Morgunblaðið - 02.05.2017, Page 25

Morgunblaðið - 02.05.2017, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017 Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir ses.xd.is Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES Hádegisfundur SES Samtök eldri sjálfstæðismanna boða til hádegisfundar í Valhöll miðvikudaginn 3. maí kl. 12 á hádegi. Gestur fundarins: Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis Húsið verður opnað kl. 11:30. Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 850 krónur. Allir velkomnir. Stjórnin. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 opin vinnustofa kl 9, gönguhópur 1 kl 10:15, vatns- leikfimi í vesturbæjarlaug kl 10:50, tálgað í tré kl 13, postulínsmálun 1 kl 13, jóga kl 18 Árskógar 4 Leikfimi Maríu kl. 9-9.45. Smíðar/útskurður m/leiðb. kl. 9- 16. Leshringur kl. 10.30-11.30. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna m/leiðb. kl. 12.30-16.30. Kóræfing hjá Kátum körlum kl. 13-15. MS-fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Áskirkja Spilum félagsvist í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar, kl 20 Allir velkomnir Boðinn Þriðjudagur: Boccia kl. 10.30. Bridge og Kanasta kl. 13.00. In- grid Kuhlmann verður með fyrirlestur um hamingjuna á efri árum, stutt mynd verður sýnd og umræður í kjölfarið. Kaffi og kleinur í boði, allir hjartanlega velkomnir Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Morgunkaffi 10-10:30. Lesið og spjallað 10:30. Hjúkrunarfræðingur með viðveru frá 11-11:30. Bónusrútan kemur 12:30. Leshópur hittist 13-14:30. Útskurður 13-16. Opið kaffihús 14:30-15:30. Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl.9, félagsvist kl.14. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Landið skoðað með nútímatækni kl.13.50. Kaffiveitingar kl.14.30-15.30. Nánari upplýsingar í síma 411- 2550. Verið öll velkomin. Garðabæ Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 09:30-16:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Qi-gong í Sjálandsskóla kl 09:10. Bútasaumur í Jónshúsi kl 13:00. Karlaleikfimi kl 13:00. Boccia í Sjál. kl 13:45. Vatnsleikfimi kl. 15:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl 14:45. Línudans í Kirkjuhvoli kl 15:00 og 16:00.Tekið á móti sýningarmunum fyrir vorsýningu. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl. 9-12. Glervinnustofa m/leiðb. kl. 13-16. Leikfimi Maríu kl. 10-10.45. Leikfimi gönguhópsins kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Starf Félags heyrnarlausra kl. 12-16. Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.30 aukatími í Gler- og post- ulínsmálun, kl.9.45 Stólaleikfimi, kl. 13.00 Handavinna, kl. 13.00 Hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 Alkort, kl. 14.00 Hreyfi- og jafnvægisæfingar. Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12. Gullsmári Myndlist kl. 9, boccia kl 9.30, ganga kl. 10, kanasta kl. 13, leshópur kl. 20 Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9– 14. Morgunleikfimi kl. 9.45. Jóga kl. 10.10 – 11.10. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, jóga kl. 9, 10 og 11, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 10.30. Opin vinnustofa frá kl. 13 tálgun, Helgistund kl. 14, séra Ólafur Jóhannsson, kaffi kl. 14.30. Fótaaðgerðir, hársnyrting. Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, myndlistarnámskeið kl. 9 hjá Margréti Zóphoníasd.,Thai Chi kl. 9, leikfimi kl. 10. Bónusbíll kl. 12.40. Bridge kl. 13. Ganga kl. 13.30. Bókabíllinn kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30. Framhaldsþættir kl. 15.00, Kvikmyndahópur Hæðargarðs sýnir. