Morgunblaðið - 17.03.2017, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Kæli- og frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ottó Magnússon matreiðslumaður
vann til bronsverðlauna með liði
sínu, sem útbjó „íslenskt“ verk á
heimsmeistaramótinu í ísskurði
sem fram fór í Fairbanks í Alaska í
liðinni viku.
Þetta var í 28. sinn sem keppnin
er haldin. Keppt er í tveimur flokk-
um, tveggja manna og fjögurra
manna, og eru tvær greinar í hvor-
um flokki. Í fyrri keppninni, sem
tók þrjá daga, meiddist félagi Ottós
en þeir luku samt verkinu með
sóma. Í þeirri seinni var Ottó í liði
með þremur Bandaríkjamönnum á
móti sjö öðrum liðum. Þeir fengu
um 10 tveggja tonna þunga ís-
klumpa til þess að vinna úr og
höfðu sex daga til þess að ljúka
listaverkinu.
Ottó segir að hann hafi fengið
leyfi hjá dætrum Jóns Gunnars
Árnasonar, höfundi Sólfarsins, til
þess að gera eftirmynd af því og
því hafi hópurinn verið með ís-
lenskt þema. „Við vorum í keppni
við margfalda heimsmeistara en
þetta heppnaðist svona rosalega
vel,“ segir hann og bætir við að ís-
skúlptúrinn hafi verið um 80-90%
af stærð listaverksins við Sæbraut í
Reykjavík.
Um 40 stiga frost
Kuldinn setti strik í reikninginn
og fór niður í um 40 stiga frost.
„Ég hef aldrei upplifað annað eins
frost,“ segir Ottó, en menn unnu
allt að 18 tíma á sólarhring. Lyft-
arar voru til taks til þess að koma
blokkunum fyrir á réttum stað.
„Það er mjög erfitt að eiga við
klakann í svona miklu frosti,“ segir
Ottó.
Þetta er í þriðja sinn sem Ottó
tekur þátt í keppninni, fyrst 2013
og síðan í fyrra. Hann hefur lengi
haft að áhugamáli að búa til minni
verk úr ís og heldur úti síðu um
klakastyttur á Facebook. Hann
segir að fáir séu í þessu hérlendis
og því skipti miklu máli að fara út í
keppni við menn sem hafi ísskurð
að atvinnu og læra af þeim.
„Maður reynir alltaf að bæta sig
og árangurinn gerði það að verkum
að ég fékk boð frá nokkrum um að
keppa með þeim og það er mikill
heiður,“ segir hann.
Sólfarið skorið út í ís í Alaska
Ottó Magnússon matreiðslumaður og bandarískir liðsfélagar hans unnu til
bronsverðlauna á heimsmeistaramótinu í ísskurði í frostinu í Fairbanks
Verðlaunaverk Ottó Magnússon og félagar hans unnu að gerð Sólfarsins í sex daga og fengu bronsverðaun.
Ísskurðarmeistari Ottó Magnússon sker út listaverk í ís.
Morgunblaðið/Kristinn
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Mikill músagangur hefur verið víða
upp á síðkastið. Meðal annars hefur
borið á músunum á svæði í Keflavík
þar sem margir bílaleigubílar eru
geymdir yfir veturinn. Morgunblaðið
fékk staðfest að hagamýs hefðu kom-
ist inn í bíla og meindýraeyðir verið
kallaður til að fjarlægja þær.
„Það hefur verið aðeins meira af
hagamús en venjulega, veðráttan er
svo góð. Hún er úti um allt. Síðasta ár
var gott hjá músinni og það stefnir
aftur í gott músaár,“ sagði Ragnar
Guðlaugsson meindýraeyðir. Hann
býr á Suðurnesjum og vinnur þar og
á höfuðborgarsvæðinu. Ragnar sagði
að alltaf hefði verið talsvert um mýs í
kringum hesthúsahverfið vestast í
Keflavík. Það væri ekki óeðlilegt
enda eftir ýmsu að slægjast fyrir mýs
á því svæði.
