Morgunblaðið - 17.03.2017, Page 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
✝ Margrétfæddist 3.
október 1929 í
Reykjavík. Hún
lést á heimili sínu
8. mars 2017.
Foreldrar
hennar voru
Kristín Guðný
Guðlaugsdóttir og
Magnús Péturs-
son, héraðslæknir
í Reykjavík, þau
eru látin. Systkini Margrétar
voru fimm, þar af tvö hálf-
systkini. Margrét giftist Jó-
hanni Gunnari Halldórssyni,
d. 2. júní 1996. Saman áttu
þau dótturina Evu
Maríu Gunnars-
dóttur, f. 1. apríl
1949. Maki henn-
ar var Gísli Bene-
diktsson, d. 12.
júlí 2016. Börn
þeirra eru tvö:
Davíð Benedikt,
maki hans er
Brynhildur Þor-
geirsdóttir og
María, maki henn-
ar er Einar Kristinn Hjalte-
sted. Margrét eignaðist son-
inn Pjetur Magnússon Hanna
með Howard James Hanna
hinn 6. september 1953. Maki
hans er Þórbjörg Harðar-
dóttir. Eiga þau dæturnar
Hjördísi Rögn, maki hennar
er Gústaf Bergmann Ís-
aksen, og Margréti, maki
hennar er Gísli Þór Sigurðs-
son. Langömmubörn Mar-
grétar eru samtals 13. Mar-
grét útskrifaðist úr
Leiklistarskóla Lárusar
Pálssonar 1949. Hún lék
mörg hlutverk fyrir Leik-
félag Reykjavíkur á fjölum
Iðnó. Samhliða því vann hún
við afgreiðslustörf í Silf-
urbúðinni á Laugavegi 55.
Seinna vann hún bæði hjá
Gjaldheimtunni í Reykjavík
og Borgarspítalanum í Foss-
vogi. Síðustu árin bjó Mar-
grét á Skólabraut 5, Sel-
tjarnarnesi.
Útför Margrétar fer fram
frá Seltjarnarneskirkju í
dag, 17. mars 2017, kl. 13.
Seztu hérna hjá mér,
systir mín góð.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát og hljóð.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát af því,
að mamma ætlar að reyna að sofna
rökkrinu í.
Mamma ætlar að sofna.
Mamma er svo þreytt.
– Og sumir eiga sorgir,
sem svefninn getur eytt.
Sumir eiga sorgir,
og sumir eiga þrá,
sem aðeins í draumheimum
uppfyllast má.
Í kvöld skulum við vera
kyrrlát og hljóð.
Mamma ætlar að sofna,
systir mín góð.
(Davíð Stefánsson)
Hinsta kveðja frá tengdadótt-
ur,
Þórbjörg Harðardóttir.
Elsku amma Magga er nú fall-
in frá eftir stutt en snörp veik-
indi. Það eru forréttindi að hafa
haft hana svona lengi hjá okkur
og kynnast henni svona vel.
Tengingin var sterk og amma gaf
mikið af sér til okkar og það var
alltaf gott að vera í hennar návist,
hvort sem það var sem elsta
barnabarn í pössun eða ung kona
að hitta ömmu mannsins síns.
Það er ekki sjálfgefið að börn
þekki langömmu sína langt fram
á fullorðinsár, hvað þá að hún sé
eins stór þátttakandi í lífi þeirra
eins og raun bar vitni. Börnin
okkar hafa öll með einhverjum
hætti notið góðs af því að amma
Magga var aldrei langt undan.
Hún passaði sum þeirra um ára-
bil fyrir leikskóla og bjó um
nokkurn tíma hjá okkur á Forn-
uströnd og var því heima við þeg-
ar börnin komu heim úr skóla.
Það var ómetanlegur tími, þar
sem elja hennar og dugnaður
létti heldur betur undir ungri
barnafjölskyldu þar sem verkefn-
in voru ávallt mörg. Seinna bjó
hún svo í hjarta bæjarins á milli
skólanna og við íþróttahúsið og
því aldrei langt undan á ferðum
þeirra um Nesið. Það eru hlýjar
minningar sem börnin eiga af því
að koma við hjá ömmu og fá hjá
henni smá hressingu, aðstoð við
skólahannyrðir eða að spila á spil.
