Morgunblaðið - 28.04.2017, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú munt hugsanlega flytja eða skipta
um vinnu á næstu tveimur árum. Nú veistu
að heimurinn getur verið sanngjarn og átt
því gott með að sinna verkefnum þínum af
bjartsýni.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu til þín taka í dag. Aðrir gætu ver-
ið afbrýðisamir vegna velgengni þinnar, en
þú hefur ekki tíma til að fást um það. Haltu
þínu striki áfram.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það vekur aðdáun samstarfsmanna
þinna, hversu vel þú heldur á málum í erfiðri
aðstöðu. Lofaðu ekki upp í ermina á þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sýndu þínum nánustu hversu vænt
þér þykir um þá því í raun og veru eru þau
sannindi aldrei of oft sögð. Sannleikurinn er
sagna bestur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Lítill pirringur getur orðið að meirihátt-
ar vandamáli. Stattu því keik/ur þótt á móti
blási og farðu yfir stöðuna og þá muntu fyrr
en síðar standa uppi sem sigurvegari.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er komið að því að þú framkvæmir
það sem þú hefur lengi látið þig dreyma um.
Þú ferð nýstárlega leið að hlutunum og færð
rós í hnappagatið fyrir það.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú nýtur óvenjumikillar athygli og ættir
því að huga að því hvernig þú kemur fyrir. Þú
ert fyrirmynd, ekki gleyma því. Félagslífið
hefur aldrei verið fjörugra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Einhver verður á vegi þínum
sem mun hafa mikil áhrif á líf þitt. Þú nennir
ekki að hlusta á kjaftasögur, hefur annað við
tímann að gera.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þetta er góður dagur til að njóta
samvista við vini. Nýttu þér tilboð á vöru
sem þig hefur vantað lengi. Ekki er allt gull
sem glóir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú elskar spennu. Sýndu sam-
kennd sem þú getur svo byggt á frekari skref
til réttrar áttar. Festu alla lausa enda.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er allt í þessu fína milli þín og
makans. Framkvæmdu af glæsibrag í stað
þess að fylgja áætlunum eins og vélmenni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt umfram allt að stefna að því
að láta drauminn rætast, hversu fjarlægt
sem takmarkið virðist í upphafi. Búðu þig
undir hið óvænta, það er eina ráðið í stöð-
unni.
Kvæðið „Refur“ eftir Örn Arn-arson ýtti mjög við mér
strákhnokka, - einkum niðurlagið:
Því hann er meðbiðill manna
til matarins. Það er nóg.
Og svo er hann ekki ætur
sem út yfir tekur þó.
Við elskum allt, sem lifir,
ef okkur skilist gat,
að ef til vill gæti það orðið
á einhvern hátt að mat.
En það, sem ei verður etið,
aldrei lagavernd fær.
Svo langt kemst mannúð manna
sem matarvonin nær.
Jón Bergmann orti:
Andann lægt og manndóm myrt
mauranægtir geta:
Allt er rægt og einskis virt
sem ekki er hægt að éta.
Þessum vísum skaut upp í hug-
ann þegar ég las limruna „Ref-
urinn“ eftir Helga R. Einarsson,
þótt efni hennar komi úr allt ann-
arri átt!
Hæfur, en virtist van,
nú virðist í stuði ban,
því umbun hlaut
er öllum skaut
ref fyrir rass, Erdogan.
Stefán Ólafsson á Vallanesi orti:
Nú fékk Narfi tóu
nýtur í bogann hvíta,
fuglhröð föst á nöglum
féll og náði ei elli,
kengbeygð lá af kyngjum,
kjálkabrotinn skálkur,
dratthali daglangt hittist
dauður, er vann á sauðum.
Látra-Björg orti, - þannig í
„Skáldkonum fyrri alda“:
Slyngur er spói að semja söng,
syngur lóa heims um hring,
kringum flóa góms um göng
glingrar kjóa hljóðstilling.
Jón Þorsteinsson á Arnarvatni
lék sér að ríminu og breytti vísunni
þannig:
Slyng er tófa að grafa göng,
glingrar spói um mýrarhring.
Kringum mó við hrauna hröng
hringlar snjóugt beitilyng.
