Morgunblaðið - 17.03.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
HEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu.
Transporter hefur fylgt kynslóðum af
fólki sem hefur þurft á traustum og
áreiðanlegum vinnuþjarki að halda
sem leysir krefjandi og fjölbreytt
verkefni. Hann er framhjóladrifinn
með fullkominni stöðugleikastýringu
og spólvörn en er einnig í boði með
fjórhjóladrifi og sjö þrepa sjálfskiptingu.
Volkswagen Transporter
kostar frá
4.140.000 kr.
(3.338.710 kr. án vsk)
BYGGIR Á TRAUSTUM
GRUNNI
Volkswagen Transporter
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Áætlað er að árið 2016 hafi um 960
þúsund erlendir ferðamenn nýtt sér
bílaleigubíla á Íslandi (56% gest-
anna), samanborið við um 480 þús-
und árið 2014 (48%) og 166 þúsund
árið 2009 (33%).
Þá er áætlað að 16 þúsund bíla-
leigubílar hafi verið í útleigu til er-
lendra ferðamanna í ágúst í fyrra, 14
til 15 þúsund í júlí, um 12 þúsund í
júní, litlu færri í september en færri
aðra mánuði ársins.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í greinargerðinni „Akstur og
öryggi erlendra ferðamanna 2016“
sem unnin var af fyrirtækinu Rann-
sóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar
ehf með stuðningi rannsóknarsjóðs
Vegagerðarinnar.
Spurningalistar í Leifsstöð
Spurningar voru lagðar fyrir
ferðamenn þegar þeir yfirgáfu land-
ið í Leifsstöð. Hlutfall karla og
kvenna í könnuninni var nær jafnt.
Um 51% svarenda var á aldrinum
16-35 ára, 32% voru 36-55 ára og
17% yfir 55 ára. Meðalaldur var 40
ár. Flestir voru búsettir í Norður-
Ameríku (35%), en síðan í Mið-
Evrópu (16%), á Bretlandseyjum
(16%) og í Suður-Evrópu (11%).
Samkvæmt því sem að framan
greinir nýttu 5,8 sinnum fleiri ferða-
menn sér bílaleigubíla á Íslandi árið
2016 en árið 2009 og tvöfalt fleiri ár-
ið 2016 en árið 2014. Áætlað er að 12
sinnum fleiri erlendir ferðamenn
hafi nýtt sér bílaleigubíl yfir helstu
vetrarmánuðina árið 2016 (janúar,
febrúar, nóvember, desember) en
árið 2009 eða um 166 þúsund manns
á móti 13-14 þúsund.
Fjölgun á jaðarmánuðum
Kannanir RRF benda einnig til
þess að um átta sinnum fleiri ferða-
menn á jaðartímunum árið 2016
(mars, apríl, maí, september og
október ) hafi nýtt sér bílaleigubíl en
ferðamenn sömu mánuði 2009, eða
nær 400 þúsund á móti um 50 þús-
und. Hins vegar var fjölgunin aðeins
3,8 föld yfir helstu sumarmánuðina
(júní, júlí og ágúst), um 400 þúsund
sumarið 2016 á móti 103 þúsund árið
2009.
Þau 56% erlendra gesta sem nýttu
sér bílaleigubíla árið 2016 óku þeim
að meðaltali um 1.700 km, eða um
230 km á dag þá að jafnaði 7,5 daga
sem dvalið var á Íslandi.
Meðalakstur var tæplega 1.100
kílómetrar yfir helstu vetrarmán-
uðina, um 1.600 km í jaðarmánuð-
unum og 2.150 km yfir sumarmán-
uðina þrjá. Heildarakstur á hvern
leigusamning var lengstur í júlí og
ágúst, um 2.200 km, en stystur í des-
ember, um 900 km.
Áætlað er að erlendir ferðamenn
hafi ekið bíleigubílum alls um 540
milljónir km á Íslandi árið 2016
(miðað við þrjá í bíl að jafnaði). Það
samsvarar meðalakstri um 45 þús-
und heimilisbíla á Íslandi miðað við
12 þúsund km akstur á ári. Árið 2016
voru nálægt 220 þúsund einkabílar á
Íslandi eða um 0,67 bíll á hvern íbúa.
