Morgunblaðið - 31.05.2017, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 31.05.2017, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 Auðun Georg Ólafsson audun@mbl.is Hvað réði kaupunum á K100, hvers vegna réðst Árvakur í útvarps- rekstur? „Það var vilji hjá stjórn Árvak- urs að víkka út starfsemina og bjóða upp á meira úrval af fjöl- miðlum sem fyrirtækið rekur,“ segir Magnús. „Útvarp hefur hald- ið sínum hlut í síbreytilegu um- hverfi fjölmiðlunar og K100 og einnig útvarpsstöðin Retro, sem fylgdi með í kaupunum, var spenn- andi kostur. Við sáum tækifæri á að nýta mannauðinn á K100 og hjá okkur hjá Árvakri til að byggja upp og gera góðar útvarpsstöðvar enn betri. Við búum meðal annars að því að reka stærstu fréttastofu landsins og þekkingu og getu til að bjóða upp á vandaðan fréttaflutn- ing og umræðu um málefni líðandi stundar.“ Lifandi útvarpsstöð á vef og í snjallsíma Tæknin er í örri þróun og mörk- in verða æ óskýrari á milli dag- blaðs, vefs, sjónvarps og útvarps. „Það eru spennandi tímar í fjöl- miðlum í dag þar sem þróunin er ör,“ segir Magnús. Mörkin á milli hvar hver fjölmiðill er skilgreindur eru mjög breytileg. Við þekkjum það hér á Morgunblaðinu að dag- blað er ekki alveg eins framreitt og það var fyrir örfáum árum. Auðvit- að er alltaf hægt að lesa það á pappír, sem margir kjósa, en nú er einnig hægt að lesa Morgunblaðið í spjaldtölvu. Eins verður á næstu dögum hægt að nota síma og spjaldtölvur til að hlusta á valið efni úr Morgunblaðinu lesið upp. Með aukinni tækni er sjónvarp að verða sífellt snjallara. Útvarpi er ekki lengur bara dreift á FM- bylgjulengd. Einnig má finna út- varp á vefnum og í snjallsímum. Sérstaða K100 er að um er að ræða fyrstu útvarpsstöðina á Íslandi sem verður „útvarp í mynd“. Hægt verður að horfa á útsendingu stöðvarinnar bæði á netinu, á mbl.is og í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans. Slíkt býður upp á gagnvirkari tengsl við hlustendur og áhorfendur en áður hafa þekkst í íslenskum fjölmiðlum.“ Hver er sérstaða K100? „K100 er þekkt fyrir góða tónlist og svo verður áfram,“ segir Magn- ús. „En útvarp er einnig fólkið sem starfar við það. Liðsmenn K100 eru frábært fólk sem er tilbúið að leggja allt í sölurnar til að búa til skemmtilega, líflega en jafnframt fræðandi og upplýsandi dagskrá. Öflugt og reynslumikið dag- skrárgerðarfólk og fréttamenn hafa síðan bæst í hópinn sem munu gefa stöðinni aukna dýpt og reynslu. Fréttir verða sagðar á klukkutíma fresti á virkum dögum frá stærstu fréttastofu landsins, sem nýtur virðingar og trausts. Sérstaða okkar byggist á því að við erum fyrsta alvöru „lifandi“ út- varpsstöðin á Íslandi sem er bæði í hljóð og mynd; á vef, í sjónvarpi, í snjallsímanum og í hefðbundnum útvarpstækjum. Hægt er að horfa á það sem fram fer í stúdíói K100; horfa á myndbönd af lögum sem leikin eru, viðtöl og á fréttir og dagskrárgerðarfólk sem kryfur málefni líðandi stundar til mergjar. Þetta gerir K100 að nútímalegri stöð með puttann á púlsinum, þátt- takanda í samfélaginu og leiðandi í upplýsandi en jafnframt skemmti- legri umræðu í beinum tengslum við áhorfendur og hlustendur.“ Gagnvirkari tengsl við hlustendur og áhorfendur en áður hefur þekkst Árvakur hf., útgefandi Morgunblaðsins og mbl.is, festi nýverið kaup á útvarpstöðinni K100. Magnús E. Kristjánsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Árvakurs, gegnir jafnframt stöðu útvarpsstjóra á K100. Hann hefur víðtæka reynslu af rekstri fjölmiðla og starfaði meðal annars um árabil sem einn af framkvæmdastjórum Íslenska útvarpsfélagsins. Morgunblaðið/Golli „Lifandi“ útvarpsstöð Magnús E. Kristjánsson, útvarpsstjóri K100. „Við sáum tækifæri á að nýta mannauðinn á K100 og hjá Árvakri til að byggja upp og gera góðar útvarpsstöðvar enn betri. Við búum meðal annars að því að reka stærstu fréttastofu landsins,“ segir Magnús. K100 í sjónvarpi, á vefnum og í útvarpi Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Hönnun fyrir lífið Besta vörumerkið í Þýskalandi 2015 Góð hönnun á ekki aðeins við umútlit hlutar, heldur einnig upplifun notandans á honum. Nýju innbyggðu eldhústækin fráMiele eru hönnuðmeð þessa hugmyndafræði í huga. Tækin passa öll fullkomlega saman hvað varðar útlit, áferð og virkni. Líttu við hjá okkur og fáðu tilboð í eldhústækin og innréttinguna og tryggðu þér raunveruleg gæði á réttu verði. Hönnun og ráðgjöf á staðnum. best brands IIIJ­lillr 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.