Morgunblaðið - 28.04.2017, Síða 2

Morgunblaðið - 28.04.2017, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. HARÐPARKET Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ hefur óskað eftir því við samgöngu- ráðherra að skoðaðir verði mögu- leikar á uppbyggingu nýs vegar frá höfuðborgarsvæðinu til Þing- valla. Haraldur Sverrisson bæj- arstjóri segir að umferðin um Mos- fellsdal sé orðin svo mikil að full þörf sé á öðrum vegi til Þingvalla. Fulltrúar hverfisfélagsins Víg- hóls í Mosfellsdal hafa verið að leita leiða til að bæta úr því ástandi sem skapast hefur vegna mikillar umferðaraukningar um Mosfellsheiði. Telja þeir að veg- urinn um Mosfellsdal anni umferð- inni ekki lengur, sé sprunginn. Þar kemur til aukin umferð erlendra og innlendra ferðamanna. Endurbætur undirbúnar Fulltrúarnir fengu verk- fræðistofuna Verkís til að gera kostnaðaráætlun fyrir annan veg sem liggja myndi frá Geithálsi að Kjósarskarðsvegi, á svipuðum slóð- um og gamla þjóðleiðin. Liggur leiðin að hluta til um Nesjavalla- veg. Skýrslan og erindi fulltrúa hverfafélagsins var kynnt nýlega í bæjarráði. Þar var samþykkt að fela bæjarstjóra að rita samgöngu- ráðherra bréf um uppbyggingu fleiri akstursleiða frá höfuðborg- arsvæðinu til Þingvalla. Það bréf er farið í póst. Verkís áætlar að kostnaður við nýjan veg verði rúmir tveir millj- arðar króna. Vegagerðin undirbýr fram- kvæmdir til að bæta umferðarör- yggi á núverandi vegi um Mosfells- dal. Þar er gert ráð fyrir breiðari vegöxlum, tveimur hringtorgum til að draga úr hraða, undirgöngum og fleiru. Verkefnið er í skipulags- ferli hjá Mosfellsbæ og stefnt hef- ur verið að framkvæmdum á tíma- bilinu 2019-2022. Haraldur bæjarstjóri segir að full þörf sé á endurbótum á veg- inum enda verði hann áfram not- aður þótt í framtíðinni komi annar vegur til að dreifa álaginu á leið- inni til Þingvalla. Hugað verði að öðrum vegi til Þingvalla  Bæjaryfirvöld taka undir áhyggjur íbúa í Mosfellsdal Ný leið til Þingvalla Heimild: VERKÍS Núverandi Þingvallavegur Tillaga að nýjum vegi Nesjavallaleið Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Borgarsjóður var rekinn með 2,6 milljarða króna afgangi á síðasta ári. Er þetta umtalsvert meiri afgangur en gert var ráð fyrir. Rekstrar- kostnaður reyndist 946 milljónum króna lægri en miðað var við í fjár- hagsáætlun og tekjur 257 milljónir umfram áætlun. Þá voru fjármagns- gjöld 1.132 milljónum lægri en áætl- anir sýndu. Öll fagsvið borgarinnar voru inn- an fjárheimilda. Þá voru öll fyrir- tæki sem borgin á hlutdeild í og telj- ast til B-hluta ársreiknings borgarinnar rekin með hagnaði. Heildarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um 26 milljarða sem er meira en tvöfalt meira en gert var ráð fyrir. Hagræðing í rekstri „Meginskýringin er að sú hag- ræðing og sparnaður í rekstri sem við höfum verið í er að skila sér. Það er vegna þess að starfsfólk og stjórnendur hafa lagst á eitt um að finna bestu leiðir í rekstri borgar- innar,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. „Jú, vissulega er það jákvætt að reksturinn sé loksins réttum megin við núllið. Það er ekki fjármálasnilli núverandi meirihluta að þakka, heldur hafa verið að dælast inn auknar tekjur. Reksturinn getur ekki annað en snúist við hjá Reykja- víkurborg, við sjáum það gerast hjá sveitarfélögum um allt land,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti sjálf- stæðismanna í borgarstjórn. Halldór segir að þegar vel árar eigi að lækka álögur á íbúana. Nefn- ir hann að útsvar sé í hæstu hæðum hjá Reykjavíkurborg en fjögur stærstu nágrannasveitarfélögin nýti ekki heimildir sínar til fulls. Íbúana muni um það. Meirihlutanum finnist hins vegar það tapaðir peningar ef almenningur fær að nota þá sjálfur. Nefnir hann að nú eigi að fara að greiða arð út úr Orkuveitu Reykja- víkur og Faxaflóahöfnum í stað þess að láta fjármunina renna aftur til fólksins sem tekið hafi á sig miklar hækkanir hjá Orkuveitunni. Dagur segir að litlu muni á út- svari Reykjavíkur og nágranna- sveitarfélaga og lækkun