Morgunblaðið - 28.04.2017, Qupperneq 13
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mæðgur Margrét Lóa ljóðskáld og Viktoría dóttir hennar í stofunni heima þar sem bókin varð til.
isbækur, svo þetta var mikill sprett-
ur. „Vinnan var nokkuð seinleg af því
ég handsaumaði hverja einustu bók,
sem er mikil nákvæmnisvinna, og ég
bar býflugnavax á hverja einustu for-
síðu, til að ná fram sérstakri áferð.
Við vorum satt að segja hálf svefn-
lausar alla þessa viku fram að af-
mæli. Þegar ég var búin að gera tutt-
ugu stykki, þá var ég alveg búin að fá
nóg, en það varð ekki aftur snúið, ég
varð að klára,“ segir Viktoría og bæt-
ir við að bækurnar hafi ekki verið til-
búnar fyrr en kvöldið fyrir afmælið.
„Við þessi verklok varð þvílíkur
fögnuður hjá okkur mæðgum,
mamma kom hingað heim á vespunni
sinni og sá að ég hafði raðað bók-
unum fallega saman í skókassa á
stofuborðið. Okkur leið eins og við
hefðum skapað kraftaverk úr lítilli
hugmynd og nokkrum myndum,“
segir Viktoría.
Útgangspunkturinn í ljóðabálk-
inum er eðli málsins samkvæmt tíma-
mótin, hálfrar aldar afmæli ljóð-
skáldsins.
„Ég er þakklát að fá að verða
fimmtug, þakklát fyrir allt það góða,
fólkið mitt, vini mína og fína heilsu.
Það er nauðsynlegt að minna sig á,
þegar smávægilegar flækjur koma
upp, hve maður er lánsamur að mega
draga andann og vera ofan jarðar,“
segir Margrét Lóa og bætir við að
ljóðabálkurinn um fimmtíu árin hafi
komið nánast fullskapaður á einu
bretti.
„Ég hef áður samið ljóð og bæk-
ur á skömmum tíma og þær hafa
ekki verið neitt síðri en þær sem tók
mig kannski tíu ár að semja. Mér
þykir jafn vænt um þær allar. Ljóðið
er dálítið sérstakt, stundum hittir
maður á galdrastund eins og maður
sé tengdur við ákveðið loftnet.
Ástæðan fyrir því að ég held áfram
að semja ljóð er sú að það er næstum
alltaf jafn erfitt, alltaf eins og maður
sé á ákveðnum byrjunarreit.“
Allt vil ég með orðum veiða,
þótt ekkert geti skýrt mitt lán
Margrét Lóa frumflutti ljóða-
bálkinn í fimmtugsafmælinu sem
hún hélt í Listasafni Einars Jóns-
sonar, umvafin vinum og vanda-
mönnum. Og hún leysti alla afmæl-
isgestina út með eintaki af nýju
ljóðabókinni, samstarfsverkefni
þeirra mæðgna.
„Þennan dag langaði mig af öllu
hjarta til að gefa afmælisbókina, því
þeir sem gefa eru hamingjusam-
astir,“ segir Margrét Lóa og bætir
við að heildarhugmyndin hafi orðið
að listrænum gjörningi, því Einar
Melax og Gímaldin léku tónlist undir
á meðan hún las upphátt ljóðabálk-
inn frá upphafi til enda fyrir afmælis-
gestina.
„María Lísa Alexía yngri dóttir
mín las upp úr annarri bók frá mér,
Ljóðaást, en hún er líka samin á
skömmum tíma, aðeins tveimur dög-
um. Hún las bálk um ljóðagerðina
eins og hún er stundum í veru-
leikanum, þar sem ég sit uppi við
dogg, skrifandi, og litlar tær gægjast
undan sæng. Það var auðvitað mjög
sérstakt að vera uppi í rúmi að yrkja
ljóð með þetta kraftaverk við hliðina
á mér, litlu dóttur mína. Að reyna að
fanga svo magnað augnablik. Ljóðið
fjallar um það, að allt vilji ég með
orðum veiða, þótt ekkert geti skýrt
mitt lán.“
Frumflutningur Margrét, Gímaldin og Einar Melax. Líka púði Viktoría bjó til einn púða með Íslandsmynd.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017
Hið stórskemmtilega og árlega söngpartý Brokkkórsins, svokallað
„singalong“, verður haldið á morgun, laugardagskvöld 29. apríl, í
Samskipahöllinni á félagsvæði Spretts, Hestheimum 14-16 í Kópa-
vogi.
