Morgunblaðið - 28.04.2017, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.04.2017, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017 Vorsnjór Þótt sumardagurinn fyrsti hafi verið í vikunni sem leið hefur vetur konungur ekki alveg sagt skilið við landið. Snjór féll í Reykjavík í gær en var fljótur að hverfa og sumarið er á næsta leiti. Golli Eitt sinn sagði Skáldið að hvenær sem þú sérð fullkomið sköp- unarverk verður þú gripinn sárum trega. Þetta er sá harmur sem fylgir listinni. Fegurð hlutanna er eins og ólæknandi sorg. Vissulega kann ein- hver að verða uppnum- inn af lotningu við að sjá fegurðina, í landslagi á Þingvöll- um eða þegar Kjarval hefur fært landslagið á striga í litbrigðum ljóss, við sólaruppkomu eða sólarlag að degi eða sumarbjartri nóttu. Og gleymum ekki að fegurð hlut- anna er þeim sjálfum æðri, dýrmæt- ari, flestir hlutir lítilsvirði eða einsk- is í samanburði við fegurð sína, æðst af öllu fegurð jökulsins. Annað skáld gengur lengra og þérar fjöllin og segir; Ég elska yður þér Íslands fjöll. En Skáldið vildi vera á pari við þjóðina og sagði; Má ég bjóða þér dús mín elskulega þjóð? Þessar hugleiðingar skálds um fegurðina eru nauðsynlegar þegar birtir af dimmum vetri. Það er siður á Íslandi að nota sumardaginn fyrsta til afreka. Þannig hleypur hraustleikafólk á víðavangi þennan dag. Nokkrar stofnanir samfélags- ins vígja húsakynni sín þennan dag. Veröld fyrir tungumál Sumardaginn fyrsta í ár fékk þjóðin hús tungumála í Veröld, húsi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur fyrir erlend mál. Þá minnti rithöf- undurinn og listfræðingurinn Auður Ava Ólafsdóttir á að íslenskan er tæki til að hugsa alþjóðlega. Eins er með þjóð og þýðingu, samur er orð- stofninn. Þessi stofnun við Háskóla Íslands er um margt merkileg tilraun til ný- sköpunar í fræðum, sem hafa ekki verð meginrannsóknarefni íslenskra hugvísinda. Íslensk fræði hafa ver- ið meginrannsókn- arefni við Háskóla Ís- lands en ekki tungumál almennt. Ber þar hæst þau margvíslegu fræði sem stunduð eru í Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Það kann að vera að sú ofur áhersla sem Háskóli Íslands lagði á íslensk fræði frá öndverðu hafi í raun verið eðli- leg í framhaldi af þeirri sjálfstæð- isbaráttu sem stofnun skólans var hluti af. Hann var stofnaður á hundrað ára afmæli Jóns Sigurðs- sonar. Fæðingardagur Jóns varð síðar þjóðhátíðardagur við stofnun lýðveldis á Íslandi. Nú eru íslensk skáld hætt að yrkja ættjarðarljóð. En þó. Eitt skáld orti um landið þjóðina og tunguna. Til þess að orða hugsun sína notaði skáldið Snorri Hjart- arson form sonnettunnar: Land þjóð og tunga, þrenning sönn og ein, þér var ég gefinn barn á móðurkné; ég lék hjá þér við læk og blóm og stein, þú leiddir mig í orðs þíns háu vé. Á dimmum vegi dýrð þín um mig skein, í dögun þeirri er líkn og stormahlé og sókn og vaka: eining hörð og hrein, þú heimtar trúnað, spyr hver efnd mín sé. Þú átt mig, ég er aðeins til í þér. Örlagastundin nálgast grimm og köld; hiki ég þá og bregðist bý ég mér bann þitt og útlegð fram á hinzta kvöld. Ísland, í lyftum heitum höndum ver ég heiður þinn og líf gegn trylltri öld. Ef til vill var þetta ljóð ort þegar skáldið var farið að gruna að ís- lenska gæti lent í gröf með útdauð- um tungumálum eins og hettetísku eða tokarísku. Eða jafnvel með lat- ínu sem fáir tala nema þá helst í stúdentsveislum á Íslandi og í kirkjum katólskra um víða veröld, þar sem söfnuðinn skilur aðeins; in nomine patris, filii et spiritus sancti. Þó hefur latína getið af sér mörg lif- andi mál sem aftur geta af sér lista- verk um lönd og álfur. Ný Veröld Það kann að vera að hús sé aðeins hið ytri byrði. Hið innra er sálin. Hreimurinn í rödd hússins segir all- an skáldskap lífsins. Það hefur um langt skeið verið mönnum áhyggju- efni hvernig erlend mál hafa sótt að íslenskunni. Það hefur einnig verið áhyggjuefni hvernig enska hefur sótt að öðrum málum. Enskan er Linguia franca á fundum og ráð- stefnum. Í Veröld verður heimurinn undir. Íslenskan verður ekki áhyggjuefni ef henni er sinnt sam- hliða erlendum málum. Það eru til önnur mál en enskan og það eru til bókmenntir á öðrum málum. Enskan nær þó ekki að draga að sér annarra þjóða bók- menntir. Einungis 2% af bók- menntum á ensku eru þýðingar. Hvað sem mikilvægi eða útbreiðslu enskunnar líður þá hafa rithöfundar, sem eiga frönsku að móðurmáli, hlotið flest bókmenntaverðlaun Nóbels. Í Þýskalandi er hefð fyrir þýddum bókmenntum eins og sjá má af því að 40% af þýskum bókmennt- um eru þýðingar. Íslensk skáld hafa lagt fyrir sig bókmenntaþýðingar þegar ritstol hefur sótt að, ellegar þörf fyrir að tjá það sem ritað er á heimstungu á heimatungu. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur hefur gefið út nokkur tvítyngd rit. Í tvítyngdum ritum er frumtexti sam- hliða íslenskri þýðingu. Í bók sem ber nafnið Ljóðsaga eru nokkur verka Federico Garcia Lorca í ís- lenskum þýðingum. Þannig þýða tveir Íslendingar sama ljóðið, Krossgötur (sjá mynd). Tungan og bókmenntirnar, það eru auðæfi sem aðrir ná ekki af okk- ur og gera þjóðina að þjóð. Þessir tveir menn Baldur og Hallberg voru heimsborgarar, annar heima en hinn úti í heimi. Það er von og ósk að starfsemi Stofnunar Vigdísar auki fegurð og hagsæld með landi og þjóð, og meðal annarra þjóða. Þegar ég sé og heyri fegurðina fyrirgef ég allt. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Það er von og ósk að starfsemi Stofnunar Vigdísar auki fegurð og hagsæld með landi og þjóð, og meðal annarra þjóða. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur er alþingismaður. Þjóð og þýðingar VB Kjarval Skjaldbreiður við sólarupprás. Encrucijada – Krossgötur Viento del este un farol y el puñal en el coazon La calle tiene un temblor de cuerda en tension un temblor de enorme moscardoón. Por todas partes yo veo el punal en el corazón. Federico Garcia Lorca Austanvindur götuljós og hnífurinn í hjartanu. gatan skelfur eins og strengur sem strekkt er á skjálfta risakleggja. Hvarvetna sé ég hnífinn í hjartanu. Hallberg Hallmundsson þýddi Austræningur rauðgult lampaljós og rýtingur í hjarta Sjá, gatan skelfur snortinn stríður strengur, nötrar lengi náfiðrildið svarta. Ég sé rýtinginn í hverju hjarta. Baldur Óskarsson þýddi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.