Morgunblaðið - 31.05.2017, Síða 43

Morgunblaðið - 31.05.2017, Síða 43
UMRÆÐAN 43 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 Baldur Eyþórsson, prentsmiðjustjóri í Odda, var fæddur í Vest- mannaeyjum 2. sept- ember 1917. Í tilefni af aldarafmæli hans er hér í fáum orðum rifjuð upp saga þessa manns sem hafði umtalsverð áhrif á samtíma sinn og þróun prentiðnaðar á Íslandi. En hann var sömuleiðis frumkvöðull í stjórnun með stjórnunarstíl sem nú hefur rutt sér til rúms undir heitinu þjónandi forysta. Þjónandi forysta fyrir 80 árum Baldur var atkvæðamikill í starfi fyrir HÍP, stéttarfélagi prentara, og gerðist síðar atvinnurekandi og for- maður í Félagi íslenskra prent- smiðjueigenda. Hann sat einnig í stjórnum Búnaðarbankans, Áburð- arverksmiðjunnar og Iðnskólans. Svanur Jóhannesson kynntist Baldri, en þeir mættust í samninga- viðræðum oftar en einusinni, t.a.m. árið 1966 þegar samið var um 40 stunda vinnuviku. Sennilega voru þetta einhverjir bestu samningar sem gerðir voru um þær mundir og það á undan öllum öðrum verkalýðs- félögum. Svanur telur að aðrir hafi fengið þessa samninga á silfurfati ár- ið 1972 með lögum. „Baldur var alltaf mjög fastur fyrir, en hann var mjög stéttvís maður,“ segir Svanur. Baldur var á þeim tíma formaður Félags ís- lenskra prentsmiðjueigenda en Svan- ur í forsvari bókagerðarmanna. Þetta voru ekki auðveldir samningar en með samvinnu allra sem hlut áttu að máli tókust þeir afspyrnu vel og fleiri nutu góðs af. Baldur lagði alla tíð mikla áherslu á að velja starfsmenn sína af kost- gæfni og ef marka má hina fjölmörgu sem áttu í samskiptum við hann virð- ist hann hafa viðhaft það sem nú nefnist þjónandi forysta og er talin skilvirkasta stjórnunaraðferðin. Í því felst að taka persónum mjúklega en verkefnum af festu. Hann var auð- mjúkur leiðtogi og hafði þann stjórn- unarstíl að starfsmenn hans lögðu töluvert á sig til að standast vænt- ingar. Lúther Jónsson sem starfaði undir stjórn Baldurs í 43 ár segir: „Mér líkaði bara svo vel í Odda því þar var alltaf það nýjasta að gerast í bransanum. Oddi var nefnilega alltaf skrefinu á undan.“ Lúther hafði upp- haflega verið að vinna á Þjóðviljanum og hafði ekki hugsað sér að fara að vinna fyrir eitthvert kratafyrirtæki. En Baldur hafði heyrt vel af honum látið og var mikið í mun að fá hann til liðs við sig. „Baldur var geysilega mikill mannþekkjari og hafði mikla náttúrugreind,“ segir Lúther. Baldur var fenginn ásamt Ásgeiri Jóhannessyni til að reka Alþýðublað- ið árið 1963 þegar illa áraði fyrir blað- ið og nauðsynlegt reyndist að taka til hendinni. Ásgeir segir um Baldur: „Öllum þótti augljóslega vænt um Baldur, hann var þannig manneskja. Síðar mætti ég honum á öðrum vett- vangi þegar hann var formaður Fé- lags prentsmiðjueigenda, FÍP, sem var á sínum tíma nokkurs konar aka- demía. Þar stjórnaði Baldur af skör- Frumkvöðull í stjórnun – á undan sinni samtíð ungsskap og ég dáðist að honum því hann hafði fullkomið vald á þessu hlutverki. Eitt af því sem var eftirtektarvert við Baldur var að hann hélt hlut meðeigenda sinna að Prentsmiðjunni Odda á lofti og margtók fram að hann ætti ekki einn heið- urinn af því að fyrirtækið gekk svo vel. Þar ættu starfsmenn auk þess mikinn heiður skilinn.