Morgunblaðið - 31.05.2017, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 31.05.2017, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 Auðun Georg Ólafsson audun@mbl.is Sigurður hefur leitt innleiðingu myndræns útvarps á K100 ásamt tæknimönnum Árvakurs. „Við sem útvarpsstöð þurfum að koma okkur á framfæri til fólks og nýta til þess allar þær boðleiðir sem bjóðast. Út úr þessari hugsun verður til hjá okk- ur sú hugmynd að vera með útvarp í sjónvarpi. Það hefur verið reynt áð- ur á Íslandi að vera með sjónvarps- þætti sem hafa verið sendir út í út- varpi en við tökum allt aðra nálgun á þetta. Hljóðið hjá okkur er alltaf númer eitt og svo kemur myndin. Með þessu verður hægt að hlusta og horfa á K100 í gamla góða útvarp- inu; í gamla góða sjónvarpinu, í tölv- unni, í spjaldtölvunni og í símanum. Við erum semsagt að stíga næsta skref í miðlun útvarps. Við erum að búa til nýja kynslóð af útvarpi.“ Myndrænt útvarp „Hugmyndin að því að breyta K100 í sjónvarp og margmiðl- unarstöð kemur frá Hollandi, bæði frá ríkisútvarpinu þar í landi og frá stöðinni Radio538. Þeir hafa verið að gera þetta í yfir áratug með góðum árangri. Við settum okkur í sam- band við þarlenda sérfræðinga og fengum þá til að hanna með okkur myndrænt útvarp hér á Íslandi. Fólk hefur áður séð myndbönd úr hljóðveri en þarna erum við að gera allt aðra hluti. Við erum að senda út sjónvarpsstraum úr útvarpinu hverja einustu sekúndu, allan sólar- hringinn,“ segir Sigurður og hlær þegar hann er spurður hvort dag- skrárgerðarfólk sé alltaf í mynd á meðan lag er leikið. Á meðan lögin eru í loftinu þá ertu ekki að horfa á dagskrárgerðarfólkið humma og tralla eða bora í nefið heldur sýnum við myndbönd við lögin sem við er- um að spila hverju sinni,“ segir Sig- urður. Ég lofa að þetta verður eitt- hvað sem enginn hefur séð hér á landi áður. Með þessu erum við að búa til nýja upplifun fyrir hlust- endur og áhorfendur. Einnig verða viðtöl og annað efni aðgengilegt, bæði í hljóðformi og í myndformi á vefnum okkar eftir útsendingu, sem gerir það að verkum að hægt verður að deila því áfram á samfélagsmiðla með auðveldum hætti. Við lítum þess vegna ekki lengur á K100 sem gamla og góða útvarpsstöð heldur er K100 orðið að margmiðlunarvöru- merki og jafnvel er hætt að tala um útvarp. Farsíminn er hvorki útvarp né sjónvarp. Hann er einhvern veg- inn „allt“. Það sem við viljum að neytandinn geti gert er annaðhvort að hlusta á hljóðið, horfa á myndina eða lesa efnið okkar á heimasíðu okkar.“ Nýjasta tækni Útsendingarkerfið á K100 er al- gjörlega sjálfvirkt þar sem manns- höndin þarf aldrei að koma að. Fjór- ar myndavélar eru tengdar við hljóðnemana í hljóðverinu. Skipt er sjálfvirkt á milli sjónarhorna eftir því í hvaða hljóðnema er verið að tala. Sigurður segir upplifunina vera þá sömu og ef útsendingarstjórn væri á bak við. „Tækjabúnaðurinn er sá fullkomnasti sem völ er á og er sérstaklega sniðinn fyrir útvarps- stöðvar sem eru að taka þetta skref, eins og við erum að gera. Þetta hef- ur verið draumur okkar K100-liða í mörg ár. Við höfum skoðað margar lausnir og setið fjölda funda um þetta mál. Loksins er þetta að verða að veruleika. Undirbúningur hefur staðið yfir í marga mánuði. Við erum með einvala lið tæknifólks hér inn- anhúss sem hefur lagt nótt við nýtan dag að tengja allt sem þarf að tengja svo allt gangi hnökralaust fyrir sig. En af því við erum á Íslandi þá er að sjálfsögðu allt á síðustu stundu,“ segir Siggi og hlær. „Á nýrri fjölmiðlaöld, sem sumir hafa nefnt „tíma skjásins“ þar sem flestir nú til dags eru með snjallsíma í vasanum, þýðir ekki lengur fyrir fjölmiðla að binda sig við eitt útgáfuform. Þróunin er sú að fjölmiðlar þurfa að dreifa efni sínu víðar en þeir voru kannski upphaflega stofnaðir til,“ segir Sigurður Þorri Gunnarsson, tónlistarstjóri og dagskrárgerðarmaður á K100 sem jafn- framt er með meistaragráðu í útvarpsfræðum frá háskólanum í Sunderland í Bretlandi. Morgunblaðið/Golli Nýjung „Við erum að búa til nýja kynslóð af útvarpi,“ segir Sigurður Þorri Gunnarsson, tónlistarstjóri og dagskrárgerðarmaður á K100. Ný margmiðlunartækni á K100 Morgunblaðið/Golli Tækni Smári Baldursson og Björn Thors vinna að uppsetningu nýja útsendingakerfisins með Sigurði Gunnarssyni . Bylting í íslensku útvarpi Útsendingartækni á K100 sú fullkomnasta sem völ er á Nýtt myndrænt útvarp K100 (Visual Radio) er hið fyrsta hér á landi þar sem sent er út samtímis í útvarpi, sjónvarpi og á vefnum. Myndrænt útvarp felst í því að öll dagskrá stöðvarinnar fær á sig lifandi blæ. Tónlistarmyndbönd eru sýnd samhliða þeirri tónlist sem leikin er á K100.is. Útsendinguna er hægt að sjá á mbl.is, k100.is og á rás 30 í Sjónvarpi Símans auk þess sem hægt er að sjá viðtöl og annað dagskrárefni í beinni á milli laga. Myndavélarnar í hljóðveri K100 eru tengdar við hljóðnemana sem stýra því hverjir eru í mynd hverju sinni. Sjálfvirknin og tæknin gera að verkum að myndræna útsendingin verður eins og sjónvarpsþáttur. Útsendingarkerfið er sérstaklega sniðið fyrir K100 og er algjörlega sjálfvirkt. Viðtöl og annað efni er aðgengilegt í hljóð- og myndformi á vef eft- ir útsendingu, og auðvelt er að dreifa því áfram á samfélagsmiðla. Öll dagskrá í beinni útsendingu er aðgengileg í snjallsímum, tölvum og hefðbundnum sjónvarps- og útvarpstækjum. audun@mbl.is kranar & talíur STAHL kranar og talíur frá Þýskalandi eru áreiðanlegir vinnuþjarkar sem auðvelda alla vinnu. Kranarnir og talíurnar eru í hæsta gæðaflokki þar sem öryggi og góð ending eru höfð að leiðarljósi. Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.