Morgunblaðið - 02.05.2017, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017
Tillaga að matsáætlun fyrir allt að 10.000
tonna ársframleiðslu á laxi í sjókvíum
í Eskifirði og Reyðarfirði.
Einkahlutafélagið Laxar fiskeldi áformar að byggja upp öflugt áframeldi
á laxi í sjókvíum í Reyðarfirði, Eskifirði og Fáskrúðsfirði. Félagið rekur
seiðaeldisstöðar í Ölfusi og verða fyrstu seiði félagsins sett út í kvíar nú
í sumar. Með auknu eldismagni skapast meira hagræði í rekstri, betri
samkeppnisstaða og traustari grundvöllur fyrir starfsemina. Með tilkomu
laxeldis af þessari stærðargráðu munu stoðir atvinnulífs á austurlandi
styrkjast með hærra atvinnustigi og fjölbreyttari atvinnu.
Laxar fiskeldi ehf tilkynnti um fyrirhugaða framkvæmd í ágústmánuði árið
2016 á grundvelli 6. gr. laga 106/2000 svo og liðs 1.1. í 2. viðauka sömu
laga og reglugerðar 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum.
Í aprílmánuði 2017 óskaði félagið eftir því við Skipulagsstofnun að fram-
kvæmdin skyldi fara í mat á umhverfisáhrifum og var erindið samþykkt.
Af þeirri ástæðu auglýsa Laxar fiskeldi ehf. hér með tillögu að mats-
áætlun vegna allt að 10.000 tonna ársframleiðslu á laxi í sjókvíum í
Eskifirði og Reyðarfirði.
Í tillögu að matsáætlun er lýst helstu umhverfisþáttum á svæðinu. Farið er
yfir framleiðsluferli á 10.000 tonna eldi, eldisstofni, fóðurnotkun og losun
á næringarefnum. Þá er lýst hugsanlegum umhversáhrifum eldisins, þeim
rannsóknum sem þarf að gera og mótvægisaðgerðum.
Tillögu að matsáætlun má nálgast á heimasíðu félagsins: laxar.is á
tímabilinu frá 6. maí 2017 til 21. maí 2017. Opið er fyrir athugasemdir við
tillöguna á framangreindum tíma.
Laxar fiskeldi ehf.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Áhorfandi féll í yfirlið og þrír aðrir
þurftu á aðhlynningu að halda þeg-
ar KR og Grindavík kepptu um Ís-
landsmeistaratitilinn í körfubolta á
sunnudag. Áhorfendamet var sleg-
ið í höllinni en talið er að um 2.800
áhorfendur hafi verið á leiknum.
„Þegar svona mikill fjöldi kemur
saman og allir eru að hamast,
klappa og stappa þá auðvitað hitn-
ar í húsinu,“ segir Guðrún Krist-
mundsdóttir, formaður körfuknatt-
leiksdeildar KR. Hún staðfestir að
loftleysið og hitinn hafi verið
áhorfendum erfiður en illa gekk að
lofta út úr húsinu.
„Aldrei þessu vant var næstum
algjört logn í Vesturbænum meðan
á leiknum stóð. Við opnuðum húsið
í báða enda en fengum engan
gegnumtrekk. Þannig að það varð
mjög þungt loft.“
Áhorfendamet slegið í DHL
Að undanskildum hitanum í höll-
inni gekk afar vel að sjá um
fjöldann en Guðrún segir að aldrei
hafi verið fleiri í höllinni. „Þetta
var stærsti körfuboltaleikur, að
landsleikjum undanskildum, sem
hefur farið fram á Íslandi. Við tók-
um stöðuna á salnum rétt áður en
leikurinn byrjaði og það voru um
2.800 manns í húsinu.“
Hún bætir við að öryggisgæslan
á leiknum hafi gengið vel fyrir sig.
„Þetta gekk mjög vel. Ég fór yfir
þetta með öryggisgæslunni eftir
leikinn. Þeir voru mjög ánægðir.“
Hún nýtti jafnframt tækifærið og
þakkaði áhorfendum fyrir.
„Ég er ótrúlega þakklát öllum
þeim sem mættu á leikinn í gær,
bæði Grindvíkingum og KR-
ingum. Það höguðu sér allir rosa-
lega vel þannig að ég er ekkert
annað en bara stolt í dag,“ segir
Guðrún.
