Morgunblaðið - 13.03.2017, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.03.2017, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. MARS 2017 ✝ Bjarni SalvarEyvindsson fæddist á Landspít- alanum í Reykjavík 5. febrúar 1998. Hann lést í Suður- Afríku 18. febrúar 2017. Foreldrar hans eru Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir og Eyvindur Svanur Magnússon. Bryn- dís giftist Þorsteini Baldurssyni og eiga þau saman Sigrúnu Björgu. Eyvindur er kvæntur Ólafíu Sigurvinsdóttur og eiga þau saman börnin Söru Dögg, Sigurvin Helga og Hugrúnu Birtu. Fyrir átti Eyvindur dæturnar Lovísu Oktavíu og Karen Hrönn. Karen Hrönn á dótturina Elenu Hrönn. Bjarni Salvar ólst upp í Hafnarfirði hjá móður sinni og uppeldisföður. Bjarni Salvar var alla tíð mikið hjá móðurömmu sinni og afa, Fríðu og Gunna. Útför Bjarna Salvars fer fram frá Víðistaðakirkju í dag, 13. mars 2017, klukkan 15. Er þú brýst fram gegn bylnum berðu höfuðið hátt óttastu ei myrkrið né ógn þess og mátt litríkur ljósheimur bíður og lævirkja söngurinn þíður. Áfram, stríðum stormi gegn áfram, strítt þó falli regn þótt drauma þína skilji ei neinn þú áfram, áfram ferð aleinn. Þó aldrei ertu einn aldrei ertu einn. Áfram, áfram, með hugprútt hjarta hugsaðu um framtíð bjarta þú arkar aldrei einn. (Bjarki Elíasson þýddi) Minning um góðan dreng. Pabbi, Ólafía og systkini. Elsku litli bróðir. Við töluðum ekki saman á hverjum degi. Hver ástæðan var er okkur ekki skýr, en við hugsum að allir séu sekir um það í hröðu nútímasamfélagi að leyfa degin- um að þjóta hjá án þess að staldra við og tala við sína nánustu. Það þýðir þó ekki að við hugsum ekki til þín. Þú ert litli bróðir okkar og munt alltaf vera það, sama hvar við erum stödd. Við munum eftir því þegar fréttir bárust af komu þinni. „Lítill bróðir!? Vá, en spennandi! Ætli við höfum ekki hlustað á Spice Girls allan þann dag af ánægju. Svo fæddist þú, litli strákurinn með stóru eyrun og forvitnu augun, bræddir okkur systur alveg. Púkastríðnisbrosið fylgdi þér líka öll árin. Þú pass- aðir ekki alveg inn í kassann sem samfélagið vildi setja þig í, en á pabbahelgum þar sem við vorum öll þrjú saman, þar áttirðu skjól. Við gleymdum oft stað og stund. Eins og við höfum verið minnt- ar á þá er eðlilegt að unglingar minnki samskipti við fjölskyldu- meðlimi sína, þannig að síðustu ár hafa verið klassísk á þann hátt. Lovísa unglingur, Karen ungling- ur og loks þú. Við vorum öll loks- ins að verða fullorðin, þrátt fyrir að húmorinn sem við fengum frá föðurfjölskyldunni í vöggugjöf sé kannski enginn sérstakur vitnis- burður um það. Þú varst orðinn fullorðinn með stóra drauma og fyrir það fylltumst við stolti. Þú ætlaðir ekki að láta neinn stöðva þig né hafa áhrif á hvað þig lang- aði að gera. Þig langaði að ferðast, þú ætlaðir að njóta og láta gott af þér leiða. Góðmennsk- an sem einkenndi þig gerði þig að svo einstökum karakter, ótrúlega barngóður og ljúfur. Þér þótti svo vænt um yngri systkini okkar og hafðir endalausa ást að gefa þeim. Þú hafðir augljóslega