Hún tileinkaði sér ýmislegt í nýj-
ustu tækni og var það orðin þægi-
leg hefð að fyrsta sms að morgni
á hátíðisdögum í fjölskyldunni
var frá ömmu Möggu. Við erum
þakklát fyrir þann tíma sem að
við áttum saman og munum varð-
veita um ókomna tíð þær góðu
minningar sem við höfum um
ömmu Möggu.
Davíð og Brynhildur
Tíminn líður og stundum
finnst manni hann líða alltof
hratt. Við Sólveig kveðjum Mar-
gréti í dag með söknuði og hefð-
um gjarnan viljað eiga með henni
meiri tíma til fróðleiks og
ánægju.
Sú stund sem við áttum saman
var alltof stutt. Kynni okkar hóf-
ust þegar ég „kom úr kafi“ eins
og ég lít stundum á þau tímamót
þegar ég fyrir fáeinum árum
ákvað að leita uppi föðurfjöl-
skyldu mína og komst að því að
ég átti systur og stóran frænd-
garð sem ég hafði ekki þekkt og
sem vissi ekki af tilvist minni.
Þegar ég hringdi í Margréti og
sagði deili á mér, varð hún þögul
um stund en tók svo fréttinni af
mér með opnum huga og gleði.
Mér er það minnisstætt þegar við
kvöddumst í þessu fyrsta samtali
okkar að hún lauk samtalinu með
orðunum: „Mikið er gaman að
eiga bróður á lífi.“ Okkur Sól-
veigu var síðan afar vel tekið af
fjölskyldunni og erum við þakklát
fyrir þær viðtökur og þau kynni
sem síðan hafa orðið. Margrét
veitti okkur svo fúslega og á sinn
beinskeytta hátt innsýn í tilveru
og sögu þessarar fjölskyldu
minnar og ævi og starf föður okk-
ar, sem ég hafði aldrei tækifæri
til að kynnast. Tíminn er því mið-
ur aldrei nægur til alls sem hug-
urinn óskar og við Sólveig hefð-
um viljað eiga mörg ár í viðbót
með þessari kjarnorkukonu. Við
sendum ykkur, Eva María, Pét-
ur, og fjölskyldum ykkar, innileg-
ar samúðarkveðjur. Dýrmæt
minning um Margréti mun lifa
með okkur.
Hans og Sólveig.
Margrét
Magnúsdóttir
✝ Ingvi RafnFlosason fædd-
ist í Oddeyrargötu
24 á Akureyri 31.
janúar 1934, og lést
á dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyri 4.
mars 2017.
Ingvi var sonur
hjónanna Flosa
Péturssonar, f. 2.
júlí 1902, d. 3. jan-
úar 1987, og Kar-
línu Friðbjargar Jóhannsdóttur,
f. 8. apríl 1901, d. 14. apríl 1987.
Bróðir Ingva er Skúli Henning,
f. 1. mars 1931, kona hans er
Þóra Sveinsdóttir, f. 18. janúar
1936, og eiga þau þrjár dætur,
Kristínu Heiðu, Eyrúnu og
Nönnu Hlín. Þann 30. desember
1976 kvæntist Ingvi Sigríði
Árnínu Árnadóttur. Sigríður
var dóttir hjónanna Sigurðar
Árna Árnasonar, f. 23. janúar
1908, d. 19. ágúst 1990, og Guð-
rúnar Jakobsdóttur, f. 8. októ-
ber 1909, d. 16. ágúst 1992.
Dóttir Ingva og Sigríðar er
Karlína Sigríður, f. 14. ágúst
1973, maki Marinó Marinósson,
iði Jóhannsson, f. 5. september
1958, börn: a) Sigríður Rut, f.
