Morgunblaðið - 02.05.2017, Page 8

Morgunblaðið - 02.05.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017 Veit á vandaða lausn Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Fastus er aðalstyrktaraðili Bocuse d’Or Ísland KOLA GRIL L TILBÚ IÐ Á 3 MÍNÚ TUM • Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun • Tilbúið til matreiðslu á 3-4 mínútum • Afkastamikið og öflugt • Mjög góð hitastýring á kolum • Ytra byrði hitnar ekki • Færanlegt á meðan það er í notkun • Auðvelt að þrífa • Má fara í uppþvottavél • Taska fylgir • Úrval aukahluta • TILVALIÐ Í ÚTILEGUNA STÓRSNIÐUGT GRILL SEM SLEGIÐ HEFUR Í GEGN! Lotusgrill m/ tösku verð frá 24.500,- m.vsk. Fyrir nokkru stofnaði GunnarSmári Egilsson Sósíalistaflokk Íslands og hefur það fengið marga til að brosa út í annað. Í gær var svo haldinn stofnfundur þessa þegar stofnaða flokks, sem er eftir öðru og mjög viðeigandi.    Á þessum „stofn-fundi“ lagði flokkseigandinn lín- urnar og var það ekki síður viðeig- andi.    Ef marka máskrif og umræður starfs- manna flokkseigandans á Frétta- tímanum, launamanna sem ekki hafa fengið laun sín greidd, er ekki við stuðningi að búast úr þeirri átt- inni við þennan nýjasta og óvænt- asta talsmann launþega og flokk hans.    Og vinstri vængur stjórnmál-anna tekur framtakinu ekki heldur fagnandi, sem ekki var von.    Þessi margklofni vængur sem átthefur undir högg að sækja hér á landi og víðar þurfti ekki á nýjum klofningi að halda.    Hann þurfti miklu frekar á betrijarðtengingu að halda, betra sambandi við hinn almenna mann. Íslenskir vinstri menn hafa talað sig út í horn með sérvisku og for- dómum.    En „stofnfundur“ einkaflokksmun ekki hjálpa við að bjarga málum á vinstri væng íslenskra stjórnmála.    Björgunaraðgerðirnar krefjasthugmyndafræðilegrar endur- skoðunar, ekki afturhvarfs til rang- hugmynda í því skyni að bjarga einkahagsmunum eigandans. Gunnar Smári Egilsson Flokkseigandi STAKSTEINAR Veður víða um heim 1.5., kl. 18.00 Reykjavík 8 rigning Bolungarvík 12 skýjað Akureyri 11 skýjað Nuuk 1 skýjað Þórshöfn 9 heiðskírt Ósló 11 heiðskírt Kaupmannahöfn 10 heiðskírt Stokkhólmur 15 heiðskírt Helsinki 12 heiðskírt Lúxemborg 11 skýjað Brussel 13 léttskýjað Dublin 14 léttskýjað Glasgow 12 heiðskírt London 12 skúrir París 14 heiðskírt Amsterdam 12 súld Hamborg 15 heiðskírt Berlín 15 heiðskírt Vín 17 skýjað Moskva 22 heiðskírt Algarve 19 heiðskírt Madríd 17 heiðskírt Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 19 léttskýjað Róm 18 léttskýjað Aþena 23 léttskýjað Winnipeg 12 skýjað Montreal 7 rigning New York 13 þoka Chicago 13 skýjað Orlando 30 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 2. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:55 21:55 ÍSAFJÖRÐUR 4:43 22:17 SIGLUFJÖRÐUR 4:26 22:00 DJÚPIVOGUR 4:21 21:29 Erlendir gestir á veitingastaðnum Þrír frakkar hjá Úlfari sýna áhuga á rauðmaganum sem þar er á boðstól- um. Úlfar Eysteinsson veitingamað- ur segist flaka rauðmagann, snyrta og sjóða hveljuna og hafa með soðna lifur og svil. Þeir sem vilji geti einnig haft með smjör og edik. Langt er liðið á veiðitímabil hrognkelsa, aðeins eftir um tíu dag- ar. Úlfar segist hafa rauðmagann á boðstólum út veiðitímabilið. Rauð- maginn er smærri en grásleppan og er leyft að hefja veiðar á honum fyrr, þannig að hann er á matseðlinum í lengri tíma. Úlfar segir þó að vertíð- in hafi verið léleg og erfitt að fá rauð- maga á fiskmörkuðum. Tveir amerískir gestir pöntuðu rauðmaga á Þremur frökkum á dög- unum og báðu um að fá að sitja við borðið sem Bobby Fischer sat við þegar hann sótti staðinn. Rauðmag- ann fengu þeir en borðið var ekki laust. Mennirnir færðu sig síðan á borð Fischers þegar það losnaði. Á fimmtudagskvöldið er árlegur aðalfundur Grásleppufélags Íslands á Þremur frökkum. Eini tilgangur félagsins er að borða hrognkelsi. Auk rauðmagans er boðið upp á signa og salta grásleppu og fleira sjávarfang. Sjávarútvegsráðherra er ávallt boðið á fundinn. Gestir sýna rauðmaganum áhuga  Aðalfundur Grásleppufélags Íslands haldinn á Þremur frökkum í vikunni Morgunblaðið/Þorkell Hrognkelsi Rauðmagi er mun betri matfiskur en grásleppan. Þrír ein- staklingar hlutu styrk úr minn- ingarsjóði Eð- varðs Sigurðs- sonar í gær. Ragnheiður Pálsdóttir fékk styrk að fjárhæð 750.000 kr vegna verkefnisins Ritun sögu Listasafns ASÍ í bókina Saga listasafna á Ís- landi. Um er að ræða rannsókn og skrásetningu á sögu Listasafns ASÍ. Anna Sigurjónsdóttir fékk styrk að fjárhæð 250.000 kr. vegna gagna- öflunar í tengslum við rannsókn- arverkefnið Hagsmunir ungs fólks, þekking á réttindum sínum og verkalýðshreyfingunni. Vilhelm Vilhelmsson fékk einnig styrk að fjárhæð 500.000 kr. vegna útgáfu bókarinnar Sjálfstætt fólk: Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld, sem byggir á doktorsritgerð hans. Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar var stofnaður árið 1983 til minningar um Eðvarð Sig- urðsson, formann Verkamanna- félagsins Dagsbrúnar. Sjóðurinn er í umsjá Alþýðusambands Íslands. mhj@mbl.is ASÍ veitir þrjá styrki  Úthlutað úr minn- ingarsjóði Eðvarðs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.