meira til að gefa og þess vegna ákvaðstu að fara í sjálfboðaliðastarfið. Það hefði verið yndislegt að fylgjast með þér áfram í því, okkur grunar nefnilega að það hefði getað orðið að ævistarfi þínu. Að hjálpa þeim sem minna mega sín. Sama hvert þetta ferðalag sem þú ert í núna mun taka þig, þá verður þú alltaf órjúfanlegur hluti af heildinni og við munum alltaf sakna þín. Þínar systur, Lovísa Oktovía Eyvinds- dóttir og Karen Hrönn Eyvindsdóttir. Elsku Bjarni Salvar. Lífið er ekki alltaf sanngjarnt, það að ungur maður í blóma lífs- ins sé hrifsaður í burtu finnst mér sorglegt. Ég var svo stolt af þér, þú varst orðinn svo sjálfstæður ungur maður sem fórst þína eigin leið og gerðir það sem þér fannst gaman og gefandi. Það er ekki fyrir hvern sem er að ferðast erlendis einn og óstuddur en þér fannst gaman að ferðast og gerðir það án nokkurs stuðnings. Að þú skulir hafa treyst þér í þetta langa ferðalag alla leið til Suður-Afríku einn er ekki fyrir hvern sem er, ég get alveg sagt það að ég myndi ekki leggja í það sjálf. Mig langar að kveðja þig með versi sem lýsir þér svo vel: Sé ég svo margt er ég minnist þín, þessi einstöku augu með fallega sýn, brosið þitt bjart eins og þegar sól skín. Sé ég svo margt er ég minnist þín. (Magnús Helgi Magnússon.) Elsku Bryndís og Steini, Eyvi og Ólafía, systkini, ömmur og afi, Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Þín frænka, Íris. Fyrir okkur var þetta erfiðasti og átakanlegasti tími lífs okkar, en ekkert í samanburði við missi fjölskyldunnar. Bryndís, Eyvi, Steini, Fríða, Sigrún og allir að- standendur, við erum að hugsa til ykkar í dag og hjörtu okkar og krakkanna frá munaðarleysingja- heimilinu eru með ykkur í dag og alla daga. Hetjan hann Bjarni, ungi mað- urinn með ljónshjartað, kom til Afríku til þess að skipta sköpum í lífi þeirra sem minna mega sín. Hann kom með ljós og hugrekki með sér. Fullur af jákvæðni og svo sterka nærveru. Það tóku all- ir við hann ástfóstri um leið. Hann smitaði út frá sér ást og gleði. Andi hans var einstakur og við- horf hans að láta ekkert stoppa sig, „ég get allt sem ég vil“ við- horf, er einmitt það sem við reyn- um að kenna börnunum okkar hér í fátækrahverfunum sem búa við miklar takmarkanir daglega. Bjarni var fyrirmynd þeirra og allra okkar sem eftir sitjum. Afríka kennir að þegar það er vonleysi þá er von, þar sem er myrkur þar er ljós, þar sem er barn þar er bros. Og það er með viðhorf Bjarna að leiðarljósi „never give up“, gef- ast aldrei upp, sama hvaða spil líf- ið gefur okkur, sem við verðum að halda minningu hans Bjarna lif- andi í orði og verki. Við munum láta ljós hans skína áfram í hjálp- arstarfinu hér í Afríku og hans byrjun mun ekki taka enda. Frá börnunum niðri á munó: „you are our african hero Big Bee, we love you, we miss you and we need you“. Til Tómasar og Ragnars sem lifðu hverja mínútu af þessum harmleik hér í Suður-Afríku, við viljum segja við ykkur: Reynslan hér mun tengja ykkur um alla ævi, styrkur ykkar og hugrekki er aðdáunarvert. Þið komuð hing- að sem strákar og eftir alla reynsluna, góða og slæma, erf- iðasta tíma lífs ykkar en jafn- framt fullt af góðum minningum, þá fóruð þið heim frá Afríku sem menn. Eins og þeir segja í Afríku: „Gangið reistir eins og hávaxnir afrískir menn, gangið með prikið þétt ykkur við hlið og verið stolt- ir.