28. desember 1984, maki Ólafur
Jafet Bachmann, barn: Ísold
Ósk. b) Indriði Már, f. 17. mars
1989, unnusta Marta Kjartans-
dóttir. Fyrir átti Indriði soninn
Jóhann, f. 17. mars 1978. 4) Jó-
hannes Rafn, f. 21. apríl 1967,
barn: Bryndís Ósk, f. 3. nóv-
ember 1991. Ingvi nam hár-
skeraiðn á Akureyri og var
meistari hans Jón Eðvarð Jóns-
son. Hann lauk sveinsprófi 1953
og fékk meistarabréf í iðninni
27. desember 1956. Hann starf-
aði fyrst á Siglufirði og síðar í
Reykjavík frá 1954 til 1957. Í
nóvember 1957 stofnaði hann
ásamt Haraldi Ólafssyni litla
rakarastofu við Ráðhústorg. Í
maí 1960 fluttu þeir sig að
Hafnarstræti 105 og ráku þar
rakarastofu ásamt Sigvalda
Sigurðssyni. Síðustu árin rak
Ingvi rakarastofuna einn og
flutti sig svo að Geislagötu 10
þegar Hafnarstræti 105 var rif-
ið og að lokum að Gránufélags-
götu 6. Ingvi var lengi í
sveinsprófsnefnd rakara og
heiðursfélagi í félagi hár-
greiðslu- og hárskerameistara á
Norðurlandi.
Útför Ingva fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 17. mars
2017, og hefst athöfnin klukkan
13.30.
f. 24. nóvember
1967. Börn þeirra:
a) Ingvi Þór, f. 2.
febrúar 1994, b)
Sævar Óli, f. 25. júlí
2004, c) Eva María,
f. 27. nóvember
2008. Börn Sigríð-
ar frá fyrra hjóna-
bandi eru: 1) Guð-
bjartur Árni, f. 13.
september 1954,
maki Amalía
Guðnason, barn: Anna Vigdís. 2)
Anna Guðrún, f. 29. maí 1956.
Fyrrverandi maki er Brynjólfur
Óskarsson, f. 22. júlí 1950. Börn
þeirra: a) Thelma Björk, f. 13.
júní 1974, maki Said Lakhlifi,
börn: Mickael Ómar og Nadía
Karen Aziza. b) Óskar, f. 10. júlí
1977, maki Stella Ósk Sigurð-
ardóttir, börn: Sigurður Dan,
Díana Ósk og Brynjólfur Dan. c)
Guðni Karl, f. 14. ágúst 1979,
maki Stefanía Ellý Baldursdótt-
ir, börn: Kristófer Karl og Júlía
Marin, Anna Guðrún er í sam-
búð með Rúnari Egilssyni, f. 22.
ágúst 1950. 3) Berglind Sigur-
laug, f. 21. maí 1959, maki Indr-
Tengdafaðir minn Ingvi Rafn
Flosason lést laugardaginn 4.
mars síðastliðinn á dvalarheim-
ilinu Hlíð á Akureyri, eftir stutt
veikindi.
Ég tók eftir Ingva löngu áður
er ég kynntist honum. Þegar ég
var að koma í heimsókn til afa og
ömmu, sem bjuggu á Ráðhústogi
1, skáhallt á móti rakarastofunni
hans, lék ég mér oft í gilinu fyrir
ofan og sá honum oft bregða fyrir.
Ég veit ekki af hverju ég man eft-
ir honum en ekki meðeigendum
hans. Kannski var það klippingin,
fasið eða glaðlegt og létt yfir-
bragð. Seinna þegar ég fluttist til
Akureyrar og hóf störf hjá Út-
vegsbankanum, sem var við hlið-
ina á rakarastofunni, var stutt að
skjótast í klippingu og fá fréttir úr
bæjarlífinu. Rakarar vita jú allt
um alla.
Þegar ég kom inn í fjölskyld-
una veitti ég því strax athygli
hvað Ingvi hafði góða og þægilega
nærveru. Það var gott að setjast
niður og spjalla um t.d. fótbolta,
en hann var mikill Liverpool-
aðdáandi, sem mér fannst enginn
kostur, en við fylgdum heldur
ekki sömu félögum á Akureyri,
hann var Þórsari en ég KA. Um-
ræður um stjórnmál eða nærum-
hverfið voru einnig fyrirferðar-
miklar.