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790. Korpúlfar Sundleikfimi með Brynjóli 7:30 í Grafarvogssundlaug, listmálun með Martein í Borgum kl. 9, helgistund kl. 10:30 í Borgum. Leikfimishópur Korpúlfa kl. 10:30 í Egilshöll, tréskurður kl. 9:30 á Korpúlfsstöðum. Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 13:30 í dag, heimanámskennsla kl. 16:30 í dag í Borgum. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.15. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Pútt á Eiðistorgi kl. 10.30. Lomber Skólabraut kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 14.00. Skráning hafin í sameiginlega ferð félagsstarfsins og kirkjunnar sem farin verður þriðjudaginn 16. maí nk. Skráning og upplýsingar í síma 8939800. Munið félagsvistina í salnum á Skólabraut nk. fimmtudag kl. 13.30. Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Skák kl. 13.00 allir velkomnir. Vesturgata 7 Þriðjudagur . Fótaaðgerð kl.09:00. Glerskurður (Tiff- fanýs) kl:13:00. -16:00. Vigdís Hansen. Smáauglýsingar Bækur Vestfirskar sagnir 4. hefti Vestfirskar sagnir 4. hefti komið í bókaverslanir. Einn af fjársjóðum Íslands sem við megum ekki gleyma og týna. Vestfirska forlagið jons@snerpa.is 456 8181 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Húsviðhald VIÐHALD FASTEIGNA Lítil sem stór verk Tímavinna eða tilboð ℡ 544 4444 777 3600 jaidnadarmenn.is johann@2b.is  JÁ Allir iðnaðarmenn á einum stað píparar, múrarar, smiðir, málarar, rafvirkjar þakmenn og flísarar. Þjónustu- auglýsingar Þarft þú að koma fyrirtækinu þínu á framfæri Hafðu samband í síma 569 1100 eða á augl@mbl.is og fáðu tilboð Færir þér fréttirnar mbl.is atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á borgara, því það er mamma sem er söngfuglinn á heimilinu. Lán- samir eru afastrákarnir þínir hvort sem þeir hafa tínt með þér plómur, farið með þér á fótbolta- leiki til útlanda eða siglt með þér um höfin blá. Lánsamar eru af- astúlkurnar þínar sem nutu þess að borða með þér rjómatertur. Þau syrgja þig nú eins og þau ljómuðu alltaf nálægt þér. Nú segja þau öll „Afi Kiddi var best- ur.“ Elsku pabbi, takk fyrir að vera alltaf góður við börnin okkar og börnin þeirra. Elsku Kiddi, tengdapabbi, afi og langafi. Við þökkum þér öll. Fyrir hönd okkar allra Trausti Þá er komið að því að kveðja elskulega afa minn, Kidda. Afi var mikið á sjó þegar ég var barn og var ég þá oft hjá ömmu Bökku á meðan. Þegar afi kom heim þá spilaði hann við mig Ólsen Ólsen og gaf mér djús, en ég var með sérþarfir um hvernig átti að blanda djúsinn, það átti að setja vatnið fyrst og djúsinn svo, fékk ég oft að heyra það frá honum eft- ir að ég fullorðnaðist og var gert mikið grín að því. Afi hafði mjög gaman af því að fíflast í okkur og segja ýmsar sögur sem hann kryddaði alltaf mjög skemmti- lega. Stundum var ekki að marka orð sem hann sagði og hlógum við mikið að honum, ekki síður nú í seinni tíð. Einnig man ég hvað það var spennandi þegar hann kom heim úr siglingum á gamla Sólberginu, þá gaf hann okkur krökkunum nammi, sem gladdi mig mikið, enda nammisjúk. Afi var yndisleg persóna; ljúf- ur, góður, hjálpsamur, duglegur, hress og skemmtilegur. Ég kynntist honum svo enn betur eftir að hann hætti á sjónum og ég flutti aftur til Ólafsfjarðar með mína fjölskyldu. Börnin mín fengu því að alast upp með að eiga langafa. Það eru nefnilega mikil forréttindi að fá að alast upp í svona litlu bæjarfélagi þar sem maður getur alltaf hoppað inn hjá ættingjum eða bara hitt þá úti í búð eða á rúntinum eins og var með þig. Elsku afi, ég á eftir að sakna þín