“ Við erum svo stolt af ykkur. Megi Guð blessa fallegu hug- rökku sálina hans Bjarna. Afríka mun sakna þín. Ást og þakklæti, Lilja og Richard. Mér hlaust því miður ekki sá heiður að þekkja hann Bjarna lengi en þrátt fyrir stutt kynni munu þau skilja eftir sig spor á sálinni. Ég hef stundum heyrt tal- að um að þeir einstaklingar sem koma inn í líf manns séu sendir til að kenna manni eitthvað og þar er hann Bjarni engin undantekning. Hann kenndi mér það að maður á ekki dæma bókina eftir kápunni og að maður eigi ekki að láta fötl- un sína stoppa sig í því sem maður vill fá út úr lífinu, sama hversu stór eða smá hún er. Ég man þegar hann kom fyrst inn í búðina til mín að sækja um starf um miðjan september í fyrra. Ég dáðist að honum fyrir að sækja um starfið, að láta ekki lögblinduna stoppa sig í því. Ég hugsaði með mér að fyrst hann hefði kjarkinn í þetta gæti ég ekki annað en veitt honum tækifæri til að sanna sig. Og það gerði hann sko aldeilis. Duglegri, samvisku- samari og kurteisari dreng er erf- itt að finna. Hann kom mér á óvart á hverjum degi með dugn- aði sínum og gekk í öll verk sem þurfti að gera án þess að kvarta. Við gerðum reyndar stundum grín að því að ég vildi ekki leyfa honum að læra á grillið þar sem ég vildi ekki vera ábyrg fyrir því að hann brenndi á sér nefið. Lík- lega hefði hann tekið það með trompi eins og allt annað sem hann tók sér fyrir hendur í vinnunni. Viðskiptavinir, sem og aðrir, höfðu stundum orð á því hvað hann var alltaf kurteis, hress og jákvæður á vöktunum sínum. Gladdi hann marga þeirra er hann kvaddi og þakkaði fyrir viðskiptin með orðunum „eigðu svo góðan dag“. Það kom stundum fyrir að Bjarni endaði á spjalli með sex ára syni mínum og fannst mér svolítið gaman að fylgjast með því úr fjarska því þeir gátu spjallað saman um allt milli himins og jarðar og fóru úr einu í annað, en einhvern veginn náðu þeir alltaf að fylgja hvor öðrum í samræð- unum; þótt ég væri löngu búin að missa þráðinn héldu þeir honum. Ég vil votta fjölskyldu og að- standendum Bjarna samúð á þessum erfiðu tímum. F.h. samstarfsfélaga 10-11, Dagný Kristín. Bjarni Salvar Eyvindsson ✝ Elín Árnadóttirfæddist í Hrísey 13. september 1926. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Lög- mannshlíð á Ak- ureyri 1. mars 2017. Foreldrar hennar voru Árni Sigurðs- son, f. 19. ágúst 1886, d. 5. júlí 1958, og Guðrún Jón- asdóttir, f. 18. jan- úar 1894, d. 13. júní 1961. Systk- ini Elínar voru: 1) Ragnheiður, f. 1912, d. 2007. 2) Jóhanna Sigríð- ur, f. 1915, d. 1979. 3) Dýrleif, f. 1916, d. 1994. 4) Jónas Heiðdal, f. 1917, d. 1947. 5) Þuríður Ásta, f. 1918, d. 2008. 6) Sigurður, f. 1920, d. 1986. 7) Árni Ásgrímur, f. 1922, d. 1939. 8) Ingibjörg Kristjana, f. 1923, d. 2003. 