Morgunblaðið - 17.03.2017, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is • Opið kl. 11-18 virka daga
Með einföldum
aðgerðum er hægt að
breyta stærð og lögun
sköfunnar
• Tímasparnaður
• Engin kemísk efni
• Ódýrara
• Umhverfisvænt
• Vinnuvistvænt
Skínandi hreinir gluggar
Komið í
verslun okkar eða fáið
upplýsingar í síma
555 1515.
Einnig mögulegt að
fá ráðgjafa heim.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
„Hollenska þjóðin hefur hafnað
rangri tegund af lýðhyggju,“ sagði
Mark Rutte, forsætisráðherra Hol-
lands, eftir þingkosningar í fyrradag
þegar flokkur hans hélt velli sem
stærsti flokkurinn á þingi landsins.
Leiðtogar grannríkja Hollands fögn-
uðu úrslitunum og einn þeirra,
Francois Hollande Frakklands-
forseti, sagði að niðurstaða kosning-
anna væri „skýr sigur á öfgastefnu“.
Mark Rutte er leiðtogi Frelsis- og
lýðræðisflokksins, VVD, sem er
frjálslyndur mið- og hægriflokkur.
Hann hefur verið forsætisráðherra
frá 2010, þegar VVD fékk 31 þingsæti
af 150, og myndaði nýja stjórn tveim-
ur árum síðar þegar flokkur hans
fékk 41 sæti, fleiri en nokkru sinni
fyrr. Flokkurinn missti átta sæti í
kosningunum í fyrradag, samkvæmt
síðustu kjörtölum í gær.
Flokknum var spáð meira fylgis-
tapi í könnunum fyrir nokkrum vik-
um þegar þær bentu til þess að
Frelsisflokkurinn, PVV, yrði stærst-
ur á þinginu. PVV er flokkur þjóð-
ernissinnans Geert Wilders sem hafði
verið spáð sigri í kosningunum mán-
uðum saman þar til fylgi hans tók að
minnka. Svo fór að flokkurinn fékk 20
sæti, bætti við sig fimm sætum frá
síðustu kosningum en fékk fjórum
sætum minna en árið 2010.
Meðfylgjandi skýringarmynd sýnir
fjölda þingsæta flokkanna samkvæmt
síðustu tölum, miðað við þingstyrk
þeirra í lok síðasta kjörtímabils.
Verkamannaflokkurinn, sem er í
stjórn með flokki Rutte, galt mikið af-
hroð í kosningunum, fékk aðeins níu
sæti og missti 29 frá síðustu kosn-
ingum. Græni vinstriflokkurinn GL
jók hins vegar fylgi sitt, fékk 14 sæti
og bætti við sig tíu. Tveir miðflokkar
juku einnig fylgi sitt; D66 bætti við
sig sjö þingsætum og Kristilegir
demókratar (CDA) sex sætum.
Harðari tónn
Margir stjórnmálaskýrendur telja
að framganga forsætisráðherrans í
deilu við tyrknesk stjórnvöld síðustu
daga hafi styrkt stöðu hans í kosn-
ingabaráttunni. Gagnrýni Rutte á
Recep Tayyip Erdogan Tyrklands-
forseta mæltist vel fyrir meðal
margra kjósenda.
Rutte hefur hafnað stjórnarsam-
starfi við flokk Wilders vegna stefnu
hans í innflytjendamálum. Wilders
vill m.a. banna sölu á Kóraninum,
loka moskum og íslömskum skólum,
taka upp landamæraeftirlit og banna
múslímum að setjast að í landinu.
Tónn Rutte í innflytjendamálum
harðnaði þó í kosningabaráttunni.
Hann sagði að Hollendingar ættu að
halda áfram að taka á móti flótta-
mönnum, en ekki of mörgum. Inn-
flytjendur þyrftu að laga sig að sam-
félaginu og „hollenskum gildum“.
Gerðu þeir það ekki ættu þeir að fara
frá Hollandi.
Þessi harðari tónn virðist hafa
stuðlað að auknu fylgi flokks Rutte í
lok kosningabaráttunnar. Tónbreyt-
inguna má meðal annars rekja til
fylgisaukningar flokks Wilders síð-
ustu mánuði. Hún endurspeglar einn-
ig þá viðhorfsbreytingu sem hefur
orðið í málefnum innflytjenda víða í
Evrópu vegna flóttamannavandans,
m.a. í Skandinavíu og Þýskalandi,
jafnt meðal vinstri- sem hægriflokka.
Talið er að Rutte reyni að mynda
nýja samsteypustjórn með Kristi-
legum demókrötum og frjálslynda
miðflokknum D66. Samanlagt fengu
flokkarnir þrír 71 sæti, samkvæmt
síðustu kjörtölum, en stjórnin þarf
a.m.k 76 sæti til að hafa meirihluta á
þinginu. Til þess þarf Rutte að leita
eftir stuðningi fjórða flokksins, t.a.m.
Kristilega sambandsins sem fékk
fimm sæti. Líklegt er að slík stjórn
yrði veik, að mati stjórnmálaskýr-
enda.
Búist er við löngum og ströngum
stjórnarmyndunarviðræðum eins og
algengt er eftir þingkosningar í Hol-
landi. Síðasta stjórnarmyndun, árið
2012, tók 54 daga og viðræðurnar
gengu tiltölulega fljótt fyrir sig, enda
tóku aðeins tveir flokkar þátt í þeim.
Líklegt er að lengri tíma taki að
mynda fjögurra flokka stjórn.
Lýðhyggju hafnað í Hollandi
Talið að mið- og hægriflokkur forsætisráðherrans myndi stjórn með miðflokkum sem juku fylgi
sitt Skýr sigur á öfgastefnu, segir Frakklandsforseti Flokkur Wilders bætti við sig fimm sætum
Síð
asta kjörtímabil35
40
150
PVV
PvdD: Dýravinafl.
50+: Flokkur
lífeyrisþega
SP
GL
D66
CDA
PvdA
VVD
12
12
9
4
3
2
5
13
1514
14
9
19 19
33
5
3
20
5
4
5
Kjörsókn: 80,2%
Skipting þingsæta, samkvæmt bráðabirgðatölum, miðað við skiptinguna
í lok síðasta kjörtímabils
Nýja þingið í Hollandi
sæti
CU: Kristilega sambandið
Heimildir: ANP, þing Hollands
PvdA: Verkamannafl.
SP: Sósíalistaflokkurinn
D66: Frjálslyndur miðfl.
CDA: Kristilegir demókratar
VVD: Frelsis- og lýðræðisflokkurinn
(frjálslyndur mið- og hægriflokkur)
GL: Græni vinstrifl.
PVV: Frelsisflokkurinn
(hægriflokkur)
SGP: Kalvinistaflokkur Aðrir
AFP
Forsætisráðherra Mark Rutte, leið-
togi mið- og hægriflokksins VVD.
Óvenjugóð kjörsókn
» Kjörsóknin í þingkosning-
unum var 80,2%, sú mesta í
Hollandi í 30 ár.
» Stjórnmálaskýrendur segja
að frjálslyndir flokkar, sem
styðja aðild landsins að Evr-
ópusambandinu, hafi hagnast
á þessari auknu kjörsókn.