Morgunblaðið - 17.03.2017, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2017
Ásýningunni Kvenhetjangetur að líta verk frá ólík-um tíma á ferli lista-mannsins Steingríms Ey-
fjörð þar sem konan og kvenímyndir
koma við sögu. Um er að ræða sjö
verka seríur sem eru unnar með
ólíkum miðlum og spanna tímabilið
frá 1978 til dagsins í dag. Í gegnum
tíðina hefur listamaðurinn leitað
fanga úr ólíkum áttum og unnið með
í verkum sínum, viðfangsefnin sækir
hann til að mynda til þjóðmenning-
ar, dægurmenningar og hversdags-
lífsins og í þeim skarast oftar en
ekki svið vísinda, trúar og heimspeki
í bland við flæði undirmeðvitundar.
Titilverk sýningarinnar, „Kven-
hetjan“ (1992/2016), samanstendur
af myndapörum sem unnin eru í
samstarfi við Lindu Björgu Árna-
dóttur. Hún leggur til úrklippur af
kvenhetjum dægurmenningar sem
listamaðurinn bregst við með hug-
leiðingum sínum sem og með tilvitn-
unum í fræðimenn. Steingrímur
veltir upp mörkum hins raunveru-
lega og ímyndariðnaðarins, og skoð-
ar kvenhetjuna og setur í samhengi
við kröfur atvinnulífsins í upphafi
10. áratugar síðustu aldar. Til að
lúta kröfum atvinnulífsins, sem ger-
ir kröfur um ákveðið persónulegt og
líkamlegt atgervi til að falla betur að
staðalímynd fyrirtækis um fyrir-
myndarstarfsmanninn, þarf að til-
einka sér og gangast undir ímynd-
ina. „Grýla/Venus“ (1998) er annað
verk sem tekur á ímyndariðnaði
glanstímarita og áhrifa þeirra á
sjálfsmynd kvenna. Það er stöðugt
hamrað á því hvernig konur eigi að
vera og líta út, nefið á að vera svona
en ekki hinsegin, ef þú notar „rétta“
augnkremið munu augu þín verða
ljósið í myrkrinu, svo dæmi séu tek-
in af tímaritaúrklippum sem til-
heyra verkinu. Það samanstendur
einnig af gifsskúlptúr í líki Grýlu,
teikningum og handskrifuðum texta.
Hér togast andstæðurnar á, hin full-
komna kvenímynd í Venusarlíki
glanstímaritanna og Grýla sem er
holdgerving ljótleikans. Ádeila á út-
litskröfurnar er undirliggjandi en
Steingrímur snýr líka upp á ímynd-
arsköpunina, hver er hin raunveru-
lega Grýla og hver er raunverulega
Venus?
Annað verk, „Of nam hjá fiðurfé
og van“ (2003), hverfist líka um það
að láta stjórnast af öðrum en með
öðrum formerkjum. Verkið byggist
á gömlum læknaskýrslum frá sjötta
áratugnum um stúlku sem ólst upp
innan um hænsn og stóð í þeirri trú
að hún væri fugl. Það eru til þekkt
dæmi um börn sem alast upp án at-
lætis manna og fá takmarkaða nær-
ingu í heimi dýra. Sjálfsbjargar-
viðleitnin tekur yfir í aðstæðum sem
eru ómanneskjulegar og absúrd.
Sjálfsmyndin tekur mið af utanað-
komandi áreiti (eða vanrækslu) og
óskráðum reglum samfélagsins sem
við látum stjórnast af, líkt og lista-
maðurinn bendir á í þessum verk-
um.
Í hliðarsal er innsetningin „Vörp-
un“ (2001) en þar heldur Stein-
grímur í rannsóknarleiðangur með
gömul fundin kvenmannsnærföt
sem honum áskotnuðust, og leitar
upplýsinga um eiganda og skýringa
á atburðum sem þeim tengjast á
óhefðbundinn hátt. Hann leitaði til
fjögurra miðla sem hver og einn
kom með sína sýn á óræða atburða-
rás. Viðtöl Steingríms við miðlana er
hægt að sjá á sýningunni, og upp úr
þeim vinnur hann sögur og karakt-
ereinkenni fjögurra ólíkra kvenna. Í
samtali listamannsins og miðlanna
verður til saga sem enginn veit
hvort á sér nokkra stoð í raunveru-
leikanum eða ekki. Merkingu hefur
verið varpað á efnislega hluti sem
listamaðurinn myndgerir í texta og
ljósmyndaverkum. Innsetningin er
aðeins stúkuð af en fær um leið gott
andrými og nýtur sín vel þar.
Verkin á sýningunni Kvenhetjan
eiga það flest sameiginlegt að fjalla
um hlutgervingu konunnar og upp-
hafna ímyndarkröfu samfélagsins.
