Morgunblaðið - 31.05.2017, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 31.05.2017, Qupperneq 62
62 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 2017 FERÐALÖG Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.is „Lundinn er okkar þjóðarfugl, að minnsta kosti ef marka má allar túr- istabúðirnar sem hafa sprottið upp í Reykjavík og víðar, og nú gefst ferða- mönnum tækifæri til að kynnast þessum fallega og stórskemmtilega fugli og snorkla með honum í Gríms- ey, ævintýraeyjunni við heimskauts- baug,“ segir Halla Ingólfsdóttir, ferðamálafræðingur, leiðsögukona og eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Trip. „Ástríða mín fyrir Grímsey og þeim sem þar búa varð kveikjan að stofnun fyrirtækisins fyrir tveimur árum. Ég hef áralanga reynslu af leiðsögn í og umhverfis Grímsey, eyjan er sannkölluð náttúruperla, þar er einstakt fuglalíf og heimamenn eru þekktir fyrir gestrisni og þjón- ustulund. Ég vildi gera ferðamönnum kleift að upplifa Grímsey með öðrum hætti en hægt hefur verið hingað til og komast í návígi við lundann, kynn- ast lífsháttum hans, kafa með honum og jafnvel ná að smella af honum flottri mynd í sjónum.“ Sigið eftir eggjum Halla leggur áherslu á að enda þótt lundinn sé aðalstjarnan í skipu- lögðum ferðum Arctic Trip út í Grímsey bjóði fyrirtækið upp á aðra afþreyingu og ferðir í og umhverfis eyjuna. „Í sumar förum við í reglu- legar bátsferðir hringinn í kringum Grímsey, þar sem ferðamenn geta til dæmis spreytt sig á sjóstangaveiði. Einnig verðum við með skemmtilegar og fróðlegar gönguferðir með leið- sögn um eyjuna, sérsniðnar að hverj- um og einum hóp. Leiðsögumenn eru langflestir heimamenn sem þekkja eyjuna og sögu hennar mjög vel.“ Hún bætir við að í maímánuði fari fram eggjatínsla í Grímsey sam- kvæmt gamalli hefð. „Þá síga reyndir sigmenn niður í björgin eftir bjarg- eggjum, eins og við köllum þau, en það eru svartfuglsegg til dæmis skeglu-, langvíu-, álku- og hringvíu- egg. Ferðamönnum gefst kostur á að upplifa það ævintýri með okkur, fylgjast með sigmönnum ofan af bjargbrúninni og gæða sér á eftir á ferskum eggjum, soðnum eða hráum.“ Kúnstir í kafi Síðastliðið sumar fór Arctic Trip með fyrstu ferðamennina í köfunar- og snorklferðir í Grímsey og vöktu þær mikla hrifningu, að sögn Höllu. „Við erum í góðu samstarfi við Er- lend Bogason og Gísla Arnar Guð- mundsson en þeir eru báðir atvinnu- kafarar og hafa mikla reynslu af köfun, meðal annars með ferðafólki. Við leggjum ríka áherslu á að gæta öryggis ferðamanna og starfsfólks og það er gríðarlegur styrkur fyrir fyrir- tækið að njóta leiðsagnar þeirra.“ Halla er spurð nánar út í köf- unar- og snorklferðirnar, hvað ferða- menn geti reiknað með að sjá og upp- lifa í sjónum? „Lundinn stelur alltaf senunni, þetta er svo krúttlegur og skemmtilegur fugl. Hann leikur listir sínar bæði ofan sjávar og neðan og er flinkur að kafa. Reyndar minna sund- tökin frekar á hlaup og það er óborg- anlegt að vera neðansjávar og fylgj- ast með lunda á „harðahlaupum“ í sjónum. Margir ferðamenn eru með góðar, vatnsheldar myndavélar og hafa náð af lundanum frábærum myndum.