Setja þarf reglur um stórleiki
Hannes S. Jónsson, formaður
Körfuknattleikssambands Íslands
(KKÍ), var viðstaddur leikinn í
fyrradag og segir nauðsynlegt að
bæta umgjörð sambandsins fyrir
leiki af þessari stærðargráðu.
„Það fundu það allir að það var
mjög þungt loft þarna inni. Þetta
var auðvitað mikill fjöldi,“ segir
Hannes.
Hann segir að eðlilegt sé að
reyna að koma sem flestum í hús
enda sé það krafa frá áhorfendum
að fá að sjá leikinn. Hann segir
jafnframt að KKÍ sé að íhuga að
aðlaga reglur Alþjóðlega körfu-
knattleikssambandsins (FIBA) að
leikjum í úrslitakeppninni hér-
lendis. „Það þarf meiri reglur um
framkvæmd, sérstaklega varðandi
úrslitakeppnina. Við erum með
reglur frá FIBA vegna landsleikj-
anna og það er ekkert óeðlilegt að
við höfum svipað fyrirkomulag á
úrslitakeppninni,“ segir Hannes.
Hitinn í DHL-höllinni bar
nokkra áhorfendur ofurliði
Einn áhorfandi féll í yfirlið og þrír þurftu aðhlynningu
Áhorfendamet slegið en um 2.800 manns voru í höllinni
Morgunblaðið/Ómar
Hiti Gríðarlega heitt var í áhorfendastúkunni í fyrradag þegar KR og Grindavík léku um Íslandsmeistaratitilinn.
Hannes S.
Jónsson
Guðrún
Kristmundsdóttir
Baldur Arnarson
Magnús Heimir Jónasson
Á fundi Sósíalistaflokks Íslands í gær
kom fram við stofnsamþykkt hans að
slíkt væri í raun breyting á stofnsam-
þykkt þar sem flokkurinn hefði verið
stofnaður áður en til fundar kom.
„Þetta er svolítið skrýtið, af því að ég
þurfti náttúrlega að stofna flokkinn til
þess að eiga nafnið svo að einhver
Heimdellingur myndi ekki skrá Sósí-
alistaflokk Íslands,“ sagði Gunnar
Smári Egilsson, blaðamaður og einn
stofnenda flokksins, á fundinum.
Hann sagði jafnframt að stofnaður
hefði verið flokkur með einföldustu
stofnsamþykkt sem möguleiki var á í
slíku félagi en samþykkt var að tveir
myndu sitja í stjórn fram til dagsins í
gær. „Í stofnsamþykktum var sam-
þykkt að það væru bara tveir í stjórn
þangað til fyrsta maí og þessi fundur
yrði haldinn og þá yrðu kannski fimm
og einhverjir til vara en það bara at-
vikaðist að það voru eiginlega níu sem
völdust í þetta og þess vegna erum við
að leggja til þessa breytingu,“ sagði
Gunnar Smári.
Vill ýta undir stéttastríð
Í samtali við Morgunblaðið segir
Gunnar Smári að Sósíalistaflokkur
Íslands muni beita sér fyrir því að
auka stéttarvitund Íslendinga og ýta
undir stéttastríð. „Við munum byrja á
að beita okkur fyrir því að efla
stéttarvitund hjá fólki og ýta undir
stéttastríð. Þannig að almenningur
beiti öllum þeim ráðum sem tiltæk
eru til að auka völd sín,“ segir Gunnar
Smári. „Fyrstu 6 mánuðirnir verða
notaðir til að hefja starf meðal þeirra
hópa sem óréttlátt þjóðskipulag hefur
keyrt harðast niður. Fátækt fólk, ör-
yrkjar, leigjendur, ómenntað lág-
launafólk og annað láglaunafólk, inn-
flytjendur og fólk sem er leigt hér á
milli atvinnurekenda til að brjóta nið-
ur launakjör almennings. Við munum
hefja starf milli þessara hópa.“
Útilokar ekki byltingu
Gunnar Smári segir sig ekki vera
rúinn trausti launamanna, spurður
um deilur blaðamanna við fyrirtæki
hans, útgáfufélag Fréttatímans,
vegna vangoldinna launa. „Ég veit
ekki hverjar deilurnar eru, en fyrir-
tækið fór á hausinn. Þegar fyrirtæki
fer á hausinn þá eignast launamenn-
