Morgunblaðið - 31.05.2017, Síða 14

Morgunblaðið - 31.05.2017, Síða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Fyrir rúmum aldarfjórðungitefldi kanadískirithöfundurinn DouglasCoupland X-kynslóðinni fram á sjónarsviðið í fyrstu skáld- sögu sinni, Generation X: Tales for an Accelerated Culture. Nafnið vísar til kynslóðarinnar sem náði fullorð- insaldri seint á ní- unda áratugnum og er bókin talin hafa haft mikil áhrif á þann hóp fólks. Sagan fjallar um metn- aðarlaus en kald- rifjuð ungmenni sem sáu lítinn til- gang með lífinu, hlustuðu og dönsuðu við reiftónlist í stórum og hráum húsakynnum, höfðu annað gildismat en eldri kyn- slóðirnar og neyttu gjarnan alsælu. En enginn er ungur að eilífu og X-kynslóðin er nú komin á fimmtugs- og sextugsaldur. Eldri borgarar, eða svo gott sem, næsta kynslóð á eftir svokallaðri „baby boomers“-kynslóð eftirstríðsáranna. Ekki hefur farið mikið fyrir X- kynslóðinni í umræðunni undanfarið, enda var hún kannski óræð og óþekkt stærð sem lítið taldist hafa fram að færa, sinnulaus um umhverfi sitt, heimsmálin og annað slíkt. Nokkrum árum eftir útkomu bókar Couplands lýsti bandaríska tímaritið Rolling Stone menningu X- kynslóðarinnar sem ruslakistu; ófrumlegu samsulli af tónlist, list og tísku áranna á undan. Mitt á milli Hvernig svo sem X-kynslóðin er skilgreind er hún um margt ólík fyrr- nefndri „baby boomers“-kynslóð, sem ung þótti býsna uppreisnar- gjörn, og aldamótakynslóðinni sem er með alla þræði í hendi sér þegar tæknin er annars vegar. Og allir vita að tæknin er framtíðin. Tiffanie Darke kemur X-kyn- slóðinni, sem stundum er nefnd týnda kynslóðin, svolítið til varnar í nýútkominni bók sinni, Now We Are 40; Whatever Happened to Genera- tion X? Í viðtali í vefútgáfu BBC sagði hún að auglýsingabransinn væri gjörsamlega gagntekinn af „baby boomers“-kynslóðinni annars vegar og aldamótakynslóðinni hins vegar. Sem fjölmiðlamanneskja kvaðst hún þekkja vel til þar á bæ og X-kynslóðin væri tvímælalaust höfð út undan. Darke telur sig af þessari kyn- slóð og eins og var dæmigert fyrir X- kynslóðina vann hún láglaunastarf á pítsustað á árunum áður og safnaði fyrir ferðalagi um Indland. Hún seg- ir að X-kynslóðinni hafi þótt „glásaf- peningum“-menningin hallærisleg og frekar lagst í ferðalög til að víkka sjóndeildarhringinn, tekið skapandi störf fram yfir „uppaleg“, búið til reiftónlist og sumir hafi neytt alsælu eins og fyrr segir. Samkvæmt Darke virðist X-kynslóðin því hafa haft ákveðin viðmið og ekki verið alls varnað. Sjálf lifði hún og hrærðist í heimi reiftónlistarinnar, m.a. var hún á illræmdu helgarreifi í Worcester-skíri sem lögreglan leysti upp. „Þetta var svöl, uppreisn- argjörn menning byggð á frjáls- legum hugsunarhætti í anda jafn- réttis,“ segir Darke og bendir á að á þessum tíma, fyrir daga stafrænu byltingarinnar, hafi fólk raunveru- lega þurft að vera á staðnum til að upplifa andrúmsloftið. Hluti af kerfinu Í viðtalinu fer Darke um víðan völl, t.d. fullyrðir hún að aldamóta- kynslóðin sé í hrikalegri tilvistar- kreppu og „baby boomers“- kynslóðin, sem alla sína ævi hafi ver- ið í sama örugga starfinu, lifi nú á vænum eftirlaunum og hafi nægan tíma. Hún er þeirrar skoðunar að X- kynslóðin eigi að leggja sitt af mörk- um til að tengja aldamótakynslóðina og „baby boomers“, sérstaklega í ljósi þess að X-kynslóðin sé ekki lengur andsnúin hinum ráðandi öfl- um; kerfinu öðru nafni, heldur sé hluti af þeim. Skilaboð hennar eru að X-kynslóðin eigi að stuðla að umburðarlyndi. „Við verðum að muna eftir því sem var mikilvægt áð- ur en heimurinn varð stafrænn og snjallsímamenningin hóf innreið sína. Sjálf er ég eins sek og næsta manneskja, símarnir eru í senn heillandi og ávanabindandi, en það er nauðsynlegt að líta upp.“ BBC segir úttekt Darke á sögu X-kynslóðarinnar sannfærandi og setta fram af ástríðu. Heimssýn höfundarins Douglas Coupland er 55 ára og því með þeim elstu sem teljast geta til kynslóðarinnar sem hann kynnti til sögunnar á sínum tíma. Í nýlegu smásagnasafni sínu, Bit Rot, skrifar hann: „Þótt ég sakni stundum heil- ans sem ég hafði fyrir daga inter- netsins vildi ég sannarlega ekki hverfa aftur til þeirra tíma.“ Og þeg- ar BBC spurði hvort hann saknaði raunverulega einskis sagðist hann einfaldlega ekki muna það. „Stund- um get ég blekkt heilann með því að lesa bók og þannig talið mér trú um að ég lifi á 20. öldinni, en um leið og ég hætti að lesa er ég kominn aftur í nútímann,“ sagði hann. Rithöfundur- inn hljómar óneitanlega svolítið kald- rifjaður að meintum hætti X- kynslóðarinnar, eða a.m.k. eins og hún vildi vera þegar hún var og hét. Hvað varð um X-kynslóðina? Enginn er ungur að eilífu og X-kynslóðin er nú komin á fimmtugs- og sextugsaldur. Tímaritið Rolling Stone lýsti menningu þessarar kynslóðar á sínum tíma sem ruslakistu; ófrumlegu samsulli af tónlist, list og tísku áranna á undan. Rithöfundurinn Tiffanie Darke kem- ur kynslóð sinni til varnar í nýútkominni bók sinni, Now We Are 40; Whatever Happened to Generation X? Lífsstíllinn Kvikmyndin Reality Bites frá 1994 þykir fanga lífsstíl X-kynslóðarinnar. F.v. Ben Stiller, Winona Ryder og Ethan Hawke. Douglas Coupland VatnagarðarAtvinnuhúsnæði Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík Mjög gott 1.593 fm atvinnuhúsnæði á þessum vinsæla stað við Sundahöfn. Eignin stendur á 3.133 fm lóð með góðu útiplássi. Eignin skiptist í iðnaðarbil, skrifstofuaðstöður sem og verslunarfronta. Hægt að skipta eigninni upp í nokkur rými. Góð aðkoma. Eignin er mikið endurnýjuð og í góðu ástandi. Frekari upplysingar á www.lögheimili.is eða í síma 530 9000 lögheimili.is s. 530 9000
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.