“ Nýjung hjá Arctic Trip í sumar er „Puffin Selfie“; Halla útskýrir: „Þá gefum við ferðamönnum kost á því að komast í návígi við fuglinn í bjarginu og taka af sér sjálfu „selfie“ með lunda. Við njótum aðstoðar atvinnu- manna sem sjá um að háfa fuglinn og vitaskuld er honum svo sleppt strax aftur. Eins og kunnugt er er leyfilegt að veiða lunda í Grímsey frá júl- íbyrjun og þangað til hann yfirgefur eyjuna um miðjan ágúst, en það er auðvitað ekki það sem vakir fyrir okkur. Það má líkja þessu við laxveið- ar þar sem laxinn er veiddur og hon- um sleppt og við gætum þess að fara mjúkum höndum um fuglinn. Við stefnum að því að fá leyfi til að merkja lunda í þessum ferðum og leggja þannig okkar af mörkum við rannsóknir á honum. Leiðandi stef hjá Arctic Trip er virðing fyrir um- hverfinu, hinu villta dýralífi og við- kvæmri náttúru Íslands. Því eru aldr- ei fleiri en 10 gestir í „selfie“-ferðunum og allir eru meðvit- aðir um að trufla fuglinn sem allra minnst.“ Vin í eyðimörk Arctic Trip býður upp á ferðir út í Grímsey árið um kring og er með bækistöðvar bæði þar og á Akureyri, að sögn Höllu. Sjálf hefur hún verið búsett nyrðra frá 14 ára aldri og seg- ist líta á sig sem Eyfirðing. „Ég hef starfað um árabil í ferðaþjónustu, unnið sem leiðsögumaður í Grímsey og í hvalaskoðun í Eyjafirði og var í mörg ár á Grímseyjarferjunni Sæ- fara ýmist sem kokkur, háseti eða þerna. Það lá beinast við að læra ferðamálafræði og þegar ég byrjaði að velta því fyrir mér að stofna mitt eigið fyrirtæki sá ég strax mikla möguleika í náttúruupplifun og æv- intýraferðamennsku í Grímsey. Þessi afskekkta eyja undir heim- skautsbaug, nyrsti oddi Íslands, hef- ur gríðarlega mikið aðdráttarafl og hún heillar þá sem þangað koma. Grímsey er einstakur staður þegar kemur að fuglalífi, klettaborgirnar á austurströndinnni rísa hæst eitt hundrað metra úr sjó og það er til- komumikil sjón að sigla þar um. Eyjan er sannkölluð vin í eyðimörk, Norður-Atlantshafinu, og björgin veita skjól þeim fjölmörgu sjófuglum sem þangað sækja. Auk lunda er þar til dæmis mikið um fýl, teistu, ritu, álku, langvíu og stuttnefju. Á þessu litla landsvæði má finna flesta þá vað-, mó- og sjófugla sem eiga sum- ardvöl á Íslandi og því er Grímsey frábær staður til fuglaskoðunar.“ www.arctictrip.is Á sundi með lunda Arctic Trip skipuleggur ævintýraferðir út í Grímsey þar sem gefst kostur á að snorkla með lunda og gæða sér á bjargeggjum. Grímsey er rómuð fyrir náttúrufegurð og fjölskrúðugt fuglalíf og á siglingu umhverfis eyjuna geta gestir spreytt sig á sjóstangaveiði. Básavík Stærsta lundabyggðin í Grímsey og vinsælasti staðurinn til að snorkla. Vinnugallinn Halla Ingólfsdóttir, eigandi Arctic Trip, hefur mikla ánægju af því að snorkla með lundanum. Undir sjávarborðinu er heill heimur. Lundi Fallegur og skemmtilegur fugl sem heillar ferðamenn yfirleitt upp úr skónum. LANGVIRK SÓLARVÖRN ÞOLIR SJÓ, SUNDOG LEIK www.evy.is Grunnformúlan er læknisfræðilega skráð. Engin paraben, engar nanóeindir, ilm- eða litarefni. NÝTT NAFN UVA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.