Morgunblaðið - 02.05.2017, Page 36

Morgunblaðið - 02.05.2017, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 122. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. 1. Dæmi hver fyrir sig – myndskeið 2. Forsetahús úr felum 3. Fyrsta æfing Svölu – myndband 4. Sá til kajakræðaranna frá landi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sýning á svarthvítum ljósmyndum franska ljósmyndarans Réza Kalfane verður opnuð í Listastofunni galleríi, Hringbraut 119, í dag kl. 18. Mynd- irnar prýða nýútkomna bók Kalfane, Ísland. Kalfane mun árita bókina í dag frá opnun til kl. 20. Ljósmyndasýning og áritun í Listastofunni  Stutt gam- anópera eftir Mozart, Við- burðastjórinn, verður sýnd í kvöld og fimmtu- dagskvöld í Iðnó kl. 20. Í óperunni berjast tvær söngkonur um hylli viðburðastjóra og beita öllum brögðum til að fanga athygli hans. Söngvarar í verkinu eru Fjóla Krist- ín Nikulásdóttir, Lilja Guðmunds- dóttir, Snorri Wíum og Bjarni Thor Kristinsson en Bjarni sér einnig um leikstjórn, þýddi verkið og skrifaði leikgerð. Píanóleikari og tónlistar- stjóri er Matthildur Anna Gísladóttir. Barist um hylli stjóra  Verðlaunarithöfundurinn Kim Leine tekur þátt í höfundakvöldi í Norræna húsinu í kvöld, sem hefst kl. 19.30 og er öllum opið meðan húsrúm leyfir. Jón Yngvi Jóhannsson, lektor í ís- lenskum bókmenntum við HÍ, stýrir umræðu sem fer fram á dönsku. Kim Leine hlaut bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs 2013 fyrir skáldsöguna Spá- mennirnir í Botnleysufirði sem út kom hérlendis 2015. Bækur hans hafa verið þýddar á yfir 20 tungumál. Höfundakvöld með Kim Leine í kvöld Á miðvikudag Suðaustan 5-13 m/s á Suður- og Vesturlandi og léttir heldur til og lægir er líður á daginn. Hiti 10-16 stig. Hæg suð- læg átt á Norður- og Austurlandi, léttskýjað og hiti 14-20 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-18 m/s, hvassast suðvestantil með snörpum vindhviðum við fjöll. Lægir heldur síðdegis. Rigning eða súld með köflum en stöku skúrir norðaustantil. Hiti 6-17 stig. VEÐUR Nýliðarnir í Pepsi-deild karla gerðu það gott þegar fyrstu 1. umferðinni lauk í gærkvöld. KA gerði sér lítið fyrir og skellti vel mönnuðu liði Breiða- bliks 3:1 á Kópavogs- velli. Grindavík náði í stig gegn silfurliðinu frá því í fyrra, Stjörn- unni. Þá vann Víkingur flottan 2:1 útisigur á KR. Úrslit sem koma mörgum á óvart. » 2-3 Óvænt úrslit í 1. umferðinni Ítalski afreksmað- urinn Gianluigi Buffon er tekinn til umfjöllunar í íþróttablaðinu í dag en hann lék á dögunum meist- araflokksleik númer 1.000 þegar Ítalía mætti Albaníu. Um leið sló hann leikjamet Iker Casillas og er leikjahæsti landsliðsmaður í Evrópu. Buffon hefur aldrei sigrað í Meistaradeildinni en er kominn í undanúrslit með Juventus. »4 Meira en 1.000 leikir á 22 árum hjá Buffon „Við munum gera allt sem við getum til þess að þetta verði skoðað. Þetta er það slæmt,“ sagði Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, þegar Morg- unblaðið spurðist fyrir um mögulegar aðgerðir sambandsins í kjölfar leiks Potaissa Turda og Vals í síðari við- ureigninni í undanúrslitum Áskor- endakeppni Evrópu í handknattleik á sunnudag »1 Næg ástæða til að skoða atvikin ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@mbl.is