Morgunblaðið - 31.05.2017, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
Í samvinnu við ritstjórn mbl.is og
Morgunblaðsins eru nú fréttir
fluttar á klukkutíma fresti á K100,
FM100,5 alla virka daga, frá
klukkan sjö á morgnana til sex
síðdegis. „Á ritstjórn Morgun-
blaðsins og mbl.is starfa hátt í 70
þaulreyndir blaða- og fréttamenn
með víðtæka reynslu sem njóta
virðingar og trausts,“ segir Har-
aldur Johannessen, ritstjóri Morg-
unblaðsins. „Frá upphafi hefur
Morgunblaðið verið leiðandi í að
nálgast lesendur eftir því sem
tækninni hefur fleygt fram. Mbl.is
fór í loftið þann 2. febrúar árið
1998 og hefur síðan þá verið vin-
sælasti vefur landsins. Prentút-
gáfa Morgunblaðsins er aðgengi-
leg í tölvum og spjaldtölvum og
senn verður snjallforrit aðgengi-
legt þar sem hægt verður að
heyra blaðið lesið upphátt. Það er
ánægjulegt að geta bætt við út-
varpsfréttum á K100 sem einnig
eru sendar út í sjónvarpi og á
vefnum. Þannig náum við að nýta
allar þær boðleiðir sem bjóðast til
að miðla fréttaefni okkar beint til
hlustenda, áhorfenda og lesenda.“
Svali Kaldalóns, dagskrárstjóri
K100, fagnar því að fréttir hljóma
nú á stöðinni. „Við erum mjög
ánægð að fá öflugustu ritstjórn
landsins til liðs við okkur sem
mun styrkja og efla stöðina til
muna,“ segir Svali.
Auðun Georg Ólafsson, frétta-
stjóri á K100, flytur fréttirnar
ásamt Sigríði Elvu Vilhjálms-
dóttur, fréttamanni. Auðun segir
að fréttir á K100 séu ekki bara
upplýsandi og hnitmiðaðar heldur
einnig vandaðar og traustar í takt
við það sem fólk á að venjast frá
Morgunblaðinu og mbl.is. „Við
höldum fólki upplýstu um öll
stærstu mál líðandi stundar. K100
er kraftmikil og lífleg tónlist-
arstöð. Fréttirnar hjá okkur eru
líka líflegar og kraftmiklar en
jafnframt innihaldsríkar og traust-
ar frá öflugustu og stærstu rit-
stjórn landsins.“
Fréttir í sjónvarpi, á vefnum og í útvarpi
Morgunblaðið/Golli
Ritstjórnin Fréttir á K100 eru nú á heila tímanum, frá klukkan 7 á morgnana til klukkan 18 síðdegis, alla virka daga. Fjöldi manns kemur að framleiðslu fréttanna á hverjum degi.
Fréttir Morgunblaðsins og mbl.is á K100
Útvarpsfréttir bætast nú við
fjölbreytta þjónustu Árvakurs
Morgunblaðið/Golli
Framlínan Auðun Georg Ólafsson, fréttastjóri á K100, og Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir, fréttamaður á K100.
Sendu okkur fimm toppa af Merrild umbúðum og þú gætir
unnið gjafabréf fyrir utanlandsferð að upphæð 100.000 kr.
Að auki verða dregnar út 10 kaffikörfur á tímabilinu.
Dregið verður í júní, júlí og ágúst.
Gildir fyrir alla Merrild pakka.
Toppar af öllum Merrild umbúðum gilda. Þátttökuumslög er að
finna í öllum verslunum. Úrslit verða birt á Facebook-síðu Merrild
á Íslandi, og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um leikinn.