinn
Langspil er á dag-
skrá í kvöld,
sunnudag, kl.
19:20, en hann er
tileinkaður ís-
lenskri tónlist. Þar
er frumflutt ný ís-
lensk tónlist, leikin
lög af nýútgefnum
plötum, spjallað við tónlistarmenn,
tónleikaupptökur leiknar og sagt
frá því sem er að gerast í tónlistar-
lífinu hér á landi. Umsjón hefur
Heiða Eiríksdóttir sem lengi hefur
fylgst með og verið þátttakandi í ís-
lensku tónlistarlífi. Í síðasta þætti
var m.a. leikið nýtt efni með Contal-
gen Funeral, In the company of
men, Kyrrð, Ugglu, Tveimur eins,
Helenu Eyjólfs og Soffíu Björgu.
Langspil
Heiða
Eiríksdóttir
STÖÐ 2 Six er þáttaröð sem er
byggð á raunverulegum verkefnum
sérsveitarinnar SEAL Team Six
sem er þekktust fyrir að hafa haft
uppi á hryðjuverkaleiðtoganum
Osama bin Laden. Í hverjum þætti
fær sérsveitin flókin og erfið mál til
að leysa úr og sannar sig ítrekað
þegar er um líf eða dauða að tefla.
Fyrsti þáttur af átta er á dagskrá í
kvöld, sunnudag. kl. 23.
SEAL Team Six að störfum.
Six að byrja