En samtalið er líka mikilvægur þátt-
ur, verkin bera með sér að díalekt-
ískar samræður hafa átt sér stað
milli listamannsins og annarra sem
hann hefur leitað til við gerð þeirra.
Sýningin vekur líka áhugaverðar
spurningar um álitamál sem áhorf-
andanum gefst kostur á að velta fyr-
ir sér og taka þátt í.
Morgunblaðið/Einar Falur
Grýla Hluti eins verks Steingríms Eyfjörð á sýningunni en í því „togast andstæðurnar á, hin fullkomna kvenímynd í
Venusarlíki glanstímaritanna og Grýla sem er holdgerving ljótleikans,“ skrifar rýnir um það.
Af grýlum og
glanstímaritum
Hafnarborg
Steingrímur Eyfjörð – Kvenhetjan
bbbmn
Hafnarborg menningar- og listamiðstöð
Hafnarfjarðar. Sýningunni lýkur á
sunnudag, 19. mars. Opið alla daga
nema þriðjudaga milli kl. 12 og 17.
ALDÍS
ARNARDÓTTIR
MYNDLIST
Danski lista-
mannahópurinn
Superflex mun
takast á við það
verkefni að koma
fyrir næstu inn-
setningu í Túrb-
ínusalnum í Tate
Modern-safninu í
Lundúnum og
verður sýningin
opnuð í október.
Margar innsetn-
inganna þar hafa vakið mikla at-
hygli og má nefna verk eftir Ólaf
Elíasson, Carsten Höller og Ai Wei-
wei. Viðamikil verk Superflex eru
yfirleitt mjög pólitísk en félagarnir
hafa meðal annars tekist á við kap-
ítalisma og hlýnun jarðar.
Danir taka yfir
Túrbínusalinn
Weather Project
eftir Ólaf Elíasson í
Túrbínusalnum.
Bandaríski gítarleikarinn
Pat Metheny, einn virtasti
djassgítarleikari undanfar-
inna áratuga, kemur fram
ásamt kvartetti sínum í Eld-
borgarsal Hörpu 17. nóv-
ember næstkomandi. Með
honum leika trymbillinn
Antonio Sanchez sem er
fjórfaldur Grammy-
verðlaunahafi, píanóleik-
arinn Gwilym Simcock og
bassaleikarinn Linda Oh en
hún hefur verið valin af
gagnrýnendum Downbeat
besti bassaleikarinn.
Pat Metheny er fyrir
löngur orðinn ein af goð-
sögnum gítarheimsins. og hefur meðal annars leikið og hljóðritað með Char-
lie Haden, Ornette Coleman, Joni Mitchell, Herbie Hancock og David Bowie.
Pat Metheny í Eldborg
Gítargoðsögn Pat Metheny leikur ásamt
kvartetti sínum í Hörpu í nóvember.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Nýja sviðið)
Fös 17/3 kl. 20:00 Fors. Mið 5/4 kl. 20:00 10. sýn Lau 6/5 kl. 20:00 19.sýn
Lau 18/3 kl. 20:00 Frums. Fim 6/4 kl. 20:00 11. sýn Sun 7/5 kl. 20:00 20.sýn
Sun 19/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 7/4 kl. 20:00 aukas. Mið 10/5 kl. 20:00 21. sýn
Þri 21/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 8/4 kl. 20:00 12. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 22.sýn
Mið 22/3 kl. 20:00 aukas. Þri 11/4 kl. 20:00 aukas. Fös 12/5 kl. 20:00 23.sýn
Fös 24/3 kl. 20:00 4. sýn Fös 21/4 kl. 20:00 13. sýn Mið 17/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 25/3 kl. 20:00 5 sýn Lau 22/4 kl. 20:00 14. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 26/3 kl. 20:00 6. sýn Sun 23/4 kl. 20:00 15 sýn Fös 19/5 kl. 20:00 aukas.
Þri 28/3 kl. 20:00 aukas. Fim 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 20/5 kl. 20:00 aukas.
Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Fös 28/4 kl. 20:00 16.sýn Sun 21/5 kl. 20:00 aukas.
Fös 31/3 kl. 20:00 7. sýn Lau 29/4 kl. 20:00 17.sýn Fim 1/6 kl. 20:00 aukas.
Lau 1/4 kl. 20:00 8. sýn Sun 30/4 kl. 20:00 18.sýn Fös 2/6 kl. 20:00 aukas.
Þri 4/4 kl. 20:00 9. sýn Fös 5/5 kl. 20:00 aukas.
Frjálst sætaval - Salurinn opnar klukkan 18:30
Úti að aka (Stóra svið)
Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn. Fim 6/4 kl. 20:00 aukas.
Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Þri 28/3 kl. 20:00 aukas. Fös 7/4 kl. 20:00 aukas.
Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Fim 20/4 kl. 20:00 aukas.
Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas. Fös 21/4 kl. 20:00 aukas.
Fös 24/3 kl. 20:00 aukas. Lau 1/4 kl. 20:00 aukas. Sun 23/4 kl. 20:00 aukas.
Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn Mið 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 27/4 kl. 20:00 aukas.
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 8/4 kl. 20:00 Lau 6/5 kl. 20:00 Mið 24/5 kl. 20:00 aukas.
Þri 11/4 kl. 20:00 Fös 12/5 kl. 20:00 Fim 25/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 19/4 kl. 20:00 Lau 13/5 kl. 13:00 aukas. Fös 26/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 22/4 kl. 20:00 Fös 19/5 kl. 20:00 aukas. Lau 27/5 kl. 20:00 aukas.
Fös 28/4 kl. 20:00 Lau 20/5 kl. 13:00 aukas. Sun 28/5 kl. 20:00 aukas.
Glimmerbomban heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 19/3 kl. 13:00 aukas. Lau 8/4 kl. 13:00 aukas. Sun 7/5 kl. 13:00 aukas.
Sun 26/3 kl. 13:00 aukas. Sun 23/4 kl. 13:00 aukas. Sun 14/5 kl. 13:00 aukas.
Lau 1/4 kl. 13:00 aukas. Sun 30/4 kl. 13:00 aukas.
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Sun 19/3 kl. 13:00
Táknmáls.
Lau 1/4 kl. 13:00 aukas.
Sun 26/3 kl. 13:00 aukas. Lau 8/4 kl. 13:00 aukas.
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Illska (Litla sviðið)
Lau 18/3 kl. 20:00 Lau 1/4 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar - Aðeins þessar sýningar
Fórn (Allt húsið)
Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn
Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn
Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið - Aðeins þessar fimm sýningar.
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Þri 21/3 kl. 10:00 Mið 22/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 13:00
Þri 21/3 kl. 11:30 Mið 22/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 10:00
Þri 21/3 kl. 13:00 Fim 23/3 kl. 10:00 Fös 24/3 kl. 11:30
Mið 22/3 kl. 10:00 Fim 23/3 kl. 11:30
Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 19/3 kl. 13:00 Lau 1/4 kl. 13:00 Sun 9/4 kl. 13:00
Sun 19/3 kl. 16:00 Lau 1/4 kl. 16:00 Sun 23/4 kl. 13:00
Sun 26/3 kl. 13:00 Sun 2/4 kl. 13:00 Sun 23/4 kl. 16:00
Sun 26/3 kl. 16:00 Sun 2/4 kl. 16:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 30/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 22/4 kl. 19:30 9.sýn
Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 31/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 27/4 kl. 19:30 10.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 5/4 kl. 19:30 8.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Þri 4/4 kl. 19:30 6.sýn Fös 21/4 kl. 19:30 11.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Fim 6/4 kl. 19:30 7.sýn Lau 22/4 kl. 19:30
Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 7/4 kl. 19:30 8.sýn Fim 27/4 kl. 19:30
Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 9/4 kl. 19:30 9.sýn
Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 19/4 kl. 19:30 10.sýn
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Lau 18/3 kl. 18:00
Egilsstaðir
Lau 25/3 kl. 20:00
Varmahlíð
Sun 23/4 kl. 19:30
Lau 18/3 kl. 20:00
Egilsstaðir
Lau 1/4 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Fös 17/3 kl. 19:30
Sýningum lýkur í mars!
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 17/3 kl. 20:30 Fim 23/3 kl. 20:30 Lau 25/3 kl. 22:30
Fös 17/3 kl. 23:00 Fös 24/3 kl. 20:30 Fim 30/3 kl. 20:00
Lau 18/3 kl. 20:00 Fös 24/3 kl. 23:00
Lau 18/3 kl. 22:30 Lau 25/3 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 22/3 kl. 20:00 Fim 6/4 kl. 20:00 Festival Mið 12/4 kl. 20:00
Mið 29/3 kl. 20:00 Fös 7/4 kl. 19:00 Festival Mið 19/4 kl. 20:00
Mið 5/4 kl. 20:00 Festival Lau 8/4 kl. 19:00 Festival Mið 26/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Álfahöllin (Stóra sviðið)
Lau 8/4 kl. 19:30 Frums Fös 28/4 kl. 19:30 5.sýn Fös 5/5 kl. 19:30
Mið 19/4 kl. 19:30 3.sýn Lau 29/4 kl. 19:30 6.sýn
Fös 21/4 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/5 kl. 19:30 7.sýn
Ný sýning eftir Þorleif Örn Arnarsson!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Lau 13/5 kl. 17:00 Sun 14/5 kl. 17:00
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.