Morgunblaðið - 28.04.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Erling Ólafsson, dýrafræðingur hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands, hefur
uppfært pödduvef Náttúrufræði-
stofnunar á netinu í nýjan búning og
bætt meðal annars við rottumítli.
„Það er búið að vinna mikið í vefn-
um núna í byrjun árs. Ég þurfti að
læra heilmikið sjálfur í vefmálum
sem ég ekki kunni fyrir,“ segir Er-
ling. Hann segir að pödduvefurinn
sé einn mest heimsótti vefurinn hjá
stofnuninni. „Pödduvefurinn er
ákaflega vinsæll, með vinsælasta
efni vefjarins. Á eftir pödduvefnum
koma frjókornamælingarnar, þetta
tvennt skarar fram úr,“ segir Er-
ling.
Myndar pöddurnar í stúdíói
Erling vinnur bæði kynningar- og
myndefnið fyrir vefinn sjálfur og
finnur pöddurnar oftast í sínu nær-
umhverfi. „Mest af þessum dýrum
er hérna nálægt okkur. Stundum
þarf ég að taka kvikindin með mér
inn í stúdíó, til að hemja þau þannig
að þau séu ekki að fljúga burt. Ég vil
hafa þau lifandi ef ég hef þess kost,“
segir Erling en ekki er hægt að
mynda öll smádýrin í umhverfinu.
„Stundum þarf hins vegar að taka
myndir í gegnum smásjá, eins og
nýjasta kvikindið, rottumítilinn, það
er ör-agnarsmátt kvikindi. Það var
myndað gegnum smásjá.“
Hann segir að rottumítillinn sé
ekki nýr á Íslandi þrátt fyrir að hann
hafi fengið aukna athygli nýlega en
mítillinn leggst á ýmsar tegundir
spendýra.„Rottumítillinn er á alls-
konar dýrum, en uppáhaldið eru lítil
nagdýr. Það geta verið mýs eða bara
lítil nagdýr almennt. Þetta er kennt
við rottuna því hann fylgir oft rottu-
gangi og þessum nagdýrum sem eru
að koma inn til okkar.“
Rottumítillinn er ekki smitberi að
sögn Erlings en hann getur bitið og
ert húðina „Hann leggst á okkur,
bítur og ertir húð en hann er ekki að
sýkja okkur neitt. Þetta eru bara
óþægindi og leiðindi.“
Heimi smádýranna haldið við
Erling rekur einnig fésbókarsíð-
una Heim smádýrana. Þegar hann
tilkynnti á síðasta ári að hann ætlaði
að hætta með síðuna hvöttu fylgj-
endur síðunnar hann eindregið til að
halda áfram og ákvað Erling því að
halda áfram enn um sinn.
„Ég hef dregið tímabundið saman
seglin á fésbókarsíðunni. Einfald-
lega vegna þess að ég var að upp-
færa pödduvefinn. Ég þurfti að
skrifa töluvert mikið af nýju efni inn
á pödduvefinn og á meðan hvíldi ég
fésbókarsíðuna. Þegar ég er í
ákveðnum verkefnum, þá er ég í
þeim og loka á önnur verkefni,“ seg-
ir Erling og bætir við að aðdáendur
fésbókarsíðunnar þurfi ekki að ör-
vænta. „Það stendur til að koma lífi
aftur í Heim smádýranna. Ég setti
einmitt rottumítilinn þar inn í vik-
unni og veggjamítilinn í gær.“
Rottumítillinn
er kominn á
pödduvefinn
Pödduvefur Náttúrufræðistofnunar
Íslands er gríðarlega vinsæll
Ljósmynd/Erling Ólafsson
Rottumítill Mynda þarf mítilinn í
gegnum smásjá svo hann sjáist.
Rottumítill
(Ornithonyssus bacoti)
» Uppgötvaðist fyrst í Ástralíu
árið 1913.
» Er agnarsmár, oftast undir
1 mm.
» Er þekkt blóðsuga á mörg-
um tegundum spendýra.
» Finnst einkum þar sem
loftslag er temprað.
» Á Íslandi eru eintök til frá
Reykjavík, Hafnarfirði og
Stykkishólmi.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Almennt er búist við því að sam-
keppni í verslun hér á landi muni
aukast eftir að Costco og H&M opna
verslanir hér á landi, sem gæti þýtt
lægra vöruverð. Nú eru einungis
rúmar þrjár vikur í að Costco opni
verslun sína við Kauptún í Garðabæ.
Ekki fengust upplýsingar um það
hjá Costco í gær, hversu margir Ís-
lendingar hafa gerst félagar í
Costco.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hafa Hagar keypt Olís
og höfðu fyrr í vetur keypt Lyfju.
Talið er að með kaupunum hafi Hag-
ar verið að undirbúa sig fyrir aukna
samkeppni á markaði, eftir að
Costco hefur verslunarrekstur hér á
landi.
