Morgunblaðið - 17.03.2017, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Svonefnd reikigjöld fyrir símtöl og
gagnaflutninga í farsímum í löndum
innan Evrópska efnahagssvæðisins,
þ. á m. á Íslandi, falla niður að fullu í
júní næstkomandi. Eftir það mun
eingöngu gilda gjaldskrá þess lands
sem símtal er hafið í án nokkurra
viðbótargjalda.
„Þetta eru viðamiklar breytingar.
Reikigjöldin voru há en hafa farið
snarlækkandi innan Evrópska efna-
hagssvæðisins. Þau hafa verið að
lækka í þrepum mörg undanfarin ár
og síðasta skrefið á að stíga 15. júní
næstkomandi innan Evrópusam-
bandsins og ég vona og geri fastlega
ráð fyrir því að við verðum búin að
innleiða þetta líka í íslenskan rétt
fyrir þann tíma,“ segir Hrafnkell V.
Gíslason, forstjóri Póst- og fjar-
skiptastofnunar.
„Þá getur venjulegur notandi í
venjulegri notkun farið um innan
svæðisins án þess að borga hærra
verð fyrir farnetsnotkun, þ.m.t. fyrir
síma og gagnaflutning miðað við þá
áskriftarpakka sem hann er með
heima hjá sér,“ bætir hann við.
Skilgreina sanngjarna notkun
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra hefur lagt tillögu að
þingsályktun fyrir Alþingi um að
ákvörðun sameiginlegu EES-
nefndarinnar um þessi mál verði
samþykkt og innleidd hér. Um er að
ræða bæði breytingar á vettvangi
Evrópusambandsins varðandi reiki
á almennum farsímanetum, þ.e.a.s.
kostnaðinn við símtöl í farsíma á
milli landa, og hins vegar á að inn-
leiða reglur um opinn netaðgang og
svonefnt netfrelsi í Evrópusam-
bandslöndum og ríkjum á Evrópska
efnahagssvæðinu.
Í greinargerð segir að frá árinu
2007 hafi verið í gildi sérstakar regl-
ur í þeim tilgangi að stilla reikigjöld-
um í hóf innan EES. Með lækkun
reikigjalda hafi skapast aðstæður til
að afnema reikigjöldin í júní 2017 og
fjarskiptanotendur greiði sam-
kvæmt gjaldskrá þess ríkis sem sím-
tal er hafið í án nokkurra viðbótar-
gjalda, að því gefnu að um sann-
gjarna notkun sé að ræða. Þá hefur
Fjarskiptaeftirlitsstofnun Evrópu
verið falið að móta tillögur um hvað
teljist sanngjörn notkun.
Hrafnkell segir þetta fyrst og
fremst snúa að venjulegum notanda
og venjulegri notkun en ákveðnar
undantekningar séu gerðar. ,,Þetta
er að vissu leyti íþyngjandi fyrir
fjarskiptafélögin. Ef einhver notandi
breytist t.d. skyndilega í stórnot-
anda í einhverju þessara landa eru
ákveðin þök en venjulegur notandi í
venjulegri notkun á ekki að verða
var við þau. Ef menn fara umfram
venjulega notkun eiga þeir að detta
inn á ástandið eins og það er í dag,
sem er í raun og veru grunngjaldið
auk viðbótargjalds.“
Spurður hversu stórt þetta loka-
skref sé varðandi kostnað símnot-
enda bendir hann á að far-
símanotkun erlendis innan
EES-svæðisins sé orðin tiltölulega
hóflega verðlögð þannig að fólk hafi
að undanförnu treyst sér til að nota
síma án þess að hafa miklar áhyggj-
ur af kostnaðinum. Þetta hafi sér-
staklega átt við um talþjónustuna.
Gagnaflutningurinn hafi verið nokk-
uð dýr en hafi síðan snarlækkað í
verði. „Þetta er pólitísk aðgerð af
hálfu framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins sem þýðir að ef þú ert
inni á EES-svæðinu gildir bara ein
regla og það er heimareglan,“ segir
hann. Hrafnkell segir að afnám
reikigjaldanna marki vissulega
tímamót og hvergi annars staðar í
heiminum hafi náðst sambærilegt
samkomulag milli ríkja um kostnað
vegna farsímanotkunar.
Hafi áfram varann á sér
á ferðum utan svæðisins
„Þetta eru frábær tíðindi fyrir
neytendur, því frá miðju ári greiða
þeir sama verð innan Evrópusam-
bandsins og hér heima á ferðalagi
sínu,“ segir Gunnhildur Arna Gunn-
arsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans.
Hún segir ástæðu til að fagna
þessu með viðskiptavinum félagsins
en ástæða sé til að benda þeim á að
þótt þetta sé að verða veruleikinn
innan Evrópusambandsins sé vert
að hafa varann á utan þess, því þar
geti verðið verið hátt. Því sé um að
gera að kynna sér Ferðapakka og
aðra kosti sem í boði séu.