Ingvi var einstök barnagæla og
var gaman að fylgjast með honum
þegar hann gekk með dóttur mína
í fanginu, þegar hún var óróleg,
talaði rólega við hana, bankaði í
eða skellti laust aftur skápahurð-
um til að fanga athygli hennar –
og athyglina fékk hann. Ég nota
þessa sömu aðferð gagnvart mínu
barnabarni, þetta klikkar ekki.
Ingvi hugsaði vel um hlutina,
þar var allt 100%. Sérstaklega bíl-
arnir hans, alltaf stífbónaðir og í
toppstandi. Aldrei mátti skulda
neinum, allt staðgreitt, eitthvað
sem yngra fólkið ætti að huga að.
Heimili þeirra hjónanna sem ein-
staklega glæsilegt og snyrtilegt.
Gaman var að heimsækja tengdó
og fá kaffi í glasi, rækjusalat, jafn-
vel lambalæri eða hrygg, þar sem
kjötið datt af beinunum, svona
upp á gamla móðinn.
Ingvi var ekki að fara mikið út
fyrir Akureyri, vildi hvergi ann-
ars staðar vera. Ef hann þurfti að
leita sér lækninga suður, vildi
hann helst komast með fyrstu vél
norður aftur. Í einni slíkri ferð
áttum við mjög ánægjulega stund
saman er við fengum okkur rúnt
um borgina og hann fræddi mig
um þá staði sem hann hafði unnið
á og fannst honum ekki mikið til
koma um alla þessa uppbyggingu
í borginni.
Ég vil að lokum votta aðstand-
endum hans samúð mína, þó sér-
staklega Köllu og fjölskyldu
hennar. Guð blessi minningu
Ingva Rafns Flosasonar.
Indriði Jóhannsson.
Elsku afi.
Þú varst alltaf svo góður, þol-
inmóður og ljúfur. Við systkinin
vorum svo heppin að fá margar
góðar stundir með þér, með
ömmu Siggu og þér einum. Þú
náðir í okkur upp í Keilusíðu,
bauðst okkur á rúntinn, og oftar
en ekki enduðum við í kaffitíma
eða kvöldmat í Skarðshlíðinni. Við
heimsóttum þig líka á rakarastof-
una, ýmist til að fá okkur nammi
úr nammiskúffunni eða þú snoð-
aðir Óskar og Guðna.
Takk fyrir allt, elsku afi.
Leiddu mig heim í himin þinn
hjartkæri elsku Jesús minn.
Láttu mig engla ljóssins sjá
er líf mitt hverfur jörðu frá.
(Rósa B. Blöndals.)
Thelma Björk, Óskar
og Guðni Karl.
Sæll Ingvi minn. Þá ertu farinn
að takast á við önnur verkefni, ég
veit að það verður tekið vel á móti
þér þarna uppi. Þú varst nú alltaf
frekar hógvær maður og ég man
t.d. þegar ég seldi þér penna sem
á stóð, „sá besti í bænum, Rakara-
stofa Ingva“. Þér fannst þetta nú
einum of, en færri fengu en vildu.
Um leið og ég kveð þig vil ég
þakka þér fyrir allt sem þú gerðir
fyrir mig. Sjáumst síðar á ein-
hverjum góðum stað.
Jóhannes Rafn Guðnason.
Ingvi Rafn
Flosason
✝ Árni Jón Kon-ráðsson var
fæddur 16. sept-
ember 1926 að
Móum Grindavík.
Hann lést á Hrafn-
istu 7. mars 2017.
Foreldrar hans
voru Sigríður
Jónsdóttir, f. 1
september 1895 að
Hrauni Grindavík,
d. 27. júní 1957,
og
Konráð Árnason, f. 22. febr-
úar 1902, Hrauni Grindavík, d.
22. desember 1975. Árni var
þriðji í röðinni af átta systk-
inum og þau eru 1) Guðbjörg,
f. 1922, d. 1923. 2) Ásta Hall-
dóra, f. 1924, d. 1944. 3) Sig-
ríður Þóra, f. 1925, d. 1982. 4)
Jóhanna, f. 1930, d. 2011. 5)
Eggert, f. 1934. 6) Ásdís, f.
1936. 7) Rafn, f. 1937.
Árni kvæntist Helgu Helga-
dóttur, f. 16. janúar 1932 að
Skótjörn Álftanesi, d. 18. júní
2012, hinn 1. september 1954.