Vel fer á því að ljúka þessum
hugleiðingum með stöku eftir Guð-
mund á Sandi:
ýtur í sjóum harla hátt.
Hvítur er góu bróðir.
Hnýtir í tóu austan-átt,
ýtin snjóa-móðir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ýmist nefndur tóa,
refur eða dratthali
Í klípu
„HVAÐ HELD ÉG? ÉG HELD AÐ ÞETTA
LÁTI OKKUR LÍTA HALLÆRISLEGA ÚT,
ÞAÐ ER ÞAÐ SEM ÉG HELD.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG HATA AÐ GEFA ÞESSAR SPRAUTUR.
SJÁÐU BARA HVAÐ ÉG ER SKJÁLFHENTUR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar fjölskyldan er
leiðarljós þitt.
ULLARLAGÐIR ÞÚ
HUNDINN?
ÞÚ SEGIR
ÞETTA EINS
OG ÞAÐ SÉ
SLÆMT
MÉR
LÍÐUR
SVO
BLAH!
HVAÐ
GET ÉG
GERT?
FARÐU Í
VÍKING MEÐ
ÁHÖFN ÞÍNA!
ÞAÐ
VIRÐIST
ALLTAF
GLEÐJA
ÞIG!
HA! MÉR
LÍÐUR BETUR
NÚ ÞEGAR!
ÉG GET
ALDREI HALDIÐ
MÉR SAMAN!
Víkverji keypti sér farsíma á liðnusumri og tók eftir því að ekki
fylgdi snúra til þess að hlaða grip-
inn. Þegar hann spurði hvernig á því
stæði var svarið að þetta væri gert
til þess að halda kostnaðinum í lág-
marki. Allir ættu hleðslusnúrur og
óþarfi að bæta enn einni við.
x x x
Eftir nokkra daga var hleðslan bú-in og tími kominn til þess að
hlaða símann. Víkverji fór í skúff-
una, þar sem gamla snúran var, en
hún passaði ekki. Nóg var til af snúr-
unum en engin þeirra passaði. Hann
þurfti því að fá lánaða snúru og
þannig hefur það gengið síðan.
x x x
Það er auðvitað með ólíkindum aðþað skuli þurfa sérstaka snúru
fyrir þennan síma og aðra fyrir hinn.
Enn eina fyrir lesbrettið, sérstaka
fyrir tölvuna, myndavélina, rakvél-
ina og svo framvegis. Af hverju eru
þessar snúrur ekki staðlaðar? Hér
eru teknar upp allskonar reglugerð-
ir um stærðir banana, beygjur og
horn en ekki um hleðslutæki!
x x x
Annað sem Víkverji skilur ekki erumismunandi reglur um há-
marksstærð handfarangurs í flug-
vélum. Nú færist í vöxt að fólk inn-
riti ekki farangur heldur ferðist
aðeins með handfarangur, en þá
vandast málið, því það sem má hjá
einu félagi er bannað hjá öðru.
x x x
Hjá Icelandair má hafa 10 kg íhandfarangri og taskan má vera
55x40x20 cm. Hjá Wow má taskan
vera 12 kg og 56 x 45 x 25 cm með
handföngum og hjólum. Hjá Nor-
wegian má vera með litla handtösku
(25x33x20 cm) og aðra 55x40x23 cm.
Samanlögð þyngd má vera 10 kg.
Ryanair er með sama kerfi, en þar
má minni taskan vera 35x20x20 cm
og sú stærri 55x40x20 cm. Qatar
leyfir líka tvær töskur og þar má sú
stærri vera 50x37x25 cm og vega 7
kg. Delta (56x35x23 cm) og Easy Jet
56x45x25 cm með handföngum og
hjólum) eru ekki með þungataka-
markanir. Það eru samræmdar regl-
ur um smokkastærðir en ekki tösku-
stærðir! vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta. (Sálm. 23:1)
Hraðþrif
á meðan þú bíður
Hraðþrif opin virka daga frá 8-18,
um helgar frá 10-17. Engar tímapantanir.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Verð frá 4.300,-
(fólksbíll)
Bíllinn er þrifinn létt
að innan á u.þ.b.
10 mínútum.