Morgunblaðið - 17.03.2017, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Þittervalið
Þú velur að kaupa innréttinguna í
ósamsettum einingum, eða lætur okkur um
samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við
líka uppsetningu og endanlegan frágang.
Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
FjölbreyttúrvalaFhurðum,Framhliðum,
klæðningumogeiningum
styrkur - ending - gæði
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
HÁGÆðaÞvOttaHÚSiNNrÉttiNGar
FATASKÁPAR&
reNNiHUrðir
Opið:
Mán. til föstudaga kl. 09 til 18
Laugardaga kl. 11 til 15
Íslenskir ráðherrar brutust á dög-unum í gegnum veðurofsann í
New York til fundahalda og til að
stilla sér upp á myndum með fræg-
um leikkonum.
Í frétt á vef vel-ferðarráðu-
neytisins segir að á
einum fundanna
hafi verið „Herhvöt
gegn kynbundnum
launamun“. Þar
kemur einnig fram
að „óleiðréttur
launamunur kynja á
heimsvísu sé um
23%“.
Nú er það svo aðmælingar á
kynbundnum launa-
mun eru í meira lagi vandasamar
og á það hefur verið bent að mæl-
ingar sem gerðar hafa verið hér á
landi og benda til launamunar á
milli kynja upp á nokkur prósent
séu svo ónákvæmar að þær segi lít-
ið eða ekkert.
Og það eru ekki aðeins karlkynsstærðfræðingar og tölfræð-
ingar sem bent hafa á þetta. Í Kast-
ljósi var á dögunum rætt við Elsu
Þorkelsdóttur, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Jafnréttisráðs, um
kynbundinn launamun og hvort
hann væri til staðar.
Elsa sagði: „Kannanir sem viðhöfum sýna ekki kynbundinn
launamun, þær sýna launamun milli
kvenna og karla.“ Spurð nánar
hvort kannanir sýni kynbundinn
launamun ítrekaði hún þetta: „Nei,
þær gera það ekki.“
Ætli þessi hlið málsins hafi ver-ið rædd í New York eða get-
ur verið að upplýst umræða fari illa
saman við herhvöt stjórnmála-
manna og leikara?
Elsa
Þorkelsdóttir
Litaði herhvötin
umræðuna?
STAKSTEINAR
Þorsteinn
Víglundsson
Veður víða um heim 16.3., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík -2 skýjað
Akureyri -2 snjókoma
Nuuk -20 heiðskírt
Þórshöfn 4 skúrir
Ósló 6 léttskýjað
Kaupmannahöfn 9 skýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 6 heiðskírt
Lúxemborg 18 heiðskírt
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 7 skúrir
Glasgow 10 alskýjað
London 12 þoka
París 18 heiðskírt
Amsterdam 15 léttskýjað
Hamborg 14 heiðskírt
Berlín 12 skýjað
Vín 15 heiðskírt
Moskva 3 skýjað
Algarve 12 léttskýjað
Madríd 18 heiðskírt
Barcelona 9 heiðskírt
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 18 heiðskírt
Aþena 6 heiðskírt
Winnipeg -1 skýjað
Montreal -8 snjókoma
New York 0 léttskýjað
Chicago -1 heiðskírt
Orlando 7 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:38 19:35
ÍSAFJÖRÐUR 7:43 19:40
SIGLUFJÖRÐUR 7:26 19:23
DJÚPIVOGUR 7:08 19:04
Laust fyrir há-
degi í gær var
óskað eftir aðstoð
lögreglunnar
vegna ungmenna
sem áttu í átök-
um fyrir utan
íþróttahús í
Hlíðahverfi í
Reykjavík. Einn
úr hópnum greip
til piparúða í lát-
unum og sprautaði úr honum á ann-
an mann. Sá var fluttur á sjúkrahús
til aðhlynningar, að sögn lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þá var tilkynnt laust fyrir klukkan
hálftvö um pilt vopnaðan loftbyssu,
en drengurinn hafði hleypt af nokkr-
um skotum í grennd við verslunar-
miðstöð í Háaleitis- og Bústaða-
hverfi. Nutu almennir lögreglumenn
aðstoðar sérsveitar ríkislögreglu-
stjóra, en þrátt fyrir mikla leit
fannst pilturinn ekki.
Skömmu síðar barst tilkynning
um annan pilt, í grennd við Laugar-
dal í Reykjavík, og var sá vopnaður
hnífi og hafði í hótunum við aðra á
skólalóð. Hópurinn var hins vegar
farinn er lögreglu bar að.
Ungmenni
með hin
ýmsu vopn
Piparúði, loftbyssa
og eggvopn á lofti
Lögreglan hafði í
nógu að snúast.
Í ljósi þess að þekktasti ferðamanna-
staður Möltu, hinn fyrrum glæsilegi
steinbogi Azure-glugginn, hrundi í
sjóinn fyrir skemmstu, hefur þeirri
spurningu verið velt upp á vef Um-
hverfisstofnunar hvort sömu örlög
gætu beðið annars náttúrufyrir-
brigðis sem finnst hér á landi, gats-
ins í Dyrhólaey.
Í Dyrhólaey hefur oft orðið hrun
og hefur verið girt fyrir umferð
ferðamanna í hlutum hennar í
verndar- og varúðarskyni. Í skýrslu
sem Veðurstofan vann fyrir Um-
hverfisstofnun segir að berghrun og
grjótskriður verði með reglulegu
millibili á allri sunnanverðri Dyr-
hólaey vegna samspils margra þátta.
„Hellisskúta má finna víða niðri
við fjöruna, þar sem brimið hefur
grafið undan klettunum. Margir
þættir gera það að verkum að berg-
hrun og grjótskriður verða í Dyr-
hólaey; lóðréttar sprungumyndanir,
áköf úrkoma, frost, undangröftur af
völdum sjávar og lamstur brimsins.
Hrun í Dyrhólaey gera almennt ekki
boð á undan sér og hafa orðið stór
hrun í suðurhluta eyjunnar sem erf-
itt er að spá fyrir um,“ segir í skýrsl-
unni. Búið er að girða af allan suður-
hluta bjargbrúnarinnar og loka
gönguleið út á Tóna þar sem gengið
er yfir dyrnar sem eyjan dregur
nafn sitt af. Einnig hafa verið sett
upp varúðarskilti. sisi@mbl.is
Í Dyrhólaey hefur oft orðið hrun
Azure-glugginn á Möltu hrundi Getur það sama gerst í Dyrhólaey?
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Dyrhólaey Mikið aðdráttarafl.