Morgunblaðið - 31.05.2017, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Óhugnað-arverkin íManchester
urðu til þess að hlé
var gert á kosn-
ingabaráttu í Bret-
landi. Nú er aðeins rúm vika í
kosningar og baráttan komin á
fullt skrið. Forystumenn
stjórnmálaflokkanna forðuðust
eðlilega allar spurningar um
hver væru líkleg áhrif atburð-
anna á niðurstöðu kosning-
anna. Nokkrir fréttaskýrendur
töldu sig hafa meira svigrúm
og svöruðu spurningum um
efnið. Þeim bar saman um að
þessir atburðir væru líklegir
til að styrkja stöðu May for-
sætisráðherra. Hún væri
ímynd stöðugleikans á meðan
andstæðingurinn Corbyn, leið-
togi Verkamannaflokksins,
þætti vaklandi og veikur leið-
togi og með dapra ímynd sem
gæslumaður laga og réttar.
Það kom því á óvart þegar
fyrstu kannanir eftir árásirnar
virtust sýna að bilið á milli
stærstu flokkanna hefði
minnkað mjög verulega.
Greinendur gáfu þær skýr-
ingar á þessu að forsætisráð-
herrann, sem áður hafði gegnt
embætti innanríkisráðherra,
með öryggis- og lögreglumál á
sínu forræði, bæri óskil-
greinda sök á því að illvirkj-
anum hefði tekist ætlunarverk
sitt. Það ýtti undir vangavelt-
ur af þessum toga að upplýst
var að yfirvöld höfðu vitað sitt-
hvað um tilræðismanninn.
Hann hefði þannig farið til
Líbíu og Sýrlands. Þá hefði
trúarleiðtogi þess safnaðar
múslima þar sem Salman
Abedi iðkaði trú sína bent lög-
reglu á að hafa gætur á hon-
um.
Samherjar forsætisráð-
herrans binda von-
ir sínar við að
þetta hafi verið
fyrstu viðbrögð og
þá hafi reiði skilj-
anlega blandast
við harm og sorg. En kjós-
endur þyrftu að horfa á ný til
þess hver væri líklegur til að
tryggja mest öryggi í Bret-
landi og þá myndi staða May
forsætisráðherra taka að
styrkjast.
Síðasta vika var Jeremy
Corbyn ekki til framdráttar og
hann þótti gera mörg mistök
og andstæðingarnir hömruðu
um leið á samstarfi hans og
samúð með hryðjuverkamönn-
um Írska lýðveldishersins á
sínum tíma. Skömmu fyrir
ódæðið hafði May hins vegar
átt við mótbyr að búa vegna
mistaka við stefnumörkun
varðandi eftirlaunaþega. Mis-
tökin þóttu svo stjórnmálalega
alvarleg að forsætisráð-
herrann taldi sig ekki eiga
annan kost en að kúvenda í
málinu. Það skaðaði trúverð-
ugleika hennar verulega. Það
mál hvarf á augabragði í
mökkinn sem lagði um allt
Bretland frá tónleikahöllinni í
Manchester.
Einn af stjórnmálaskrif-
urum The Telegraph, sem hall-
ar sér oftast í átt að Íhalds-
flokknum fyrir kosningar, gaf í
gær út aðvörun um að vart
væri að treysta því að mat al-
mennings á Jeremy Corbyn
sem leiðtoga myndi sjálfkrafa
tryggja forsætisráðherranum
góð úrslit. Sá sagði sem svo:
„Theresa May byggir allt sitt á
því að höfuðandstæðingurinn,
Jeremy Corbyn, sé ókjós-
anlegur. Sú var einnig sann-
færing Hillary Clinton varð-
andi sinn andstæðing.“!
Vika er til kosninga
í Bretlandi og
óvissan vex}
Úrslit óljósari en áður
Það er ekki að-eins að borg-
arlínan svokallaða
muni kosta tugi
eða hundruð millj-
arða króna. Það
væri svo sem nógu slæmt fyrir
skattgreiðendur, sem óhjá-
kvæmilega fá að borga brús-
ann þrátt fyrir að hafa flestir
sýnt í verki að þeir vilja frekar
ferðast sjálfir á bíl en með al-
menningssamgöngum.
Fleira gerir borgarlínu-
hugmyndina þó undarlega,
ekki síst að hún snýst að öllum
líkindum um úrelta tækni. Ey-
þór Arnalds kom inn á þetta á
fundi Framfarafélagsins um
daginn og benti þar á að sjálf-
keyrandi bílar væru þegar
tæknilegur möguleiki og yrðu
ekki minni breyting en snjall-
síminn. Sjálfkeyrandi bíllinn
muni „stytta farartíma og gera
okkur kleift að
vera frjálsari, nýta
bílastæði betur og
fækka slysum. Á
sama tíma og
heimurinn er að
búa sig undir sjálfkeyrandi
bíla er hér rætt um að byggja
línur og nota lestir. Lína og
lest er eins og ritsíminn. Það
er lína frá einum stað til ann-
ars. Ekkert annað. Bíllinn er
eins og internetið. Þú ferð
þangað sem þú ætlar þér. Lín-
an er 19. aldar hugmynd. Rit-
síminn og lestin eru 19. aldar
hugmyndir. Bíllinn er 20. ald-
ar hugmynd. Sjálfkeyrandi
bíllinn er 21. aldar hugmynd.
