Morgunblaðið - 02.05.2017, Page 21

Morgunblaðið - 02.05.2017, Page 21
✝ Júlíus ÓskarÁsgeirsson fæddist á Eskifirði 7. júní 1954. Hann lést á sjúkradeild á Hrafnistu í Hafn- arfirði 14. apríl 2017 eftir löng og erfið veikindi. Foreldrar Júl- íusar Óskars voru merkishjónin Hjör- dís Helgadóttir, sauma- og listakona, og Ásgeir Júlíusson, sýslufulltrúi Sunn- mýlinga á Eskifirði. Systir Júl- íusar er Kristbjörg Þuríður bú- skóla Íslands. Að loknu námi tók hann við starfi verkstjóra hjá Sambandi ísl. samvinnu- félaga í Holtagörðum og sinnti því starfi í 16 ár þar til Sam- bandið hætti rekstri. Eftir það vann hann sem öryggisvörður hjá Securitas í önnur 16 ár, eða þar til veikindi hans gerðu honum ókleift að vinna. Júlíus var alla ævi mikill náttúruunn- andi og elskaði sitt land með sínu fjölbreytilega líferni plantna, steina, fugla, fiska og allskonar gróðurs frá hæstu fjalltoppum til sjávarbotns. Heimsborgari í þeim efnum. Stundaði veiðar og var einkar flink skytta á fuglum til lands og sjávar. Júlíus Óskar verður jarð- sunginn frá Hafnarfjarð- arkirkju í dag, 2. maí 2017, klukkan 15. sett í Maine í Bandaríkjunum. Synir hennar eru Ásgeir Júlíus, Ólaf- ur Sigurður og David Eli, sem allir eru búsettir í Bandaríkjunum. Júlíus stundaði nám í barna- og unglingaskóla Eskifjarðar og fermdist frá Eski- fjarðarkirkju 2. júní 1968. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Flensborg í Hafnarfirði og út- skrifaðist síðar frá Fiskvinnslu- Sértakar tilfinningar bærð- ust með mér þegar ég frétti af fráfalli Júlíusar vinar míns. Annars vegar dapurt að hann væri farinn svo ungur að árum en hins vegar léttir að þessari áralöngu, erfiðu og síðastliðin ár vonlausu lífsbaráttu sé loks- ins lokið. Það var við hæfi að Júlíus segði skilið við þetta jarðneska líf á föstudaginn langa. Það var fyrir rúmum 30 ár- um sem Júlíus fór að bjóða mér með sér til rjúpna. Hann átti þá jeppa en ég bara fólksbíl. Árum saman gengum við saman til rjúpna, mest hér á suð-vest- urhorni landsins og austur í Bláfell en einnig norður á Gjögri þar sem við fórum líka á sjóinn svona til að fá okkur fisk og stundum rauðmaga í soðið. Einhverju sinni keyrðum við norður yfir Kjöl, Blöndudal og fórum Holtavörðuheiðina heim. Þá gengum við á Hlöðufell og í bakaleiðinni skrifaði Júlíus, í gestabók FÍ, einstaka lýsingu af upplifun okkar í ferðinni. Ég hef leitað í tiltækum gestabók- um FÍ án þess að sjá aftur þann ágæta texta, hughrif og ferðalýsingu, sem Júlíus setti þar á blað. Í þessum ferðum hafði Júlíus jafnan myndavélina með og kunni flestum betur með hana að fara. Það er ómældur fjársjóður fólginn í þeim myndum sem hann skilur eftir sig. Þúsundir mynda sem hann hefur sett á netið hafa vakið verðskuldaða athygli og aðdáun. Raunalegt hefur verið að fylgjast með veikindum Júl- íusar. Í árslok 2011 var hann orðinn óvinnufær. Hann hafði þá unnið hjá Securitas hf. sem næturvaktmaður í rúm 16 ár og áunnið sér þar verðskuldað traust og trúnað. Júlíus vist- aðist síðan í Drafnarhúsinu í Hafnarfirði þar sem var ein- staklega vel hugsað um hann af Erlu Einarsdóttur og hennar fólki. Árið 2014 hélt Kristbjörg, Krilla, systir hans upp á 60 ára afmæli Júlíusar og þótt hann gæti lítið tjáð sig, sitjandi í hjólastól, þá virtist hann þekkja fólkið og njóta stundarinnar í góðra vina hópi. En áfram hélt að halla undan fæti með heilsu Júlíusar. Hann hætti með öllu að geta tjáð sig. Þannig var fyr- irkvíðanlegt að heimsækja Júl- íus síðustu árin. Ég