Morgunblaðið - 17.03.2017, Qupperneq 18
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Eftir að fjármagnshöftum var aflétt á
þriðjudag eru vonir bundnar við að
erlendir fjárfestar fjárfesti í ríkara
mæli á innlendum hlutabréfamark-
aði. Mögulega verður eitt af fyrstu
verkum þeirra að bera saman verð-
kennitölur ís-
lenskra félaga og
erlendra keppi-
nauta til að fá til-
finningu fyrir því
hvernig markað-
urinn er verðlagð-
ur.
Miðað við þá
einföldu grein-
ingu og það sjón-
arhorn sem varð
fyrir valinu –
heildarvirði/EBITDA (útskýrt nánar
síðar) – sem IFS hefur tekið saman
fyrir Morgunblaðið, er Eimskip metið
á markaði 30% lægra en meðaltal er-
lendra keppinauta en HB Grandi 30%
hærra en keppinautar að meðaltali.
Verkfallið skekkir myndina
Ragnar Benediktsson, sérfræðing-
ur hjá IFS greiningu, vekur athygli á
að nýafstaðið sjómannaverkfall sé til
þess fallið að stuðla að lægra verði
miðað við margfaldara hjá útgerðinni
og hann varpi því ekki ljósi á rekstur
útgerðarinnar til framtíðar litið. Að-
spurður hvers vegna HB Grandi
kunni að vera yfirverðlagður á mark-
aði, að minnsta kosti í kennitölusam-
anburði, nefnir hann að gengi krónu
hafi styrkst umtalsvert og það gæti
haft þetta í för með sér. Það merkir að
kostnaður félagsins fari vaxandi og að
útgerðin eigi erfitt um vik að fleyta
auknum kostnaði til neytenda á sam-
keppnismarkaði.
Athygli vekur að Icelandair Group
er um 60% ódýrara en erlendir keppi-
nautar. Ragnar segir að óvissa ríki
um hve vel rekstur Icelandair Group
muni ganga á næstunni og það skýri
ef til vill verðmuninn. Þá hafi hluta-
bréfavísitölur flugfélaga hækkað aft-
ur í verði að undanförnu á sama tíma
og Icelandair hefur lækkað, sem hafi
aukið á verðbilið.
Í þessari yfirferð er horft til verð-
kennitölunnar heildarvirði fyrirtæk-
isins (virði hlutafjár og nettó skulda
lagt saman) á markaði um þessar
mundir deilt með EBITDA-hagnaði
undanfarna tólf mánaði. Sá mæli-
kvarði varð fyrir valinu meðal annars
vegna þess að hann tekur tillit til
ólíkrar skuldsetningar fyrirtækja og
sneiðir fram hjá mismiklum afskrift-
um sem ekki hafa áhrif á sjóðstreymi.
Ragnar segir aðspurður um hverju
sæti þessi mikli munur á verðkenni-
tölum Eimskips og keppinauta þess,
að erlend félög hafi „átt í basli und-
anfarið“ sem skýri mögulega háan
margfaldara, á meðan Eimskip hefur
skilað góðri framlegð sem lækki
margfaldarann hjá þeim. „Svo spila
eflaust væntingar markaðsaðila um
að flutningageirinn fari að taka við
sér, sem gæti réttlætt hátt verð á
samanburðarfélögum Eimskips,“
segir hann.
Fjarskiptafyrirtækin hagstæð
Athygli vekur að bæði fjarskiptafyr-
irtækin á markaði, Síminn og Voda-
fone, eru verðmetin nokkru lægra en
keppinautar erlendis. Munurinn er
19% í tilviki Símans og 16% í tilviki
Vodafone. Ragnar segir að ástæðan
kunni að liggja í því að vaxtartækifæri
fjarskiptafyrirtækja erlendis séu
meiri, meðal annars með samrunum
og yfirtökum á keppinautum. Auk þess
séu tækifæri fyrir fjarskiptafyrirtækin
til að yfirtaka fjölmiðla meiri auk ann-
arra þátta. Sú þróun hafi einnig átt sér
stað hér á landi en þeirri vegferð sé ef-
laust lokið. Síminn yfirtók Skjá Einn á
sínum tíma og nýverið sameinuðust
Vodafone og fjölmiðlar 365, fyrir utan
Fréttablaðið og Glamour.
Vandinn við að bera kennitölur fyr-
irtækis saman við meðaltal fyrirtækja í
sömu grein, er að meðaltalið sneiðir
fram hjá mikilvægum mun á einstaka
fyrirtækjum eins og arðsemi af
rekstri, vaxtarmöguleikum, stærð
þeirra og skuldsetningu, svo fátt eitt sé
nefnt. Í samanburðarhópnum eru
einkum evrópsk félög en einnig banda-
rísk félög og asísk. Í samanburði á HB
Granda er að mestu horft til útgerða í
Noregi, Færeyjum og Nýja-Sjálandi,
því IFS taldi þau fyrirtæki standa
hvað næst íslensku útgerðinni. Á hinn
bóginn, þegar rýnt er í samanburðar-
hóp Marel, valdi IFS fyrirtæki sem
þeim þykir hvað líkust íslenska fyrir-
tækinu, þeirra á meðal eru Middleby,
John Bean Technology og GEA Gro-
up.
