Morgunblaðið - 13.03.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MARS 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Velkomin í
Ferðafélag Íslands
Skráðu þig inn
– drífðu þig út
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Sími 568 2533 | www.fi.is
Borgarbörnin fylgust með af mikl-
um áhuga þegar ærnar í Hús-
dýragarðinum Laugardal í Reykja-
vík voru snoðaðar í gær. Það var
Jón Eiríkur Einarsson, bóndi í Mó-
fellsstaðakoti í Andakíl í Borg-
arfirði, sem rúði féð og notaði til
þess klippur sem hann handlék af
miklu öryggi. Með honum í föru-
neyti var handverksfólk frá Ullar-
selinu á Hvanneyri sem vann úr
ullinni um leið og hún kom af fénu.
Að koma ull í fat er slíkt stundum
nefnt og vakti það kúnstverk mikla
athygli krakkanna, enda eru þessir
verkhættir þeim mörgum framandi
og sveitalífið afar fjarlægt.
Það má hins vegar komast í
ákveðna snertingu við það með
heimsókn í garðinn góða, sem er
einn vinsælasti staðurinn í Reykja-
vík. Þangað er fjölmennt flesta
daga, þá ekki síst um helgar, enda
er margt að sjá og skoða sem er
frábær dægradvöl fyrir börn sem
fullorðna. Með vorinu verður dag-
skráin þar enn fjölbreyttari með til
dæmis ýmsum fjölskylduhátíðum –
og þá hafa leiktækin á svæðinu
alltaf mikið aðdráttarafl.
sbs@mbl.is
Jón bóndi í Mófellsstaðakoti rúði ærnar í Húsdýragarðinum í gær
Morgunblaðið/Golli
Sveitalífið
til sýnis
fyrir börnin
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hertar öryggisráðstafanir vegna
köfunar í Silfru á Þingvöllum eru
meðal annars þær að hver leiðsögu-
maður sem í
gjárnar fer má
aðeins hafa með
sér þrjá kafara í
stað fjögurra áð-
ur og í yfirborðs-
köfun mega nú
sex í stað átta
fylgja þeim sem
leiðsögn annast.
Auk þess verða
þeir sem í Silfru
fara spurðir um
heilsufar sitt, svo sem hættu á yf-
irliði og um hugsanlega hjarta- og
öndunarfærasjúkdóma. Einnig
þurfa þeir að framvísa pappírum um
köfunarreynslu sína og að hafa kafað
í þurrbúningi að minnsta kosti tíu
sinnum. Ef fólk stenst þetta ekki
verður því vísað frá.
„Við fögnum því að þessar reglur
hafi verið settar og samráðið við
stjórnendur þjóðgarðsins í þessu
máli hefur verið með ágætum,“ segir
Jón Þór Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Arctic Adventures, eins þeirra
fyrirtækja sem bjóða upp á köfun í
Silfru.
Tilgangurinn að auka öryggi
Sem kunnugt er varð banaslys í
Silfru á föstudag þegar Bandaríkja-
maður á sjötugsaldri sem var þar við
köfun lést. Þetta var annað banaslys-
ið þar á þessu ári, en þau eru orðin
alls fimm á sjö árum – og önnur al-
varleg atvik eru nokkur. Strax í kjöl-
farið funduðu þjóðgarðsvörður, um-
hverfisráðherra og fleiri vegna
málsins og seint á föstudagskvöld
var ákveðið að loka gjánni fyrir köf-
un. Helgin var nýtt í að móta nýjar
reglur fyrir svæðið og eru þær sem
að framan greinir. Silfra verður opn-
uð aftur í dag eftir stopp helgarinn-
ar. „Hjá mínu fyrirtæki höfum við
síðustu árin breytt skipulagi hjá okk-
ur og aukið kröfurnar. Reglurnar
nýju falla alveg að því,“ nefnir Jón
sem segir samstöðu meðal ferða-
þjóna sem selja ferðir í Silfru um að
herða þurfi reglur. „Þetta byggist á
að auka öryggi viðskiptavina,“ segir
Jón Þór.
Aðgangsstýring
„Silfra er hættulegur staður, það
er ekkert flóknara,“ segir Ólafur
Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður.
Til viðbótar við framangreindar
reglur nefnir hann að koma eigi upp
aðgangsstýringu við Silfru og tak-
marka fjölda þeirra sem þar svamla
og synda á hverjum tíma.
Nýjar reglur og reynslu krafist
Silfra er hættulegur staður Lokað og hart var brugðist við banaslysi á föstudag Reglur settar
um helgina Opnað verður að nýju í dag Samstaða er hjá ferðaþjónustunni um ráðstafanirnar
Morgunblaðið/ Kristinn Magnús
Silfra Bæði svamlað og synt.
Ólafur Örn
Haraldsson
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Rúmlega hundrað mótmælendur lok-
uðu þjóðvegi 1 við Hornafjarðarfljót
síðdegis í gær og var lokað í tvær
klukkustundir. Þetta var gert til þess
að mótmæla ákvörðun samgönguráð-
herra um að fresta vegaframkvæmd-
um á svæðinu.
Mótmælendur lokuðu brúnni, sem
af heimamönnum er kölluð Hossu-
brúin vegna þess hversu ójöfn hún er.
Brúin var byggð árið 1961 og var þá sú
næstlengsta á Íslandi en hún þykir í
dag vera barn síns tíma, enda er hún
einbreið og það á fjölförnum vegi.
Morgunblaðið ræddi við Marie-Lo-
uise Mathiasson, einn skipuleggjenda
mótmælanna, rétt fyrir klukkan sjö í
gær þegar mótmælum var við það að
ljúka og fara átti að hleypa umferð aft-
ur yfir brúna. Hún sagði mikla sam-
stöðu vera meðal Hornfirðinga vegna
málsins og að allir sem hefðu verið
stöðvaðir vegna lokunarinnar í gær
hefðu sýnt málinu mikinn skilning.
Brúin lokuð í tvo tíma
Mótmæltu
ákvörðun sam-
gönguráðherra
Ljósmynd/Loftur Jónsson
Mótmæli Mótmælendur lokuðu fyrir umferð um þjóðveg 1 yfir „Hossubrú“ í
gær. Lokað var í tvo klukkutíma og ákvörðun samgönguráðherra mótmælt.
Alls eru það átta fyrirtæki sem
selja í Silfru og er talið að 50
þúsund manns – hið minnsta
– fari í gjána á ári. Fleiri vin-
sælir köfunarstaðir eru á
svæðinu, svo sem Davíðsgjá
við Þingvallavatn austanvert.
Reglurnar nýju ná einnig til
þess svæðis.
„Við teygjum okkur jafn
langt í öryggismálum og hægt
er, en vitum samt að aldrei er
hægt að fyrirbyggja öll slys,“
segir Ólafur Örn.
Allt svæðið
50 ÞÚSUND KAFARAR