undirbjó mig því vel, segja honum tíðindi af samferðamönnum okkar o.fl. Hélt í höndina á honum án þess að merkja að hann svo mikið sem vissi af mér. Það var ekki fyrr en kom að kveðjuorðum að ég greindi að hann af veikum mætti reyndi að þrýsta hendi mína. Það er umhugsunarefni hvernig það megi vera að hér á landi séu fóstureyðingar leyfi- legar en ekki sé leyft að hjálpa dauðvona fólki að binda endi á vonlaust dauðastríð sitt með virðingu og reisn. Það var einhverju sinni, áður en samband okkar Júlíusar komst á það stig sem ég hef hér lýst, að við Emil bróðir vor- um að ræða um fólk sem skar- aði fram úr í trausti og áreið- anleika. Emil nefndi þá að vinur sinn Júlíus Ásgeirsson væri sá maður sem hann treysti best. Það var ekki frítt við að mér fyndist fram hjá mér geng- ið og spurði: „Treystir þú hon- um betur en mér?“ Fann að ég setti bróður minn í smá vanda en hann var hreinskilinn og sagði: „Já, Hilli minn, það er nú bara þannig.“ Mikið sá ég síðar, þegar ég fór að þekkja Júlíus, hvað Emil hafði rétt að mæla. Geti menn með breytni sinni hér á jörðu unnið sér sess og sæti í Himna- ríki, þá tel ég Júlíus manna lík- legastan til að hafa náð því. Ég met mikils að hafa kynnst Júl- íusi og fjölskyldu hans og notið velvildar þeirra og vináttu. Blessuð sé minning Júlíusar Óskars Ásgeirssonar. Hilmar F. Thorarensen. Einn minn besti, sanni vinur, Júlíus aðeins 63 ára er fallinn frá, langt fyrir aldur fram. Kynntumst á Eskifirði, en miklu betur eftir að Júlli flutti til Hafnarfjarðar eftir að sr. Kolbeinn Þorleifsson fermdi okkur 2. júní 1968. Júlíus var einstakt ljúfmenni, drengur hinn besti, hvar sem niður var borið í hans lífs- hlaupi. Minning mín byrjar að telja frá því hann ól sinn aldur á Lambeyrarbrautinni á Eski- firði, en síðar í Arnarhrauni og Smyrlahrauni í Hafnarfirði. Hann passaði vel upp á syst- ursyni sína, Ásgeir og Ólaf. Var óþreytandi duglegur við að fara með þá í barnavagni og síðar kerru þegar árin liðu. Á Verslunarskólaárum mín- um styrktist vinskapur okkar og margt var brallað á höf- uðborgarsvæðinu sem og aust- ur á fjörðum. Við stunduðum leirdúfuskotfimi til undirbún- ings árangri í rjúpnaveiðum. Eftir að ég byrjaði minn bú- skap með Báru Rut Sigurðar- dóttur, í Piparsveinahöllinni, kom Júlli árlega í sínar rjúpna- veiðiferðar austur á Eskifjörð. Og aflaði vel. Eitt árið skaut hann 99 rjúpur og merkti fjöldann með rómverskum töl- um í byssuskeftið. Ég spurði þegar hann var að segja frá þessum merka árangri: „Af hverju segir þú bara ekki 100 stykki?“ Þá kom samviskusem- in upp í honum og hann svar- aði: „Maður fer nú ekki að gera sig að lygara fyrir eina rjúpu.“ Stundum kom Júlli keyrandi á sínum fjallabíl, suðurleiðina, ásamt móður sinni og skaut þá, til upphitunar fyrir rjúpnaveið- arnar, nokkra skarfa, enda þóttu Hjördísi skarfar herra- mannsmatur. Uppáhaldsveiðistaðir Júlla til rjúpna hér austanlands voru: Eskifjarðarheiði, Þverárdalur, Öxi og Sauðatindur. Þegar til Eskifjarðar var komið gisti Hjördís yfirleitt hjá Elísabetu og Hjalta á Tómasarhúsi eða hjá Öddu og Agli að Jaðri. Júlli var alls staðar eftirsóttur vinnukraftur, enda í senn dug- legur og fram í fingurgóma heiðarlegur. Það var honum mikið áfall þegar Sambandið leið undir lok, en samt kom það honum ekki á óvart, miðað við hvernig á höndum var haldið þar á bæ.