Hönnunarvaran Jón í lit hefur slegið í gegn á íslenskum heimilum á síð- ustu árum. Nýjasti liturinn, fyrir ár- ið 2017, er fölgrænn og hefur platt- inn nú verið gefinn út í yfir fimmtíu litum frá því að hugmyndin um að lita afsteypur af Jóni Sigurðssyni spratt upp hjá vöruhönnuðinum Al- mari Alfreðssyni. „Ég keypti koparlágmynd af Jóni Sigurðssyni í Góða hirðinum sum- arið 2010. Um veturinn var ég í af- steypukúrsi í Listaháskólanum og datt í hug að taka afsteypu af þessari mynd og gefa fjölskyldumeðlimum í jólagjöf. Þetta sló rækilega í gegn og spurðist fljótt út,“ segir Almar. „Ár- ið 2011 ákváðum við hjónin svo að koma þessu út á markaðinn. Þetta ár voru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns og ákváðum við að gera tuttugu lág- myndir í lit og komum þessu í nokkr- ar verslanir um landið. Þá byrjaði boltinn að rúlla og hefur ekki hætt síðan og er Jón nú seldur í 20 versl- unum um land allt.“ Litirnir lýsa heimilunum Fyrstu tuttugu litirnir spönnuðu allt litrófið og síðan þá hefur Almar bætt við ýmsum litbrigðum. Hann segir að stór þáttur í vinsældum hönnunarinnar sé að fólk getur per- sónugert hönnunina með því að velja og raða litunum á þann veg sem hentar heimilinu best. „Þegar við veljum nýja liti skoð- um við vel hvað er að gerast úti í heimi og hvernig þeir litir passa við litapallett- una okkar. Í dag eru 36 litir í boði og því nóg um að velja þegar finna á rétta liti inn á heimilið. Við erum alltaf að sjá nýjar upp- raðanir og litasamsetn- ingar hjá fólki, og lýsir þetta heimilunum og íbúunum oft mjög vel.“ Almar útskrifaðist sem vöruhönn- uður úr Listaháskólanum árið 2011 og hafa plattarnir tekið mikið af tíma hans síðan þá. „Við tókum þá ákvörðun í upphafi að við myndum gera þetta sjálf frá grunni en ekki panta þetta að utan. Ferlið er um 5 til 6 dagar frá dufti til fullunnins ein- taks í umbúðum. Við sjáum alls ekki eftir því vegna þess að hvert eintak er einstakt. “ Fyrir þremur árum ákváðu Almar og eiginkona hans, Heiða Björk Vil- hjálmsdóttir, að opna minnstu og einu hönnunarsjoppu landsins í Listagilinu á Akureyri, sem kallast Sjoppan vöruhús, og selja þar hönn- unarvörurnar út um lúgu. Jón í yfir fimmtíu litum  Afsteypurnar af Jóni Sigurðssyni áfram vinsælar Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lúga Almar og Heiða selja lágmyndirnar litríku og ýmsa aðra hönnun út um lúgu í anddyrinu hjá sér. Lágmyndirnar af Jóni Sigurðssyni urðu fljótlega vinsæl innflutnings- gjöf. Almar segir að hönnunin hafi komið á markaðinn á hárréttum tíma, eftir hrunið hafi fólk horft inn á við og leitað í þjóðleg einkenni. Hann telur að lágmyndin hafi fyrst verið steypt fyrir Lýð- veldishátíðina árið 1944 þar sem ýmis félög hafi selt hana og eftir hátíðina hafi mátt finna lágmyndirnar á mörgum heimilum. Vegna vísunar þeirra í sögu Íslands segir Almar að erf- iðara sé að markaðssetja þær gagn- vart útlendingum. „Við ákváðum að einblína á íslenskan markað því út- lendingar þurfa mun meiri útskýr- ingu á mikilvægi Jóns forseta en hægt er að gera í búðarápi. En þeim sem þekkja söguna og Jón finnst þetta skemmtileg hönnun.“ Erfiðara að selja útlendingum JÓN Í LIT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.