Morgunblaðið - 31.05.2017, Page 39

Morgunblaðið - 31.05.2017, Page 39
39 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 Á vit ævintýra Ferðamaður á gangi í miðbæ Reykjavíkur með ýmislegt íslenskt og gott í farteskinu, vel skóaður og tilbúinn í ævintýraferð um Ísland í sumarsins algræna skrúða. Hanna Félagshyggjumenn, vinstrimenn, sósíalist- ar eða hvað þeir kallast sem hafa meiri trú á ríkinu en einstaklingn- um hafa alltaf átt erfitt með að skilja samspilið milli hagsældar og hvata einstaklingsins til að afla sér tekna og skapa eitthvað nýtt. Ríkissinnar hafa ekki áttað sig á að ofstjórn og óstjórn eru tvíburasyst- ur og fátækt er frænka þeirra. Hugmyndafræði vinstrimanna hefur komið ágætlega í ljós við um- ræður um fjármálaáætlun 2018 til 2022, sem verður afgreidd á Alþingi í dag, gangi starfsáætlun þingsins eftir. Áætlunin gerir ráð fyrir að skatttekjur ríkisins verði um 185 milljörðum króna hærri árið 2022 en á þessu ári. Heildartekjur verða 222 milljörðum hærri. Hækkun skatt- tekna kemur að mestu fram annars vegar í sköttum af vöru og þjónustu, eða 105 milljarðar, og hins vegar tekjusköttum, sem áætlað er að skili 76 milljörðum meira árið 2022 en í ár. Þessi mikla hækkun skatttekna sem endurspeglar vöxt efnahagslífs- ins er ekki nægjanleg í hugum margra þingmanna. Þeir vilja ganga lengra jafnt í skattheimtu og í út- gjöldum. Og það er töluverð sam- keppni meðal vinstrimanna. Fjórar milljónir á fjölskyldu Samfylkingin hefur lagt fram breytingatillögu við fjármálaáætl- unina sem gerir ráð fyrir að skatta- og eignatekjur verði 31 til 52 milljörðum króna hærri á ári. Í heild telja Samfylkingarmenn rétt að auka skatt- heimtuna um 236 millj- arða á fimm ára tíma- bili. En tillögurnar eru nálægt því að vera hóf- samar í samanburði við hugmyndir Vinstri grænna, sem eru harð- ir á því að hækka skatta um nær 334 milljarða, króna, eða um 53 til 75 milljarða á ári. Hvernig þessari auknu skattheimtu verður háttað er óljóst. Það eina sem hægt er að segja með fullvissu er að tillögur Vinstri grænna fela í sér að aukna skattheimtu sem jafngildir um fjór- um milljónum króna á hverja fjög- urra manna fjölskyldu á fimm árum, umfram það sem fjölskyldurnar þurfa að bera að óbreyttu. Að minnsta kosti tveir fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna hefðu átt erfitt með að skilja hugmyndafræði íslenskra vinstrimanna og stefnu þeirra í skattamálum og harða sam- keppni; John F. Kennedy og Ronald Reagan. Reagan hélt því fram að því hærri sem skattarnir væru, því minni hvata hefði fólk til að vinna og afla sér aukinna tekna. Lægri skattar gæfu almenningi tækifæri til auk- innar neyslu og meiri sparnaðar, hvatinn til að leggja meira á sig og afla tekna yrði eldsneyti hagkerfis- ins. „Niðurstaðan,“ sagði Reagan, er „meiri hagsæld fyrir alla og auknar tekjur fyrir ríkissjóð.“ Hugmynda- fræði Reagans var sú sama og John F. Kennedy kynnti um þremur ára- tugum fyrr. Repúblikaninn sótti í smiðju demókratans, sem margir ís- lenskir vinstrimenn hafa haft í há- vegum í liðlega hálfa öld. Mótsagnakenndur sannleikur Á blaðamannafundi í nóvember 1960 sagði Kennedy: „Það er mótsagnakenndur sann- leikur að skattar eru of háir og skatttekjur of lágar og að til lengri tíma litið er lækkun skatta besta leiðin til að auka tekjurnar.“ Kennedy lagði áherslu á að lækk- un skatta yrði til þess að auka ráð- stöfunarfé heimilanna og hagnað fyrirtækja og þar með kæmist jafn- vægi á ríkisfjármálin með hækkandi skatttekjum. Á fundi félags hag- fræðinga í New York árið 1962 sagði forsetinn meðal annars: „Efnahagskerfi sem er þrúgað af háum sköttum mun aldrei skila nægilegum tekjum til að jafnvægi náist í ríkisfjármálum, alveg eins og það mun aldrei búa til nægilegan hagvöxt eða nægilega mörg störf.“ Efnahagsstefnan bar árangur. Á fjórum árum, frá því að John F. Kennedy tók við forsetaembættinu, jókst landsframleiðslan í Bandaríkj- unum meira en hún hafði gert á átta árum þar á undan. Verðbólga hélst lág og atvinnuleysi snarminnkaði. Hagvaxtarskeiðið sem hinn ungu forseti lagði grunninn að stóð fram til 1970. Sameiginleg hugmyndafræði Síðasta mánudag var öld liðin frá því að John F. Kennedy fæddist í Brookline í Massachusetts í Banda- ríkjunum. Hann var kjörinn 35. for- seti Bandaríkjanna og tók við emb- ætti í janúar 1961, þá rétt tæplega 44 ára. Óhætt er að halda því fram að fáir stjórnmálamenn 20. aldar- innar hafi haft meiri útgeislun og áhrif á tímum mikilla umróta. Enn í dag veitir hann ungu fólki jafnt þeim sem eldri eru innblástur. John F. Kennedy var „haukur“ í utanríkismálum, andkommúnisti, baráttumaður frelsis og jafnréttis. JFK, eins og hann var oft kallaður, skildi samspil velmegunar og skatta. Hann gerði sér grein fyrir því að bætt lífskjör verða ekki sótt annað en í aukna verðmætasköpun – hag- vöxt. Ég get haft á því nokkurn skilning að íslenskir vinstrimenn vilji ekki taka Ronald Reagan sér til fyrir- myndar. En a.m.k. einhverjir þeirra gætu farið í smiðju JFK. Við hægri- menn eigum að skilja sameiginlega hugmyndafræði þessara tveggja for- seta, en mörgum okkar virðist erfitt að muna eftir henni eða erum af ein- hverjum ástæðum ekki reiðubúnir til að vinna henni brautargengi. Eftir Óla Björn Kárason » JFK skildi samspil velmegunar og skatta. Hann gerði sér grein fyrir því að bætt lífskjör verða ekki sótt annað en í aukna verð- mætasköpun – hagvöxt. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Kennedy, Reagan og íslenskir vinstrimenn Forsetar John F. Kennedy og Ronald Reagan hefðu átt erfitt með að skilja hugmyndafræði íslenskra vinstrimanna og stefnu þeirra í skattamálum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.