“ Kunni kúnstina að snerta Grímur Kolbeinsson var starfs- maður Baldurs um áratuga skeið. Að- spurður hvað væri minnisstæðast um Baldur nefnir Grímur fyrst af öllu snertinguna. „Baldur hafði sérstakan hátt á að þakka okkur fyrir vel unnin störf, hafði til dæmis þann vana þeg- ar hann mætti á morgnana og mest var að gera að ganga inn í prentsal, taka þétt í hnakkadrambið á okkur, hrista svolítið og segja: „Vel gert.“ Hann kunni kúnstina að snerta.“ Fæddur leiðtogi Gunnhildur Arnardóttir starfaði í Odda á árunum 1971 til 1986, þar af í ellefu ár með Baldri. Hún er með meistaragráðu í stjórnun og rekur nú eigið fyrirtæki, HR Monitor. „Baldur var sterkur stjórnandi og mjög lær- dómsríkt, gagnlegt og gaman að vinna með honum. Hann hafði lifandi áhuga á starfsmönnum sem mann- eskjum og bar virðingu fyrir þeim. Ef stjórnendur hjá honum fipuðust tók hann þá gjarnan í ísbíltúr og þegar þeir komu til baka hafði kúrsinn verið leiðréttur og fókusinn skerptur. Það var enginn skilinn eftir í vindinum heldur var alltaf horft fram á veginn, markmiðin skýr og fyrirtækinu stýrt styrkri hendi. Og umfram allt voru starfsmenn með í ráðum eins og hægt var.“ Gunnhildur minnist þess að þegar ný verkefni komu inn í fyr- irtækið þá útbjó Baldur A4 blað þar sem verkinu var lýst og síðan fylgdi þetta blað verkinu í allar deildir. Að verklokum var sest niður og rýnt í hvað fór vel og strax dreginn lær- dómur af því hvað hefði mátt betur fara. „Þarna var Baldur á undan sinni samtíð. Hann hafði það sem nú er verið að kenna í háskólum,“ segir Gunnhildur. Í honum var bæði gull og grjót Baldur gekk að eiga Sigríði Þor- geirsdóttur og eignuðust þau fimm börn en þau eru Þorgeir, Eyþór, Hildur, Hilmar og Sólveig. Sigríður var tvíburasystir Guðrúnar sem gift- ist Vilhjálmi, eldri bróður Baldurs. Jódís, tengdamóðir þeirra bræðra, var sögð mikill mannþekkjari og lét hafa eftir sér um Baldur: „Í honum er bæði gull og grjót“ sem er ágætis mannlýsing. Baldur þótti gull af manni og hafði góða nærveru og ríkt skopskyn, en hafði líka til að bera hörku þegar á þurfti að halda. Snemma víðsýnn og klókur Saga er sögð af Baldri þegar Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, fór þess á leit við Odda að prenta rit fé- lagsins. Styrmir Gunnarsson, sem starfaði ötullega fyrir Vöku á náms- árum sínum í HÍ, segir svo frá: „Í kringum 1960 var pólitíkin miklu harðari en hún er í dag. Við litum á alla sem ekki voru sammála okkur í pólitík sem fjandmenn. Við vissum að Baldur var krati og hafði mikil sam- skipti við Alþýðuflokkinn. Mér fannst mjög skrýtið þegar ég kom inn í starf Vöku að félagið skyldi vera í við- skiptum við þennan mann. Við ungu mennirnir vorum fullir af pólitísku hatri en Baldur greiddi götu okkar á allan hátt. Sjálfstæðisflokkurinn var á þessum tíma kominn í samstarf við Alþýðuflokkinn en við, krakkarnir í Sjálfstæðisflokknum, vorum full grunsemda. Þess vegna var það op- inberun fyrir okkur að Baldur skyldi taka okkur svona vel. Baldur hefur greinilega ekki verið jafn þröngsýnn og við,“ segir Styrmir. Þessi orð eru sennilega til marks um klókindi Bald- urs því eflaust sá hann í þessum ungu mönnum framtíðaráhrifamenn í ís- lensku þjóðlífi sem betra væri að eiga að vinum en fjandmönnum. Hugmyndin að Odda fæðist Baldur var ástríðufullur jafn- aðarmaður alla tíð og umhugað um að hinir efnaminni gætu notið bóka til jafns við aðra. Hann starfaði töluvert innan