Morgunblaðið - 28.04.2017, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017
Hljómsveitin Vök sendir í dag frá
sér sína fyrstu breiðskífu, Figure.
Record Records gefur plötuna út
hér á landi en Nettwerk erlendis.
Vök fór með sigur af hólmi í
Músíktilraunum árið 2013 og hefur
sent frá sér tvær stuttskífur á fjór-
um árum og lögum hljómsveit-
arinnar hefur verið streymt yfir 10
milljón sinnum á Spotify.
Öll lögin á Figure eru ný og fyrir
skömmu kom út tónlistarmyndband
við lagið „Show Me“. Það var gefið
út aftur í endurhljóðblandaðri út-
gáfu á dögunum og er í þeirri út-
gáfu á breiðskífunni.
Vök er lögð af stað í fjögurra
vikna tónleikaferð um Evrópu en
heldur útgáfutónleika í Gamla bíói
fimmtudagskvöldið 8. júní. Miða-
sala á tónleikana hefst í dag á tix.is.
Figure Umslag breiðskífunnar Figure
sem er sú fyrsta sem Vök sendir frá sér.
Vök sendir frá sér
breiðskífu
Það gengur mikið á í A-salHafnarhúss þar sem tólfmyndbandsverk og takt-fast hljóðverk ber fyrir
augu og eyru sýningargesta í inn-
setningu Ilmar Stefánsdóttur á sýn-
ingunni Panik. Hvert myndbands-
verk sýnir líkama konu sem hamast
og puðar í ólíkum tækjum í ætt við
líkamsræktartæki og viðheldur
þannig ákveðinni hringrás með
hreyfingu, samhliða verður til taktur
í hverju verki. Úr ryþma verkanna
verður til önnur hljóðmynd sem er
hugarsmíð Sölku Valsdóttur. Hrúg-
ur af salti liggja hér og þar á gólfinu
og skjánum tólf sem varpa mynd-
bandsverkunum hefur verið komið
fyrir ofan í stórum iðnaðarpokum,
fiskikörum, inni í málmtúðum og í
lofti sýningarrýmisins.
Á síðastliðnum árum hefur Ilmur
vakið athygli fyrir frumlegar leik-
myndir í leikhúsum borgarinnar en
listsköpun hennar dansar á mörkum
myndlistar, sviðslistar og gjörninga-
listar og hér hannar hún sviðsmynd
innsetningarinnar með rými og
hráum arkitektúr Hafnarhússins.
Líkaminn, þar sem ekki sést í höfuð
konunnar, er í forgrunni mynd-
bandsverkanna. Hann er myndaður
frá ýmsum sjónarhornum við að
knýja áfram hringsnúning í óskil-
greindum tilgangi líkt og hamstur á
hjóli. Myndatakan, taktföst hreyf-
ingin og ryþmi hljóðmyndar skapa
femínískt og á stundum munúðar-
fullt yfirbragð í salnum. Ilmur um-
breytir ásýnd sýningarrýmisins og
gefur því líf, það líkamnast, verður
áþreifanlegt og tekur á sig mynd í
lofttúðum og súlum sem verða að
einskonar æðakerfi verksins, rásum
þar sem saltbingir á gólfinu mynda
útfellingu úr þeim, líkt og vessað
hafi úr líkamanum vegna áreynsl-
unnar.