mikið, en ég lofa því að ég skal passa ömmu fyrir þig og bjóða henni á rúntinn. Ég á einnig eftir að sakna þess að heyra þig ekki kalla „litla Björk“, því mér þótti alltaf vænt um það. Ég mun fá mér eina rjómatertusneið til að minnast þín, því rjómatertur voru jú eitt af því besta sem þú fékkst. Hvíldu í friði, elsku afi. Björk Óladóttir. Í síðustu viku dó afi Kiddi, skemmtilegasta manneskja sem ég hef þekkt. Aldrei hef ég hlegið jafnmikið með nokkrum manni eins og hon- um. Aldrei hef ég heyrt eins marg- ar ótrúlegar, yfirgengilegar og skemmtilegar lygasögur hjá nokkrum manni eins og honum. Aldrei hef ég misst svo kæran og náinn fjölskyldumeðlim. Hvíldu í friði afi minn Kiddi. Tindur Þormarsson. ✝ Gyða EbbaSalómons- dóttir er fædd í Mosdal við Önund- arfjörð 3. apríl 1929. Hún lést 12. apríl 2017. Foreldrar henn- ar voru Ingibjörg Sigríður Jörunds- dóttir, fædd 30. september 1896, dáin 1984, og Sal- ómon Mosdal Sumarliðason, fæddur 24. júní 1895, dáinn árið 1981. Gyða átti tvö alsystkini, þau Lilju Van Beers, Sumarliða Jóhann og fóstursysturina Jóhönnu Sumar- liðadóttur, þau eru öll látin. Útförin fer fram frá Seljakirkju í dag 2. maí 2017, klukkan 13. Gyða frænka eins og við köll- uðum hana lést í íbúð sinni í Seljahlíð þann 12. apríl síðastlið- inn, 88 ára að aldri. Gyða giftist aldrei og bjó hjá afa okkar og ömmu meðan þau lifðu. Hún var mjög náin fjölskyldu okkar og voru þær mamma (Jóhanna) eins og tvíburar. Gyða tók þátt í öllum fjölskylduviðburðum okkar alveg frá því við munum eftir okkur og fram að dánardegi. Gyða hafði gaman af að sprella og glettast við litlu krílin í fjölskyldunni. Já, það er margs að minnast í gegn- um tíðina og er okkur mjög í minni ferð okkar systra, mömmu og Gyðu til London 2004. Mamma var þá orðin frekar léleg til heilsunnar og lést hún árið 2006. Þetta var fyrsta ferð Gyðu til Evrópu en hún hafði gegnum tíðina ferðast mikið til Ameríku til systkina sinna sem þar bjuggu. Árið 2007 fórum við syst- ur og Gyða til Kaupmannahafnar og gengum um slóðir Íslendinga og skoðuðum merka staði, skruppum til Svíþjóðar og hittum ættingja. Gyða naut þessara ferða mjög og talaði oft um þær. Gyða hafði sterkar skoðanir á hlutunum og lá ekki á þeim, hún var trúuð og bað fyrir okkur öll- um með nafni og víða í Biblíunni hennar eru undirstrikuð vers og við þau er dagsetning og nafn fjölskyldumeðlima okkar. Eftir andlát mömmu var Gyða eins og önnur mamma okkar og tók þátt í öllum okkar sorgum og gleðistundum. Við þökkum góð- um Guði fyrir að hafa átt þig fyrir frænku og þökkum þér fyrir sam- fylgdina og kveðjum þig með söknuði og trega. Hvíl í friði. Ingibjörg Sigfúsdóttir, Guðný Sigfúsdóttir, Sigrún Sigfúsdóttir. Í dag verður borin til grafar Gyða Ebba Salómonsdóttir. Hún tilheyrði fjölskyldu kon- unnar minnar, Sigrúnar. Var hún uppeldissystir tengdamóður minnar, Jóhönnu Sumarliðadótt- ur. Þær voru mjög nánar og í daglegu sambandi. Þetta var ákveðinn grunnur að kynnum mínum við Gyðu, sem reyndist fjölskyldu minni ákaflega vel. Hún naut þess að taka þátt í gleðistundum um hátíðar og í af- mælisboðum, svo eitthvað sé nefnt. Mig setti hljóðan er ég fletti Biblíunni hennar. Þar var mikið um undirstrikanir versa og bæn- arefnin sett fram af trúfesti með dagsetningum og nöfnum. Það voru forréttindi að kynn- ast mætri konu, sem ég veit að hvílir nú í faðmi frelsarans okkar, Jesú. Hún elskaði sannarlega Guð sinn. Vil ég heiðra minningu hennar. Þinn vinur, Gunnar Böðvarsson. Gyða Ebba Salómonsdóttir  Fleiri minningargreinar um Kristinn Jóhann Trausta- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.