„Þessi reikigjöld í Evrópu hafa
lækkað í þrepum síðustu ár. Staðan
nú er krefjandi fyrir mörg fjar-
skiptafélög í Evrópu, því þau fá ekki
lengur tekjur á móti kostnaði sem
viðskiptavinir þeirra stofna til þegar
þeir ferðast. Þess vegna er unnið að
því að setja reglur um hvað teljist
sanngjörn notkun í samræmi við
leiðbeiningar Evrópusambandsins
til að forðast misnotkun,“ segir
Gunnhildur Arna.
Reikigjöld síma falla niður á EES
Viðamiklar breytingar og ákveðin tímamót að sögn forstjóra Póst- og fjarskiptastofnunar
Neytendur greiða sama verð innan Evrópusambandsins og hér heima á ferðalagi sínu
Morgunblaðið/Ómar
Farsímanotkun Reikigjöld vegna farsímanotkunar hafa farið ört lækkandi
að undanförnu í Evrópu og falla svo niður í löndum ESB og EES 15. júní.
Með reglugerð ESB um nethlutleysi
sem innleiða á hér á landi er fjar-
skiptafyrirtækjum gert skylt að
virða tæknilegt hlutleysi og bannað
að mismuna, nema að uppfylltum
þeim kröfum að mismununin sé
málefnaleg og nauðsynleg undir til-
teknum kringumstæðum.
Í þingsályktunartillögu utanrík-
isráðherra segir að skilyrðin sem
sett eru fyrir slíkri mismunun séu
ströng „og verður venjubundin um-
ferðarstýring ekki sjálfgefin lengur,
svo sem takmarkanir á gagnaflutn-
ingshraða og gagnamagni, sem al-
mennt hefur verið notast við til að
stjórna álagi á netinu. Þá kveður
gerðin á um að einungis skuli beita
umferðarstýringu í hófi og í tak-
markaðan tíma.“
Hrafnkell V. Gíslason segir að
gagnvart neytendum snúi megin-
reglur um nethlutleysið að því að
notendur geti sótt og sent allt efni
án hindrana með búnaði að eigin
vali, óháð staðsetningu. Fjarskipta-
fyrirtæki sem veita aðgang að int-
ernetþjónustu eiga að meðhöndla
alla fjarskiptaumferð með jöfnum
hætti án mismununar, takmörkunar
eða truflunar. Þessar þjónustur
verða þannig að meðhöndla allt
efni jafnt og mega ekki hindra að-
gang að efni á netinu.
Nýju reglurnar munu skipta neyt-
endur taslvert miklu máli. Fjar-
skiptafyrirtækin eiga að gera
gagnsæisráðstafanir og þurfa að
veita ítarlegar og greinargóðar upp-
lýsingar um gagnaflutningshraða,
bæði upphal og niðurhal, þ.e.a.s.
um lágmarkshraða, venjulegan að-
gengilegan hraða og hámarkshraða
í fastanetunum, að sögn hans. Í far-
netunum þarf að upplýsa um áætl-
aðan hraða. „Félögin þurfa núna að
vinna miklu markvissar að því að
skilgreina hvaða þjónustu þau eru
raunverulega að bjóða og veita
neytendum greinargóðar upplýs-
ingar um það,“ segir hann.
Gunnhildur Arna segir að al-
mennt séu ekki miklar umferðar-
stýringar í gangi hér á landi utan
þess að tíðkast hefur að flokka um-
ferð eftir uppruna; í erlenda og inn-
lenda. „Þá má til að mynda nefna
að streymi tónlistarveitunnar
Spotify er innifalið hjá Símanum.
Misjafnar reglur eru um slíkt milli
landa og það bannað í Svíþjóð, en
leyft í Belgíu. Það verður því áhuga-
vert að sjá hvaða afstöðu yfirvöld
taka og hvaða áhrif hún hefur.“
Sækja og senda án hindrana
REGLUR UM NETHLUTLEYSI LÖGFESTAR HÉR Á LANDI
Morgunblaðið/Heiddi
Nethlutleysi Meðhöndla á alla umferð um netið á jafnræðisgrundvelli.
e ð . 8.900
Str. S-XXL
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Stakir
jakkar
V r kr
Fæst í apótekum | Celsus ehf. | www.celsus.is
Sorbact - Græn sáralækning
Klíniskar rannsóknir sýna
bata á sveppasýkingu*
hjá yfir 85% þátttakenda
*candida albicans
Fyrir tilstilli vatnsfælni bindast allir helstu sárasýklar og
sveppir við umbúðirnar. Sýklarnir verða óvirkir og hætta
að fjölga sér, án sýkla- eða sveppadrepandi efna. Virkar
á VRE og MOSA sárasýkla. Skaðar ekki nýjar frumur.
Ótakmörkuð notkun. Engar aukaverkanir. Ekkert ofnæmi.
Sveppasýkingar
- í húðfellingum -
Einföld og áhrifarík, húðvæn meðferð
Þægilegur grisjuborði, passar í nára, undir brjóst
og magafellingar. Engin krem eða duft.