Þó að leikurinn sé ekki langt und-
an hjá Ilmi frekar en endranær, þá
er undirtónn sýningarinnar alvar-
legri en oft áður. Á fyrri sýningum
hennar, fyrir rúmum tíu árum, var
áberandi tilraunastarfsemi lista-
mannsins með umbreytingu tækja
og tóla í margskonar furðuskúlptúra
með óljósan tilgang. Þar braut hún
allar reglur hvað varðar praktíska
notkun hluta en velti um leið upp
spurningum um virkni hluta, mörk
þess sem talið er eðlilegt, ofgnótt
nútímans og auglýsingamennsku á
húmorískan hátt. Á sýningunni Out
of Office í Norræna húsinu árið 2006
voru til að mynda ýmiss konar vél-
vædd heimilistæki í fullum gangi án
þess að manneskjan kæmi þar við
sögu. Á sýningunni Panik er þessu
hins vegar öfugt farið, hér er það
einmitt nærvera konunnar sem
hamast og puðar í endalausu hring-
sóli sem er í forgunni. Hver er til-
gangurinn með þessu eilífa eirðar-
leysi sem gerir það nauðsynlegt að
vera alltaf á hlaupum og hvað er ver-
ið að knýja áfram með öllum hama-
ganginum? Mun hrikta í kerfinu ef
slakað er á? Þetta eru nokkrar
þeirra spurninga sem listamaðurinn
setur fram á frumlegan og heild-
stæðan hátt. Útfærsla Ilmar bert
vott um frjótt ímyndunarafl og
hugmyndaauðgi og er skemmtileg
tilbreyting í sýningaflóru borg-
arinnar. Ekki má gleyma þætti
hljóðmyndar Sölku sem er mik-
ilvægur í heildarsamhengi sýning-
arinnar, hraður takturinn er líkt og
hjartsláttur sem hringrás Panik
hverfist um og eykur á sýningarupp-
lifun áhorfandans. Það er ekki laust
við að stressið nái tökum á áhorfand-
anum og einhverjir fara ef til vill út
með hraðari púls.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hringrás og hjartsláttur
Hafnarhús
Panik – Ilmur Stefánsdóttir
bbbmn
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús.
Panik, innsetning Ilmar Stefánsdóttur.
Sýningarstjóri Ólöf K. Sigurðardóttir.
Sýningin stendur til 1. maí 2017. Opið
alla daga frá kl. 10-17 og til kl. 22 á
fimmtudögum.
ALDÍS ARNARDÓTTIR
MYNDLIST
Kvenlíkami Líkaminn, þar sem ekki sést í höfuð konunnar, er í forgrunni
myndbandsverka Ilmar Stefánsdóttur og hér sést stilla úr einu slíku.
Panik Ilmur Stefánsdóttir á sýn-
ingu sinni Panik í Hafnarhúsi.
Bandaríska rokksveitin Dinosaur
Jr. heldur tónleika í Silfurbergi í
Hörpu 22. júlí nk. Hún var stofnuð
árið 1984 og þótti áhrifamikil í
bandarísku jaðarrokkssenunni.
Upprunalegir liðsmenn hennar eru
J Mascis, Lou Barlow og Murph og
tóku þeir upp þrjár plötur í fullri
lengd áður en mannabreytingar
urðu á sveitinni. Eftir að tríóið tók
aftur upp þráðinn hefur það gefið
út fjórar breiðskífur, þá síðustu í
fyrra. 1.200 miðar verða í boði á
tónleikana og hefst miðasala 11.
maí kl. 10 á harpa.is/dino.
Rokksveitin Dino-
saur Jr. heldur tón-
leika í Silfurbergi
Rokkarar Félagarnir í Dinosaur Jr. eru væntanlegir til landsins.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Nýja sviðið)
Fös 28/4 kl. 20:00 16. sýn Fös 12/5 kl. 20:00 23. sýn Lau 3/6 kl. 20:00 45. sýn
Lau 29/4 kl. 20:00 17. sýn Lau 13/5 kl. 13:00 aukas. Þri 6/6 kl. 20:00 aukas.
Sun 30/4 kl. 20:00 18. sýn Sun 14/5 kl. 20:00 aukas. Mið 7/6 kl. 20:00 48. sýn
Mið 3/5 kl. 20:00 aukas. Mið 17/5 kl. 20:00 aukas. Fim 8/6 kl. 20:00 49. sýn
Fim 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 18/5 kl. 20:00 30. sýn Fös 9/6 kl. 20:00 50. sýn
Fös 5/5 kl. 20:00 aukas. Fös 19/5 kl. 20:00 31. sýn Lau 10/6 kl. 20:00 51. sýn
Lau 6/5 kl. 20:00 19. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn Sun 11/6 kl. 20:00 52. sýn
Sun 7/5 kl. 20:00 20. sýn Sun 21/5 kl. 20:00 33. sýn Mið 14/6 kl. 20:00 53. sýn
Mið 10/5 kl. 20:00 21. sýn Fim 1/6 kl. 20:00 43. sýn Fim 15/6 kl. 20:00 54. sýn
Fim 11/5 kl. 20:00 22. sýn Fös 2/6 kl. 20:00 44. sýn
Opnar kl. 18:30, frjálst sætaval. Panta verður veitingar með dags fyrirvara.
