Morgunblaðið - 31.05.2017, Page 25

Morgunblaðið - 31.05.2017, Page 25
Tengsl sjávarfangs við minnkaða áhættu krabbameina Krabbameinsfélagið býður upp á erindi um tengsl sjávar- fangs í mataræði við krabbamein. Kynningin er fimmtu- daginn 1. júní, frá kl. 12–12:40, í Háalofti í Hörpu. Fundarstjóri: Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS. Heilsusamlegir lífshættir draga úr líkum á krabbameini Valgerður Sigurðardóttir, krabbameinslæknir og formaður stjórnar Krabbameinsfélags Íslands. Rannsóknir hafa sýnt að draga megi úr líkum á krabbameini með hollri fæðu og daglegri hreyfingu. Fyrir Evrópubúa hefur verið áætlað að þeir sem tileinka sér heilsusamlega lífshætti geti minnkað líkur á krabbameini um allt að helming. Tengsl sjávarfangs og krabbameina Jóhanna E. Torfadóttir, löggiltur næringarfræðingur og doktor í lýðheilsuvísindum við Miðstöð lýðheilsuvísinda Háskóla Íslands. Jóhanna kynnir nýja skýrslu sem unnin var fyrir Krabbameinsfélagið. Þar er farið yfir helstu rannsóknir á tengslum fisk- neyslu við krabbameinsáhættu og framgang sjúkdómsins, með áherslu á krabbamein í brjóstum og blöðruhálskirtli. Fæðuvenjur á mismunandi æviskeiðum og áhætta á brjóstakrabbameini Álfheiður Haraldsdóttir, lýðheilsufræðingur og doktorsnemi í lýðheilsuvísindum. Álfheiður kynnir niðurstöður úr doktors- verkefni sínu, um áhrif íslensks matar- æðis á áhættu á brjóstakrabbameini. Fundurinn er öllum opinn og ókeypis. Skráðu þig gegnum krabb@krabb.is í síðasta lagi 31. maí. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Líklega er elsta íslenska skrofan fundin. Ingvar Atli Sigurðsson, for- stöðumaður Náttúrustofu Suður- lands, fór fyrstu ferð sumarsins á vit skrofanna í Ystakletti í Vestmanna- eyjum um síðustu helgi. Skrofuverk- efnið hófst 2006 og er það unnið í samstarfi við Jacob Gonzalez-Solis við Barselónaháskóla og Yann Kol- beinsson hjá Náttúrustofu Norð- austurlands. Ingvar náði nú skrofu sem Jóhann Óli Hilmarsson merkti sem fullorð- inn varpfugl 10. júní 1991, fyrir 26 árum. Skrofur byrja yfirleitt varp 6-7 ára gamlar og því er líklegt að fuglinn verði minnst 32 ára í sumar. „Samkvæmt upplýsingum frá Náttúrufræðistofnun Íslands var elsta íslenska skrofa sem vitað er um fugl sem merktur var 29. júlí 1974 og skotinn ólöglega 21. mars 1997, tæp- lega 23 árum síðar. Þessi nýi fugl er því að bæta íslenska aldursmetið um þrjú ár,“ segir í frétt á heimasíðu Náttúrustofunnar (nattsud.is). Dægurritar skrá ferðirnar Í vor náðust skrofur í öðrum hol- um en þeim sem þær hafa orpið í undanfarin ár. Ingvar sagði að ekk- ert hefði verið að holunum sem þær urpu í áður. „Sennilega hefur makinn drepist og skrofan fundið sér maka í næstu holu. Holurnar eru nálægt hver ann- arri og við erum með marga merkta fugla þarna. Það hefur gerst alla vega þrisvar að við höfum fengið merktan fugl sem hefur flutt í holu nálægt á þeirri þar sem hann bjó. Hann hefur þá líklega misst maka sinn og fundið sér nýjan maka í ná- lægri holu,“ sagði Ingvar. Í fyrrasumar voru dægurritar settir á 17 skrofur og verður reynt að endurheimta þá í sumar og lesa af þeim. Dægurriti er lítið tæki sem skráir sólarganginn. Gögnin gefa til kynna hvar hann hefur verið staddur á hverjum tíma, með undantekningu á jafndægri en þá eru gögnin óná- kvæm. Dægurritagögnin sýna að skrofan sé mjög langförul. Farleið hennar slagar upp í farflug