útsvars þeirra sé frekar táknræn aðgerð. Hann segir að þegar á heildina er litið, fasteignagjöld og aðra skatta og gjöld, sé hagstæðast að búa í Reykjavík. Hann segir að bætt hafi verið inn í skólastarfið í haust og frístunda- kortið hækkað um áramót. Nú verði stigin skref í lækkun leikskóla- gjalda. Þá er borgin með í undirbún- ingi að bjóða íbúum sem náð hafa 67 ára aldri endurgjaldslausan aðgang að sundlaugum og menningarstofn- unum borgarinnar. „En við þurfum áfram að hafa aðgát í rekstri,“ segir Dagur. Ekki dregið til baka Þegar ársreikningurinn var lagð- ur fram í borgarráði í gær lögðu borgarráðsfulltrúar Framsóknar og flugvallarvina til að hækkanir á fæð- isgjaldi leik- og grunnskóla frá síð- asta hausti yrðu dregnar til baka. Nú væri svigrúm til þess. Spurður um þetta segir Dagur að fæðisgjöld- in hafi verið hækkuð til að bæta hrá- efnið í mötuneytum skólanna og hann geri ekki ráð fyrir að það gangi til baka. Svigrúm til að lækka álögur  Viðsnúningur í rekstri Reykjavíkurborgar  Tekjur aukast og útgjöld lækka  Leikskólagjöld verða lækkuð og gefið út heilsukort fyrir eldri borgara Morgunblaðið/Eggert Undraveröld á Rofaborg Borgarstjóri hefur lagt til að stigið verði skref til lækkunar leikskólagjalda í borginni. Tap af rekstri Icelandair Group á fyrsta fjórðungi ársins nam nærri 35 milljónum Bandaríkjadala og er tvöfalt meira en á sama tímabili á síðasta ári. Versnandi afkoma er aðallega rakin til lækkunar meðal- fargjalda, sérstaklega á mark- aðnum milli Norður-Ameríku og Evrópu. Þetta gerist þrátt fyrir 14% fjölgun farþega í millilanda- flugi og 5% aukningu heildartekna. Í byrjun febrúar sendi Icelandair Group frá sér afkomuviðvörun þar sem fram kom að gert var ráð fyrir lakari afkomu á árinu 2017 en síð- asta ári. Fram kemur í tilkynningu félagsins að gripið hafi verið til margvíslegra aðgerða í rekstri til að ná fram hagræðingu og auknum tekjum. Stjórnendur félagsins telja sig geta náð þeim markmiðum sem þá voru sett, að bæta afkomu fé- lagsins um 30 milljónir Bandaríkja- dala á ársgrundvelli, þegar aðgerð- irnar verða komnar að fullu til framkvæmda í byrjun árs 2018. Tvöfalt meira tap á fyrsta ársfjórðungi Óhagstæð þróun í umhverfi Fé- lagsbústaða ásamt stækkun eignasafnsins kallar á hækkun á leiguverði félagsins til að sporna við frekari veikingu veltufjár frá rekstri, að mati fjármálaskrifstofu borgarinnar. Hún telur að reksturinn verði ekki sjálfbær á árinu 2017 og telur nauðsynlegt að hækka leiguna um 7% umfram verðlag í stað 5% sem gert er ráð fyrir. Hækka þarf leigu meira FJÁRMÁLASKRIFSTOFA Skipulagsstofnun hefur fallist á til- lögu Biokraft ehf. að matsáætlun fyrir vindorkuver norðan Þykkva- bæjar. Samanlagt afl vindmyllnanna, sem verða alls 13, er áætlað að verði 45 MW. Ýmsar at- hugasemdir eru þó gerðar við tillöguna og úr ýmsu þarf að bæta í endanlegri áætlun. Góð reynsla er af virkjun vindorku í Þykkvabæ, en á vegum Biokraft voru tvær vindmyllur settar þar upp í til- raunaskyni árið 2014. Á þeirri reynslu, með öðru, verður byggt í þeim framkvæmdum sem nú eru á teikniborðinu. Mastur þeirra þrettán vindmyllna sem á að reisa verður 92,5 metrar á hæð og þvermál snúnings- flatar spaða um 113 metrar. Hæsti punktur spaða í toppstöðu verður 149 metrar. Þjóðbraut farfugla Um matsáætlunina segir að allt þurfi að vera á hreinu hvað varðar umhverfisáhrif myllnanna á til dæmis fuglalíf, gróður og hljóð en talsverður hvinur berst frá snúandi mylluspöð- um. Þá eru á virkjunarsvæðinu ofan við Þykkvabæ, sem Biokraft kallar nú Vindaborg, möstur til norðurljósa- rannsókna á vegum HÍ og svara þarf því hvernig þetta spilar saman. Í umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands um Vindaborg segir að svæð- ið sé í þjóðbraut farfugla, sem þar fari um vor og haust svo tugum þúsunda skipti. Því þurfi að rannsaka fuglalífið vandlega áður en myllurnar fái grænt ljós. sbs@mbl.is Spaðar Samanlagt afl verður 45 MW. Áætlun um 13 myllur í Vindaborg  Fallist á tillögu að matsáætlun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.