Úti að aka (Stóra svið)
Lau 29/4 kl. 20:00 25. sýn Fös 5/5 kl. 20:00 28. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 31. sýn
Sun 30/4 kl. 20:00 26. sýn Sun 7/5 kl. 20:00 29. sýn
Fim 4/5 kl. 20:00 27. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 30. sýn
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 28/4 kl. 20:00 165 s. Mið 24/5 kl. 20:00 173 s. Lau 3/6 kl. 20:00 181 s.
Lau 6/5 kl. 20:00 166 s. Fim 25/5 kl. 20:00 174 s. Mið 7/6 kl. 20:00 182 s.
Fös 12/5 kl. 20:00 167 s. Fös 26/5 kl. 20:00 175 s. Fim 8/6 kl. 20:00 183 s.
Lau 13/5 kl. 13:00 168 s. Lau 27/5 kl. 20:00 176 s. Fös 9/6 kl. 20:00 184 s.
Sun 14/5 kl. 20:00 169 s. Sun 28/5 kl. 20:00 177 s. Lau 10/6 kl. 20:00 185 s.
Fös 19/5 kl. 20:00 170 s. Mið 31/5 kl. 20:00 178 s. Sun 11/6 kl. 20:00 186 s.
Lau 20/5 kl. 13:00 171 s. Fim 1/6 kl. 20:00 179 s. Mið 14/6 kl. 20:00 187 s.
Sun 21/5 kl. 20:00 172 s. Fös 2/6 kl. 20:00 180 s. Fim 15/6 kl. 20:00 188 s.
Allra síðustu sýningar komnar í sölu!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 30/4 kl. 13:00 aukas. Sun 14/5 kl. 13:00 aukas.
Sun 7/5 kl. 13:00 aukas. Sun 21/5 kl. 13:00 aukas.
Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Sun 30/4 kl. 13:00 aukas.
Lokasýning.
Elly - haustið 2017 (Stóra sviðið)
Fim 31/8 kl. 20:00 1. sýn Lau 2/9 kl. 20:00 3. sýn Fös 8/9 kl. 20:00 5. sýn
Fös 1/9 kl. 20:00 2. sýn Fim 7/9 kl. 20:00 4. sýn Sun 10/9 kl. 20:00 6. sýn
Sýningar í haust komnar í sölu.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 30/4 kl. 13:00 Sun 7/5 kl. 13:00
Sun 30/4 kl. 16:00 Lau 13/5 kl. 13:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 6/5 kl. 19:30 Mið 17/5 kl. 19:30 Lau 27/5 kl. 19:30
Fös 12/5 kl. 19:30 Lau 20/5 kl. 19:30
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 28/4 kl. 19:30 14.sýn Lau 6/5 kl. 19:30 17.sýn Fös 19/5 kl. 19:30 21.sýn
Lau 29/4 kl. 19:30 15.sýn Fös 12/5 kl. 19:30 18.sýn
Fös 5/5 kl. 19:30 16.sýn Fim 18/5 kl. 19:30 20.sýn
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Sun 30/4 kl. 19:30 Sun 14/5 kl. 19:30
Lau 6/5 kl. 20:00
Edinborgarhúsið Ísafirði
Sun 21/5 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 28/4 kl. 20:00 Lau 29/4 kl. 20:00 Fös 5/5 kl. 20:00
Fös 28/4 kl. 22:30 Lau 29/4 kl. 22:30 Lau 6/5 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Álfahöllin (Stóra sviðið)
Fös 28/4 kl. 19:30 5.sýn Fim 4/5 kl. 19:30 7.sýn Sun 14/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 29/4 kl. 19:30 6.sýn Fös 5/5 kl. 19:30 8.sýn Fim 18/5 kl. 19:30 10.sýn
Ný sýning eftir Þorleif Örn Arnarsson!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Lau 13/5 kl. 17:00 Sun 14/5 kl. 17:00
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.