Morgunblaðið - 02.05.2017, Síða 17

Morgunblaðið - 02.05.2017, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017 Sími 788 2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is Allt fyrir ferðaþjónustuna Við tökum vel á móti þér Við bjóðum heildarlausnir fyrir hótel, gistiheimili, dvalarheimili, veitingahús, veisluþjónustur. Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Frönsku forsetaframbjóðendurnir Emmanuel Macron og Marine Le Pen skiptust á hörðum skotum á há- tíðisdegi verkalýðsins í París í gær. Le Pen sakaði keppinaut sinn um að vera öfgafullan Evrópusinna, fram- bjóðanda áframhaldandi stjórnar- stefnu ríkisstjórnar Francois Hol- lande og strengjabrúðu fjármála- kerfisins. Samkvæmt skoðana- könnunum áforma um 20% fleiri að kjósa Macron komandi sunnudag en Le Pen. Le Pen hefur verið mjög gagnrýn- in á Evrópusambandið (ESB) í kosn- ingabaráttunni og þykir Macron hafa gert tilraun til þess að grafa undan því baráttumáli hennar með ákalli um breytingar á ESB. Í sam- tali við fréttamann BBC í París í gær sagði hann, að sambandið yrði að taka breytingum ellegar þyrfti það að horfast í augu við brottför Frakka, „Frexit“, úr sambandinu. Boðar „djúpstæðar umbætur“ Í skeytum sínum til keppinautar- ins hét Macron því að „berjast til síð- asta blóðdropa“ gegn hugmyndum Le Pen. Stefna hennar í veigamestu málaflokkum yrði einungis til að veikja Frakkland, sagði hann. Með úrsögn úr ESB og evrusamstarfinu myndi hún kippa fótunum undan samfélaginu. Macron sagði ESB vera franskri þjóð afar mikilvægt og sigraði Le Pen í kjörinu færi Frexit í gang dag- inn eftir. „Við verðum þó að horfast í augu við ástandið og hlusta á fólkið. Heyra þá staðreynd að það er af- skaplega gramt í dag, óþolinmótt. Vanvirkni ESB verður ekki viðhald- ið lengur. Ég lít á það sem umboð mitt, daginn eftir kosningarnar, að hefja djúpstæðar umbætur á sam- bandinu og stefnu þess,“ sagði Mac- ron. Sagði hann að það yrðu svik við kjósendur leyfði hann ESB að halda óbreyttu áfram. Le Pen hefur hagn- ast á auknum fjandskap almennings í garð ESB og heitið þjóðaratkvæði um veruna í sambandinu. Sá stuðn- ingur er einkum kominn frá dreifbýli og iðnaðarsvæðum sem orðið hafa undir af völdum hnattvæðingarinn- ar. Loforð um að loka landamærum Frakklands og snarfækka innflytj- endum hefur átt hljómgrunn þar. Lögreglumenn brenndust Fjórir lögreglumenn brenndust alvarlega er til átaka kom milli lög- reglu og grímuklæddra vinstri öfga- manna sem hentu bensínsprengjum að lögreglusveitum í París í gær. Svaraði lögreglan með táragasi. Átökin áttu sér stað nærri Bastillu- torgi, skammt frá aðalgöngu þriggja stéttarfélaga. „Það er svona óreiða sem ég vil ekki lengur sjá á götum okkar,“ sagði Le Pen um ofbeldið. Þótt fimm stærstu stéttarfélög landsins hafi hvatt skjólstæðinga sína til að kjósa ekki Le Pen á sunnu- dag hafa einungis tvö þeirra lýst stuðningi við Macron. Hin þrjú segj- ast ekki geta það vegna frjálslyndis- stefnu hans í atvinnumálum. Macron sagði, að þrátt fyrir áskoranir verka- lýðssinna myndi hann ekki víkja frá stefnu sinni í efnahags- og atvinnu- málum. „Kjósendur hafa í fyrri um- ferðinni lýst stuðningi við hana og ég ætla ekki að svíkja þá með því að víkja af stefnunni. Frakkland þarfn- ast mikilla endurbóta.“ Rúm 60% styðja Macron Verði Marine Le Pen kosin forseti sunnudaginn 7. maí munu Frakkar að öllum líkindum borga fyrir brauð- ið fræga, bagettuna, með nýjum franka í stað evru, sagði varaformað- ur Þjóðfylkingarinnar, Florian Phil- ippot, við útvarpsstöðina France Int- er í París í gær. Um helgina voru birtar tvær skoð- anakannanir sem benda báðar til sigurs Emmanuels Macron í kosn- ingunum. Áformuðu 61% aðspurðra að kjósa hann en 39% Le Pen. Yrði það mikil breyting frá 2002 er faðir hennar Jean-Marie Le Pen komst í seinni umferðina gegn Jacques Chirac. Hlaut hann innan við 20% at- kvæða. Krefst umbóta á ESB  Macron spáir „Frexit“ breytist Evrópusambandið ekki  Lögreglumenn slas- ast í átökum í París  Macron enn með meiri stuðning en Le Pen í könnunum AFP Vilja hvorugt þeirra Algeng sjón á mótmælafundum í Frakklandi og boð- skapurinn á borðanum endurspeglar viðhorf stórs hluta þjóðarinnar fyrir kosningarnar. „Hvorki Le Pen né Macron,“ segir á borða námsmannanna. Að minnsta kosti 27 farþegar í flugi rússneska flugfélagsins Aeroflot frá Moskvu til Bangkok í Taílandi slösuðust er þotan flaug inn í afar mikla ókyrrð í heiðskíru lofti. Atvikið átti sér stað um 40 mín- útum fyrir lendingu Boeing 777- þotunnar í Bangkok. Af hinum slös- uðu voru 24 Rússar og Taílend- ingar þrír. Fimmtán manns voru fluttir á sjúkrahús og þurftu a.m.k. þrír að gangast undir skurðaðgerð vegna beinbrota. Alls voru 313 manns í þotunni. AEROFLOT-ÞOTA Í VANDA Tugir slösuðust í mikilli ókyrrð AFP Ókyrrð Flugmenn Aeroflot-þotunnar gátu ekki varað farþega við ókyrrðinni. Samningamenn repúblikana og demókrata á Bandaríkjaþingi náðu í gær samkomulagi um ríkisútgjöld sem tryggja eiga að ríkiskerfið starfi óhindrað a.m.k. til 30. sept- ember nk. Í frumvarpi sem verður tekið til afgreiðslu í vikunni eru út- gjöld til varnarmála aukin veru- lega. Hins vegar er engum fjár- munum varið til að borga fyrirhugaðan múr sem Donald Trump forseti hyggst reisa með- fram landamærunum við Mexíkó. SÁTT UM ÚTGJÖLDIN Lokun bandaríska kerfisins afstýrt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.