Morgunblaðið - 02.05.2017, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
Alþjóðlegur baráttudagur verka-
lýðsins var haldinn hátíðlegur í
fleiri en 30 sveitarfélögum á land-
inu í gær. Veðráttan var þó misjöfn
eftir landshlutum. Í Reykjavík var
skýjað og úrkoma framan af degi
meðan Akureyringar gengu í sól
og blíðu.
Hátíðarhöldin í Reykjavík hóf-
ust um eittleytið á Hlemmi þar sem
þúsundir manna söfnuðust saman
og var síðan gengið undir lúðraþyt
á Ingólfstorg. Þar var útifundurinn
settur og tók til máls Lilja Sæ-
mundsdóttir, formaður Félags hár-
snyrtisveina. Hún sagði að þrátt
fyrir frið á vinnumarkaði kraum-
aði undirliggjandi ólga. Launa-
menn væru þreyttir á að heyra að
launahækkanir ógnuðu stöðugleika
þegar þingmenn tækju sér stærri
skerf en aðrir. Stóru stéttarfélögin
í Reykjavík buðu öll í vegleg kaffi-
samsæti víðsvegar um borgina eft-
ir að útifundum í miðborginni lauk.
Á Akureyri safnaðist fólk sam-
an við Alþýðuhúsið og gekk fylktu
liði að menningarhúsinu Hofi. Að-
alræðu dagsins flutti Aðalheiður
Steingrímsdóttir, varaformaður
Kennarasambands Íslands, og eftir
ræðuhöld steig Eyþór Ingi Gunn-
laugsson á svið og skemmti.
Ójafn leikur
Vilhjálmur Birgisson, formað-
ur Verkalýðsfélags Akraness, tók
til máls að lokinni kröfugöngunni á
Akranesi. Hann sagði þjóðar-
skömm að launataxtar á íslenskum
vinnumarkaði dygðu ekki fyrir
lágmarksframfærslu, það væri lýð-
heilsumál að launin dygðu. Sagði
Vilhjálmur leikinn á milli atvinnu-
rekenda og launamanna vera
ójafnan þegar upp komi ágrein-
ingur um kaup og kjör. „Því er
gríðarlega mikilvægt að launafólk
sé aðilar að öflugum stéttar-
félögum sem hafa kjark og þor til
að standa uppi í hárinu á sterkum
atvinnurekendum sem oft á tíðum
hafa lífsviðurværi heilu byggðar-
laganna í hendi sér.“
Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ, óskaði launafólki um allt land
til hamingju með baráttudag
verkafólks í ávarpi sem hann sendi
frá sér. Hann gerði húsnæðis-
málum sérstök skil. „Við viljum
byggja upp réttlátt samfélag þar
sem gott og öruggt húsnæði þykir
sjálfsögð mannréttindi – ekki for-
réttindi,“ sagði Gylfi í ávarpinu.
Alþjóðasamband verkalýðsfélaga
sendi frá sér tilkynningu í tilefni
dagsins og voru skilaboðin skýr.
„Hið hagræna samhengi er úr lagi
gengið, fjöldinn þarf að taka hönd-
um saman, búa til nýjar reglur fyr-
ir sig en ekki fyrir hina fáu,“ segir
meðal annars í tilkynningunni frá
alþjóðasambandinu. Árið 1923 var
fyrst gengin kröfuganga 1. maí á
Íslandi en dagurinn varð lögskip-
aður frídagur hérlendis árið 1972.
Mikill fjöldi hélt upp á 1. maí í gær
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skúrir Þúsundir á höfuðborgarsvæðinu létu veðrið ekki stöðva sig í því að sýna samtakamátt og setja fram kröfur um bætt kjör. Maístjarnan og Nallinn voru sungin að loknum ræðuhöldum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skilti Í blíðunni á Akureyri mátti sjá ýmiss konar skilti með skilaboðum sem göngufólk vildi koma á framfæri.
Barátta í skini
og skúrum
Fyrsti maí haldinn hátíðlegur um
allt land Veðurskilyrðin misgóð
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
tfh@mbl.is
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, segist hafa farið fram á það við
ASÍ að hann fengi að halda ræðu á
útifundi sambandsins á Ingólfstorgi
en ekki haft erindi sem erfiði. Þess í
stað hélt Ragnar Þór ræðu á öðrum
kröfufundi sem haldinn var á Aust-
urvelli af þeim sem eru ósáttir við
núverandi verkalýðsforystu. Stjórn
VR fylgdi honum ekki þangað.
Í stöðufærslu á samfélagsmiðlum
segist Ragnar hafa farið fram á að
flytja ræðu á Ingólfstorgi en hafði
ekki erindi sem erfiði. Ingibjörg Ósk
Birgisdóttir,
varaforseti ASÍ
og stjórnar-
maður í VR, segir
að búið hafi verið
að ákveða fyrir-
fram að kona
héldi ræðuna.
„Þetta kom til
tals á stjórnar-
fundi. Hann segir
að hann geti
haldið ræðuna en ég segi að það sé
ekki hægt, það sé búið að ákveða að
kona haldi hana. Það kom aldrei
nein beiðni af hans hálfu,“ segir
Ingibjörg í samtali við Morgun-
blaðið. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins fór Ragnar einn á Aust-
urvöll en stjórn VR varð eftir á
Ingólfstorgi. Hann fór síðan aftur á
Ingólfstorg eftir að hafa lokið ræðu
sinni.
Möntrur ráðamanna
Ragnar Þór sagði í ræðu sinni að
enn ein góðærisaldan virtist ríða yf-
ir landið. „Möntrur eins og að við
höfum aldrei haft það eins gott,
aldrei verið settir meiri peningar í
grunnþjónustuna, kaupmáttur
launa sé fordæmalaus eru viðhafðar
af ráðamönnum við hvert tækifæri,“
sagði Ragnar á Austurvelli.
Stjórnin fylgdi ekki for-
manninum á Austurvöll
Formaður VR fékk ekki að halda ræðu á útifundi ASÍ
Ingibjörg Ósk
Birgisdóttir