Brokkkórinn er kór hestafólks á höfuðborgarsvæðinu sem syngur
undir stjórn hins þjóðþekkta Magnúsar Kjartanssonar. Léttleikinn er
leiðarljós í kórstarfinu og lagavalið ber keim af því. Kórinn mun
syngja nokkur vel valin lög undir stjórn Magnúsar og mun hann svo í
framhaldi leiða samsönginn með gestum fram á nótt. Enginn sem
hefur gaman af söng og góðum félagsskap ætti að láta þetta framhjá
sér fara.
Happdrættið verður á sínum stað með stórglæsilegum vinningum
að vanda, en einn happdrættismiði fylgir hverjum seldum miða. Með-
al vinninga eru folatollar og engir aukvisar á bak við þá skammta:
Klængur frá Skálakoti, Alsæll frá Eystra-Fróðholti, Sólon frá Skáney
og Atlas frá Hjallanesi. Allir velkomnir og húsið opnað kl. 19.30.
Söngpartý Brokkkórsins á morgun, laugardag
Samreið Hér er Brokkkórinn í útreiðartúr á góðum degi og þá er alltaf sungið.
Folatollar í verðlaun og allir
gleðjast og syngja saman
Kátur Maggi Kjartans er geðgóður.
Morgunblaðið/Ófeigur
Stóðhestur Alsæll er á bakvið einn folatollinn.
I
Ég hef lifað í 50 ár
ferðast 50 sinnum kringum sólina
sekúndur verða að dögum
vikum, mánuðum, árum og
áratugum
draumar og minningar
tíminn sem ég hef eytt
með foreldrum og ástvinum
II
Í dag syng ég um allt
sem mér er gefið
syng, meðan hjartað
þessi seigi vöðvi
ferðast
á sínum eigin hraða
þar til yfir lýkur
hvar sem ég kem
dvelur landið mitt
innra með mér
meðan jörðin
ferðast með mig
ár eftir ár kringum sólina
III
Regn dansar á þaki
mosabreiður
blóðberg, fjólur og fíflar
gróður sem bíður undir snjónum
ferðumst um heiminn
einn daginn
verðum við ekki fær um það
50 sinnum
kringum
sólina
BROT ÚR LJÓÐABÁLKINUM
Helstu kostir kerranna eru:
• 7 blaða blaðfjaðrir tryggja góða fjöðrun.
• Stórar legur í hjólnáum og 6,50 x 16“ dekk.
• Plast á fjaðraendum dregur úr hávaða.
• Hraðlæsing á afturhlera.
• Öryggislæsing á dráttarkúlu.
• Hluti framhlera opnanlegur sem auðveldar
upprekstur gripa á kerruna.
• Heilsoðinn botnplata við hliðar einfaldar þrif
og eykur styrk kerrana.
Kr.1.290.000
Einnig sturtukerrur,
flatvagnar og vélakerrur!
+
vs
k
Kr. 1.599.600 með vsk.
GRIPAKERRUR
Vandaðar breskar gripakerrur frá framleiðandanum Indespension.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Hlíðarsmára 6, 201 Kópavogi – S. 564 6464 – fasthof.is
að f m
viðskiptum
Elsa Alexandersdóttir
Aðstoðarmaður
fasteignasala
Evert Guðmundsson
Nemi til löggildingar
fasteignasala
Guðmundur Hoffmann
Steinþórsson
lögg. fasteignasali