9) Ís- leifur, f. 1928, d. 2001. 10) Sig- urrós Kristín, f. 1931, d. 2015. 11) Kolbrún Sjöfn, f. 1935. 12) Páll, f. 1936. Þann 9. október 1945 giftist Elín Kristni Frímanni Jakobssyni skipstjóra, f. 2. nóvember 1921, d. 22. febrúar 1994. Kristinn var sonur hjónanna Jakobs F. Krist- eiginmaður hennar Ágúst Björn Ágústsson, f. 1954, búsett í Kópa- vogi. Synir þeirra eru Ágúst Þór og Hrafnkell Freyr. f) Kristinn Frímann rafvirki, f. 1957, eig- inkona hans er Elín Guðmunds- dóttir, f. 1959, búsett í Hafn- arfirði. Börn þeirra eru: Unnur Véný, Elín Dagný og Guðmundur Frímann. g) Svanur rafvirki, f. 1961, eiginkona hans er Hulda Kristín Hermannsdóttir, f. 1963, búsett á Akureyri. Synir þeirra eru: Hafsteinn, Haukur og Hin- rik. h) Örn mjólkurfræðingur, f. 1964, búsettur á Akureyri. Synir Arnar og Ragnheiðar Tryggva- dóttur eru Hafþór Ingi og Andri Heiðar. Barnabarnabörnin eru orðin 29 og barnabarnabarna- börnin tvö. Elín og Kristinn hófu búskap í Hrísey og bjuggu þar að mestu til ársins 1972, þá fluttu þau til Akureyrar og bjó hún þar til dauðadags. Þegar þau bjuggu í Hrísey var Elín heimavinnandi húsmóðir. Eftir að þau fluttu til Akureyrar hóf hún störf hjá Sendibílastöðinni á Akureyri við símsvörun og önnur tilfallandi skrifstofustörf. Hún starfaði þar til ársins 1996. Útför Elínar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 13. mars 2017, klukkan 13.30. inssonar og Filippíu G. Valdimarsdóttur. Elín og Kristinn eignuðust átta börn. Þau eru: a) Jakob vélvirki, f. 1945, d. 2010, eftirlifandi eiginkona hans er Jóhanna M. Antons- dóttir, f. 1946, bú- sett á Akureyri. Börn þeirra eru Ragnheiður, Lilja, Anna og Kristinn Frímann. b) Árni skipstjóri, f. 1946, eiginkona hans er Eygló Ingimarsdóttir, f. 1945, búsett í Hrísey. Börn þeirra eru Ingimar, Kristinn Frímann, Elín og Ómar. c) Steinunn Kristj- ana hjúkrunarfræðingur, f. 1949, d. 2016, eftirlifandi eiginmaður hennar er Hrafnkell Guðmunds- son, f. 1951, búsettur í Kópavogi. Synir þeirra eru Arnar Már, Þröstur og Hrafnkell, f. 4. desem- ber 1984, d. 19. desember 1984. d) Guðrún sjúkraliði, f. 1951, bú- sett á Akureyri. Börn hennar og Gunnars Kristdórssonar eru Elín Dögg og Kristdór Þór. e ) Þórdís Björg lífeindafræðingur, f. 1954, Elskuleg Ella amma lést þann 1. mars síðastliðinn og ég mun sakna hennar sárt. Amma var kraftmikil, dugleg og sterk kona. Hún hafði mikinn baráttuvilja og ásamt afa kom hún átta dugandi börnum á legg og þau eiga henni margt að þakka. Hún lét ekki þar við sitja heldur hefur hún iðulega aðstoð- að börn og aðra afkomendur þegar þau hafa þurft á því að halda. Ég er í hópi þeirra sem amma hefur hjálpað í gegnum tíðina og ég get þakkað henni margt. Hún var mér mikilvæg og snerti líf mitt með ýmsum hætti. Oft var ég í mjög nánu sambandi við hana, sérstaklega á þeim tíma sem ég bjó hjá henni og afa. Ég bjó hjá þeim í Stekkjargerði á mismunandi æviskeiðum, en þar á meðal fyrstu árin mín í menntaskól- anum. Þau komu fram við mig af umhyggju og ást, en settu einnig