Þau eignuðust sjö börn:
1) Pálína Kristín, f. 1953,
maki Guðbrandur Ingimund-
arson og eiga þau
3 börn og 6 barna-
börn.
2) Sigríður, f.
1955, sambýlis-
maður Kristmar
Höskuldsson og á
hún 2 börn og 5
barnabörn.
3) Ásta, f. 1956,
maki Sigurjón
Jónsson og eiga
þau 3 börn.
4) Valgerður, f. 1959, maki
Baldvin Skúlason og eiga þau
2 börn.
5) Konráð, f. 1960, maki
Svandís Þóra Ölversdóttir og
eiga þau 5 börn og 3 barna-
börn.
6) Hafliði Ingibergur, f.
1970, maki Lúvísa Sigurð-
ardóttir og eiga þau 3 börn. 7)
Árni, f. 1972, sambýliskona
Lilja Helgadóttir og á hann 3
börn.
Árni starfaði lengst af til
sjós eða tæp 50 ár sem háseti
og netamaður á togurum.
Útförin fer fram frá Fella-
og Hólakirkju í dag, 17. mars
2017, klukkan 13.
Í dag kveð ég Árna afa.
Afi minn var eitthvert mesta
valmenni sem ég þekkti.
Hann stundaði sjóinn í 46 ár.
Hann lenti í sjóskaða á Fylki 1956
þar sem togarinn sökk. Tveimur
dögum eftir að hann kom heim var
hann farinn út með öðrum togara.
Ekkert raus, það þurfti að fæða
og klæða krakkaskarann.
Sem barn furðaði ég mig á því
að afi spurði alltaf hvort ég væri
ekki búin að vera óþekk og frek.
Að sjálfsögðu svaraði ég „nei“ og
setti upp geislabauginn en hann
trúði mér ekki og var ánægður
með það. Ég skildi það ekki þá en
þegar hann fór að spyrja mín börn
að þessu sama skildi ég að hann
trúði því að ef við vorum hæfilega
óþekk og frek þá myndi okkur
farnast vel í lífinu. Jú, afi, ég var
oft óþekk og frek og hef komið
mér ágætlega áfram í lífinu.
Afi var ekki þessi týpíski sjó-
maður, hann notaði aldrei tóbak
eða áfengi, fékk sér ekki tattó og
ekki tók hann bílpróf, enda ekki
nokkur þörf á því þar sem hann
var alltaf úti á sjó og konan með
bílpróf.
Ég man hvað það var spenn-
andi að koma í til ömmu og afa
þegar hann var nýlega kominn
heim úr siglingum. Þá var til alls
konar gúmmelaði í þvottahúsinu,
gosdósir og nammi sem fékkst
ekki hér heima. Þegar ég var 12
ára lá ég á spítala, meira og
minna í þrjá mánuði, alltaf þegar
afi var í landi kom hann með
strætó til mín, með malt í gleri og
vínber í bréfi, „allra meina bót,“
sagði hann og lagði á borðið hjá
mér.
Sagt var um hann afa minn í
gömlu sjómannadagsblaði að
hann væri þvargari sleipur, það
finnst mér réttmæli og læt ég það
vera síðustu orðin.
Minning um löngu liðna daga
lifir í huga mér.
Þótt heimurinn væri helmingi stærri,
skyldi hugur minn fylgja þér.
Ég finn þegar okkar fundum lýkur
verða fátækleg orðin mín.
Fólgin í nokkrum fallandi tárum
verður fegursta kveðjan til þín.
(Þorbjörn Kristinsson.)
Takk, afi. Þín,
Anna María.
Árni Jón
Konráðsson
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samhug, hlýhug og sendu fallegar kveðjur
við fráfall móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐBJARGAR A. FINSEN,
Vesturgötu 50A,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Vífilsstaða og
heimaþjónustu Reykjavíkurborgar.
Guðrún Finsen Bjarne Wessel Jensen
Aðalsteinn Finsen Hulda Hrönn Finsen
Sigríður Finsen Magnús Soffaníasson
barnabörn og fjölskyldur
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg þjónusta
athofn@athofn.is - www.athofn.is
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919
Inger Steinsson