Rétt er að geta þess að IFS hefur
ekki aðlagað verðkennitölurnar að
öðrum þáttum sem hafa áhrif á verð-
mat eins og ólíkum stýrivöxtum, verð-
bólgu og ólíkum uppgjörsaðferðum.
Tækifæri hérlendis
fyrir erlenda fjárfesta
Verðkennitölur
Íslenski hlutabréfamarkaðurinn borinn saman við meðaltal erlendis
Heildarvirði/
EBITDA 12M Meðaltal Munur
Eik 19,2 20,8 8%
Eimskip 9,6 12,6 31%
Fjarskipti 6,9 8,0 16%
Hagar 9,2 8,7 -5%
HB Grandi 13,8 9,2 -33%
Icelandair Group 3,7 6,0 62%
Marel 13,7 14,9 9%
N1 9,8 7,8 -20%
Reginn 21,4 20,8 -3%
Reitir 20,2 20,8 3%
Síminn 6,7 8,0 19%
Skeljungur 6,9 7,8 13%
Össur 17,6 17,3 -2%
Heimild: IFS greining, Thomson Reuters
Icelandair Group er 60% ódýrari en sambærileg flugfélög
Ragnar
Benediktsson
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
CARAT Haukur gullsmiður | Hátúni 6a | s. 577 7740 | carat.is
Gull, hvítagull, rauðagull, rósagull,
platína, með eða án demanta.
HANNAÐU ÞÍNA EIGIN
GIFTINGAR- OG/EÐA
TRÚLOFUNARHRINGI
sjá nánar á carat.is
– fyrir dýrin þín
Bragðgott, ho
llt og næringa
rríkt
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | AMH – Akranesi | MyPet Hafnarfirði | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Aðalfundur VÍS
samþykkti liðlega
eins milljarðs
króna arðgreiðslu
til hluthafa og að
lækka hlutafé fé-
lagsins um tæp-
lega 73 milljónir
hluta, sem að
markaðvirði nemur
um 780 milljónum
króna. Þá var veitt
heimild til kaupa á eigin bréfum á
næstu 18 mánuðum sem nemur allt að
10% af hlutafé félagsins. Tillaga um að
stjórn fengi heimild til hlutafjárhækk-
unar til að styðja vöxt félagsins fékk
ekki brautargengi á aðalfundinum.
Á stjórnarfundi í kjölfar aðalfundar
var Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir kjör-
in formaður, en aðrir stjórnarmenn eru
Herdís Dröfn Fjeldsted fráfarandi for-
maður, Gestur Breiðfjörð Gestsson,
Helga Hlín Hákonardóttir og Valdimar
Svavarsson. Aðalfundur samþykkt 382
þúsund króna mánaðarlaun fyrir
almennan stjórnarmann og 655 þúsund
krónur fyrir stjórnarformann.
Formannsskipti hjá VÍS
Svanhildur Nanna
Vigfúsdóttir
17. mars 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 109.42 109.94 109.68
Sterlingspund 133.33 133.97 133.65
Kanadadalur 81.23 81.71 81.47
Dönsk króna 15.621 15.713 15.667
Norsk króna 12.699 12.773 12.736
Sænsk króna 12.16 12.232 12.196
Svissn. franki 108.36 108.96 108.66
Japanskt jen 0.9536 0.9592 0.9564
SDR 147.5 148.38 147.94
Evra 116.15 116.79 116.47
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 143.9866
Hrávöruverð
Gull 1225.6 ($/únsa)
Ál 1862.0 ($/tonn) LME
Hráolía 51.5 ($/fatið) Brent
Tómas Kristjáns-
son er nýr
stjórnarformaður
fasteignafélagsins
Regins, en stjórn
félagsins var sjálf-
kjörin á aðalfundi
í gær. Fráfarandi
stjórnarformaður,
Benedikt Krist-
jánsson, sóttist
ekki eftir áfram-
haldandi formennsku, en hann mun
verða varaformaður stjórnar.
Aðrir í stjórn eru Albert Þór Jóns-
son, Bryndís Hrafnkelsdóttir og Sig-
ríður Hrefna Hrafnkelsdóttir.
Aðalfundur samþykkti að greiða
ekki arð á árinu 2017 og ekki var lögð
fram tillaga um kaup á eigin bréfum.
Stjórnarlaun verða 300 þúsund krón-
ur á mánuði og formannslaun 600
þúsund krónur.
Tómas nýr
formaður
Regins
Tómas
Kristjánsson
● Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands gaf
nokkuð eftir í viðskiptum í gær. Nam
lækkun hennar 0,56% eftir að hafa
hækkað um ríflega 1% á miðvikudag.
Heildarviðskipti á aðalmarkaði námu
aðeins rúmum milljarði króna. Mest
voru viðskipti með bréf fasteigna-
félagsins Reita, eða þriðjungur velt-
unnar, og lækkaði félagið um 1%.
Mest varð lækkunin á bréfum Nýherja
í afar takmörkuðum viðskiptum,
1,82%. Þá lækkuðu bréf Icelandair
Group um 1,75% í ríflega 48 milljóna
viðskiptum.
Kauphöllin rauð í frem-
ur litlum viðskiptum
STUTT