Morgunblaðið - 31.05.2017, Page 4

Morgunblaðið - 31.05.2017, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 HENRA VAGNAR Á ÍSLANDI Leirutangi 14 | 270 Mosfellsbær | Sími 861 7177 | www.henra.is Vagnar - Kerrur - Varahlutir og góð þjónusta • S • Hagstætt verð beint frá framleiðenda • Stuttur afgreiðslutími tyrkleiki og ending Elsta kaupfélaginu slitið  Kaupfélag Þingeyinga náði 135 ára aldri  Ekki verið með starfsemi í 18 ár Ákveðið hefur verið að slíta elsta samvinnufélagi landsins, Kaupfélagi Þingeyinga. Félagið hefur ekki haft rekstur með höndum í átján ár. Það á engar eignir og skuldar engum neitt, að því best er vitað. Kaupfélag Þingeyinga var stofnað á Þverá í Laxárdal 20. febrúar 1882 og er því 135 ára gamalt. Á tuttugu ára afmæli þess var Sambandskaup- félag Þingeyinga stofnað á Ystafelli í Köldukinn en það varð síðar að Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga, SÍS. Kaupfélag Þingeyinga var með fjölbreytta atvinnustarfsemi á síð- ustu öld, eins og mörg kaupfélög á þeim tíma. Það rak mjólkursamlag, sláturhús með kjötvinnslu og fjöl- breytta verslun á Húsavík og víðar á félagssvæðinu. Það var stærsti hlut- hafinn í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur og undir það síðasta hluthafi í ný- sköpunarfélaginu Aldin sem fram- leiddi vörur úr innfluttum trjám. Fé- lagið komst í greiðsluþrot á árinu 1999 og fékk heimild til greiðslu- stöðvunar. Enginn tapaði á uppgjörinu Allar eignir félagsins voru seldar og skuldir greiddar og það hætti starfsemi. Kaupfélag Eyfirðinga keypti mjólkursamlagið og slátur- húsið. Tryggvi Finnsson, sem sæti á í stjórn KÞ og er annar af tveimur lög- giltum skilanefndarmönnum félags- ins, segir að söluandvirði eignanna hafi nokkurn veginn dugað fyrir skuldum og enginn sem átti inni fé hjá félaginu hafi tapað á þessu skuldauppgjöri. Félagið hefur starfað síðan, án þess að hafa nokkra starfsemi. Tryggvi segir að það hafi staðið í fólki að leggja þetta fornfræga félag formlega niður. Komið hafi til tals að sameina það við KEA en ekki verið áhugi á því. Einnig hafi verið athug- að með að finna því annað hlutverk. Það hafi heldur ekki gengið upp. Segir hann erfitt að halda úti félagi nema félagsmennirnir hafi allir sömu hagmunina. Í KÞ eru á annað þúsund félagsmenn sem dreifðir eru um all- an heim. Töluverður kostnaður er við að halda úti félagi, halda þarf aðalfundi og auglýsa þá með ákveðnum hætti. Niðurstaðan varð að slíta félaginu og var það samþykkt á félagsfundum sem haldnir voru í mars og apríl sl. helgi@mbl.is Kaupfélagshúsið Aðal-versl- unarhús KÞ í miðbæ Húsavíkur. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al- þingis fundar áfram í dag um tillögu dómsmálaráðherra um skipan dóm- ara í væntanlegan Landsrétt. Njáll Trausti Friðbertsson, starfandi for- maður nefndarinnar, sagðist í gær- kvöldi eiga von á að niðurstaða fengist í dag. Stefnt er að þingslitum í kvöld. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundaði í gær um tillögu Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra til Al- þingis um skipun fimmtán dómara í Landsrétt. Ráðherra hyggst víkja frá tillögu sérstakrar dómnefndar um hæfi umsækjenda með því að skipa fjóra umsækjendur sem nefndin taldi ekki í hópi þeirra hæfustu. Deilt var um það í gær hvort ráð- herrann færi að lögum. Sigríður kom á fund stjórnskipun- ar- og eftirlitsnefndarinnar sem einn- ig kallaði til formann dómnefndarinn- ar, sérfræðinga í stjórnskipunarrétti og formenn Lögmannafélags Íslands og Dómarafélags Íslands. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, sem tekur þátt í störfum nefndarinn- ar í þessu máli, lagði til í gær að Al- þingi myndi fresta afgreiðslu tillög- unnar og óska eftir frekari gögnum. Ef greiða á atkvæði um tillögu ráð- herrans þarf það að gerast í dag. Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, segir stefnt að þingfrestun í dag. Í gær lauk umræðu um fjármála- áætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2018-2022 auk fjölmargra annarra mála en atvæðagreiðslu var frestað. Fundað var fram eftir kvöldi í gær- kvöldi og halda umræður áfram í dag og þá verða jafnframt greidd atkvæði um þau mál sem útrædd eru. helgi@mbl.is »38 Stefnt að þingfrestun í dag  Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur ekki lokið umræðu um tillögu ráðherra um skipan dómara í Landsrétt Landsréttur » Nýr áfrýjunardómstóll, Landsréttur, á að taka til starfa 10. janúar 2018. » Skipaðir verða 15 dómarar. 37 sóttu um embættin en þrír drógu umsóknir sínar til baka. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að rík- inu hafi verið óheimilt að skerða laun fimm ljósmæðra, sem störfuðu á Landspítalanum á því tímabili sem verkfallsaðgerðir Ljósmæðra- félags Íslands stóðu yfir árið 2015, með þeim hætti sem gert var. Rík- inu beri að greiða ljósmæðrunum fjárhæðir sem nema hinni ólög- mætu skerðingu ásamt drátt- arvöxtum, auk málskostnaðar. Dómur var kveðinn upp í málinu í gær af Ingiríði Lúðvíksdóttur, settum héraðsdómara. Fram kem- ur í frétt frá Bandalagi háskóla- manna (BHM) að héraðsdómur telji að aðferð ríkisins við að reikna út laun ljósmæðranna hafi hvorki staðist ákvæði kjarasamn- ings né meginreglur vinnuréttar. Ríkinu hafi borið að reikna þeim laun út frá því hversu hátt hlutfall vinnuskyldu sinnar þær inntu af hendi á verkfallstímanum. Störfin hafi verið unnin, vinnutímarnir inntir af hendi og fyrir það eigi að greiða laun, segir m.a. í niðurstöðu héraðsdóms skv. frétt BHM. Fall- ist er í einu og öllu á kröfur stefn- enda hvað varðar fjárhæðir van- goldinna launa og að auki er ríkið dæmt til að greiða hverri og einni þeirra 250 þúsund krónur í máls- kostnað. Dómurinn hefur fordæmisgildi „Ljóst er að niðurstaða héraðs- dóms hefur fordæmisgildi gagnvart öðrum ljósmæðrum sem sættu hlið- stæðum launaskerðingum og ljós- mæðurnar fimm sem höfðuðu mál- ið. Þá mun niðurstaðan hafa fordæmisgildi gagnvart öðrum fag- stéttum sem vinna vaktavinnu á Landspítala og sættu launaskerð- ingum líkt og ljósmæður í verkfall- inu árið 2015. Bandalag háskólamanna og hlut- aðeigandi stéttarfélög munu fylgja því fast eftir að félagsmenn sem brotið hefur verið á fái hlut sinn leiðréttan,“ segir í frétt BHM. Fallist á kröfur ljósmæðra  Ríkið greiði þeim vangoldin laun Morgunblaðið/Ómar Ljósmæður Frá verkfallinu 2015. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Í dag er síðasti dagur maímánaðar og mánuðurinn getur slegið tvö met. Hann getur orðið bæði hlýjasti og úrkomusamasti maímánuður á þessari öld. „Útlit er fyrir að maímánuður 2017 verði meðal þeirra hlýjustu frá því að mælingar hófust – en þó ekki methlýr. Hann á enn mögu- leika á að verða sá hlýjasti á öld- inni,“ segir Trausti Jónsson veð- urfræðingur á Moggablogginu. Landsmeðalhiti í byggð stendur nú í 7,3 stigum (gæti orðið 7,4), en á landsvísu varð hlýjast á öldinni (hingað til) í maí 2008, 7,2 stig, segir Trausti. Standi 7,3 stig þurfi að fara aftur til 1946 til að finna hærri tölu, 7,4 stig. Svo hlýtt varð 1946 – og einnig 1928. Enn hlýrra var í maí 1939 (7,5 stig) og 1935 (7,6 stig). „En þó að meti verði ekki náð er árangurinn samt mjög góður,“ segir Trausti. Á einstökum stöðvum er meðal- hiti það sem af er hæstur í Öræfa- sveitinni. Í Skaftafelli er hann 9,1 stig og 9,2 stig við Sandfell. Þegar einn dagur er eftir af mánuðinum hefur úrkoma í Reykja- vík mælst 80,3 millimetrar og hefur aðeins einu sinni mælst meiri í maí á öldinni að sögn Trausta. Mán- uðurinn á reyndar enn möguleika á að komast fram úr maí 2001 (87,1 mm), í maí 1999 mældist úrkoman 86,5 mm. En sé leitað lengra aftur kemur í ljós nokkur fjöldi úrkomu- samari mánaða. Maí 2001 er í 9. sæti og á toppnum er maí 1989, þegar úrkoma mánaðarins mældist 126,0 millimetrar. Á Akureyri er staðan nær meti – þar hafa nú mælst 57,6 millimetrar og hefur úrkoma í maí aðeins tvisv- ar mælst meiri, 1929 og 1985. Til að slá þau met þarf ekki mikið að bæt- ast við þennan sólarhring sem eftir er að sögn Trausta. Meðalvindhraði á landsvísu í maí er nú 5,4 m/s – það er í meira lagi en nokkuð frá meti. Vindur var sjónarmun meiri í maí 2015 og tals- vert meiri bæði 2011 og 2009. Maímánuður er í metaham Morgunblaðið/Ófeigur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.