Við getum ekki annað en
skipulagt okkur fyrir þessa
öld. Annað er tímaskekkja.“
Er ekki tímabært að borgar-
yfirvöld fikri sig inn í nýja
öld?
Borgarlínan er úrelt
áður en byrjað er að
leggja teinana}
Tímaskekkja
Þ
að hefur læðst að mér sá grunur að
það væri eitthvað einstaklega
óheilt á bak við öll þessi vinnu-
brögð,“ sagði Kristinn Hrafnsson,
fyrrverandi talsmaður Wikileaks
og samstarfsmaður Julian Assange Wikileaks-
stjóra, í viðtali við mbl.is um daginn og átti þar
við þá ákvörðum sænskra yfirvalda að reyna að
sækja Assange til saka fyrir þvingun, kynferð-
islegt áreiti, kynferðislega misbeitingu og
nauðgun haustið 2010.
Til að komast undan réttvísinni forðaði Ass-
ange sér úr landi fyrir hálfu sjöunda ári, hélt til
Bretlands og þegar réttvísin sótti að honum
þar stökk hann í ekvadoríska sendiráðið, leitaði
skjóls hjá alþekktum óþokka, Rafael Correa,
sem var forseti Ekvador á þeim tíma og frægur
fyrir skerðingu tjáningarfrelsi íbúa landsins og
árásir á blaðamenn. Í sendiráðinu hefur Assange svo setið
og situr enn, búinn að bíða af sér fyrningu á þeim sökum
sem á hann hafa verið bornar. Þrennt er þegar fyrnt,
þvingun, kynferðislegt áreiti og kynferðisleg misbeiting,
en eftir stendur meint nauðgun.
Viðtalið við Kristin Hrafnsson sem vísað er til í upphafi
var einmitt tekið vegna þess að sænsk yfirvöld hafa fallið
frá rannsókn á nauðgunarákærunni, ekki vegna þess að
þau telji Assange saklausan, heldur vegna þess að útséð sé
með að hægt verði að rannsaka málið, ekki síst vegna
tregðu ekvadorískra stjórnvalda, að því fram kom á blaða-
mannafundi Marianne Ny í Stokkhólmi um daginn.
Við leit í greinasafni Morgunblaðsins sé ég
að þetta er fimmta greinin sem ég skrifa um
ódáminn Assange, ódám vegna þess að maður
sem beitir konur þvingun, kynferðislegu áreiti
og kynferðislegri misbeitingu er ódámur, hvað
þá ef hann er líka sekur um nauðgun. Það sem
helst hefur vakið gremju mína og verið for-
vitnilegast í þessi málavafstri öllu, sem er þó
hugsanlega ekki lokið – nauðgun fyrnist á tíu
árum í Svíþjóð – hefur verið að fylgjast með
því hvernig allskyns fólk sem maður hefði talið
vel gefið og meinandi, jafnvel fólk sem barist
hefur fyrir kynfrelsi kvenna í orði, hefur leynt
og ljóst stutt þá ákvörðun Assange að flýja
undan réttvísinni. Fjölmargir hafa þannig gert
lítið úr meintum brotum hans, farið háðulegum
orðum um konurnar sem koma við sögu, kallað
þær lauslátar druslur og gert lítið úr þeim,
aukinheldur sem sumir hafa lýst því að það sem hann sé
sakaður um sé í raun hefðbundið kynlíf (nánast eins og
ástarsaga að mati aðstoðarmanns Correa).
Í viðtölum hefur sænskur lögmaður Assange einnig
drepið málinu á dreif, farið með ósannindi og útúrsnún-
inga, sem hann fær vissulega borgað fyrir (vitnisburður
hans fyrir enskum friðdómara í febrúar 2011 er sannar-
lega makalaus lesning), og eins talsmenn Assange, ís-
lenskir sem erlendir, en þeir fá einmitt líka borgað fyrir
slíka iðju. Það hefur læðst að mér sá grunur að það sé eitt-
hvað einstaklega óheilt á bak við slík vinnubrögð.
arnim@mbl.is
Árni
Matthíasson
Pistill
Ódámurinn Assange
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Ég er ósammála matidómnefndarinnar á vægieinstakra matsþátta engeri ekki athugasemd við
rannsókn eða vinnu nefndarinnar
sem slíka. Þvert á móti legg ég til
grundvallar vinnu nefndarinnar,“
segir Sigríður Á. Andersen dóms-
málaráðherra, en deilt hefur verið um
það hvort ráðherra geti vikið frá til-
nefningum dómnefndar vegna skip-
unar í embætti fimmtán dómara við
Landsrétt, þar sem tillögur Sigríðar
til Alþingis eru aðrar en dómnefndar.
