Morgunblaðið - 02.05.2017, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2017
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Mig langar að bjóða áheyrendum
upp á smá forsmekk af því sem
koma skal í haust,“ segir tenórinn
Kristján Jóhannsson sem kemur
fram á hádegistónleikum undir yfir-
skriftinni „Ást og umhyggja“ í
Hafnarborg í dag, þriðjudag, kl. 12.
Sem kunnugt er syngur Kristján
hlutverk listmálarans Cavaradossi í
uppfærslu Íslensku óperunnar á
Toscu eftir Giacomo Puccini í haust,
en frumsýnt verður 21. október.
„Á tónleikunum í Hafnarborg
mun ég kynna óperuna og syngja
báðar aríur Cavaradossi auk þess
sérstakur leynigestur bregður sér í
hlutverk Toscu og syngur með mér
dúettinn fræga úr fyrsta þætti,“ seg-
ir Kristján, sem þekkir hlutverk
Cavaradossi eins og lófann á sér
enda hefur hann sungið hlutverkið á
sviði í á fjórða hundrað skipti.
Hár listrænn túlkunarstandard
„Aríurnar tvær eru mjög ólíkar.
Fyrri arían er full af ástríðu og ung-
æðishætti. Þar leikur allt í lyndi og
ástin í garð Toscu blómstrar. Þetta
er mjög krefjandi aría sem liggur
mjög hátt. Það þarf að skila gleðinni,
ástríðunni og ástinni í textanum og
tónlistinni. Seinni arían er ekki eins
raddlega krefjandi. Hún er mýkri og
sorglegri, enda syngur Cavaradossi
hana þegar hann veit að hann mun
deyja og að ástarævintýri þeirra
Toscu er á enda. Í aríunni fer hann
yfir sögu þeirra Toscu og ástarfundi
þeirra í gegnum tíðina. Þessi aría er
þannig skrifuð og textinn að söngv-
arinn þarf að vera í háum listrænum
túlkunarstandardi til að geta skilað
henni vel. Þessi aría snýst ekki um
tónana heldur fremur tilfinning-
arnar þar sem miðla þarf bæði
ástríðunni og söknuðinum. Aríurnar
eru því gjörólíkar.“
Spurður hvort hann þurfi eitthvað
að æfa fyrir tónleikana í ljósi þess
hversu vel hann þekkir músíkina
segir Kristján að með nýju sam-
starfsfólki breytist áheyrslan hverju
sinni. „Auðvitað er maður með Pucc-
ini alltaf í hjartanu, en með nýju
fólki þarf að hliðra til. Við leynigest-
ur minn smellum saman í dúettinum,
hún gerir þetta mjög vel,“ segir
Kristján og viðurkennir að það sé
kærkomið tækifæri að fá að bregða
sér í hlutverk Cavaradossi nokkrum
mánuðum fyrir frumsýningu í
Hörpu.
Heldur aftur af villidýrinu
„Ég er því mjög spenntur að vinna
með Bjarna Frímanni [Bjarnasyni
hljómsveitarstjóra uppfærslu Ís-
lensku óperunnar] í haust, enda
mjög hæfileikaríkur ungur maður.
Ég er búinn að hlusta á Toscuna
mína á netinu [Claire Rutter] og hún
er stórglæsileg og hefur fantagóða
rödd, þannig að þetta verður spenn-
andi,“ segir Kristján og bendir á að
Tosca kalli á mjög sérstakar raddir
til að verkið virki.
Aðspurður segir hann mjög mik-
inn mun á því að syngja í Hafnar-
borg og Hörpu. „Það eru ekki marg-
ir söngvarar sem þekkja Eldborg,
en það þarf auðvitað að beita sér
öðruvísi og meira eftir því sem sal-
urinn verður stærri. Ætli ég verði
ekki aðeins að halda aftur af villidýr-
inu í mér í Hafnarborg, enda minni
salur,“ segir Kristján kíminn.
Auk Toscu hyggst Kristján á tón-
leikunum bjóða upp á „einhverja
hjartaknúsara frá Ítalíu og eitthvað
íslenskt með. Það er spurning hvað
ég næ mörgum lögum, því tónleik-
arnir eru ekki nema 30 mínútna
langir,“ segir Kristján og bætir við:
„Markmið mitt, eins og alltaf, er að
áheyrendur fari hamingjusamir
heim að loknum tónleikum.“
Annað sinn á hádegistónleikum
Að sögn Kristjáns hefur hann í
gegnum tíðina lítið sem ekkert gert
af því að koma fram á hádegistón-
leikum. „Ég held þetta sé aðeins í
annað sinn á ferlinum sem ég kem
fram á hádegistónleikum,“ segir
Kristján og tekur fram að fyrra
skiptið hafi líka verið í Hafnarborg
að beiðni Antoníu Hevesi, píanóleik-
ara sem er listrænn stjórnandi tón-
leikaraðarinnar í Hafnarborg, fyrir
nokkrum árum. „Hún er einn besti
píanisti sem við eigum á Íslandi í dag
og alltaf ánægjulegt að vinna með
henni. Ég þurfti því ekkert að hugsa
mig um þegar hún leitaði til mín.“
Sem fyrr segir hefjast tónleikarn-
ir kl. 12 og standa yfir í um hálfa
klukkustund. Þeir eru öllum opnir á
meðan húsrúm leyfir og verður hús-
ið opnað kl. 11.30.