irnir allt í búinu. Það er hins vegar
þannig að við slíkt getur orðið töf á
greiðslum og því miður varð það
þannig.“
Hann segir að Sósíalistaflokkur Ís-
lands sé með róttækari sósíalíska
stefnu en aðrir vinstri flokkar hér-
lendis og sakar aðra vinstri sinnaða
flokka um að vera í stöðugu samtali
við auðvaldið. Hann segir aflið vera
hjá almenningi og hann þurfi að taka
vald sitt aftur frá auðmönnum. Spurð-
ur um hvort slíkt feli í sér byltingu
útilokar hann ekki slíkt. „Það er farið
að bylta ýmsu í samfélaginu. Það
gengur ekki að hinir auðugu fái allt
sitt með einhverri trúarsetningu um
það að einhvern tímann muni auður
þeirra leka niður til hinna.“ Spurður
um hvort breyta þurfi eignarréttar-
ákvæðum gildandi laga svo frekari
dreifing auðs verði möguleg, segir
Gunnar að almenningur þurfi að
byrja á að taka sínar eignir fyrst, eins
og kvótann. „Almenningur á kvótann,
sem meta má á þúsund milljarða en
stjórnvöld leigja út á 4 milljarða.“
Stofnaði flokk-
inn fyrir fundinn
Vildi koma í veg fyrir grín Heimdellinga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fundur Á annað hundrað manns mætti á stofnfund Sósíalistaflokksins.
Ekki hefur verið
skipað í þing-
mannanefnd til
að vinna að end-
urskoðun stjórn-
arskrárinnar,
eins og boðað er í
samtarfsyfirlýs-
ingu ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks,
Viðreisnar og
Bjartrar fram-
tíðar. Fram kemur í yfirlýsingunni
að ríkisstjórnin muni bjóða öllum
þingflokkum að skipa fulltrúa í
nefnd þingmanna sem muni starfa
með færustu sérfræðingum á sviði
stjórnskipunar að sem bestri sátt
um tillögur um breytingar sem verði
lagðar fram eigi síðar en árið 2019.
Stjórnarskrárnefnd sem starfaði
undir forystu Páls Þórhallssonar,
skrifstofustjóra í forsætisráðuneyt-
inu, skilaði af sér tillögum um af-
markaðar breytingar á síðasta ári.
Sigurður Ingi Jóhannsson, þáver-
andi forsætisráðherra, lagði fram
frumvarp um breytingar, byggt á
niðurstöðu nefndarinnar, en það
varð ekki útrætt á þingi. Nú er liðinn
sá tími sem Alþingi hefur til að
breyta stjórnarskrá samkvæmt sér-
stökum ákvæðum.
Kosningalöggjöf yfirfarin
Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar er sérstaklega tekið fram að
hugað verði að breytingum á kjör-
dæmaskipan og kosningalöggjöf
yfirfarin í þeim tilgangi að einfalda
hana og jafna betur atkvæðavægi.
helgi@mbl.is
Ný endurskoðun
enn ekki hafin
Ríkisstjórnin hefur ekki skipað
þingmenn í nýja stjórnarskrárnefnd
Bjarni
Benediktsson
Svala Björgvinsdóttir, keppandi Ís-
lands í Eurovision í ár, steig á svið í
Kænugarði í gær á sinni fyrstu æf-
ingu fyrir keppnina sem fram fer 9.
maí næstkomandi.
Í viðtali við Eurovision.tv í gær,
áður en kom að æfingunni, sagðist
hún vilja fara á sviðið til að fá til-
finningu fyrir því. „Það er alltaf
gott að fara á sviðið og finna hversu
stórt það er og bara að fá tilfinn-
inguna. Ég hlakka bara til að
standa þar og taka það allt inn.“
Á æfingunni klæddist Svala hvít-
um vængjum sem hún sagði tákna
styrk og óttaleysi. Viftur á sviðinu
bærðu svo vængi söngkonunnar
meðan á æfingunni stóð.
Morgunblaðið/Eggert
Spenna Undankeppnin fer fram 9. og 11.
maí en Svala keppir fyrrnefnda kvöldið.
Fyrstu æfingunni
lokið í Kænugarði