kríunnar. Sumar skrofur fara alveg niður undir Eld- land, suðurodda Suður-Ameríku, en annars eru þær rétt við landamæri Brasilíu og Argentínu á veturna. Verpir bara í Vestmannaeyjum „Skrofan er lítið þekktur fugl og fæstir sjá hana. Hún verpir bara í Vestmannaeyjum hér á landi og það er nyrsta varp skrofunnar. Skrofan sést yfirleitt ekki á daginn nema hér utan við Ystaklett og fyrir utan Garðskaga þar sem hún er í fæðuöfl- un. Vestmannaeyjaskrofurnar taka hring um Reykjanesið og inn á Faxa- flóa,“ sagði Ingvar. Aðalfæða skrof- unnar eru krabbadýr, áta, í yfirborði sjávar. Stærsti hluti skrofustofnsins verpir á Bretlandseyjum. Hún verp- ir líka í Færeyjum og svo á Kanarí- eyjum, Madeira og Azor-eyjum. Í kringum 1990 var áætlað að hér yrpu um 6.000 skrofupör. Talið er að eitthvað hafi fækkað í stofninum. Stefnt er að því að telja skrofustofn- inn í sumar eða næsta sumar. Sumarið 2007 varð vart við að villi- köttur veiddi skrofur í Ystakletti. Það var læða sem hafði gotið 5-6 kettlingum í holu skrofu sem var með tæki frá Náttúrustofunni. Fugl- inn hefur ekki sést síðan. Kötturinn settist að í holunni og veiddi sér og kettlingunum til matar. Ingvar sagð- ist stundum hafa séð villiketti í Ysta- kletti síðan en ekki hefði orðið vart mikils fugladauða af þeirra völdum. Einstæðar ná í nýja maka  Elsta íslenska skrofan líklega fundin  Farflug skrofu slagar upp í flug kríu Ljósmynd/Ingvar A. Sigurðsson Í Ystakletti Ingvar A. Sigurðsson með skrofu. Vestmannaeyjar eru nyrsti varpstaður skrofunnar. Í vor var handsömuð skrofa sem líklega er 32 ára. Ljósmynd/Ingvar A. Sigurðsson Skrofuflug Myndin sýnir nánast óyfirfarin gögn úr dægurrita skrofu. Óná- kvæm gögn frá fjórum vikum í kringum jafndægur á vori og hausti voru fjarlægð. Dægurritinn skráir birtu og tíma og þannig fæst staðsetning. FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 Bjarni Bene- diktsson for- sætisráðherra hefur und- anfarna daga átt tvíhliða fundi með forsætis- ráðherrum hinna norrænu ríkjanna í tengslum við sumarfund ráð- herranna sem haldinn hefur verið í Bergen í Noregi. Skiptust ráðherrarnir á upplýs- ingum varðandi stöðu efnahags- mála, vinnumarkað, málefni tengd ferðaþjónustu, auk innflytj- enda- og hælisleitendamála. Þá var útganga Bretlands úr Evr- ópusambandinu einnig rædd, sem og nýafstaðinn leiðtogafundur NATO í Brussel. Í gær kynntu forsætisráðherr- arnir verkefnið „Norrænar lausn- ir á hnattrænum viðfangsefnum“ en verkefnið byggist á norrænum lausnum við alþjóðlegum áskor- unum. Sömuleiðis sátu ráðherrarnir fund með forseta Norður- landaráðs og framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar þar sem málefni Norðurlanda voru rædd, sem og hugmyndir um eflingu norræns samstarfs. Tvíhliða viðræður í tengslum við fund forsætisráðherra Norðurlanda Bjarni Benediktsson Þjóðaröryggi í nýju ljósi er yfir- skrift erindis sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráð- herra flytur á fundi Varðbergs, félags um vest- ræna samvinnu og alþjóðamál, á morgun, fimmtudaginn 1. júní kl. 12- 13 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns- ins. Í tilkynningu segir að á undan- förnum þremur árum hafi orðið breytingar í öryggismálum í Evr- ópu. Innan NATO beinist athygli að öryggi á N-Atlantshafi að nýju. Utanríkisráðherra á Varðbergsfundi Guðlaugur Þór Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.