Komast inn með ýmsu móti
Ragnar var í gær að störfum í iðn-
aðarhverfi í Reykjavík og þar var
mikið af músum. „Það hafa verið
rigningar og bleyta. Í svoleiðis tíðar-
fari fyllast músarholurnar af vatni og
þá sækja mýsnar í skjól þar sem er
þurrt. Þær eru með feld og vilja ekki
bleytu. Músin vill vera þar sem er
þurrt og eitthvað til að naga.“
Ragnar kvaðst hafa verið fenginn
til að leita að músum í bílaleigubílum
bæði á Suðurnesjum og á höfuð-
borgarsvæðinu. „Mýsnar komast inn
í bílana með ýmsu móti. Þær geta
komist inn með farangri, ekki síst ef
fólk er úti á landi. Músin reynir líka
að komast inn í bílinn um hvalbakinn.
Svo lokast hún inni og reynir að kom-
ast út aftur. Þær eru aldrei lengi í bíl-
unum. Það er eðli músa að naga og
þær naga allt sem þær geta, hvort
sem er í bíl eða húsi. Ég veit þó ekki
til þess að bílar hafi orðið ógangfærir
vegna músa,“ sagði Ragnar. Hann
sagði menn setja músagildrur í bíla,
sem er lagt um lengri tíma, til öryggis
ef ske kynni að mús kæmist inn í þá.
Mýsnar skjótast líka inn í hús ef
þær geta. Ragnar sagði mikilvægt að
fólk væri á verði gagnvart músa-
gangi, hvort sem er í bílskúrum,
sumarbústöðum, iðnaðarhúsnæði eða
íbúðarhúsnæði. Mýsnar yllu óþrifum
og gætu valdið skemmdum.
Músagildrur voru settar
í bílaleigubíla í vetur
Mýsnar flýja bleytuna í músarholunum og sækja í skjól
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Hagamús Bílaleigur hafa þurft að kalla á meindýraeyði vegna músagangs.
Héraðssaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur lögreglumanni
sem grunaður er um að hafa beitt
mann í haldi ofbeldi. Þetta staðfesti
Ólafur Þór Hauksson héraðs-
saksóknari í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Lögreglumaðurinn starfar hjá
rannsóknardeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, en atvikið
átti sér stað á lögreglustöðinni við
Hverfisgötu síðasta sumar þegar
leiða átti manninn fyrir dómara.
Áður en lagt var af stað mun lög-
reglumaðurinn hafa ráðist á mann-
inn. Myndbandsupptökur úr eftir-
litsmyndavélum sýna atvikið og eru
þær meðal gagna málsins.
Manninum var ekki vikið úr
starfi vegna málsins, en í lok síð-
asta árs kom það til álita. Þá þóttu
ekki lögfræðilegar forsendur til
þess, þar sem of langur tími var þá
liðinn frá atvikinu. Vegna ákær-
unnar verður sú ákvörðun endur-
skoðuð í dag. jbe@mbl.is
Lögreglumaður í Reykjavík ákærður fyrir
að hafa beitt mann í haldi ofbeldi
Betur fór en á horfðist eftir hádegi í
gær þegar leki kom að bátnum Sæ-
ljósi GK um tvær sjómílur norðvest-
ur af Rifi. Einn maður var um borð
og sakaði hann ekki.
Björgunarskipið Björg á Rifi og
þyrla Landhelgisgæslu Íslands voru
kölluð til eftir að neyðarkallið barst
stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
klukkan 13.05. Þrír bátar komu Sæ-
ljósi til aðstoðar, þeir Saxhamar SH,
Sveinbjörn Jakobsson SH 10 og
björgunarskipið Björg, sem búið var
sérstökum dælum til að dæla sjó upp
úr skipinu. Þegar björgunarskipið
kom á vettvang var hins vegar
ákveðið að reyna ekki dælingu, held-
ur sigla fremur bátnum strax í land.
Var beiðni um aðstoð þyrlu Gæsl-
unnar því afturkölluð.
Skipverjinn fór frá borði skömmu
eftir að hjálp barst, en Saxhamar SH
tók Sæljós í tog og var stefnan sett á
höfnina í Rifi. Þegar komið var inn í
höfnina var Sæljós við það að
sökkva, en dæling hófst um klukkan
14 þegar báturinn var kominn að
hafnarbakkanum. Vel gekk að dæla
úr bátnum. jbe@mbl.is
Bjargað
úr lekum
bát við Rif
Saxhamar SH kom
bátnum til hafnar
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Rif Björgunarskipið Björg í for-
grunni og Sæljós GK í höfninni.