Í rökstuðningi ráðherra víkur
hún m.a. að ólíku mati sínu og dóm-
nefndar er varðar störf dómara í
samanburði við önnur störf, en orð-
rétt segir í rökstuðningi hennar:
„Ef lögð er saman reynsla af
fræðistörfum og kennslu ásamt
menntun þá vegur það jafn þungt og
þrír fyrrgreindu þættirnir. Þrír mats-
þættir, sem sérstaklega er vikið að í
reglum nr. 620/2010, eru hins vegar
látnir liggja milli hluta með því að
gera ekki upp á milli umsækjenda
hvað þá þætti varðar. Um er að ræða
matsþætti er lúta að stjórn þing-
halda, samningu og ritun dóma og al-
menna starfshæfni. Með því að gera
ekki tilraun til þess að leggja tvo fyrr-
nefndu þættina til grundvallar heild-
armati verður ekki annað ráðið en að
reynsla dómara fái ekki það vægi sem
tilefni er til og gert er ráð fyrir í
reglum nr. 620/2010. Þá verður ekki
fram hjá því litið, og sem m.a. kom
fram í andmælum tveggja umsækj-
enda, að möguleikum dómara til að
afla sér reynslu með aukastörfum eru
verulegar skorður reistar með lög-
um.“
Sigríður segir að við nánari
skoðun málsins sé ekki hægt að kom-
ast að sömu niðurstöðu og dómnefnd-
in, þ.e. að eingöngu 15 væru hæfastir
í þessi 15 embætti. „Ég tel að fleiri
ættu að vera í þessum hópi og vísa
þar sérstaklega til allra þeirra með
dómarareynslu.“
Deilt um heimild ráðherra
Ástráður Haraldsson, hæsta-
réttarlögmaður og einn umsækjenda
um starf dómara við Landsrétt, telur
tilraun Sigríðar til að afla sér heim-
ildar Alþingis með tillögu sinni til
skipunar í embætti 15 dómara í
Landsrétt vera ólögmæta embætt-
isfærslu. Í bréfi, sem Ástráður ritaði
forseta Alþingis segir hann að þau
frávik sem ráðherra geri á tillögu
dómnefndarinnar uppfylli á engan
hátt kröfur sem gera verði varðandi
skipan dómara og sem umboðsmaður
Alþingis og dómstólar hafi lagt til
grundvallar. Rökstuðningur ráðherra
geti ekki verið á almennum nótum,
eða tekið til hóps manna sameig-
inlega líkt og ráðherra hafi nú gert.
„Ráðherra verður að rökstyðja
sérstaklega fyrir hvern nafngreindan
umsækjanda sem dómnefnd hefur
talið hæfastan hvers vegna ráðherra
leggur til að viðkomandi verði ekki
skipaður og gera rökstudda tillögu
um annan nafngreindan umsækjanda
í staðinn,“ segir í bréfi Ástráðs.
Túlkun Ástráðs gerir að sögn
Sigríðar ákvæði dómstólalaga mark-
laust en það heimilar ráðherra að
víkja frá tillögu dómnefndar um þann
sem þar er metinn hæfastur í emb-
ætti ef Alþingi samþykkir tillögu ráð-
herra um heimild til að skipa í emb-
ætti aðra sem uppfylla að mati
dómnefndar almenn hæfisskilyrði.
„Ráðherra á ekki að þurfa að
rökstyðja sérstaklega menn út eða
inn af einhverjum lista. Allir umsækj-
endur uppfylla almenn hæfisskilyrði
og byggt er á vinnu nefndarinnar við
val á umsækjendum,“ segir Sigríður.
Ráðherra ósammála
mati dómnefndar
Morgunblaðið/Golli
Eldhúsdagur Ráðherrarnir Sigríður Á. Andersen og Jón Gunnarsson og
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, við umræður á Alþingi í fyrrakvöld.
Í 4. gr. a dómstólalaga sem deilt er um segir að óheimilt er að skipa í
dómaraembætti mann sem dómnefnd hefur ekki talið hæfastan meðal
umsækjenda, hvort heldur einn eða samhliða öðrum. Frá þessu má þó
víkja ef Alþingi samþykkir tillögu ráðherra um heimild til að skipa í emb-
ættið annan nafngreindan umsækjanda sem fullnægir að mati dóm-
nefndar öllum almennum skilyrðum. Ráðherra skal þá leggja slíka tillögu
fyrir Alþingi innan tveggja vikna frá því að umsögn dómnefndar er afhent
honum eða innan þess tíma frá því að Alþingi kemur næst saman eftir að
umsögn er fengin. Tillaga Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra hefur
nú verið afhent forseta Alþingis.
Ákvæðið sem deilt er um
DÓMSTÓLALÖG