Morgunblaðið/Eggert
Hamingja Kristján Jóhannsson segir það ávallt markmið sitt að áheyrendur fari hamingjusamir heim. Antonía
Hevesi píanóleikari (til vinstri) er listrænn stjórnandi hádegistónleikaraðarinnar í Hafnarborg.
„Smá forsmekk“
Kristján Jóhannsson syngur í Hafnarborg í dag kl. 12
Óhætt er að segja að ákveðinn kyn-
usli hafi gert vart við sig í dönsku
leikhúsi. Fyrir stuttu frumsýndi
leikhúsið Mungo Part norður af
Kaupmannahöfn Hamlet eftir
Shakespeare þar sem leikkonurnar
Christine Albeck Børge og Meike
Bahnsen skiptast á að leika titilhlut-
verkið. Nýverið kynnti Konunglega
leikhúsið í Kaupmannahöfn komandi
leikár og þar verður í a.m.k. tveimur
sýningum kyni persóna breytt. Frá
þessu er greint í Politiken. Um er að
ræða Óþelló eftir Shakespeare og
Brot úr hjónabandi eftir Ingmar
Bergman, en bæði verkin rötuðu á
svið hérlendis í vetur. Leikstjórinn
Elisa Kragerup hefur ákveðið að
láta hörundsdökka leikkonu leika
Óþelló sem í verkinu verður nýgift
Desdemónu, en í uppfærslu Þjóð-
leikhússins í samstarfi við Vestur-
port var Jagó leikin af konu og Em-
ilía af karli.
Morten Kirkskov, leikhússtjóri
Konunglega leikhússins, og Sofie
Gråbøl leika hjónin í Brotum úr
hjónabandi og ákveðið hefur verið að
persónur þeirra víxli textanum.
Þannig fer Gråbøl með allan texta
karlhlutverksins úr sjónvarpsþátt-
unum og Kirkskov með allan texta
kvenhlutverksins að undanskilinni
setningunni „Ég er ólétt“ sem Grå-
bøl heldur. silja@mbl.is
Kynusli í dönsku leikhúsi
Morgunblaðið/RAX
Leikkonan Sofie Gråbøl.
Handgerð bók eftir danska þjóð-
skáldið H.C. Andersen frá árinu
1868 verður boðin upp hjá uppboðs-
húsinu Bruun Rasmussen í Kaup-
mannahöfn í dag. Frá þessu greinir
danska dagblaðið Politiken.
Þar kemur fram að um sé að
ræða 184 bls. bók með 175 ljóðum,
athugasemdum, pappírsverkum og
teikningum sem Andersen bjó til
haustið 1868 handa Marie Henri-
ques stuttu áður en hún fagnaði
þriggja ára afmæli sínu. Stúlkan
var dóttir Martin og Therese
Henriques, sem gerðu það gott í
fjármálageiranum á sínum tíma og
vinguðust við fjölda listamanna,
þeirra á meðal Edward Grieg.
Bókin er metin á 1-1,5 milljónir
danskra kr., sem samsvarar 15,7-
23,5 millj. ísl.kr. Hún er ein af níu
handgerðum bókum sem vitað er að
Andersen hafi búið til, en hann bjó
einnig til bækur í samvinnu við
Adolph Drewsen og Marie Ørsted.
Samkvæmt upplýsingum frá upp-
boðshúsinu er umrædd bók sú síð-
asta sinnar tegundar sem vitað er
um í einkaeigu. silja@mbl.is
Handgerð bók H.C. Andersen til sölu
Ljósmynd/Bruun Rasmussen
Einstök Lærke Bøgh, bókasérfræðingur
Bruun Rasmussen, skoðar bókina.
BÍÓ
áþriðjudögum í Laugarásbíó
750
á allarmyndir, allan daginn!
kr.
FRÍ
ÁFYLL
ING
Á GOS
I
Í HLÉI
SÝND KL. 10.25SÝND KL. 8SÝND KL. 5.50
SÝND KL. 6, 9 SÝND KL. 6, 9
FRÍSKANDI
BRAGÐ OG
FULLT AF
HOLLUSTU
LÝSI MEÐMYNTU- OG SÍTRÓNUBRAGÐI
Lýsi með myntu- og sítrónubragði
er ný vara frá Lýsi sem innheldur
omega-3 fitusýrurnar EPA og DHA
og er þar að auki auðugt af A-, D-
og E-vítamínum.
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
NÝ
F
E
R
S
K
T
O
M
Y
N
T
U-
OG SÍTRÓN
U
B
R
A
G
Ð
V
E
R
T