Morgunblaðið - 13.03.2017, Side 32

Morgunblaðið - 13.03.2017, Side 32
MÁNUDAGUR 13. MARS 72. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. 1. Missa íbúðina eftir tuttugu daga 2. Ragnhildur Steinunn í stolinni... 3. Fyrst nauðgað og síðan kölluð hóra 4. Öll fjármagnshöft afnumin »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Læknirinn Torfi Magnússon fjallar um hið áhugaverða fyrirbæri valda- fíkn í Heilsuspjalli í Hannesarholti í kvöld kl. 20. Valdafíkn getur, líkt og önnur fíkn, átt sér líffræðilegar for- sendur og með vísun til bókmennt- anna mun rithöfundurinn Guð- mundur Andri Thorsson einnig fjalla um efnið sem mörgum ritsnillingum sögunnar hefur verið hugleikið. Valdafíkn til umræðu í Hannesarholti  Tónleikasýning um söngkonuna Whitney Houston verður sýnd í Eld- borgarsal Hörpu annað kvöld og miðvikudagskvöld kl. 20. Með hlut- verk Houston heitinnar fer hin suðurafríska Belinda Davids. Sýning helguð Whit- ney Houston í Hörpu  Höfundar þriggja nýrra bóka sem fjalla um íslenska leiklist segja frá þeim á rithöfundakvöldi annað kvöld kl. 20 í Gunnarshúsi en að því loknu mun Sigríður Jónsdóttir, leiklistar- gagnrýnandi Fréttablaðsins, spyrja þá út úr og stjórna umræðum. Bækurnar eru Íslensk leiklist III eftir Svein Ein- arsson, Lóðrétt rannsókn: Ódauðleg verk áhugaleikhúss at- vinnumanna 2005- 2015 eftir Steinunni Knútsdóttur og Stef ástar og valds í svið- setningum Þórhildar Þorleifsdóttur eft- ir Trausta Ólafsson. Rætt um þrjár bækur um íslenska leiklist Á þriðjudag Vestan 8-15 m/s og él, þó síst austanlands. Hiti 0 til 4 stig við ströndina, en vægt frost inn til landsins. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skúrir eða él, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Suðaustan og austan 8-13 m/s síðdegis og í kvöld, en 10-18 suðvestan til. Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands. VEÐUR Það heyrir varla lengur til tíðinda að Stjarnan í Garða- bæ sigri í kvennaflokki í hópfimleikum, en liðið er bæði Íslands- og bik- armeistari síðasta árs. Stúlkurnar urðu síðan í gær bikarmeistarar þriðja árið í röð og í blönduðum flokki sigraði Stjarnan einnig og er það í fyrsta sinn sem fé- lagið krækir í þann titil en bikarmót fór fram í Ásgarði í gær. »2 Stjarnan var sig- ursæl í bikarnum „Það var mikill kraftur í þessu hjá mér sem er afar jákvætt. Hinsvegar einblíndi ég ekki á lengdina í þessu móti heldur frekar að ganga úr skugga um hvernig ég stend að vígi um þessar mund- ir. Í hvaða atriðum þarf að vinna betur,“ sagði Ásdís Hjálmsdóttir, Ís- landsmethafi í spjótkasti, eftir að hún hafnaði í öðru sæti í spjótkasti á Vetrarkastmóti EAA á Kanaríeyjum í gær. Hún skaut m.a. heimsmeistaranum ref fyrir rass. »1 Kraftur í Ásdísi í keppni á Kanaríeyjum Mikil spenna er í keppninni um tvö síðustu sæti í úrslitakeppninni um Ís- landsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna. Þegar þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni stendur baráttan milli fjögurra liða, Hauka, ÍBV, Gróttu og Vals, en aðeins tvö stig skilja þau að. Grótta var eina liðið sem fagnaði sigri í leikjum umferðarinnar um helgina. »8 Fjögur lið eru að kljást um tvö sæti ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is „Svala hefur verið innan um tónlist og tónlistarfólk frá því hún var barn. Hún stendur sig ótrúlega vel og ég er gífurlega