Morgunblaðið - 02.05.2017, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380
Er allt á
HREINU
fyrir...
Fatahreinsun
Dúkaþvottur
Dúkaleiga
Heimilisþvottur
Fjölmiðlasamsteypa Ruperts Mur-
doch, 21st Century Fox, á í viðræð-
um við fjárfestingarisann Black-
stone Group um að félögin taki
höndum saman um að gera tilboð í
Tribune Media sem m.a. á og rekur
28 sjónvarpsstöðvar í Bandaríkjun-
um.
Financial Times greindi frá þessu
og segir að fyrir Fox vaki bæði að
bæta nýjum sjónvarpsstöðvum við
safn sitt og einnig að forða því að
keppinauturinn Sinclair Broadcast
Group eignist reksturinn. Sinclair er
stærsta sjónvarpsfyrirtæki Banda-
ríkjanna og á í dag vel á annað
hundrað stöðvar. Tekið verður við
tilboðum til vikuloka en að sögn FT
er markaðsvirði Tribune í dag um 3,2
milljarðar dala.
Áhuginn á Tribune Media stafar
m.a. af því að Bandaríska fjarskipta-
stofnunin (FCC) slakaði á eldri
reglum sem kváðu á um að sjón-
varpsstöðvar í eigu sama fyrirtæk-
isins mættu ekki ná til meira en 40%
íbúa landsins. Með breytingunni
skapaðist möguleiki á sameiningu
stærstu fyrirtækjanna á bandarísk-
um sjónvarpsmarkaði og er þess
vænst að FCC muni halda áfram að
draga úr skorðum á eignarhaldi og
samruna fjölmiðla. ai@mbl.is
AFP
Slagur Rupert Murdoch hefur stýrt
21st Century Fox frá stofnun.
Fox og Blackstone
skoða kaup á Tribune
Stjórnvöldum Púertó Ríkó hefur
gengið hægt að leysa úr skulda-
vanda eyríkisins og hafa horfurnar
versnað nú þegar handhafar rík-
isskuldabréfa hafa hafnað skuld-
breytingartilboði ríkisstjórans Ric-
ardo Roselló. Stjórnvöld buðu
handhöfum að halda allt að 77% af
virði almennra ríkisskuldabréfa og
58% af virði skuldabréfa sem
tryggð eru með tekjum ríkisins af
söluskatti. Frestur til að samþykkja
tilboðið rann út 1. maí. Skömmu áð-
ur hafði Bandaríkjaþing samþykkt
fjárveitingu upp á 1.100 milljarða
dala sem ætti að duga til að fjár-
magna starfsemi hins opinbera á
eyjunni fram í september, þar með
talið rekstur Medicaid-kerfisins
sem sjúkratryggir tekjulágar fjöl-
skyldur.
Skuldir Púertó Ríkó nema um 69
milljörðum dala og eru íbúarnir 3,4
milljónir talsins. Í kringum 46%
eyjarskeggja lifa undir fátæktar-
mörkum og er atvinnuleysi nálægt
10%.
Fyrir ári síðan var Púertó Ríkó
veitt sérstök vernd gegn kröfuhöf-
um og rann hún út á mánudags-
kvöld. Að sögn FT er þess vænst að
strax á þriðjudag muni kröfuhafar
höfða mál á hendur stjórnvöldum
og mál sem þegar voru komin fyrir
dómstóla í San Juan og New York
verði tekin upp að nýju. ai@mbl.is
AFP
Gremja Puertó Ríkó-búar mótmæla í New York í gær. Óvissa er um framtíð þessa skuldsetta eyríkis.
Hafna tilboði Púertó Ríkó
Búist við að handhafar ríkisskuldabréfa höfði mál strax í dag
Stjórnvöld vildu að kröfuhafar tækju á sig 23-42% lækkun
Hlutabréfaverð Amazon hækkaði
töluvert í síðustu viku og voru auðæfi
Jeff Bezos, stofnanda netverslunar-
risans, á tímabili metin á 80 milljarða
dala. Vantar nú aðeins um sjö millj-
arða dala upp á að Bezos verði jafn-
ríkur og Bill Gates en samkvæmt
milljarðamæringalista Bloomberg á
Gates eignir fyrir rösklega 87,2
milljarða dala. Hefur Gates verið í
efsta sæti listans frá því í maí 2013.
Spænski tískukóngurinn Amancio
Ortega, sem á og rekur Inditex, er í
þriðja sætinu en hann hefur aðeins
nokkur hundruð milljóna dala for-
skot á Bezos. Warren Buffett situr í
fjórða sæti listans en hlutabréfaverð
Berkshire Hathaway hefur hækkað
hægt á árinu og ekki náð að halda í
við fyrirtæki auðjöfranna í þremur
efstu sætunum.
Sala umfram væntingar
Hækkun hlutabréfa Amazon skýr-
ist af því að fyrirtækið greindi frá því
að salan á þessum fjórðungi gengi
betur en spáð hafði verið. Bendir
MarketWatch á að árið hafi verið
fjarska gott fyrir Bezos og er hann
um 14,2 milljörðum dala ríkari í dag
en hann var í byrjun árs.
Mark Zuckerberg vermir fimmta
sæti listans og hafa auðæfi hans auk-
ist um 14,6 milljarða dala frá áramót-
um. Aðeins einn milljarðamæringur
á lista Bloomberg hefur hagnast
meira á árinu, en það er Kínverjinn
Wang Wei. Hann er eigandi hrað-
sendifyrirtækisins S.F. Holding og
er 14,9 milljörðum dala ríkari í dag
en hann var 1. janúar. ai@mbl.is
Stutt í að Bezos
verði ríkastur
Jeff Bezos
Mark Zuckerberg
Warren Buffett
Stofnandi Amazon hefur efnast vel
Bill Gates
Sjóðir, sem bandaríska sjóðastýr-
ingarfyrirtækið Wellington Ma-
nagement Group LLP hefur í
rekstri sínum, ráða 5,26% hlut í N1.
Þetta kemur fram í flöggun sem
send var á Kauphöll Íslands seint í
gærkvöldi í tengslum við að Well-
ington fór yfir 5% mörk í félaginu. Í
tilkynningu sem fylgdi flögguninni
kemur fram að fyrirtækið hafi farið
yfir mörkin á föstudaginn síðasta,
28. apríl.
Samkvæmt nýjasta lista yfir
stærstu hlutahafa N1, sem finna má
á heimasíðu félagsins, kemur fram
að The Wellington Trust Company
ráði 2,71% hlut í félaginu en listinn
var síðast uppfærður 27. apríl síð-
astliðinn.
Sé mið tekið af gengi bréfa N1 í
lok dags á föstudag er hlutur sjóð-
anna hjá Wellington metinn á ríf-
lega 1,5 milljarða króna.
Wellington Manage-
ment með yfir 5% í N1
Morgunblaðið/Þórður
Kaup Erlendir fjárfestar hafa aukið
umsvif sín á markaði að undanförnu.