Morgunblaðið - 31.05.2017, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
• AMT eru hágæða pönnur úr 9 mm þykku áli
• Allar pönnur mega fara inn í ofn við allt að 240° hita
• 3 ára ábyrgð á verpingu
• Ný byltingakennd viðloðunarfrí húð sem
er sterkari en Teflon og án eiturefna
• Nothæf fyrir allar eldavélar
• Má setja í
uppþvottavél
• Kokkalands-
liðið notar
AMT potta
og pönnur
Úlfar Finnbjörnsson
notar AMT potta og pönnur
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið
Þýskar hágæða pönnur frá AMT
Ný sending
WORLD’S
BESTPAN
„
“
THE
* “The world‘s best pan” according to VKD, largest German Chefs Association
*
Íshúsið ehf ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur
viftur.is
-andaðuléttar
hljóðlátu baðvifturnar
Stundum þarf maður
bara smá frið
Á annað hundrað manns tók þátt í
risa björgunaræfingu sem haldin
var á Faxaflóanum síðdegis á
sunnudag. Að æfingunni stóðu
hvalaskoðunarfyrirtækin Special
Tours og Elding, auk Slysavarna-
félagsins Landsbjargar. Þrjú
hvalaskoðunarskip frá Special
Tours, eitt frá Eldingu, tíu slöngu-
bátar og tvö skip Landsbjargar
tóku þátt í æfingunni.
Að sögn Hilmars Stefánssonar,
framkvæmdastjóra Special Tours,
gekk æfingin vel fyrir sig en hún
var sett þannig upp að tvö skip
áttu að hafa lent í árekstri og það
þriðja sem er á leið á slysstað til
þess að bjarga farþegum skipanna
tveggja verður vélarvana.
Þúsund manns á
hverjum degi
„Skipin voru rýmd og björg-
unarbátar blásnir upp sem fólk fór
um borð í yfir í önnur skip,“ sagði
Hilmar í samtali við 200 mílur.
Um þúsund manns fara í hvala-
skoðun frá Reykjavík hvern ein-
asta dag og því er mikilvægt að
hvalaskoðunarfyrirtækin séu búin
að æfa viðbragð ef slys á sér stað.
„Við æfum reglulega til þess að
vera viðbúin ef eitthvað kemur
upp á. En þessi æfing var meiri
en hefðbundnar æfingar. Við
ákváðum að æfa saman þar sem
þessi skip eru á svipuðum slóðum
úti á Flóanum. Það hentaði vel að
skipin æfðu saman því þetta snýst
um að vera með öll viðbrögð í lagi,
fara yfir hlutina þannig að allir
kunni sín hlutverk.“
Með stærstu æfingum flokka
Ómar Örn Aðalsteinsson, hjá
björgunarsveit Hafnarfjarðar og í
æfingastjórn björgunarsveitanna,
sagði að á annað hundrað manns
hefðu tekið þátt í æfingunni, sem
sé ein sú stærsta sem bátaflokkar
á svæði eitt hafa tekið þátt í.
„Það voru um 60 sjúklingar um
borð í skipunum og 45 björg-
unarmenn frá höfuðborgarsvæðinu
og Reykjanesi.“
Ómar sagði þá að björg-
unarsveitirnar reyni að æfa með
hvalaskoðunarskipunum á um það
bil árs fresti enda fari mikill fjöldi
út á hverjum einasta degi í ferðir
á vegum fyrirtækjanna.
„Þetta er með stærri æfingum
sem við erum að halda og er part-
ur af samhæfingu bátaflokka á
svæði eitt,“ segir Ómar. Æfingin
hafi gengið vel en núna í fram-
haldinu verði fundað um hvað
megi gera til að bæta viðbragð
enn frekar.
Stór björgunaræfing á Faxaflóa
Ljósmynd/Guðjón Valgeirsson
Á siglingu Fjögur hvalaskoðunarskip tóku þátt auk tíu slöngubáta.
Fyrstu erlendu skúturnar eru byrj-
aðar að koma til Ísafjarðar þetta sum-
arið en þær eru ýmist á leið til Græn-
lands og Noregs eða eru við siglingar
um Jökulfirði, Hornstrandir, Ísafjarð-
ardjúp eða annars staðar við Íslands-
strendur.
Guðmundur Kristjánsson, hafn-
arstjóri Ísafjarðarhafnar, segir einmitt
að óvenjulega margar skútur hafi ver-
ið á leið til siglinga við Ísland en ekki í
millilandasiglingum af þeim sem hafa
stoppað í höfninni það sem af er sumri.
Aðstaðan bætt í höfninni
„Ég held að það megi segja að það
sé aukning í þessu,“ segir Guðmundur
en mest er um skútukomur frá júní til
ágústloka. „Við erum að bæta aðstöð-
una í innri höfninni fyrir móttöku á
skútum,“ segir Guðmundur, til bæði
styttri og lengri tíma, en einhverjar
skútur eru geymdar á Ísafirði yfir vet-
urinn, ýmist á sjó eða landi.
Guðmundur segir að skútum heima-
manna hafi einnig fjölgað nokkuð á
undanförnum árum.
Skúturnar eru þó ekki eini vorboði
Ísfirðinga, en fjöldi skemmtiferðaskipa
kemur til Ísafjarðar ár hvert og er
mikil fjölgun í ár frá því í fyrra.
„Það eru 106 skemmtiferðaskip
áætluð í sumar, sem er aukning úr 82
skipum í fyrra,“ segir Guðmundur.
„Við segjum samt að fiskveiðar séu
það sem við lifum á,“ bætir hann við
léttur í bragði.
Sjá um þjónustu frá A til Ö
Að sögn Guðmundar hafa tekjur af
skemmtiferðaskipunum verið vaxandi
þáttur í starfsemi hafnarinnar. Mikið
líf sé þá í bænum vegna skemmti-
ferðaskipanna. „Við erum heppin að
ferðaþjónustuaðilar hér í bænum sjá
um þjónustu við skemmtiferðaskipin
frá A til Ö,“ segir Guðmundur.
ash@mbl.is
Skútum fjölgar í
Ísafjarðarhöfn
● Skemmtiferðaskip
og skútur boða
komu sumarsins
Fley Skútan Bella Donna er í eigu eins heimamanna að sögn Guðmundar.
Innlendum og erlendum skútum hefur fjölgað nokkuð á Ísafirði síðustu ár.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ferðalag Búist er við 106 skemmtiferðaskipum til Ísafjarðar og fjölgar
þeim frá síðasta ári. Guðmundur segir fiskveiðar þó lifibrauð bæjarbúa.
Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson
Líf Guðmundur M. Kristjánsson,
hafnarstjóri Ísafjarðarhafnar, segir
mikið líf í bænum vegna skipanna.
Allt um sjávarútveg