Árum saman var Júlli aufúsugestur á heimili minnar fjölskyldu. Hlökkuðum við jafn- an til komu hans, ekki síst fyrir þær sakir að hann státaði ætíð af einhverju nýstárlegu til að ná betri árangri á rjúpnaveið- um, og naut þar tæknilegrar aðstoðar mágs hans sem var nokkuð háttsettur í bandaríska hernum og lumaði því Júlli ávallt á einhverjum nýjungum, langt á undan Íslendingum, svo sem talstöðvum, veðurathugun- um, handfrjálsum símum, hler- unarbúnaði, sem heyrði í rjúp- unum á næsta leiti og síðar GPS-tækjunum. Allan þennan búnað og ýmislegt fleira virkj- aði Júlli og reyndi að kenna mér á. Júlli sá og skynjaði fleira en margt okkar samferðafólk. Hann var um tíma spámaður fjölmiðla. Sá fyrir óorðna at- burði. Hætti svo á þeim slóðum, þar sem honum fannst svo allt of margt rætast, sem hann sá og skynjaði. Þegar von var á því að Júlli ætti betri daga í vændum eftir áratuga fórn í garð foreldranna, sem hann elskaði og dáði, greip hann í tómt, missti heilsuna og endaði sína ævi, síðustu árin á Hrafnistu í Hafnarfirði. Emil K. Thorarensen. Júlíus Óskar Ásgeirsson MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017 ✝ Helga Þórð-ardóttir, Didda, fæddist 9. mars 1931 á Ísa- firði. Hún lést 20. apríl 2017 á Landa- koti. Foreldrar henn- ar voru Þórður Jó- hannsson, úrsmið- ur, fæddur 16. desember 1888, lát- inn 3. desember 1979, og Kristín Magnúsdóttir, fædd 22. ágúst 1898, látin 26. september 1991. Systkini Helgu voru Högni, Hjördís, Anna, Ólafur og Magnús. Helga giftist 28. desember 1952 Hallgrími P. Bandaríkjunum. Eiginkona Pét- urs er Rose Njardvik, búsett í Alabama, Bandaríkjunum. Didda ólst upp á Ísafirði. Eftir hefðbundna skólagöngu fór Didda að vinna hjá Pósti og síma á Ísafirði. Didda flutti til Reykjavíkur 1961, þar sem hún fór að vinna hjá Frímerkjasölu Pósts og síma. Hún vann á Frí- merkjasölunni þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Didda keypti sér íbúð á Kaplaskjóls- vegi 1961 og bjó þar til 2006, þá flutti hún á Eskivelli í Hafn- arfirði til að vera nær son- ardóttur og barnabarnabörn- um. Didda starfaði mikið með skátahreyfingunni Valkyrjan á Ísafirði. Útför Helgu verður gerð frá Garðakirkju í dag, 2. maí 2017, og hefst athöfnin klukkan 15. Njarðvík. Helga og Hallgrímur skildu 1954. Barn Helgu og Hallgríms er Pétur H. Njarðvík, f. 10. ágúst 1951. Pétur á tvær dætur og eru þær: 1) Brynhildur, f. 13. mars 1970 og á hún þrjú börn og eru þau: Sunna Björk, Daníel Örn og Ástrós María. Eiginmaður Brynhildar er Sigurður Jóns- son. 2) Bryndís, f. 1. febrúar 1980 og á hún tvo börn og eru þau: Aden Ezra Joe og Harper Ann, búsett í Washington, Elsku amma. Allar minningarnar sem ég á um þig eru svo ljúfar og skemmti- legar. Kærustu minningar eru þegar ég var yngri. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til þín á Kaplaskjólsveg. Það var svo margt sem við gerðum saman, t.d að fara í gönguferðir um Vest- urbæinn, kíkja á Tjörnina og gefa öndunum, skoða allar stytturnar á leiðinni og heyra sögurnar um þær, fara í ísbúðina, í Melabúðina, í Þjóðleikhúsið, fara í sund og svo margt fleira. Þú kenndir mér að spila á spil, teikna landslagsmynd- ir og spila á orgelið. Við eyddum stundum tímunum saman að spila á spil, og alltaf leyfðir þú mér að vinna. Það var alltaf gaman að gista hjá þér og heyra sögurnar, ljóðin og sönginn. Þegar ég varð eldri og eignaðist mín börn þá vildu þau alltaf fara í heimsókn til ömmu Diddu, þú varst svo dugleg að vera með barnabarnabörnin þín og þeim fannst svo gott að vera hjá þér. Ég kveð þig, elsku amma mín, með þessum orðum: Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín verður sárt