skýrar reglur. Já, það var sko ekki í boði að unglingurinn væri of lengi úti á kvöldin. Það var svo gott að vera hjá ömmu og afa og það ríkti ávallt gleði og friðsæld á heimilinu. Amma þreyttist aldrei á að halda heimilinu hreinu og fínu og hafa ávallt góðgæti á boð- stólum. Í boði var morgunmatur eða morgunkaffi, hádegismatur, síðdegiskaffi, kvöldmatur og svo kvöldkaffi. Já, ég fór aldrei svöng að sofa á meðan ég bjó hjá ömmu og afa. Hún amma var ráðagóð og hún var klettur í lífsins ólgusjó, hjá henni fann ég og lærði stað- festu. Hún kenndi mér einnig að sparsemi, dugnaður og reglu- semi geta komið manni langt í lífinu. Hún lagði ávallt áherslu á að menntun væri ómetanleg og hún sagði mér að það væri aldr- ei í boði að gefast upp fyrir neinu í lífinu. Elsku amma; ég, Kristín Lind, Kristdór og fjölskylda sendum þér knús og kærleika og munum varðveita þig í hug- um okkar og hjörtum um aldur og ævi. Elín (Ella) Dögg. Ella amma kvaddi þessa jarð- vist 1. mars síðastliðinn. Hún var ein af hvunndagshetjum síð- ustu aldar. Saltaði síld á síld- arplönum, ól átta börn og kom þeim vel til vits og ára, sjó- mannskona, húsmóðir sem sá til þess að allir hefðu nóg að bíta og brenna. Þvottur þveginn án sjálfvirkrar þvottavélar, prjónað og saumað á börnin. Við munum sérstaklega eftir bleiku og gulu gammosíunum sem voru prjón- aðar úr draloni í prjónavélinni. Kona sem kvartaði ekki tók því sem að höndum bar. Amma var einstök. Við systkinin erum heppin að hafa alist upp með ömmu og afa í sama bæjarfélagi og nú alveg fram á fullorðinsár. Amma og afi Kiddi fluttu frá Hrísey til Akureyrar árið 1972 í Stekkjargerði 4 og frá þeim degi voru þau aldrei kölluð annað en amma og afi í Stekkjargerði. Þó svo að amma hafi verið flutt úr Stekkjargerði hélt hún viðurnefni sínu. Á okkar yngri árum fórum við flesta sunnudaga í kaffi til ömmu og afa, þar svignaði borð- ið undan heimagerðum tertum og öðru góðgæti, peruterta, döðluterta og svo má ekki gleyma smurbrauðstertunni með bleika salatinu, það var ömmu „special“. Jóladagur í Stekkjar- gerði var líka fastur liður, stundum dansað og sungið í kringum jólatréð, spilað og borðað og borðað. Sviðin, hangi- kjötið, harðfiskurinn og heima- tilbúni ísinn með niðursoðnum ávöxtum. Amma var mjög heimakær, henni fannst gott að fá okkur í heimsókn og alltaf var notalegt að setjast við eldhúsborðið og spjalla um alla heima og geima. Það var hægt að ræða allt við Ellu ömmu, um pólitíkina, barnauppeldið, bæjarlífið, veðr- ið, vinnuna, handboltann, fót- boltann, fiskiríið og allt þar á milli, við komum aldrei að tóm- um kofunum hjá ömmu. Hún fylgdist vel með öllum afkom- endum og var mjög umhugað um hvort allt gengi ekki vel og hvort allir væru nú ekki frískir og glaðir. Það er sárt að horfa á eftir þeim sem sem hafa verið hluti af tilverunni allt lífið en minning- arnar ylja um hjartaræturnar. Við vitum að afi, pabbi og Steina frænka taka á móti henni opn- um örmum í Sumarlandinu. Hvíl í friði. Ragnheiður, Lilja, Anna og Kristinn Frímann. Í dag