Jón Björnsson, forstjóri Festi hf.,
sem m.a. á Krónuna og ELKO, telur
að menn séu að oftúlka áhrifin af
einni verslun, sem til standi að opna í
Garðabæ í næsta mánuði. „Menn eru
að tala um mjög breyttar aðstæður
með tilkomu Costco. Þetta er nú
bara ein búð, þótt hún verði að vísu
stór. Við höfum vitað af áformum
Costco um að koma hingað í þrjú eða
fjögur ár og ekki verið neitt tauga-
veiklaðir vegna þeirra áforma,“
sagði Jón í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Jón segir að enn liggi ekki fyrir,
a.m.k. ekki opinberlega, á hvað verði
Costco ætlar að selja vörur sínar
hér. „Við vitum ekki hvort Costco sé
með lægra innkaupsverð en við. Við
vitum hver álagningin þeirra er og
ég veit að Krónan og ELKO eru með
svipaða álagningu og Costco. Ef
Costco er með svipað innkaupsverð
og við, þá er ekkert mál að keppa við
þá, þannig að við erum alveg róleg-
ir,“ sagði Jón.
Jón bendir á að þeir sem reka
Krónuna og ELKO þekki íslenska
neytendur miklu betur en Costco
geri. „Íslenskir neytendur skipta
okkur miklu meira máli, heldur en
þeir munu nokkurn tíma skipta
Costco. Við eigum allt undir því að
íslenskum neytendum geðjist að
okkur. Það höfum við alltaf vitað,“
sagði Jón.
Jón bendir á að íslenski smásölu-
markaðurinn velti um 400 milljörð-
um króna á ári. Bestu verslanir
Costco, samkvæmt ársreikningi fyr-
irtækisins, velti 10 til 12 milljörðum
króna á ári. „Segjum að þessi búð í
Garðabæ verði ein af bestu verslun-
um Costco, þá myndi hún velta um
2,5% af íslenska smásölumarkaðn-
um. Er það einhver heimsendir? Nei.
2,5% er eðlilegur ársvöxtur í smásöl-
unni.Vissulega verða breytingar á
markaðinum, þegar Costco kemur,
en eigum við ekki að leyfa þeim að
opna, áður en við förum á taugum?“
segir Jón.
Costco Menn eru sammála um að smásölumarkaður á Íslandi muni breytast með opnun verslunar Costco.
Segir 2,5% hlutdeild
ekki vera heimsendi
Forstjóri Festi segist alveg rólegur vegna komu Costco
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka versl-
unar og þjónustu (SVÞ), segir
að fyrirtæki innan SVÞ séu
mörg að undirbúa sig fyrir þá
auknu samkeppni í verslun sem
blasi við, þegar tvö stórfyrir-
tæki, Costco og H&M, hefja
verslanarekstur hér á landi.
„Þetta verður í fyrsta sinn
sem tveir alþjóðlegir smásölu-
risar hefja verslanarekstur hér
á landi, á þessum litla markaði.
Það leiðir af eðli máls, að koma
risanna á þennan markað mun
hafa áhrif á öll viðskipti í land-
inu. Við höfum skynjað það und-
anfarið ár, að fyrirtækin eru
með einum eða öðrum hætti að
búa sig undir þetta gjörbreytta
umhverfi,“ sagði Andrés í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Andrés segist sannfærður um
að viðskiptaumhverfi hér á
landi muni taka miklum breyt-
ingum, eftir að Costco og H&M
hefja rekstur hér á landi.
Búa sig undir
samkeppni
SVÞ
Garðs Apótek Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Appótek: www.appotek.is
Einkarekið apótek í 60 ár
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al-
þingis ætlar að hefja á ný rannsókn á
gjaldeyriseftirliti Seðlabanka Ís-
lands, en hlé hafði verið gert á rann-
sókninni. Banka-
ráð Seðlabanka
Íslands hóf eigin
rannsókn með að-
stoð Lagastofnun-
ar Háskóla Ís-
lands og málið er
nú komið aftur til
stjórnskipunar-
nefndar.
„Þetta var hjá
okkur en við ákváðum að setja þetta
aðeins á ís þar til bankaráð kláraði
sína skoðun. Þegar álit Lagastofnun-
ar var birt var löngu ákveðið að skoða
málið aftur út frá því,“ sagði Brynjar
Níelsson, formaður nefndarinnar, í
samtali við mbl.is í gær. „Það var
ákveðið í morgun að halda áfram þar
sem frá var horfið. Þetta var viðbót
sem er komin og nú teljum við að það
sé hægt að ljúka málinu einhvern tím-
ann á þessu ári,“ bætir Brynjar við.
Ógagnsæ framkvæmd
Bankaráð og Lagastofnun komust
að þeirri niðurstöðu að þótt reglur
hefðu orðið skýrari hefði framkvæmd
Seðlabanka verið ógagnsæ og breytt
framkvæmd ekki birt.
Brynjar segir að Samherjadómur-
inn svokallaði verði ekkert sérstak-
lega ræddur innan nefndarinnar.
„Hann er hluti af gögnum í málinu.
Við erum að fara yfir stjórnsýsluna
sem hluti af eftirliti með henni og það
hefur komið gagnrýni á hana.“ Hér-
aðsdómur Reykjavíkur felldi í vikunni
úr gildi 15 milljóna króna stjórnvalds-
sekt sem Seðlabanki Íslands lagði á
Samherja fyrir brot á gjaldeyrislög-
um.
„Við erum að leggja sjálfstætt mat
á það hvernig hefur farnast hjá gjald-
eyriseftirlitinu, með hliðsjón af þeim
gögnum sem liggja fyrir,“ segir
Brynjar. johann@mbl.is
Hefja á ný rannsókn
á gjaldeyriseftirliti SÍ
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vinnur sjálfstætt mat
Brynjar Níelsson