Morgunblaðið - 31.05.2017, Page 58
1 bolli heilhveiti
1 bolli haframjöl
1 vel þroskaður banani
1 bolli fersk hindber (ef
nota á frosin fara þau
með í blandarann)
2-3 msk. hindberja- og
granateplasulta án við-
bætts sykurs. Ég nota
þessa frönsku í háu
krukkunum. Það má vel
nota bara hindberja-
sultu.
1 vel þroskaður banani
1 bolli nýmjólk
1 stórt egg
¼ tsk. salt
2 tsk. matarsódi
kókosolía
Til að toppa með:
Grísk jógúrt
Granateplakjarnar
Fersk ber svo sem hind-
ber, jarðarber, bláber
eða kirsuber
Setjið eggið, af-
hýdda banana, hafra-
mjöl, heilhveiti,
mjólk, matarsóda og
salt í blandara og
blandið vel. Hrærið
fersku berjunum var-
lega við með sleif. At-
hugið að deigið er
nokkuð þykkt.
Setjið smá kókos-
olíu í vöfflujárnið og
hellið svo deiginu í.
Berið fram með
grískri jógúrt, berj-
um og granatepla-
kjörnum. Ekki er
verra að hafa sultu
með og heimagert
granóla. tobba@mbl.is
Hollar vöfflur með hind-
berjum og granateplum
Helgargúmmelaði
Dóttir mín elskar
þessar vöfflur og ef
það er afgangur fer
hann í frystinn og
svo í brauðristina.
Hollur og staðgóður morgunverður með dásamlegum
berjum, próteinríkum höfrum og jógúrt. Börnin elska
þessa snilld og jafnvel geðvondir nágrannar missa
fram bros. Það er tilvalið að toppa vöfflurnar með
kirsuberjum sem fást nú víða.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017
Nautið Fyrir 4
800 g nautalund í góðum bitum
4 msk. smjör
1 msk. ferskt timjan
2 stönglar ferskt rósmarín
½ tsk. svartur pipar
6 hvítlauksrif, hvert rif skorið í þrennt
sous-vide græja
sokanlegir pokar
sjávarsalt
Ath. ekki setja saltið í pokann! Það dregur vatnið úr kjötinu
og gerir það þurrt. Saltið aðeins þegar grillað er.
1. Setjið nautakjötið í poka með öllum hinum hráefn-
unum og setjið í pott/bala með heitu vatni. Athugið að
vatnið þarf að hafa náð kjörhita til að sous-vide græjan
byrji að telja niður og því er gott að setja heitt vatn beint
til að þetta taki ekki lengri tíma. Passið þó að setja pokann
ekki ofan í fyrr en kjörhitastig hefur náðst.
Stillið græjuna á 54 gráður í tvo tíma.
2. Takið kjötið úr pokanum og skellið á sjóðheitt grill
rétt til að brúna það. Sirka tvær mínútur á hvorri hlið og
saltið.
Berið fram með bakaðri kartöflu, grilluðu eggaldin og
sósu að eigin vali.
Grillað eggaldin
Fyrir 4
2 væn eggaldin, þvegin
ólífuolía
parmesansalt eða annað gott salt
pipar
Penslið eggaldinið duglega með olíu og saltið og piprið.
Grillið á hvorri hlið uns það er meyrt. tobba@mbl.is
Nautalund
á mýksta
mátann
Hér kemur einföld en skotheld uppskrift að
góðri nautalund sous-vide. Eggaldinið er
ákaflega gott með og svo mælum við með
bakaðri kartöflu og kaldri sósu og það má
vel kaupa hana tilbúna.
Morgunblaðið/Tobba Marinós
Sérlega meyrt
Sous-vide eldunin
kemur í veg fyrir að
kjötið ofeldist og
þorni.
Beint á grillið Gott er að
rífa ferskan parmesan yf-
ir eggaldinið áður en bor-
ið er á borð.
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell keramik hitarar sem
blása hita allt í kring.
Úrval af hiturum
frá Honeywell