Því má áætla akstur erlendra ferða-
manna á bílaleigubílum árið 2016 um
20% af öllum akstri Íslendinga á
einkabílum, að því er fram kemur í
könnuninni.
Til samanburðar má nefna að
áætlað er að árið 2014 hafi erlendir
ferðamenn ekið bílaleigubílum á Ís-
landi um 270 milljónir km og um 90
milljónir km árið 2009. Samkvæmt
því var álag bílaleigubíla á vegakerf-
ið, þar sem erlendir ferðamenn voru
við stýrið, nær sex sinnum meira ár-
ið 2016 en árið 2009 og tvöfalt meira
árið 2016 en 2014.
Stóraukin notkun bílaleigubíla
Áætlað er að árið 2016 hafi um 960 þúsund erlendir ferðamenn nýtt sér bílaleigubíla á Íslandi
Voru 480 þúsund árið 2014 Ferðamennirnir óku bílunum 540 milljónir km á Íslandi í fyrra
Áætlað er að um 4.800 ferðamenn hafi að jafnaði komið
á um 1.600 bílaleigubílum að Geysi hvern dag í júlí og
ágúst 2016 en að jafnaði 1.200 manns á dag í janúar á
um 400 bílum, en þá var minnst umleikis. Sambæri-
legar tölur fyrir Þingvöll eru áætlaðar um 1.300 bílar á
dag í júlí og ágúst en um 320 bílar hvern dag janúar-
mánuðar. Að Jökulslárlóni komu um 1.100 bílar í júlí og
ágúst en 90 bílar á dag í janúar.
Morgunblaðið/Ómar
4.800 ferðamenn að Geysi dag hvern
Ef miðað er við 8 lítra meðal-
eyðslu bílaleigubílanna á hverja
100 kílómetra og eldsneytis-
verð að jafnaði 200 krónur á
lítra má lauslega slá á að elds-
neytisútgjöld erlendra ferða-
manna vegna aksturs á bíla-
leigubílum á Íslandi árið 2016
hafi numið 8,6 milljörðum
króna.
Áætlað er að heildarakstur
erlendra ferðamanna á bíla-
leigubílum árið 2016 hefi verið
lengstur í júlí og ágúst, rúmlega
100 milljónir kílómetra hvorn
mánuð, eða um 3,5 milljónir km
á dag.
Sá daglegi akstur samsvarar
um 2.500 hringjum um landið
eftir þjóðvegi 1, eða fimm ferð-
um fram og til baka til tungls-
ins. Hins vegar er heildarakstur-
inn áætlaður minnstur í janúar
og febrúar, 9-10 milljónir kíló-
metra hvorn mánuð.
Áætlað er að gestir frá Norð-
ur-Ameríku hafi ekið mest á
bílaleigubílunum árið 2016 eða
um 128 milljónir km, 24% af
heildinni.
Síðan komu ferðamenn frá Suð-
ur-Evrópu, utan helstu mark-
aðssvæða og Mið-Evrópubúar
með 79-87 milljónir km eða 15-
16% hlutfall hver hópur. Þá
komu ferðamenn frá Asíu og
Bretlandi með 45-49 milljónir
km og 8-9% hlutfall hvor hópur.
Ferðamenn frá Norðurlönd-
unum og BeNeLux löndunum
óku styst eða um 33 miljónir km
alls og um 2% hvor hópur.
Áætlað er að 53% af öllum
akstri erlendra ferðamanna á
bílaleigubílum hafi átt sér stað
yfir sumarmánuðina þrjá, 37% í
jaðarmánuðunum en 10% yfir
fjóra dimmustu vetrarmánuð-
ina.
Að jafnaði voru mun fleiri
bílar í útleigu erlendra gesta í
október 2016, um 7,2 þúsund,
en í maí, 5,5 þúsund.
Eyddu 8,6 millj-
örðum í eldsneyt-
iskaup í fyrra