Alþýðuflokksins en þar kynnt- ist hann Finnboga Rúti Valdimars- syni og saman stofnuðu þeir Prent- smiðjuna Odda. Finnbogi hafði verið ritstjóri Alþýðublaðsins á mekt- arárum þess en var á þessum tíma orðinn framkvæmdastjóri Menning- ar- og fræðslusambands alþýðu og hugði á bókaútgáfu. Þar fóru hags- munir Baldurs og Finnboga saman. Finnbogi Rútur hafði kynnst Ás- mundi Sveinssyni myndhöggvara á námsárum þeirra í París og í húsnæði Ásmundar við Freyjugötu var stofn- fundur Prentsmiðjunnar Odda hald- inn hinn 9. október 1943 þegar ljóst var að prentvélar sem Finnbogi hafði pantað frá útlöndum næðust til lands- ins, þrátt fyrir höft á innflutningi sem þá ríktu. Ásmundur lét síðan eftir hluta af vinnustofu sinni til verksins og þar var prentsmiðjan starfrækt fyrsta árið. Þá flutti hún að Grett- isgötu 16 þar sem hún var til húsa næstu 24 árin eða þar til flutt var á Bræðraborgarstíg 7 árið 1968 þar sem prentsmiðjan var starfrækt til ársins 1981. Þá hafði verið ráðist í byggingu sérhannaðs húsnæðis fyrir prentsmiðjurekstur að Höfðabakka 7 þar sem fyrirtækið er enn til húsa. Fyrsta skóflustungan var tekin í ágúst 1979 og húsið var risið 20 mán- uðum síðar. Baldur náði að fylgja prentsmiðjunni á nýjan stað en hann lést í ágúst árið 1982. Oddi nær forskoti Framsýni Odda gerði fyrirtækinu kleift að halda forskoti nánast alla tíð. Forverar tölvunnar voru gagna- vinnsluvélar en þær ruddu sér til rúms snemma á sjötta áratugnum og stjórnendur eygðu möguleikana sem í þessari tækni fólust. Vélakosturinn til að framleiða tölvupappír var upp- færður mjög ört sem aftur átti ríkan þátt í að gera Odda að stærstu og full- komnustu prentsmiðju landsins. Enn ein tækninýjungin var inn- leidd á síðari hluta áttunda áratug- arins þegar tölvur tóku við af setning- arvélum. Oddi var í fararbroddi sem fyrr og forysta fyrirtækisins jókst enn. Þorgeir, sonur Baldurs, starfaði við hlið föður síns frá því á sjöunda áratugnum og tók við starfi hans þeg- ar Baldur lést. Líkt og önnur fyr- irtæki á Íslandi gekk Prentsmiðjan Oddi í gegnum margar efnahags- kreppur og gengissveiflur. Á árunum 2005-2008 var fjárfest í prentiðn- aðarfyrirtækjum í þremur Austur- Evrópuríkjum. Rekstur þessara fyr- irrækja, auk rekstursins á Íslandi, gekk að óskum en hrunið 2008 hafði sín áhrif og þegar stuðningur frá bankastofnunum var ekki lengur til staðar horfðust stjórnendur og hlut- hafar í augu við samdrátt. Í dag er fyrirtækið enn á ný orðið öflugasta prentiðnaðar- og umbúðafyrirtæki landsins með nýjum hluthöfum sem hafa styrkt það og eflt. Sólveig Baldursdóttir. Málverk Einar Hákonarson málaði myndina eftir ljósmynd frá 1975. Á Höfðabakka Baldur á tali við Viðar Þorsteinsson, starfsmann Odda til áratuga, skömmu eftir flutninga. Í baksýn er Björgvin Benediktsson sem var einn af stofnendum prentsmiðjunnar. Baldur Eyþórsson í Odda 100 ára Oddi við Bræðraborgarstíg Síðasta myndin sem tekin var af starfsmönnum Odda áður en fyrir- tækið var flutt upp að Höfðabakka. Baldur og Þorgeir sonur hans standa lengst til vinstri. Kvöldverðarboð Hátíðarkvöldverður í tilefni af stofnun Prentsmiðjunnar. Baldur, lengst til hægri, og Sigríður eig- inkona hans. Bróðir Baldurs, Vilhjálmur, 3. f.v., og Guðrún, eiginkona hans og tvíburasystir Sigríðar, við hlið hans.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.