saknað. Hvíldu í friði, elsku amma mín, þú átt alltaf stað í hjarta mínu. Guð blessi þig. Takk fyrir allar góðu minning- arnar. Sonardóttir þín, Brynhildur. Mig langar til að minnast Helgu móðursystur minnar eða Diddu eins og við kölluðum hana sem lést á Landakoti að morgni sumardagsins fyrsta eftir erfið veikindi. Didda ólst upp á Ísafirði og var Ísfirðingur í húð og hár. Þar tók hún virkan þátt í skátastarfi og hafði unun af. Á meðan hún bjó á Ísafirði starfaði hún hjá Pósti og síma. Didda eignaðist einn son, Pétur Njarðvík, sem fæddist á Ísafirði, en síðar fluttust þau til Reykjavíkur og bjuggu lengst af á Kaplaskjólsvegi þar sem ég man fyrst eftir Diddu þegar ég var lítill strákur. Pétur sótti um skeið skóla á Laugarvatni og bjó þá hjá foreldrum mínum og var mér sem eldri bróðir. Þegar foreldrar mínir áttu leið til Reykjavíkur var alltaf komið við á Kaplaskjólsveginum hjá Diddu þar sem málefni líðandi stundar voru rædd, en Didda hafði ávallt sterkar skoðanir á hlutnum og þá sérstaklega ef stjórnmál voru annars vegar. Hún var einnig fylgin sér í orði og verki. Ef gista þurfti yfir nótt í Reykjavík var alltaf auðsótt mál að fá gistingu hjá Diddu og heimili hennar stóð alltaf opið fyrir okkur. Þetta voru góðar stundir þar sem ég kynntist Diddu vel. Síðar kynntist ég gest- risni hennar og hlýju enn betur þegar hún bauð mér að búa í her- bergi hjá sér þá fjóra vetur sem ég stundaði nám við Háskóla Íslands. Það var góður tími og Didda kapp- kostaði að dvöl mín yrði sem best. Fyrir það verð ég henni ávallt þakklátur. Elsku Didda frænka. Megi algóður guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó komin sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ók.) Árni Árnason. Helga Þórðardóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR GUÐRÚN SVEINSDÓTTIR, Sléttuvegi 19, sem lést á landspítalanum við Hringbraut 20. apríl verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 4. maí klukkan 13. Jóna Magnúsdóttir Sigurður Óli Sumarliðason Freyja Magnúsdóttir Pétur Þór Jónasson barnabörn og langömmubörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, Lindarbraut 10, Seltjarnarnesi, lést á Landspítala Fossvogi miðvikudaginn 26. apríl. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 5. maí klukkan 15. Blóm og kransar afþakkast. Auður Pétursdóttir Jóhann Pétursson Margrét Lilja Magnúsdóttir Brynja Pétursdóttir Baldvin Búi Wernersson Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, SESSELJU ÁSTU ERLENDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dvalarheimilinu Kumbaravogi og Hjúkrunarheimilinu Fossheimum fyrir góða umönnun og hlýhug við Sesselju Ástu og fjölskyldu. Vigdís Hjartardóttir Þórður Grétar Árnason Hreinn Hjartarson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN HEIÐAR JÓNSSON, byggingameistari á Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 30. apríl. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 5. maí kl. 10.30. Ragnheiður Sveinsdóttir Hrafn Þórðarson Fríða Björk Sveinsdóttir Jóhann Ómarsson Lovísa Sveinsdóttir Heiðar Jónsson Erlingur Heiðar Sveinsson Rósa Björg Gísladóttir afabörn og langafabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN KOLBEINS bifreiðastjóri, Dunhaga 17, lést að kvöldi 22. apríl á hjúkrunarheimilinu Grund. Jarðarförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 5. maí klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, Rósa Þorláksdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.