Morgunblaðið - 31.05.2017, Side 36
36 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni@hitataekni.is
hitataekni.is
ótorlokar
ir allar stærðir kerfa.
tum einnig boðið mótorloka
llar algengustu gerðir loka
frá öðrum framleiðendum.
Gæðamótorlokar
frá Sviss
M
fyr
Ge
á a
Geimfarinn Thomas Pesquet frá Frakklandi
ræddi í gær við fréttaveitu AFP, en hann er nú
staddur um borð í alþjóðlegu geimstöðinni sem
hringsólar á sporbraut um jörðu. Sagði hann
áhorfendum meðal annars frá lífinu um borð í
geimstöðinni og helstu verkefnum leiðangursins
til þessa, en hann hefur t.a.m. þurft að sinna
minniháttar viðhaldsaðgerðum og lagt á sig
langar geimgöngur til að ljúka verkinu. Pesquet
er væntanlegur aftur heim til jarðar 2. júní næst-
komandi og hefur hann þá verið í geimstöðinni í
um sex mánuði samfleytt.
Í sjónvarpsviðtali á sporbraut um jörðu
AFP
Geimfarinn franski væntanlegur til jarðar fyrir helgi
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Um 30 eru látnir og rúmlega 100
særðir eftir tvær öflugar sprenging-
ar í Bagdad, höfuðborg Írak. Í fyrri
sprengingunni létust 16 almennir
borgarar þegar sjálfsvígssprengju-
maður sprengdi sig í loft upp við vin-
sæla ísbúð, en seinni sprengingin
kvað við þegar bílsprengja sprakk á
brú. Þar létust minnst 11 manns.
Að sögn fréttaveitu AFP hafa
hryðjuverkasamtökin Ríki íslams
lýst yfir ábyrgð á báðum ódæðum.
Sá er sprengdi sprengju sína við
ísbúðina er sagður hafa verið íraskur
ríkisborgari og ók hann bifreið fullri
af sprengiefni upp að versluninni,
sem er í hverfinu Karrada í miðborg
Bagdad. Minnst 16 eru sagðir hafa
týnt lífi í árásinni og um 75 eru særð-
ir, sumir hverjir lífshættulega. Gæti
tala látinna því haldið áfram að
hækka á næstu dögum.
Öryggismyndavélar nærliggjandi
verslana náðu atburðarásinni á
myndband. Þar sést bifreiðinni ekið
að ísbúðinni, þar sem hún springur í
loft upp skömmu síðar. Þá sést einn-
ig í myndavélunum þegar húsarústir
og annað brak þeytist langar leiðir.
Staðið með Írökum gegn illsku
Brett McGurk, fyrrverandi sér-
fræðingur Hvíta hússins í málefnum
Ríkis íslams og núverandi ráðgjafi
bandalagssveita, fordæmir árásirnar
og segir bandalagsþjóðir standa með
írösku þjóðinni. „Vígamenn Ríkis ísl-
ams hafa nú gert árás á börn og fjöl-
skyldur sem nutu þess að eiga sam-
verustund í ísbúð. Við stöndum með
Írökum gegn þessari illsku,“ ritaði
McGurk í færslu á Twitter.
Þá létust í þessu sama hverfi í
fyrra yfir 320 manns í fjölmörgum
árásum vígamanna Ríkis íslams.
Sjálfsvígsárásir á íbúa Bagdad
Um 30 almennir borgarar eru sagðir hafa fallið í tveimur sprengingum í írösku höfuðborginni
Rúmlega 100 manns eru særðir, sumir hverjir lífshættulega Önnur árásin gerð við vinsæla ísbúð
AFP
Vígvöllur Hart er nú barist um borgina Mosúl, norður af höfuðborginni.
„Norður-Kórea hefur útbúið flaugina þannig að hún hef-
ur nú nákvæmari stýribúnað. Það má því nota þessa skot-
flaug til þess að granda skipum,“ segir Ju-Min Park,
fréttamaður Reuters í Seúl í Suður-Kóreu, og vísar til
þess þegar norðurkóreskar sveitir skutu á loft eldflaug
við upphaf þessarar viku. Er það þriðja eldflaugatilraun
ráðamanna í Pjongjang á jafnmörgum vikum.
Norðanmenn hafa undanfarið lagt mikið kapp á til-
raunir sínar og þróun á nákvæmari stýribúnaði til að
beina flaugum sínum að hugsanlegu skotmarki. Park
segir tilraunina á mánudag vera dæmi um slíka prófun.
Kim Jong-un, leiðtogi landsins, segir tilraunina hafa
verið mikilvægan lið í að þróa getu til að senda „Kön-
unum stærri pakka“ og vísar þar til þróunar á lang-
drægum kjarnavopnum sem hitt geta skotmörk í Banda-
ríkjunum.
Tilraunin liður í að senda
„Könunum stærri pakka“
Norður-Kóreumenn þróa
nákvæmari stýribúnað
AFP
Skotflaug Ríkisfréttastofan KCNA í Norður-Kóreu
sendi þessa mynd af tilraunaskotinu í vikunni.
Óttast er að
minnst 16 hafi
látið lífið og
nærri 170 slasast
í miklu óveðri
sem gekk yfir
Moskvu, höfuð-
borg Rússlands.
Breska ríkis-
útvarpið (BBC)
og CNN vestan-
hafs greina frá
því að mörg þúsund tré hafi rifnað
upp með rótum eða brotnað í veður-
ofsanum og fjölmargar byggingar
hafi skemmst, en þetta er mann-
skæðasta veður sem gengið hefur
yfir þar í 100 ár.
Mannskætt óveður
gekk yfir höfuðborg
Rússlands
Kona gengur um
stræti Moskvu.
Þýska lögreglan
hefur handtekið
17 ára gamlan
hælisleitanda frá
Sýrlandi sem
sagður er hafa
verið að skipu-
leggja hryðjuverk
í Berlín. Pilturinn
var handtekinn í
Uckermark,
skammt frá hinu
sögufræga Brandenborgarhliði í
miðborg Berlínar.
Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir
frá því að pilturinn hafi komið sem
hælisleitandi til Þýskalands árið
2015.
Hælisleitandi lagði á
ráðin um hryðjuverk
Maðurinn var hand-
tekinn í Berlín.
Í Mosúl-borg, sem finna má
norður af írösku höfuðborginni
Bagdad, eiga stjórnarhermenn í
hörðum átökum við vígasveitir
Ríkis íslams. Er einna harðast
barist um vesturhluta borgar-
innar og þurfa hermenn m.a. að
takast á við leyniskyttur og
-sprengjur. Líf og heilsa hundr-
aða þúsunda íbúa er nú sagt
vera í hættu vegna átakanna.
Enn barist af
mikilli hörku
MOSÚL