stoltur af henni,“ segir Björgvin Halldórsson, söngvari og faðir Svölu Björgvinsdóttur sem stóð uppi sem sigurvegari í söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardag. Bæði eru þau iðin við kolann, en Björgvin frétti af úrslitunum þegar hann var að störfum, nánar tiltekið stóð hann uppi á sviði á tónleika- staðnum Græna hattinum á Ak- ureyri. Svala, Svala, Svala! „Þegar við vorum í laginu Skýið sá ég að fólk var með símana á lofti. Svo reis það upp og byrjaði að fagna. Það varð allt vitlaust í salnum, ég reyndi að klára lagið og gerði það. Ég var mjög hrærður,“ segir Björgvin, en hann áttaði sig fljótt á því hvað væri um að vera. „Það lá í augum uppi, fólk stóð upp og hrópaði: „Svala, Svala, Svala! Það var sérstaklega skemmtilegt að upplifa á miðjum tónleikum þessa hamingjustund. Al- veg æðislegt,“ segir hann. „Ég hringdi svo í hana um nóttina. Þá var hún hjá mömmu sinni. Ég tal- aði við hana, óskaði henni til ham- ingju og kyssti hana gegnum eyrað,“ segir Björgvin. „Í algjöru sjokki“ Svala segir að lagið Skýið sé í sér- stöku uppáhaldi hjá sér og það hafi verið ótrúlegt að faðir hennar hafi fengið að vita af sigrinum í því lagi. „Hann hringdi í mig þegar hann var búinn að klára á Græna hatt- inum. Hann var eiginlega orðlaus og vissi ekki hvað hann átti að segja. Ég hef aldrei lent í því áður, yfirleitt reytir hann af sér brandarana, en hann var í algjöru sjokki!“ segir Svala. Þau Svala og Björgvin fást að jafn- aði við ólíka tónlist, sem kunnugt er, en styðja hvort annað. Björgvin segir Svölu ávallt hafa staðið á eigin fótum. „Ég miðla af reynslu minni, en Svala er nú með svo mikinn reynslubanka sjálf að ég segi henni nú ekki mikið fyrir verkum og ekki Krumma syni mínum heldur. Þau standa upprétt sjálf og gera það vel. Það kom alveg í ljós hjá Svölu á sviðinu,“ segir hann „Pabbi er auðvitað pabbi minn og styður við mig í öllu sem ég geri. Hann hefur samt alltaf leyft mér að gera mitt. Hann hefur aldrei tranað mér fram, ég hef þurft að gera það sjálf. Þegar ég var krakki þurfti ég að grátbiðja hann um að fá að syngja á þessum jólaplötum öllum!“ segir Svala og hlær. »29 Frétti af sigrinum í miðju lagi  Björgvin varð orðlaus eftir að Svala sigraði Morgunblaðið/Golli Heima Svala leit inn hjá föður sínum í gær eftir annasama helgi. Í fangi hans er kötturinn Sheila og í fangi Svölu liggur Elvis. Björgvin er stoltur af dóttur sinni, sem sigraði í söngvakeppni sjónvarpsins með laginu Paper. 22 ár eru nú frá því Björgvin tók sjálfur þátt í söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva. Keppnin var haldin í Dyflinni á Írlandi það árið og flutti hann þar lagið Núna. Lagið samdi hann sjálfur ásamt Ed Welch, en höfundur textans er Jón Örn Marinósson. Líkt og Björgvin samdi Svala sitt lag, Paper, en meðhöfundar henn- ar eru Lester Mendez og Lily Elise, auk eiginmanns Svölu, Einars Egilssonar. Svala samdi textann við lagið ásamt fyrrnefndri Lily. Að sögn Svölu fer nú í hönd und- irbúningur fyrir keppnina sem haldin verður í Kiev, en hún segir að sviðsumgjörð atriðisins verði breytt frá því í Laugardalshöll. Í Úkraínu verði stærra svið sem bjóði upp á fleiri möguleika. Úrslit keppninnar í Úkraínu verða hinn 13. maí, en und- ankvöldin 9. maí og 11. maí. 22 ár frá þátttöku Björgvins SVALA FETAR Í FÓTSPOR FÖÐUR SÍNS Í MAÍ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.