Morgunblaðið - 31.05.2017, Side 1

Morgunblaðið - 31.05.2017, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 3 1. M A Í 2 0 1 7 Stofnað 1913  132. tölublað  105. árgangur  HREYFIVIKA UMFÍ - 29.05-04.06 HrEYfiVIka.Is ER MIKILL GLEÐIGJAFI OG KÚRUDÝR HLJÓMSVEITIN KOMIN MEÐ GOTT ORÐSPOR DÝRÐARLJÓMI FLUGFREYJUNNAR FLÓKIÐ FYRIRBÆRI TORTELIER OG SÍ 78 ÍMYND FLUGFREYJUNNAR 10LÚLLI OG LAMBASTELPAN 12 Morgunblaðið/Golli Þyrilsnældur Vinsælt leikfang.  Þyrilsnælduæðið kemur á óheppilegum tíma til að hægt sé að nýta leikfangið til kennslu á þessari önn, að sögn Magnúsar Þórs Jóns- sonar, skólastjóra Seljaskóla í Reykjavík, skólinn sé að verða bú- inn en hann sér fyrir sér að nýta leikfangið til kennslu ef það verður áfram í tísku í haust. Nægur sveigj- anleiki sé í náminu til þess og tæki- færin sem það býður upp á í kennslu snerti mörg atriði sem rúmast innan aðalnámskrár og þeirra vinnubragða sem þar er vís- að í. Þyrilsnældurnar (e. fidget spin- ner) hafa víða verið bannaðar í skólum en Elín H. Hinriksdóttir, formaður ADHD samtakanna, segir þetta gott tæki til að grípa athygli barna með athyglisbrest. »16 Nægur sveigjanleiki til að nota þyril- snældur í náminu Herbergi á 11 milljónir » Dæmi um verðið er ósam- þykkt herbergi í Álftamýri á 11 milljónir króna. » Það er 15 fermetrar og án snyrtingar. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Flest bendir til að ásett verð á ósam- þykktum íbúðum og herbergjum hafi aldrei verið jafn hátt á Íslandi. Þetta er mat Grétars Jónassonar, framkvæmdastjóra Félags fast- eignasala, sem segir skýringuna vera mikla umframeftirspurn. Hann telur rétt að hafa í huga að stundum þurfi lítið að breyta íbúðum til að þær fáist samþykktar. Þá sé verð á fasteignum í sumum tilvikum orðið svo hátt að kaupendur séu orðnir hikandi. „Þeir láta ekki bjóða sér hvað sem er,“ segir Grétar. Fram kemur í úttekt blaðsins að dæmi séu um að fermetrinn í ósam- þykktum íbúðum í Reykjavík kosti 837 þúsund. Þá var meðalverð 20 ódýrustu íbúðanna, eða herbergj- anna, sem voru til sölu í Reykjavík rúmlega 562 þúsund á fermetra. Sigurður Helgi Guðjónsson, for- maður Húseigendafélagsins, segir svo mikla eftirspurn eftir íbúðum að lakara húsnæði sé nú dregið fram. Ósamþykkt á metverði  Framkvæmdastjóri Félags fasteignasala segir kaupendur vera orðna hikandi  Ósamþykktar íbúðir aldrei dýrari  Dæmi um að fermetrinn kosti 837 þúsund MFermetraverð allt að … »6 Morgunblaðið/Gúna Flóttinn Börn sem eru ein á flótta eru eftirsótt af mansalshringum. Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Börn sem dvelja í flóttamannabúðum á grísku eyjunni Lesbos glíma mörg hver við margvísleg vandamál enda koma þau úr erfiðum aðstæðum. Dvöl á Lesbos á aðeins að vera tímabundið úrræði á meðan beðið er eftir því að komast til meginlandsins. En vegna þess hve kerfið er þungt í vöfum er flóttafólk oft um eitt ár þar. Öll börn eiga rétt á skólagöngu í Grikklandi en allur gangur er á því hvort börn á flótta njóta þeirra for- réttinda að ganga í skóla. Sum þeirra hafa kannski aldrei gengið í skóla þar sem þau koma frá átakasvæðum í Sýrlandi eða þau hafa verið á flótta lengi. Ef ungmenni fá ekki ensku- og eða grískukennslu er hætt við að þau verði einfaldlega undir í kerfinu og eigi lítinn sem engan möguleika á mannsæmandi lífi í Evrópu. Stofn- anir Sameinuðu þjóðanna, svo sem UNICEF, reyna að halda utan um þau börn sem koma til Grikklands og verja þau en það er oft allt annað en auðvelt, því fylgdarlaus börn eru eft- irsótt bráð mansalshringa. Ekki ligg- ur fyrir hversu mörg börn hverfa á hverju ári en þau skipta hundruðum ef ekki þúsundum. »18-20 Börn á flótta eru eftirsótt bráð  Skólaganga getur skipt sköpum varðandi framtíð flóttafólks í Evrópu Kjölbátar sigldu seglum þöndum í góðum byr á Sundunum við Reykjavík í gær. Átta bátar tóku þátt í keppninni, sem var hluti af Reykjavíkur- mótinu. Siglt var innan eyja og eftir baujum á Rauðarárvíkinni, en leiðin hverju sinni er kynnt á skipstjórnarfundi áður en keppni hefst. Sigldu seglum þöndum í góðum byr á Sundunum Morgunblaðið/Golli  Líklega er elsta íslenska skrofan fundin. Ingvar A. Sigurðsson, for- stöðumaður Náttúrustofu Suður- lands, fór á vit skrofanna í Ysta- kletti í Vestmannaeyjum um síðustu helgi. Ingvar náði þar skrofu sem Jóhann Óli Hilmarsson merkti sem fullorðinn varpfugl 10. júní 1991, fyrir 26 árum. Skrofur byrja yfirleitt varp 6-7 ára gamlar og því er líklegt að fuglinn verði minnst 32 ára í sumar og bæti aldursmet skrofa um þrjú ár. »25 Elsta íslenska skrof- an líklega 32 ára

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.