kveðjum við okkar elskulegu ömmu, langömmu og langalangömmu Elínu Árnadótt- ur. Ella amma eins við kölluðum hana var svona ekta amma og vildi allt fyrir okkur gera og hafði mikið fyrir öllum þeim sem heimsóttu hana. Alltaf var klárt smurt brauð í ísskápnum eða nýbakað í Stekkjargerði 4, en þar bjuggu amma og afi mest allan tímann frá því að þau fluttu frá Hrísey 1972 til Akureyrar. Ferðirnar til ömmu og afa í Stekkjargerði voru ógleymanlegar. Jólaboðin og allar aðrar veislur sem haldn- ar voru í Stekkjargerði voru alltaf eins og hjá stórhöfðingj- um. Veisluborðin svignuðu und- an krásunum og fóru ávallt allir vel saddir heim. Fjölskyldan er stór og var oft margt um mann- inn í Stekkjargerði og mikið líf, pólitík var þar rædd, rætt um sjávarútveginn og gamlir tímar rifjaðir upp. Amma var alltaf klár með allt fyrir alla, hvort sem það var matarkyns eða bara að setjast niður og spjalla, alltaf var hægt að fá gistingu, við bjuggum oft í lengri tíma hjá þeim, t.d. meðan við vorum í framhaldsskóla á Akureyri. Við krakkarnir bjuggum og ólumst upp í Hrísey og var oft farið í heimsókn til Akureyrar og ávallt gist hjá ömmu og afa í Stekkjargerði. Þessar heimsókn- ir eru mjög sterkar í minning- unni. Það var reiðarslag fyrir alla og sérstaklega fyrir ömmu þegar afi dó 22. febrúar 1994, 72 ára að aldri. Þau voru mjög samrýnd og stóðu vel að sínu uppeldi á þeim átta börnum sem þau áttu saman, fimm strákar og þrjár dætur. Öll komust þau til vits og ára, sem hvert foreldri getur verið stolt af. Ella amma átti svo líka eftir að sjá á eftir tveimur börn- um sínum, elsta syni sínum Jak- obi, Kobba frænda eins og við kölluðum hann, sem lést árið 2010 og elstu dóttur sinni Stein- unni, eða Steinu frænku, sem dó 2016. Amma flutti svo úr Stekkjar- gerði 4 2004 og í Bjarkarlund 1 þar sem hún dvaldi alveg þang- að til hún fékk herbergi í Lög- mannshlíð í fyrra. Um miðjan febrúar síðastliðinn varð svo amma fyrir því óláni að detta illa og lærbrotna, hún náði sér ekki upp úr því og lést 1. mars. Það er gott til þessa að hugsa að nú eru elsku Ella amma og Kiddi afi sameinuð á ný eftir 23 ára fjarveru ásamt Kobba frænda og Steinu frænku. Þau eiga öll sérstakan stað í hjörtum okkar og við erum rík af þeim minningum sem við eigum um þau. Ég stend á strönd og horfi á skip sigla í morgunblænum út hafið. Það er falleg smíði og ég stend þar og horfi á það unz það hverfur sjón- um mínum út við sjóndeildarhring. Það er farið!“ Farið! Hvert? Farið úr minni augsýn. Það er allt og sumt. Það er þó enn jafnstórt í möstrum, bol og siglutrjám og þegar ég sá það. Og getur flutt jafnmikinn farm og mannfjölda á ákvörðunarstað. Minnkandi stærð og hvarf þess úr minni augsýn er í huga mér en ekki í því. Og einmitt þegar einhver nálægur segir: „Það er farið!“ Þá eru aðrir, sem horfa á það koma og aðrar raddir heyrast kalla: „Þarna kemur það!“ Og þannig er að deyja. (Brent biskup) Ingimar, Kristinn, Elín og Ómar Árnabörn og fjölskyldur. Elín Árnadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.